Morgunblaðið - 24.10.2005, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Framfarir virðast ekki alltaf skref
fram á við. Hrútnum finnst sem hann
fari í hringi – og er hugsanlega að því.
Ekki hafa áhyggjur, lögmál alheimsins
er hér að verki. Vitund þín er að vaxa,
þótt þú takir ekki eftir því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu vakandi fyrir því hvernig aðrir
bregðast við þér. Þú lærir ýmislegt
með því að hlusta og getur jafnvel
lært af mistökum annarra. Þú upp-
skerð eins og þú hefur sáð í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Til er starfssvið sem þú myndir virki-
lega njóta þín í, svo ekki eyða tím-
anum í vinnu sem þér líkar ekki. Fólk
sem fylgist ekki með velferð þinni,
hjálpar þér við að festast í sama
farinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Að bíða eftir einhverju léttir lundina.
Eitthvað sem þú býst við, annaðhvort í
símtali eða pósti, fyllir þig krafti. Þú
færð líka tækifæri til þess að sýna að
þú hafir lært af reynslunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gerðu upp við þig hvaða lag þú ætlar
að syngja, bæði í eiginlegri og óeig-
inlegri merkingu, og syngdu það svo
fullum hálsi. Það er mun mikilvægara
að fylgja hjartanu en þóknast öðrum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hindrunin sem verður á vegi þínum
(hugsanlega í líki tvíbura eða annarrar
meyju, er jafnframt þinn helsti styrk-
ur). Þegar til lengri tíma litið verður
þessi áskorun til góðs, þótt það blasi
ekki við akkúrat núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ekkert vit í því að forðast vinn-
una. Með því situr þú uppi með svo
margt ógert, að þú kemst ekki yfir
það. Nálgastu viðfangsefnin af kæti,
þá færðu hærri laun og jafnvel stöðu-
hækkun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nýttu hæfileika þína, hversu lítilfjör-
legir sem þú heldur að þeir séu. Fram-
lag þitt er mun mikilvægara og áhrifa-
meira en þú gerir þér grein fyrir á
þessu augnabliki lífs þíns.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn heldur uppteknum hætti
við að afla sér hluttekningar. Þegar
upp er staðið getur hann fengið hvern
sem er á sitt band, en þarf að spyrja
sig hvort það sé raunverulega þess
virði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin kemur að gjá og getur
komist yfir hana eftir nokkrum leið-
um; í loftbelg, með því að byggja brú
eða stökkva yfir. Ef hún stekkur, þarf
stökkið að vera kraftmikið. Það er
ekki hægt að skipta því í tvennt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberanum finnst sem hann sé
staddur í nokkurs konar furðuóperu í
dag. Öfl hins góða og illa kljást á sér-
kennilegum stöðum, eins og til dæmis
við snakksjálfsalann í vinnunni. Haltu
þig fjarri, þó ekki sé nema til þess að
forðast laser-sverðin.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Klæðaburður fisksins er ekki alltaf
góður vitnisburður um hans innri
mann. Láttu falda fötin þín og stoppa í
götin, hreinsa þau og pressa. Þegar
það er búið, mun þér líða eins og stór-
menni.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól og tungl í vatns-
merkjum ýta undir flæði
tilfinninga, bæði jákvæðra
og neikvæðra. Láttu berast með straumn-
um, jafnvægið eykst með kvöldinu. Það
sem kom þér úr jafnvægi í morgun, verð-
ur nánast hlægilegt seinnipartinn.
Snúðu auknum sköpunarmætti upp í
gamansemi og gerðu góðlátlegt grín að
ástvinum þínum.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 forspár, 8
gjóla, 9 smáaldan, 10
verkfæri, 11 fleina, 13
meiðir, 15 ráðrík kona,
18 rengla, 21 nem, 22 af-
laga, 23 sáðlands, 24
áköf.
Lóðrétt | 2 styrkti, 3
mæla fyrir, 4 einkennis, 5
afkvæmi, 6 afkimi, 7
vendir, 12 tangi, 14 kyn,
15 tegund, 16 hamingja,
17 bikar, 18 sundfugl, 19
duglegur, 20 súg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gerla, 4 fátæk, 7 gotan, 8 loppa, 9 aum, 11 alin,
13 árna, 14 ærnar, 15 kurr, 17 arða, 20 org, 22 býður, 23
lagin, 24 sorti, 25 pésar.
Lóðrétt: 1 gegna, 2 rætni, 3 Anna, 4 fálm, 5 tapar, 6
klaga, 10 unnur, 12 nær, 13 ára, 15 kubbs, 16 ræður, 18
regns, 19 agnir, 20 orgi, 21 gláp.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9 með
Guðnýju, boccía kl. 10, vinnustofa
opin frá kl. 9–16.30. Frjáls spil kl.
