Tíminn - 22.02.1970, Síða 3
f" ' ■ ■ ■
SUNNHDAfJUR 22. febrfiaar 1970.
TÍZKÁN
Það rengir mig eflanst enginn,
þótt ég segi að Karnabær sé or'ð-
inn að stórveldi í tízkuheimi nngs
fólks á íslandi. Þetta litla „stór-
veldi“ er eins konar spegilmynd
af því, sem er að r ast úti í
hinum stóra poppheimi í dag. Um
daginn — það eru svona 10 dagar
síðan — skrapp ég niður í Karna-
bæ og hitti þar húsbónda staðar-
ins, Guðl mg Bergmann, og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar.
1. Hvað er að gerast i tízku-
heimi unga fólksins í dag?
Tízkuheimur unga fólksins er
fullur af nýjungum. Vorið er á
næsta leiti og nú þegar eru vor-
litimir komnir á markaðinn hjá
Ikvenfólkinu, dempaðir, mildir og
fallegir litir, (rauðleitt (sunpan-
red), grænt, lilla, hvítt, bleikt,
drapp). Alls konar nýjra-ngar eru
á ferðinni, sítt og stutt saman,
mikið um festar og men og jafn-
vel stór breið hálsmen, fast upp
að hálsinum. Síðir fcjólar við öll
tækifæri, jafnt og stuttir, en
„buxna-dressin“ eru orðin mjög
almenn í notkun. Síðar ikópur eru
næstum einráðar. svo og stutt
pils. Langir fclútar um háls, mitti
og handleggi o.m.fL
Hjá karlmönnunum eru^ breyt-
ingarinnar alitaf hægari. Úitsniðn-
ar buxur halda velli, þá er mikið
um uppbrot á buxum. Ný snið á
jö'kfcum, svokölluð „Safari“-snið.
Litir í skyrtum, fclútar ails konar,
breið belti með stórum hringjum
o.m.fl. Tízkuheimurinn og pop
músikin haldast fast í hendur
meðal uniglinga jafnt nú sem áðúr.
Yfirleitt virðist tízkan vera sú, að
hver klæði sína persónu eins og
bezt á við.
2. Hvar í heiminum eru mest.
ar sveiflur í tízkunni nú?
Fatatízkunni er hægt að skipta
í tvo aldursflokka. Tízku ungra og
fi'jliorðinna, en bilið þarna á mil'li
er nofcfcuð stórt. ÞETTA HEFUE
SKAPAð DÁLTTIð VANÍDAMÁL
FYRIR UNGAR STÚLKUR, SEM
EKKI VILJA VERA TÁNTNGAR
OG KONUR SEM EKKI VILJA
VERA FULLORðNÁR. Ungu
tízkunni stjórna Englendingar
bæði hjá herrum og dömum, en
Frakfcar aftur á móti tízku full
orðinna, Sveiflurnar eru þvi tnest-
ar meðal þeissara þjóða.
3. Hvað um nýjungar í her-
bergjaskreytingu?
Ég er nú ekki sórfræðingur í
þessum efnum, en minn smekk-
ur, svo og ungs fólfcs sem ég spyr
er svona:
Litaúrval á veggjum, alla vega
„Fosters", smávegis af „antifc“-
muniun, máluð og lakkeruð hús-
gögn, t.d. fcommóður, hekluð rúm-
teppi samansett úr mislitum fern-
ingum, púðar og alls konar upp-
stoppuð dýr o.m.fl.
4. Hvað er nýjast að frétta af
Karnabæ?
