Tíminn - 01.03.1970, Blaðsíða 12
/ Sunnudagur 1. marz 1970.
GETTU - nýr daglegur þáttur á bls. 22 í dag
GOÐ RÍSA - OG GOÐ FALLA AF STALLI
Ótrúleg rýrnun kaupmátt
ar vikulauna frá 1960 ti
1970 við kaup nauðsynja
TK-Reykjavik, föstudag.
Tíminn hefur tekið saman verð-
hækkanir á nokkrum hclztu nauð-
synjum frá því í janúar 1960 til
febrúar 1970 og borið saman við
vikukaup verkamanns í dagvinnu,
skv. n. taxta Dagsbrúnar. Kemur
fram af þeim samanburði hvað
mikið fékkst af nauðsynjum fyrir
vikukaupið í ársbyrjun 1960 og
hvað fæst mikið af sömu nauð-
synjum fyrir vikukaupið í ársbyrj
un 1970 eftir 10 ára samfellda
viðreisnargöngu á „leiðinni til
bættra lífskjara."
Niðurstaðan af þessum saman-
burði er lygilegur og táknmynd-
irnar, sem hér fylgja með segja
meira um þessa hörmulegu þróun,
en mörg orð. Að þessu sinni era
hér aðeins teknar þrjár nauðsynja
vörur: Súpukjöt fdilka), ýsa,
slægð með haus, og kartöflur
Stserðarmunurinn á myndunum
sýnir rýrnun kaupmáttar viku-
Mosfellssveit
Almennur fundur Framsóknar-
manna verður haldinn að Hlégarði
fimmtudaginn 5. marz n.k. kl- 9.
Rætt verður um sveitarstjórnar-
kosningamar. Allt stuðningsfólk
Framsóknarflokksins er velkomið
á fundinn. Stjómin.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness held
ur í'ramsóknarvist í Félagsheim-
ili sínu að Sunnubraut 21, sunnu
daginn 1. marz, kl. 20,30. Öllum
heimill aðgangur meðan húsrúm
leyflr.
launa Dagsbrúnarmanna, sem hlýt
ur laun skv. II. taxta, sem algeng-
astur er.
Arið 1960 fékk verkamaðurinn
48.2 kg. af dilkakjöti fyrir viku-
laun sín. f febrúar 1970 ga-t hann
aðeins keypt 23.5 kg. af súpu-
kjöti fyrir vikulaunin. Rýrnun
kaupmáttar vikulauna hans gagn-
vart þessari nauðsynjavöru nemur
á þessum 10 árum 51.2%. Súpu-
kjöt hefur hækkað um 485% hvert
kg. á þessu tímabili.
1960 gat verkamaður keypt
289.5 kg. af ýsu (slægðri, með
haus) en í febrúar 1970 fær .íann
aðeins 90.4 kg. af ýsu fyrir viku-
launin sín. Rýrnun kaupmáttar
launa gagnvart þessum lífsgæðum
er 68.8%. Á þessu tímabili hefur
ýsa hækkað um 814% á „leiðinni
til bættra lifskjara" launþegans.
í janúar 1960 gat verkamaður
keypt 750.6 kg. af kartöflum fyrir
vikulaun sín. f febrúar 1970 fær
hann aðeins 153.9 kg. af kartöfl-
um fyrir vikulaunin. Rýrnun
kaupmáttar hvorki meira né
minna en 79.5%. Á þessu tímabili
hefur kartöflukílóið hækkað um
129.3% — og geri aðrar ríkis-
stjórnir betur í lífskjarabótum.