14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður
kl. 9–16.30. Söngstund kl. 10.30.
Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
fótaaðgerð.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–
11.30. Félagsvist spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi
kl. 13.30. Línudanskennsla kl. 18.
Samkvæmisdans, framh., kl. 19 og
byrjendur kl. 20. Árshátíð FEB
verður haldin 4. nóv. nk. í Akoges-
salnum við Sigtún, fjölbreytt dag-
skrá. Skráning og uppl. á skrifstofu
FEB og í síma 588 2111.
Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 |
Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára spilar alla mánu- og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á
hádegi. Spil hefst kl. 13. Kaffi og
meðlæti fáanlegt í spilahléi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
bókband kl. 10, glerskurður og
postulínsmálun kl. 13 í Kirkjuhvoli.
Spænska kl. 10.15 í Garðabergi og
opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Tölvur í Garðaskóla kl. 17.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.30
sund og leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi spilasalur op-
inn, kóræfing kvenna fellur niður
tilefni dagsins. Veitingar í hádegi
og kaffitíma í Kaffi Bergi. Strætó
nr. S4 og 12 stansa við Gerðuberg.
Allar uppl. á staðnum og í síma
575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Perlusaumur,
almenn handavinna, kaffi, spjall,
dagblöðin. Kl. 10 fótaaðgerð, bæna-
stund. Kl. 12 hádegismatur. Kl.
13.30 skrautskrift. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 í umsjón Sigrúnar,
silki- og glermálun, kortagerð. Jóga
kl. 9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–
16. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerð-
ir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins
og venjulega. Gönuhlaup alla föstu-
daga kl. 9.30. Út í bláinn alla laug-
ardaga kl. 10. Fullkominn skilnaður
6. nóv. kl. 20. Lokað mánudag frá
kl. 13 vegna Kvennafrídags. Nánari
upplýsingar í síma 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sund-
leikfimi í Grafarvogssundlaug á
morgun kl. 9.30.
Laugardalshópurinn í Laugardals-
höll | Leikfimi í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 opin fótaað-
gerðarstofa, smíði, kl. 13–16.30 op-
in vinnustofa, kl. 10 ganga. Flen-
susprauta verður 27. okt. kl. 12–13,
skráning hjá ritara í síma
568 6960.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátúni 12, brids í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–
12 leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–16 kóræfing. Kl.
13.30–14.30 leshópur. Kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 9–12.30, bókband kl. 9–13, búta-
saumur kl. 9–13, morgunstund kl.
9.30–10, boccia kl. 10–11, hand-
mennt alm. kl. 13–16.30, gler-
bræðsla kl. 13–17, frjáls spil kl. 13–
16.30. Hárgreiðslu- og fótaað-
gerðastofa opnar.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | STN – 7–9 ára
starf í skóla Norðlingaholts kl. 15.
Söngur, sögur, leikir og ferðalög
fyrir hressa krakka. Helgi- og fyr-
irbænastund Hraunbæ 103 alla
mánudaga 10–10.30. Umsjón sr. Þór
Hauksson og Krisztina Kalló Sklen-
ár organisti.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Félagsvist kl. 13. Kaffi, söngur og
upplestur.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir
8. bekk er með fundi á mánudög-
um kl. 20–21.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa
2 kl. 19–22. www.gospel.is
www.alfa.is.
Vandasöm slemma.
Norður
♠K105
♥G974
♦Á4
♣K752
Vestur Austur
♠D74 ♠G862
♥ÁK862 ♥D105
♦1095 ♦63
♣G ♣10984
Suður
♠Á9
♥3
♦KDG872
♣ÁD63
Bæði sex lauf og sex tíglar eru fal-
legar slemmur í NS, sem vinnast auð-
veldlega ef laufið brotnar – sem það
gerir í 68% tilfella. Eins og sést, liggur
laufið illa, svo sú slemma vinnst aldrei,
en hvað með sex tígla? Er einhver
möguleiki á tólf slögum þar?
Skoðum það mál. Segjum að vesturs
taka einn slag á háhjarta og skipti svo
yfir í tígul. Sagnhafi tekur slaginn
heima, spilar tígli á ás og trompar
hjarta. Tekur síðasta tromp vesturs
(hendir laufi úr borði) og prófar svo
laufið með ás og kóng, en ekki fellur
það.
Þá er hjarta trompað og þar með er
búið að einangra valdið á þeim lit við
vestur. Suður tekur nú laufdrottningu
og alla tíglana og þá verða báðir mót-
herjar að gefa frá sér valdið á spað-
anum – vestur þarf að halda í hæsta
hjarta og austur í hæsta lauf, svo hvor-
ugur getur staðið vörð um spaðann.
Spaðatían verður þannig tólfti slag-
urinn með tvöfaldri kastþröng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is