Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 1
Laugardagur
29. október 2005
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
„Hvað ertu nú gamall, Tommi minn?“
„Níu.“
„Og hvað ætlarðu svo að verða?“
„Tíu.“
Einn góður …
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú
varst 10 ára?
Ég var alltaf á þessum tíma að hlusta á
Rokklingana. Ég átti plötuna þeirra og
horfði tímunum saman á umslagið og öf-
undaði krakkana og lét mig dreyma um að
vera á umslaginu með þeim. Stjórnin var
líka í miklu uppáhaldi.
Hvað ertu að hlusta á í dag?
Það er mjög fjölbreytt og fer allt eftir
hvernig skapi ég er í. En
ég er samt mikið að
hlusta á nýja tónlist til að
fylgjast með hvað er að
að gerast.
Hver var fyrirmyndin
þín þegar þú varst 10
ára?
Á þessum tíma fór ég
reglulega í sumarbúðir
og þá voru foringjarnir
þar, sem voru þá eldri
stelpur, þvílíkar fyrir-
myndir, ég leit mjög mik-
ið upp til þeirra. Og svo voru að sjálfsögðu
systkini mín og foreldrar miklar fyrir-
myndir.
Varstu hrædd við eitthvað þegar þú
varst barn?
Ég var alveg rosalega veiklynd og hafði
áhyggjur af öllu. Ég veit ekki af hverju en
þetta háði mér mjög. Ég átti að heita Vaka
og það hefði átt mjög vel við því ég átti
mjög erfitt með að sofa og vakti mjög mik-
ið.
Varstu prakkarastelpa?
Ég og æskuvinkona mín gerðum nokk-
ur prakkarastrik saman. Við settum t.d.
vatn í Sprite flöskur og seldum nágrönn-
um okkar sem Sprite á 10 kr. og við héld-
um að þá grunaði ekki neitt. Við fórum líka
einu sinni í hárgreiðsluleik og ég klippti
hárið á vinkonu minni og þorði ekki að
segja frá því.
Hvað fannst þér skemmtilegast að
gera þegar þú varst 10 ára?
Við fórum oft út á tún nálægt heimilinu
mínu og spiluðum fótbolta. Ég og besta
vinkona mín stofnuðum líka skóla í bíl-
skúrnum. Við ljósrituðum reikningsdæmi
og eldri krakkarnir komu eftir skóla í skól-
ann okkar og þar var stíf kennsla. Við opn-
uðum líka hárgreiðslustofu í kjallaranum
hjá vinkonu minni og þar var hár þvegið í
bala. Við brölluðum svo mikið og þetta er
það fyrsta sem kemur upp í hugann.
Alma
Morgunblaðið/Ásdís
Ölmu Guðmundsdóttur gekk frekar erfiðlega að
sofna þegar hún var lítil og var nauðsynlegt fyrir
hana að hafa þetta skemmtilega tuskudýr.
Alma var í Hofs-
staðaskóla og var í
mjög samrýndum
og skemmtilegum
bekk.
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar
þú varst 10 ára?
Barnabrosplöturnar voru í miklu
uppáhaldi, ég söng með þeim öllum
stundum og kunni öll lögin. Svo var auð-
vitað Stjórnin líka í uppáhaldi. Það var á
þessum tíma sem ég var að uppgötva
Celine Dion og Mariah Carey, en þær
voru síðan í uppáhaldi í mörg ár.
Hvað ertu að hlusta á í dag?
Núna er ég að hlusta nýjan disk frá
söngkonu sem ég held
mikið upp á og heitir
Imogen Heap. Svo er
nýi diskurinn frá James
Blunt frábær. Og svo að
sjálfsögðu nýju Nylon-
plötuna sem kemur í
búðir 8. nóvember.
Hver var fyrirmynd-
in þín þegar þú varst 10
ára?
Þær voru allar og
engin. Ég átti eiginlega
ekki neina eina! Ég tók
mér frekar til fyrirmyndar vissa hluti í
fari hverrar og einnar.
Hvað fannst þér skemmtilegast að
gera þegar þú varst 10 ára?
Ég var alltaf að syngja inn á kasettur
og var fyrir framan spegilinn með míkra-
fón, ekta eða ímyndaðan. Ég lokaði mig
þá af inni í herbergi og söng, dansaði
með og lét sem ég væri að koma fram
fyrir fjölda fólks á risatónleikum þar sem
ég var fræg söngkona.
Varstu hrædd við eitthvað þegar þú
varst barn?
Ég var stundum svolítið myrkfælin, en
annars var ég við lítið smeyk og oftast
mjög hugrökk.
Varstu prakkarastelpa?
Nei, ég var voðalega stillt og góð. Við
vinkonurnar vorum samt mjög uppá-
tækjasamar og vorum duglegar að finna
upp á hlutverkaleikjum. Yfirleitt breytt-
ust blokkirnar okkar í hallir eða lög-
reglustöðvar, ruslakompur í hella eða
fangelsi. Löggu- og bófaleikirnir voru
vinsælastir.
Fannst þér eitthvað leiðinlegt þegar
þú varst 10 ára?