Karnabær er tízkuverzlun fyr-
ir ungt fólk, sú eina, sem selur
ekkert annað og leggjum við okk-
ur fram við að fylgjast með nýj-
ungum unga fóllksins. Við flytj-
um næstum allt inn sjálfir, höf-
um öll helztu umboð fyrir fram-
leiðslufyrirtæki þau sem fram-
leiða fyrir Oarnaby^ Street, King‘s
Road o.þ.h. staði. Ég fer erlendis
allt að átta sinnum á óri til að
fylgjast með og kaupa inn. Við
höfum nýlega fest kaup á fata-
verfcsmiðju Últimiu, en henni veit-
ir forstöðu Colin Porter, en hann
er óþarfi að kynna. Öll okkar
snið eru aðeins fyrir okkur. Við
höfum stæfckað búðina til að bæta
þjónustuna og koma meira af
vörum fyrir. Sett hafa verið upp
mörg últilbú úti um landið, sem
sérhætfa sig í fatnaði frá okbur,
•t.d. í Keflavík hjá Klæðaverzlun
B.J. á Selfossi, Verzlranin Elfa, i
Vestmannaeyjum Verzlunin Örin
o.m.fl. stöðum eru svo smærri um-
boð.
5. Getur þú gefið nokkuð upp
um „Vettvang Æskunnar, Full
tríia Ungu Kynslóðarinnar?"
Sfcemmtunin verður haldin um
miðjan apríl, en eins og áður mun
Vikan sjá um myndir og ailar
upplýsingar um keppendur.
Keppnin verður með öðru móti
n_, jafnt hjá stúlkunum og hljóm
sveitunum. Einnig hafa allir aðil-
ar, sem að skemmtuninai standa
boðið vinnu sína ókeypis í þágu
góðs málefnis, sem ég get því
miður ekki gefið upp að svo
stöddu.
6. Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri að lokum?
Já, eiginlega. Mér þykir óheyri-
•legt að forráðamenn vissra
skemmtistaða hér í borg, sfculi
lifa aftur í grárri fomeskju
hvað tízku snertir. Setja
forneskju hvað tízku snertir. Setja
alls konar fíflalegar reglur, varð-
andi klæðaburð og sídd á hári
herra, sem vitað er fyrirfram að
er aðeins tímaspursmál að við-
komandi aðilar þurfa að éta ofan
í sig aftur. Þetta sfcapar mikla
sundrung milli kynslóðanna og
ef eldri kynslóðin hefur áhuga á
að bæta eitthvað í fari þessara
unglinga, þá er þetta efcki rétta
leiðin til að ná sambandi við unga
fólkið. Ég hef mikið við ungt fólk
saman að sælda og tel það til alls
góðs iíklegt, ef það aðeins fær
að láta ljós sitt skína.
TIMINN
ALIT
tlLVERk
Ein af þeim hljómsveitum,
sem urðu til við ,,hjónaband“
Flowers og Hljóma v»r popp-
hljómsveitin Tilvera.
„Svo sem ágæt hljómsveit“,
sagði fólk, og svo lognaðist
hún út af. Ékki hafði hún samt
fyrr geispað golunni, en um
hana fórn annarlegir kippir og
hún tók að ganga aftur — og
var þá orðin ailt önnur Til-
vera.
„Hver er tilgangurinn með
þessari nýju Tilveru?“ hugsaði
ég einn daginn eftir miðdegis-
kaffið og brá mér í heimsókn
til Axels, sem er einn af þrem-
ur stjórnendum hljómsveitar-
innar og spilar á gítar. Ég var
svo heppinn, að söngvai-inn,
Engilbert Jensen, var einmitt
í heimsókn hjá honum líka. Ég
bar ekki strax upp erindið, en
fór að tala um veðrið og fiskirí-
ið við þá. Þeir tóku mér vel í
fyrstu, en fóru síðan að verða
skrýtnir á svipinn og spurðu
mig, hvort ég ætlaði ekkert að
tala um hljómsveitina.
Jú, það varð úr að við
brugðum okkur niður í Glaum-
bæ, þar sem hljóðfærin þeirra
stóðu frá því kvöldið áður.
Ég man ckki eftir að hafa
séð skuggalegri hljóðfæraupp-
setningu fyrr — það var eins
og útbúnaðurinn tilheyrði ein-
hverri villimannahljómsveit
frá frumskógum svörtustu
Afríku. Boxin voru öll útklesst
og máiuð — klömbruð saman
og ruddaleg.
Axel: Ég sé, að þú ert að
virða fyrir þér boxin ofckar.
Þetta eru reyndar rándýr, inn-
flutt box, en umsmíðuð hjá
Alex Products hérna í bæn-
um.
