Tíminn - 01.04.1970, Síða 8
TIMINN ---------- MIÐVIKUDAGUR 1. aprfl 1970.
99
Heíma gerist slíkt aðeins á gamlárskvöld4
i
Sumir vinir hennar hér
á landi kalla hana Úu. En
þótt hún sé ef til vill svo-
iiriS dularfull eins og Úa
S Kristnihaldi undir Jökli,
virðast þær ekki eiga margt
sameiginlegt- Þessi Úa, sem
heitir réttilega Úrsúla
Baum Hansen, er mjög
elskuleg og glaðlynd, og
virðist við fyrstu kynni
eiga til lítið af dyntum
nöfnu sinnar. Úa hefur
fengið ást á íslandi og hef-
ur komið hér fimm eða sex
sinnum til lengri eða
skemmri dvalar. Hún hef-
ur ferðazt um landið og
sungið vinsæla tónlist. Nú
býr hún á Hótel Loftleið-
um og þýðir smásögur og
annað efni í dönsk viku-
blöð og rómana fyrir ýmis
útgáfufyrirtæki í Kaup-
mannahöfn. Við hittum Úu
að máli í rúmgóðu og vist-
legu hótelherbergi hennar
og spurðum hana að henn-
ar högum. í eimu horninu
stendur rifvélin á borði og
verkefni liggja hjá.
Úa hefur starfað sem sjálf-
stæður þýðandi „,free lance“,
í 11 ár. Aður var hún ritstjórn
arfulltrúi hjá blöðunum Tem-
pó og Flittige hænder, vann
þar að þýðingum, sá um bréfa-
dálka o.sv.frv. Hún er fædd í
Berlín, en flutti í stríðsbyrj
un tii Danmerkur. Hún er
jafnvíg að þýða úr frönsku,
þýzku, ensku og sænsku.
Úrsúla vinnur venjulega 3—
4 tíma á dag en einbeitir sér
mjög að starfinu á meðan. A3
sjálfsögðu getur hún unnið,
þegar hún vill, og tekið frí ef
henni sýnist. Hún vinnur alveg
eins um helgar og aðra daga,
ef svo ber undir.
Eins og að vinna
í happdrættinu
— Núna er ég að þýða
skáldsögu, sem verður 105 síð-
ur lítið eitt stytt úr frummál-
inu. Fyrir hana fæ ég 850
danskar 'krónur (tæpar 10.000
ísl. kr.) og ég er 8—9 daga
að þýða hana með undirbún
ingsvinnu. En það er eins og
að vinna í happdrættinu, þeg-
ar ég fæ svona bunka, segir
Ua, og hampar um 20 blöðum
af myndasögu, sem ber nafnið
Bamse og birtist í Sþndags BT.
Fyrir hvert lítið blað, eða þá
stærð sem kemur í hverju
blaði, fær hún 31 d. kr. (364,00
kr.), en er aðeins 10—15 mín-
útur að þýða það. Auk S0n-
dags BT þýðir Úa m.s. fyrir
Tempo og fréttastofuna PIB,
sem annast dreifingu blaða
efnis.
— Mér finnst skemmtileg
ast a<5 þýða myndasögur, seg-
ir Úa. Þær eru venjulega á
talmáli, sem auðvelt er
að koma á eðlilega dönsku.
Sumar skáldsögur geta hins
vegar verið erfiðar, ef þær
fjalla m.a. um manni fjarlæg
efni, eins og t.d. klæðaburð
austurlenzkra kvenna, hallir
og þess háttar.
— Stundum eru þetta góðar
sögur, segir Úa, þegar ég spyr
hana hvort henni finnist ekki
'stundum ergilegt og þreytandi
að þýða þessa „eldhúsreyfara".
—• Þetta er auðvitað hvorki
Rifbjerg né Hemingway, segir
hún kímileit. — En oft er í
sögunum heilmikið af heil-
brigðri skynsemi, og þær
greina frá mannlegum hugsun
um, tilfinningum og viðbrögð-
um. Sumar eru afar spennandi.
— „Fyrir kemur, að ég hugsa:
Óttalegt rusl er þetta og verð
að bíta á jaxlinn til að geta
háldið áfram. Þú spyrð hvort
mér finnist ekki stundum mið-
ur að leggja hönd á plóginn
við útgáfu lesefnis sem er for-
heimskandi. Ja, ég held það
sé eins með mig og leikara,
sem taka hlutverk í lélegum
kvikmyndum. Maður hugsar.
ég þarf að borga skatta, húsa
leigu og þar fram eftir götun-
um. En þó kemur fyrir áð ég
endursendi handrit, ef mér
finnst þau of leiðinleg og vit-
laus.
— Ég veit að þýðingar eru
Bifreiðaeigendur
ATHUGlÐ
Nú er rétti tíminn til að
panta tíma og láta þétta
rúður og hurðir.
1. fl. efni og vönduð vinna.
Upplýsingar í síma 51383,
eftir kl. 7 á kvöldin og
um helgar.
illa launað starf á íslandi, en
eins og þú sérð er þessu öfugt
farið heima. Það er mikilvægt
að þetta starf geri mér kleift
að ferðast, ekki sízt dvelja hér
Ég er einnig sjálfs mín herra
og get sofið fram eftir á
morgnana, ef mér sýnist. Þýð-
ingar eru öruggt starf, sem
maður fær strax greitt fyrir.
Starf söngkonu er ekki eins
hagstætt að þessu leyti. En þó
langar mig til að byrja aftur
að syngja. Það er synd að
hætta alveg við svo hugfólgið
viðfangsefni.
