Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.04.1975, Side 8

Mánudagsblaðið - 07.04.1975, Side 8
ÚR HEIMS PRESSUNNI Perle Mesta látin Nýlega er látin í Okiahoma City Perle Mesta, fræg veislu- dama í Washington DC, millj óneri með meiru. Hún byrj- aði að halda stórar veislur í höfuðborginni og bauð þang- að frægasta fólki, og Harry Truman og Lyndon B. John- son urðu vinir hennar. Tru- man lék á píanó í veislu hjá henni og Eisenhower söng „Drink to me only with thine eyes“ fyrir gesti hennar. Hún var gerð að sendiherra í Lux- emborg, og um hana var Broadway-sýningin „Call me Madam“, þar sem Ethel Mer- man lék Mestu. Kvenráð- herran fíáinn Elizabeth Bagaya, fyrrver- andi fyrirsæta og um tíma utanríkisráðherra Uganda (og síðan rekin af Idí Amin fyrir ástaratlot við hvítan karl- mann á klósetti á Parísarflug velli) er nú flóttamaður í Kenya. Þar gaf hún út til- kynningu um að hún vildi segja sögu sína fyrir 42 þús- und dollara, en enginn vildi sjá hana. Nú hafa yfirvöld í Kenya sagt, að hún verði rek- in úr landi, því að þeir náðu henni frá Úganda með því skilyrði, að hún skipti sér ckki af pólitík og gerði ekk- ert til að móðga Amin for- seta. Aftur sjófær Eini kafbátur kínverja er knúinn kjarnorku. Hann hef- ur verið í viðgerð í um tvö ár, en er nú sjófær aftur. — Hann sást nýlega ofansjávar nálægt Kína. Ford vifí ekki lækka laun sín Þeir eru allir eins, pólitík- usarnir, þegar pyngjan er annars vegar. Ford forseti hefur neitað a. m. k. einum niðurskurði, en það er í laun- um hans sjálfs. Nokkrir af aðairáðgjöfum hans í fjár- málum, hafa stungið upp á því að hann minnkaði vilj- andi laun sín, sem era um 200 þúsund dollarar á ári, en forsetinn neitaði tiJlögunni á þeirri forsendu að hún væri „sýndarmennska“ ck:. ERFINGJAR ONASSIS: FÁHEYRÐAR SUMMUR Ekki er enn farið að deila arfinum eftir Onassis, en get- gátur eru á lofti um hvernig hann muni skiptast. Jaque- line Onassis ku fá litlar 125 milljónir dol'lara, plús tuttugu millj. dollara listaverkasafn, sem er m. a. eftir listamenn eins og E1 Greco, Van Gogh og Picasso. Dóttir hennar, Caroline, 17 ára, og sonurinn John F. Kennedy jr„ njóta góðs af 15 milljónum doll- ara sjóði, sem þau eignast að fuMu innan 14 ára. Ein sögu- sögn hermir að Maria Callas fái allt á milli einnar millj- ónar dollara og 200 milljóna, en eignir Onassis eru metnar á billjón dollara. En mestur hluti eigna hans fer til einu dóttur hans, Christinu, 24 ára, en bróðir hennar fórst í flugslysi fyrir tveimur árum. Sögurnar segja að Aristoteles Onassis hafi ánafnað henni alt að 800 milljónum dollara, sem gerir hana að einni af ríkustu kon- um heimsins. Hún hefur ver- ið að læra að stjórna þessum miklu eigum undanfarið og skuggi féll á vináttu hennar og Jackie. Sagt er að faðir hennar hafi fengið hana til að lofa Sér, á banabeði, að giftast öðrum skipakóngi og milljónaerfingja, Peter Goul- andris, og láta fyrsta son þeirra eignast allan arf eftir þau, „og ef faðir hennar vill að hún giftist honum, þá ger- ir hún það,“ segir nákunnug- ur. Onassis var minnst á þeim stöðum sem hann sótti mest, m. a. var „horninu hans Ari“ en það er sérstakt borð í næt- urklúbbnum E1 Morocco í New York, haldið auðu til minningar um hann, og einn- ig borði hans á Maxims í París. Milljónaeríingjarnir Jacque- Iine og börn hcnnar, — á dögum Kennedys forseta. Henry Ford fullur viB stýriB „Hann var reglulegur sjent- ilmaður, eins góður og hægt var,“ sagði þjóðvegalögreglu- þjónninn, eftir að Henry Ford, 57 ára eigandi Ford- verksmiðjanna, var tekinn fastur fyrir að aka vinstra megin á götu nálægt Santa Barbara í Californíu. Við hlið hans var hin rauðhærða og laglega Kathleen DuRoss, sýningardama fyrir Ford-fyrir tækið. (Kona Fords var við krýningu í Nepal.) Þegar Ford félil á edrúprófinu (hann var beðinn að þylja stafrófið) var hann færður á spítala til að blóðprufa yrði tekin af honum, og síðan var honum stungið í steininn fyrir að aka undir áfengisáhrifum. Eftir fjóra tíma þar, setti hann fyrir sig 375 dollara trygg- ingu og snéri aftur til Detroit og DuRoss með honum. Du- Ross er tveggja barna móöir, en eiginmaður hennar lést í bíilslysi fyrir 16 árum. Du- Ross hefur sést nokkrum sinnum með sama ítalska konsúlnum, sem hefur fylgt Christinu, konu Fords, þegar Henry hefur verið fjarstadd- ur. Það eina sem Ford sagði um atburðinn var: „Aldrei kvarta — aldrei skýra frá.