Já, fullt, eins og að fara snemma að
sofa, að þurfa að borða slátur, að fara til
tannlæknis (reyndar var gaman að fá
verðlaunin). En mér fannst líka allt ann-
að skemmtilegt.
Klara
Morgunblaðið/Signý
Klara Ósk Elíasdóttir með litla sæta Mára.
Klara var í Hvaleyr-
arskóla. Henni leið
mjög vel þar og á all-
ar sínar bestu vin-
konur þaðan.
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar
þú varst 10 ára?
Ég var voðalega hrifin af Stjórninni og
Siggu Beinteins. Mér fannst líka Michael
Jackson mjög skemmtilegur.
Hvað ertu að hlusta á í dag?
Ég hlusta á allt og
meira að segja gæti ég
farið að hlusta á Spice
Girls ef ég er í þannig
stuði. Núna er ég samt
aðallega að hlusta á nýju
Nylon-plötuna.
Hver var fyrirmyndin
þín þegar þú varst 10
ára?
Systur mínar. Mér
fannst allt sem þær
gerðu alveg geggjað.
Þær eru 7 og 9 árum eldri en ég og ég
gerði allt alveg eins og þær.
Hvað fannst þér skemmtilegast að
gera þegar þú varst 10 ára?
Að fara á hestbak og finnst enn. Svo
fannst mér gaman að fara út að leika og
vera í dúkkuleik. Ég var líka mjög mikið í
Barbie.
Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt?
Það er bangsi sem mamma gaf mér og
hann er það mikið uppáhald að það má
helst enginn vera með hann nema ég enn í
dag.
Varstu hrædd við eitthvað þegar þú
varst barn?
Já, ég var mjög myrkfælin og er það
pínulítið ennþá í dag. Ég þurfti alltaf að
hafa ljós þegar ég fór að sofa.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert með Nylon?
Það er allt skemmtilegt en verkefnið
fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna stendur án efa upp úr. Það er svo
gaman að geta gefið til baka og við finn-
um fyrir miklu þakklæti.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar og hundar. Ég hef átt þrjá
hunda og í dag á ég lítinn hnoðra hund
sem heitir Mía.
Varst þú prakkarastelpa?
Nei, ég var alltaf svo stillt og prúð og
gerði allt sem ég átti að gera en ég var
reyndar svolítið ákveðin.
Emilía
Morgunblaðið/Signý
Mamma Emilíu Bjargar Óskarsdóttur gaf henni
þennan sæta hund sem er enn í uppáhaldi.
Emilía var í Sel-
ásskóla og fannst
mjög gaman í skól-
anum.
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar
þú varst 10 ára?
Ég á tvær eldri systur og mér fannst
mjög flott að hlusta á allt sem þær voru að
hlusta á og var það m.a. Michael Jackson.
Ég var svo líka mjög ung þegar ég var
farin að þróa með mér minn eigin tónlist-
arsmekk.
Hvað er í uppáhaldi í dag?
Það eru að sjálfsögðu öll lögin á Nylon-
plötunni.
Hver var fyrirmyndin þín þegar þú
varst 10 ára?
Vigdís Finnbogadóttir, og mér finnst
hún enn þann dag í dag
mjög merkileg kona. Þá
ekki eingöngu fyrir að
hafa gegnt embætti for-
seta og stöðu leikhús-
stjóra heldur líka fyrir
að vera góð fyrirmynd
ungra kvenna og mikill
kvenskörungur.
Hvað fannst þér
skemmtilegast að gera
þegar þú varst 10 ára?
Að dansa, ég dansaði
mjög mikið. Á 50 ára afmæli lýðveldisins
dansaði ég á Hótel Sögu fyrir allt kónga-
fólkið og það fannst mér alveg ótrúlega
skemmtilegt og það má eiginlega segja að
ég lifi ennþá á því.
Hvað var uppáhaldsleikfangið þitt
þegar þú varst 10 ára?
Ég var alltaf að hjóla og fannst það
mjög skemmtilegt en í mestu uppáhaldi
var lítill hundur sem ég átti. Mig langaði
svo í hund þegar ég var lítil og mamma og
pabbi gáfu mér bangsahund, svo fékk ég
lifandi hund þegar ég var 10 ára.
Varstu hrædd við eitthvað?
Ég var alltaf svo hrædd við sjó og er
enn. Samt sem áður er ég algjört vatna-
dýr og finnst gaman að vera í vatni og vil
helst synda allan daginn. Svo var ég líka
svolítið myrkfælin.
Varstu prakkarastelpa?
Já, ég var rosalegur prakkari og stofn-
aði prakkarafélag með vinkonum mínum-
.Við lituðum t.d. einu sinni á okkur hárið
bleikt og það var ekki mjög vinsælt hjá
foreldrunum.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert með Nylon?
Það hefur allt verið svo skemmtilegt og
allir tekið okkur svo vel en það sem hefur
gefið mér mest er vinna okkar fyrir
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Tónleikarnir í Smáralind í fyrra voru líka
alveg rosalega skemmtilegir.
Steinunn
Morgunblaðið/Ásdís
Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir með
hundinn sinn hana Ísabellu.
Steinunn var í Snæ-
landsskóla og henni
fannst það mjög
skemmtilegur skóli.
NYLON