'"íminn mun síðar taka dæmi
um ýmsar aðrar nauðsynjavörar
og nauðsynjaþjónustu er sýna,
hve áfall þess, sem hefur ekki
hærri laun en svo, að rétt hrökkva
til brýnustu Hfsnauðsynja, er gíf-
urlega þungt.
f millitíðinni geta menn rifjað
up ioforð núverandi ríkisstjórnar
urn bætt kjör launþega og að leið-
in til bættra lífskjara væri að
kjósa jrfir sig meiri viðreisn Það
safcar ekki heldur að menn hafi
það í huga um leið, að það er
sami forsetinn og forystumenn Al-
þýðusambandsins og formenn í
stærstu launþegafélögunum, sem
ráðið hafa ferðinni í verkalýðs-
hreyfingunni samfleytt í öll þessi
10 ár.
BúncLðarfélagið veit-
ir verðlaun fyrir
búrekstraráætlanir
Dagana 19.—21. febrúar gekkst
Búnaðarfélag íslands fyrir fundi
með héraðsráðunautum og nokkr-
um öðrum starfsmönnum bænda-
samtakanna um áætlanagerð í bú-
skap.
Flutt voru þrjú erindi: Ketill
A. Hannesson, talaði um búreikn-
inga og áætlanagerð, Guðmundur
Sigþórsson um takmarfcandi fram
leiðsluþætti og val búgreina og
Sveinn Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Fraimileiðsluráðs landþúnað
arins hélt erindi, sem hann nefndi
B ú vör ufr a m! e ið s’a með hliðsjón
af markaðsmöguleikuim. Um öll
erindin urðu nokkrar umræður, þó
sérstaklega erindi Sveins Tryggva
sonar, þv fundarmönnum þótti
það iíl tíðindi, hve erfiðlega geng
ur að selja landibúniaðarafurðir á
skaplegu verði.
Margir héraðsráðunauta hafa nú
í vetur gert rekstrarkönnun á bú-
rekstri nokkurra bænda, sem
halda búreikninga. í áframhaldi
af þeirri könnun gerðu þeir rekstr
aráaetianir. Síðan . gerðu 8 héraðs
ráðunautar grein fyrir niðurstöð-
um þessa nýja þátta-r í þeirra
starfi. Stjórn Búna^arfélags ís-
lan<L ákvað að veita v:rð!aun
fyrir þrjár beztu áætlanirnar.
Fyrstu verðlaun hlaut Leifur Kr.
Jóhannesson, Stykkishólmi, héraðs
ráðunautux Snæfellinga.
Ráðstefnugesúr voru saTnmáia
um gagnsemi slíkra áætlana í bú-
rekstri og höfðu trú á því að með
víðtækri könnun á búrekstri ein-
stakra bænda -’ðan rekstrar-*
áætlun, mættd bæta afkomu
miargra bænda veruleiga.
Leifur Kr. Jóhan., sson
hlaut fyrsta verðlaun.
Fastar snjósleðaferðir frá Eskif. til Norðfj.?
SH-Eskifirði, fostudag.
Verið er að gera tilraunir með
það, hvort þægt verði að halda
uppi föstum ferðum með snjóbíl
milii Eskifjarðar og Neskaupstað-
ar. Var fyrsta ferðin farin í dag.
Var talið, að nauðsynlegt yrði að
senda jarðýtu á undan til þess að
rétta af hliðarhallann, en eftir
það ætti ferðin að ganga vel. Er
mjög þýðingarmikið, að hægt
verði að halda uppi þessum
ferðum, þvi m. a. er sjúkrahús á
Norðfirði, og oft nauðsyn að koma
fólki þangað. Það er Sveinn Sig-
urbjörnsson, sem hyggst halda
uppi þessum ferðum, en hann hef-
ur fengið á leigu snjóbíl frá Seyð-
isfirði.
ÞRJU DÆMI
ÝSA, slægð með haus
1960 289,5 kg. — 1970 90,4 kg.
Rýrnun kaupmáttar 68.8%.
KARTOFLUR
SÚPUKJÖT, dilkur
1960 48,2 kg. — 1970 23,5 kg. ! 1960 750,6 kg. — 1970 153,9 kg.
Rýmun kaupmáttar 51.2%. Rýrnun kaupmáttar 79.5%.