Lærði söng hjá
Stefáni íslandi
— Hér á landi söng ég
vegum Péturs Péturssonar,
bæði á Akureyri, ísafirði, Nes-
kaupstað og víðar.
Ég var eitt sinn nemandi
hjá Stefáni íslandi og einnig
Edit Oldrup, óperusöngkonu.
Um tíma söng ég í kór leik
húsanna, Det ny teater og Ny
skala og kom fram sem ein-
söngvari við guðsþjónustur hjá
Finn Videró í Trinitatis kirkju
í Kaupmannahöfn. Einnig hef
ég sungið á veitingastöðum og
með danshljómsveitum.
Ég met kirkjutónlist mest
sígildra verka, einkum Bach.
Af léttmeti hef ég mest dá
læti á góðum gömlum amerísk
um lögum, „Evergreens", og
lögum úr söngleikjum svo sem
ikvikmyndinni „Sound og Muc-
ic“ og fleiri.
—í fyrsta sinn, sem ég
kom hingað til íslands, var ég
i hópferð erlendra „túrista“,
Landið hreif mig þegar í stað
mjög. Hér í Reykjavík er t.d.
hægt áð njóta borgarlífs en
einnig gæða frjálsrar náttúru.
Öll þessi sól, himinn og fjöll
eru dýrleg.
— Ég hef eignast hér góða
vini, og þeir laða mig að, seg
ir Úa glaðlega, enda kem ég
aftur og aftur. — íslendingar
eru svo óþvingaðir og fullir af
lífsfjöri. Glaðværðin og
„stemningin“, sem ríkir á veit
ingahúsunum, t.d. Hótel Sö"u
og Loftleiðum, á föstudags- og
laugardagskvöldum er alveg
sérstök. Heima þekkist slíkur
gáski aðeins á gamlárskvöld.
Þið kunnið að sikemmta ykk
ur, en talið og hugsið um mál
efni, sem einhverju skipta. ís-
lendingar eru svo fullir af í
myndunarafli. Mér finnst svo
gam^n, að hér vitna menn oft
í kvæði, þegar verið að gera
sér glaðan dag. Þjóðin er al
mennt gædd því sem ég mundl
helzt nefna „músíkalskt“ skap-
lyndi.
Svo eru íslendingar hjátrúar
fullir, það er skemmtilegt.
Hugsaðu þér, ég var í heim
sókn hjá vinum mínum um
daginn og þá allt í einu tók
einn af skarið og allur hóp-
urinn fór til spákonu kl. 11 að
kvöldi í rigningu og versta
veðri.
Ég tel ekki rétt að tala um
þjóðir, sem eina heild, hváð
þessa eiginleika varðar, vitan
lega er fól'k misjafnt. En mér
finnst landar mínir nokkuð
takmarkaðir, þeir vilja láta sér
líða vel og eru dálítið hrædd-
ir að tala saman um mikilvæg
á miál.
— Þegar ég sit á veitinga
húsi í Danmörku þá segi ég
oft við þá, sem með mér eru,
„þið ættuð að koma á veitinga
húsin á íslandi og kynnast líf-
inu þar“. Ég er raunar eins
konar einkamenningarfull
trúi fyrir fsland, þegar ég er
heima. Ég er alltaf að segja
frá. Mig langar til að skrifa
greinar um ísland, ef mér
gefst tóm til.
Ua verður hér að þessu sinni
fram 1 apríllok. En í maí hitt-
ist fjölskyldan í Berlín á af
mæli föðurbróður hennar. Ætt
ingjarnir koma víða að, móðir
hennar er kjötútflytjandi í
Kaupmannahöfn, aðrir koma
frá Tel Aviv og París. Tveir
frændur hennar starfa við kvik-
myndagerð í París, annast út
vegun alls, sem til kvikmynda
þarf þar, allt frá leikurum, til
byggingarefnis og frumskóga-
dýra. Annar beirra sá t.d. um
slíkar útréttingar vegna
frönsku myndarinnar Belle de
jour, sem hér hefur verið sýnd.
Það er sem sé alþjóðlegur blær
yfir fjölskyldunni. Tungumála
kunnáttu sína á Úa líka ekki
sízt að þakka ferðalögum í
æsku, en faðir hennar var út-
flytjandi og verzlunarmaður.
Út um herbergisgluggann a
Hótel Loftleiðum er gott út-
sýni, sjór og haí blasa við
handan flugbrautanna og við
horfum á síðustu geisla sólar
þessa dags. Ég spyr hvort Úa
hafi ekki séð sólmyrkvann vei
héðan um daginn. En hún var
þá ekki heima. — Ég var sjá'.í
formyrkvuð. og missti af
þessu, ég var reið við mann
segir Úa, en úr svipnuin má
lesa að hún er það ekki long-
ur. Ef til vill er það einhver
sérstakur, sem veldur því að
Úa sér land okkar og Þjóð í
svo fögru ljósi.
SJ.
FERMINGAUR
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Mvada
©niii
JUpina.
OMEGA
PIEHPOnT
Magnús E. Baldvinsson
Laugavcgi 12 * Simi 22804
fe
Véiritunar- og hraðritunarskóli
Notið frístundirnar:
Vélritun — blindskrift, uppsetning og
frágangur verzlunarbVéfa, samninga o. fl.
Dag- og kvöldtímar.
Upplýsingar og innritun í síma 21768.
HILDIGUNNUR EGGERTSDÓTTIR — Stórholti 27 —SÍMI 21768
Ursula Baum Hansen: „Þýðingastarfið gerir mér kleift að koma til íslands, ferðast og sofa út á morgnana."
Mynd SJ