Tíminn - 01.03.1970, Page 1

Tíminn - 01.03.1970, Page 1
/ Tómas Árnason: Stofnun kaupstaðar á Seyðisfirði Þróun byggðar og atvinnuhátta á 19. öld í tilefni 75 ára afmælis Seyð isfj arð ark a u p st að ar hef ég til fró'ðleiks tekið saman lauslega sögu byggðaþróunar í Seyðis- firði, ijem leiddi til stofnunar kaupstaiar. Ennfremur rakið í SJtærstu dráttum atvdnnusögu staðarins á síðari hluta 19. ald- ar. Og að lokum undirbúning kaupstaðarstofnunar heima í sveitinni og meðferð málsins og samþykkt á Alþingi. UPPHAF SJÓSÓKNAR Á SEYÐISFIRÐI Árið 1770 voru í allri Norð- ur-Múlasýslu 33 feræringar_ og 3 sexæringar. Aldamótaárið 1800 eru ''eir orðnir samtals 49. Bátar þessir voru þá eign bænda á sjávarjörðum, sem sóttu sjóinn sem aukastörf frá landbústörfum. Um aldarmiðj una eru bátarnir orðnir 101 talsins. Bendir auíkninigin ákveðið tii þess að þýðing sjó- sóknar hafi farið vaxandi í sýslunni ,enda f er nú að örla a útflutningi. Árið 1849 eru 22 skip af saltfiski fiutt út til sölu á erlendum markaði. A þessum tíma er byggð við Seyðisfjörð eingöngu jarðirn- ar við fjörðinn, en ek'kert ból- ar á byggðakjarna. . Árið 1861 gengu nokkrir bændur við Seyðisfjörð í fé- lagsskap við Ólsen nokkurn um útgerð á þilskipi til hákarla- veiða. Stundaði skipið veiðar ■til 1868, að það fórst með ailri áhöfn. Tveiui til þrem árum eftir stofnun þessa félags var annað stofnað af Seyðfirðing- um og a.mjk. einum bónda af Héraði. Skip þess félags fórst í veiðiför árið 1865. Sumarið 1863 settu Banda- ríkjamenn upp bræðslustöð á Vestdalseyri í Seyðisfirði, en þeir stunduðu hvaiveiðar fyrir Austfjör'ðum á þrem ^ skipum. þeir ráku hvalveiðar í 5 sum- ur og höfðu mikinn rekstur. Þeir höfðu keypt verzlunarhús Örum & Wulf þar á eyrinni. Árið 1866 var stofnað í Kaup mannahöfn útgerðarfélag, sem gerði út þilskip við ísland til hvalveiða, selveiða, hákarla- veiða og fiskveiða. Þetta félag sendi skip til veiða árið 1868. Fékk það til afnota hús Banda rikjamarma á Vestdalseyri og hafði þar aðalbækistöðvar í tvö ár, en flutti þá starfsemi sína til Djúpavogs. Sama ár komu Hollending- ar með holienzkt gufuskip til hvaiveiða. Notuðu þeir bæki- stöð hins danska félags í bfíú sumur. En um þetta leyti verða straumbvörf í sjávarútvegi Seyðfirðinga, sem vex hröðum skrefum næstu áratugina. NORÐMENNIRNIR KOMA Sumarið 1868 settust tvö norsk útgerðarfélög að á Seyð- isfirði. Framkvæmdastjóri ann ars félagsins var Otto Wathne, sem átti mestan þátt í upp- byggingu Seyðisfjarðar næstu áratugina. Framkvæmdastjóri hins félagsins hét Jakobsen. Með komu Norðmanna hefst uppbygging á Búðareyri. Fyrsta sumarið byggðu þeir bryggjur og verbúðir. Mun þetta ásamt verzlunum á Fjarð aröldu og Vestdalseyri og hval- veiðjstöðinni á Vestdalseyri vera upphaf þeirrar byggðaþró- unar, sem síðar leiddi til stofn- unar kaupstaðar. Fyrsta sumarið (1868) var ágætur sMarafli í Seyðis- firði. Var talið, að Norðmenn befðu farið með 2400 tunnur síldar til Noregs. Þrjá beykira skildu þeir eftir í stöðvum sín- u-m til tunmusmíði fyrir næsta sumar. Næsta vor kom Jakob- senfélagið aftur með sex skip til síldveiða. Þetta ár var ís- ár og síldanafli tregur. Samt héldu Norðmenn áfram bygg- ingarframkvæmdum. Þetta fé- lag kom svo á hverju sumri með skip sín næstu árin, en síldveiði var stopul. Jakobsensfélagiið hóf verzl- un seiinni árin, aðallega timb- urverzlun, og keypti sláturfé. Sumarið 