Ég: Alex Prc vucts??
Berti: Ja, hann umsmíðaði
þau bara sjálfur. Við vildum
fá okfcar eigin hljómburð —
og núna erum við búnir að
breyta þeim svo mikið, að fyr-
ir mitt leyti eru þetta einhverj-
Framhald á bls. 11
/AGSTl BiTILL A LANHNU
Hann er sennilega yngsti bítill á landinu, enda ekki nema fimm
BRÉF
Sæll Þorsteinn.
Þú vanst að biðja um bréf
(ert kannski að safna frímerkj-
um) en hvað um það, hér er eitt.
Tilefnið er þátturinn „Með ungu
fólki“ sem þú stjórnar með mikl-
um ágætum. Mér finnst að það
mætti vera meira bröndurum,
smá gamansögum og svo framveg-
is. Einnig finnst mer að þú ættir
að velja a.m.k. einn texta við vin-
sæ’.t lag í hverjum hætti. Það verð-
ur endilega að vera pósthólf í
hverjum þæitti, þú átt lfka að
koma rneð flciri Skoðanakannan-
ir um allt mill: himins og jarðar,
smáverðlaunaþrautir o.fl. o.fl.
ára gamall og heitir Baldur Þórir Guðmundsson. Hann hefur
reyndar aldrei komið fram opinberlega, en foreldrar hans eru
þekktir um alít land; þeir heita Guðmundur Rúnar Júiíusson,
söngvari og bassaleikari hjá Trúbrot, og María Baldursdóttir, en
hún er meðal annars fegurðardrottning (slands eins og er.
Ég hringdi í hann í fyrradag og hann svaraði 1 simann með
sinni skýru og greindarlegu rödd:
Jæja, Þorsteinn minn, ég vona
aö þér gangi . _i með þennan
skínandi þátt í framtíðinni. Þetta
er langbezti þátturinn sem skrif-
aður er fyrir ung,t fólfc í dagblöð-
unum og þótt víðar væri leitað.
herra rifrifc.
— Halló?
— Já, halló — þetta er Þorsteinn. Manstu eftlr viðtalinu, sem
ég ætla að taka við þig fyrir blaðið?
— Hvað segirðu — ertu I baði?
— Nei, manstu ekki — ég ætlaði að setja mynd af þér I blað?
— Já, svoleiðis.
— Jamm. Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór?
— Ég veit það ekki. Ég er svolítið að pæla I að verða trommari.
—•. f hljómsveit?
— Já. Stórri hljómsveit.
— Hvaða hljómsveit finnst þér bezt núna.
— Trúbrot. ‘Heyrðu annars, geturðu ekki komið hingað og talað
við mig? Það eru bara tveir menn hérna núna.
— Hverjir eru það?
— Ég og pabbi.
Og ég brá mér helm til Rúnars, tók meðfylgjandi mynd af Þóri
litla (en svo er hann kallaður) og lagði fyrir hann elna spurningu
í viðbót:
— Hvað á hljómsveitin þin að helta?
— Ég ætlaði að láta hana heita Afa, en hvernig getur hljóm-
svelt heitið Afi? Híhíhihí — nei, það er ekkl hægt. Ég ætla að
láta hana heita Hljóma.
P.S. Þú varst að biðja um fullt
nafn, ef ég man rétt. Það er
Friðrik Gíslason, Vonarstræti 12.
(Er þetta nóg?). .
— Og éa get ekkert annað sagt
en, þakka þér fyrir hrósið.
P.S. Þátturinn þakka. fyrir öll
bréfin, sem hann hefur fengið.
en því miður verður birting sumra
beirra að bíða betri tíma.
í næstu viku mun ég ætla
meira pláss fyrir aðsend bréf, svo
ykkur er alveg óhætt að skrifa •
mér. Skrifið um hvað sem ykfcur ■
sýniist, og í guðanna bænum setjið ,
út á þáttinn, annars dey ég úr '
monti einhvern daginn. Heimilis- ;
fang mitt er Háholt 7, Keflavík.
Þorsteinn. j