“ Merle Oberon gift Flestir muna eftir hinni undurfögru leikkonu Merle Oberon, sem nú er 63 ára. Hún hefux nýlega gifst Ro- bert Wolders, 38 ára leikara, sem verið hefur stöðugur ferðafélagi hennar undanfarin ár, og lék aðalhlutverkið á móti henni í „Interval“ 1973. Þetta er fjórða hjónaband hennar, en giftingin var fram kvæmd með ítrustu leynd í Beverly Hills fyrir tveim mán uðum. Heyrt einhvern góBan nýlega? — Sendið hann þá til okkar úr EINU * ÍANNAD EKKI FENGUM við að sjá Lénharð fógeta í sjónvarpinu um páskana, eins og gefið hafði verið í skyn þegar ekkert varð af því að myndin yrði sýnd um jólin. Myndin virðist ætla að verða all erfið í klippingu og sjónvarpið löngu hætt að lofa nokkru um hvenær frumsýning verður. Þar sem þessi um- talaða mynd er mjög dýr í allri framleiðslu hyggst sjónvarp- ið bjóða hana erlendum sjónvarpsstöðvum og fá þannig nokkuð upp í kostnaðinn. En þar sem erlendir hafá litla hugmynd um sögu Lénharðs fógeta þarf að skíra myndina einhverju góðu nafni á erlenda tungu. Við höfum heyrt, að stungið hafi verið upp á nafninu „Sheriff Lenny" og muni þá myndin renna út þar sem menn álíti að hér séu um ekta „western" að ræða. ÞRÁTT FYRIR allt talið um sparnað á öllum sviðum í rík- isrekstrinum sá alþingi ekki ástæðu til að sleppa hinni ár- legu veislu fyrir þingmenn og starfslið þingsins. Sagt er að veislan hafi ekki kostað undir einni milljón króna og er þetta góð byrjun á niðurskurði ríkisútgjalda. Það er vonandi að þingmenn hafi skemmt sér vel í þessari veislu sem haldin var á kostnað almennings og auðvitað hefði það verið helber nánasarháttur að fara að rukka þessa menn fyrir matinn og sjússana. HIÐ NÝJA útvarpsráð hefur ekki starfað nema skamman tíma og því ekki komin nein reynsla á hvernig það kemur til með að standa sig. En það væri óskandi að hætt yrði að sýna í hverri viku sænskar „heimildarkvikmyndir" um á- standið í hinu og þessu Afríkuríkja. Vægast sagt eru mynd- ir þessar drepleiðinlegar og oftar en ekki gerðar á hlut- drægan hátt til þess að sætta almenning í Svíþjóð við þá ákvörðun Palme að ausa fé í Afríkuríki þar sem argasta eln- ræði er við ríki. ÞAR SEM bensíndropinn er orðinn alldýr, svo ekki sé meira sagt, og á eftir að hækka enn meir, hafa ýmsir velt því fyrir sér að fá sér reiðhjól til að ferðast á milli heimilis og vinnu- staðar. Telja menn sig þar með geta sparað stórfé með því að láta bílinn standa. Hins vegar er okkur tjáð, að góð reið- hjól fyrir fullorðna kosti nú um eða yfir þrjátíu þúsundir og það má þó aka talsverðan spotta fyrir þann pening. FÓSTUREYÐINGAFRUMVARPIÐ er nú talsvert til umræðu meðal almennings. Hæst láta rauðsokkar og þeirra fylgi- fiskar sem vilja afdráttarlausan „sjálfsákvörðunarrétt kon- unnar“ til þess að láta eyða fóstri. Þar eiga hvorki læknar né aðrir að hafa nein áhrif á. Það er engu líkara en þetta fólk viti ekki, að með öllum þeim fjölda getnaðarvarna sem nú eru á markaðnum er það algjörlega undir konunni kom- ið hvort húnn vill verða barnshafandi eða ekki. Næst verður sjálfsagt borin fram krafa um að móðir geti látið stytta ný- fæddu barni sínu aldur ef í Ijós kemur að það er ekki rétt skapað á allan hátt. Og hvað með allan þennan fjölda af gamalmennum sem liggja ósjálfbjarga á sjúkrahúsum og elliheimilum? Verður ekki bráðum talinn óþarfi að halda lífinu í þeim? MANNI NOKKRUM var neitað um frekari afgreiðslu á barn- um á þeim forsendum að hann væri orðinn of drukkinn. — Hvaða vitleysa, sagði maðurinn. Ég er bláedrú. Sjáðu bara köttinn sem er að koma inn um dyrnar. Hann hefur bara tvö augu svo ekki er ég farinn að sjá tvöfalt. — Þessi köttur er á leiðinni út, maður minn. TVEIR MENN hittust í Austurstræti fyrir skömmu og tóku tal saman. — Hvað myndir þú gera ef þú mundir vinna milljón í happ- drætti — Ég myndi kaupa mér sæmilegan bíl. — En ef þú fengir nú tvær milljónir? — Þá keypti ég Volvo. — Hvað þá ef þú fengir hæsta vinninginn í Háskólahapp- drættinu, níu milljónir — ha? — Ja — þá færi ég að borga eitthvað af ógreiddum sköttum, býst ég við. LOKSINS ER orðið hægt að fá iðnaðarmenn til smávið- gerða án þess að þurfa að bíða vikum saman. Og það sem meira er, margir þeirra setja nú bara það skilyrði að ekki nema helmingurinn af greiðslu til þeirra verði gefinn upp til skatts, en áður var yfirleitt ekki tekið í mál að snerta á verki nema ekkert væri gefið upp. d

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.