1875 var dágóð síld- veiði og mikil þorskveiði. Jókst nú aðsókn Norðmanna. Árið 1880 kom Otto Wathne aftur til Seyðis'fjarðar oig sett- iSt þar að. Um ]»að icyti höfðu siex nörsk síldveiðifélög setzt að á Seyðisfirði. Otto Wathne vai dugmikill athafnamaður. Harnn átti gufu- Skip, sem hélt uppi föstum ferðum milli Kaupmanna'hafn- ar og íslands, með viðkomu í Noregi. Hann eignaðist prent- smiðjuna og giaf Austra annan út. Hann lagði veg út á Búðar- eyri og lét brúa Fjarðará. Hann flutti til iandsins köf- unaráhöld og fullkomin björg- unartæki. Hann lét reisa 'ita á Dalatanga við Seyðisfjörð. Tómas Árnason hefur, a8 beiðni Tímans, skrifað grein um Seyðisfjörð fyrri tíðar í tilefni þess, að 75 ár eru liðin frá því, að Seyðisfjörður öðlaðist kaupstaðarréttindi. Eins og áður getur, hafði Wathne mikinn rekstur við sjávarsíðuina, mest þó síld- veiðar, síldarverkun og verzi- un með sjávarafurðir. Það var mikill mannskaði, þegar Wathne varð bráðkvaddur um borð í gufuskipi sínu, Vaaigen, haustið 1898 aðeins 54 ára gam- ail. Árið 1867 höfðu Seýðfirðing- ar sjálfir hafið síldveiðar í smáum stíl. Það ár voru flutt- ar út 119 tunnur af saltsíld. Útflutningur síldar óx svo hröðum skrefum eftir tilkomu Norðmanna. Árið 1874 eru fluttar út 8688 tunnur. Útflutn ingur frá Seyðisfirði var sam- tals árin 1880 til 1885, að báð- um árunum meðtöidum, 126. 416 tunnur saltsíldar. Næstu árin var svo útflutndngur miklu minni. Stærsta síldarár- ið var 1880, en þá voru flutt- ar út 60.170 tunnur frá Seyð- isfirði. BÁTAÚTGERÐ Um það leyti sem síldveiðar aukast og farið er_ að nota sílid veitu, vex bátaútgerð við fjörðinn. Utvegs'bændum fjölg- ar og útgerðarmannastétt verð ur til. Settu þeir sig niður við allan fjöirðinn, en flestir þó á Hánefstaða- og Þórarinssifcaða- eyrum. Tala útgerðarmianna við Seýðisfjörð var 57 árið 1880. Sjávjrútvegurinn verður undirstöðuatviinnuvegur f j arð- arins ásamt verzluninni, sem nýtur góðs af. Þó fœkkar út- gerðarmönnum á næsta ára- tug og 1890 eru þeir 42 við Seyðisfjörð. Færeyjar sóttu mjög mikið til Seyðisfjarðar og Austíjai'ða yfirleitt á þessum árum, ýmist á þilskipum eða til sumardvalar. Sjávarbændur leigðu þeim uppsátur og ver- búðir og höfðu sumir af því drjúgar tekjur. — Á seinasta ánatUig aldarionar, mn það leyti sem Seyðisfjörður fékk kaupstaðaréttindi, hófu svo duglegir menm þilskipaútgerð frá Seyðisfirði. ÍSHÚS ís var fyrst notaður í Eng- landi árið 1854 til þess að verja fisk fyrir skemmdum. Rétt um það leyti, sem Seyð- isfjörður fékk kaupstaðarrétt- ind.i, hófust íshúsbyggingar. Austfirðingur að nafni Isak Jónsson, byggði fyrsta íshús á íslamdi fyrir Konráð Hjálmiars- son í Mjóafirði. Næst var stofnað hlutafélag á Seyðis- firði, sem byggði íshús á Brim- nesi. Fyrsta sumarið, sem það starfaði (1895) voru lagðar þar upp til geymslu 49.000 síidir. Tvö önnur íshús voru byggð við Seyðisfjörð þetta sama sumar. Annað á Hánefsstaða- eyrum og hitt á Búðareyri. Þessi nýjun.g í atvinnumálum þótti mjög athyglisverð og hafði mikla^ þýðin'gu fyrir at- vinnulífið. Árið 1903 voru alíis 40 íshús á landinu. VERZLUN Vei’zlunarsaga Soyðisfjarðar verður ekki ra'kin í fáum orð- um. Fýrir miðja 19. öld varð Seyðisfjörður verzlunarstaður, en áður hafði verið rekin ólög- gilt verzlun á Hánefsstaðaeyr- Framhald á bls. 14. Seyöisfjörður om aldamótin.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.