Tíminn - 01.04.1970, Qupperneq 14
14
TÍMINN
Innbrot og stys
Eramhald af bls. 1
braut. Þar var bíl okið á IJösa-
staur og slasaðist ö'kumaður tals-
vert. í kvöl’d um kl. sjö rákust
bílar samau á Nóatúni, og slas-
fet ökumaður annars alvarlega.
Einhver tíma yfir páskana, var
hrotdzt inn í skartgripaverzlun
Kornilíusar á Skólavörðustíg. Var
stoldð þar nokkrum úrum, bæði
úr verzluninni og á skrifstofu. Þá
var farið inn á gullsmíðaverkslæði
sem er á hæðinni yfir verzluninni.
Ekki var hægt að sjá að neinu
hafi verið stolið þar. Brotizt var
inn í leikfangverzlun nok'kuð ofar
við Skólavörðustíginn. Var rofi'5
gat á húsvegginn og farið þar inn.
Stolið var 500 krónum úr peninga-
kassa. Víðar var brotizt inn, en
fengur ekki mikill.
Aðfaranótt skírdags kom upp
eldur í húsinu nr. 74 við Hverfis-
igötu, Var eldur í herbergi ein-
hleyps manns, og lá hann sof-
andi í rúmi sínu þegar lögreglan
kom á vettvang. Brutust lögreglu-
þjónar inn til mannsins og náðu
honum út og jafnaði hann sig fljót
lega. Eldurinn var slökktur áður
en hann náði að breiðast út um
húsið.
— PÓSTSENDUM —
Á laugardag slasaðist maður, er
fhann féll í lest í Hofsjökli. Féll
;maðurinn ofan um lestarop á neðra
dekki, en þar var myrkt, og sá
maðurinn ekki að lestin var opin.
Tveir menn urðu varir við þegar
maðurinn féll niður, hlupu þeir
til og féll annar þessarra manna
einnig niður í lestina. Fallið er
um 5 metrar. Sá maðurinn sem
fyrr féll, slasaðist talsvert og ligg
ur á sjúkrahúsi, en sá sem síðar
féll niður í lestina slasaðist lítils-
háttar.
Hungurvaka
Franhald af bls. 2.
færi til að starfa að framkvæimd
íslenzkra verkefna meðal fátæku
þj'óðanna.
4. Að allt verði gert, sem unnt
er, til að tryggja, að öll veitt að-
stoð komi að tilœtluðum notum,
en lendi ekki í höndum óhlutvandr
ar yfirstéttar.
5. Að hætt verði rányrkju
þeirra náltúruauðlinda, sem eru
undirstaða matvælaöflunar og nú
viðgengst, m.a. í fisfcveiðum ís-
lendinga, enda geti framlhald á
henni orðið til þess að ógerningur
verði að vinna bug á hungri í
Iheiminum. Jafnframt beri að
stuðla að beztri nýtingu slíkra hrá
efna til manneldis.
Þátttakendur hungurvökunnar
vefcja að lokum athygli á því, >að
vestrænar þjóðir eiga í ýmsum
greinum sök á skorti fátæku þjóð
anna með margra alda arðráni og
leggja áherzlu á, að því verði hætt,
'annars muni aldrei takast að vinna
bug á fátækt þessar.a þj'óða."
Útför eiginmanns mms, föSur, tengdaföður og afa okkar, Þorsteins Árnasonar, vélstjóra, Túngötu 43, fer fram frá Dómkirkiunni í Reykjavík, í dag 1. april kl. 3 e. h. Blóm eru afbeðin, en þeim sem vildu minnast hins látna, er vin- samlegast bent á líknarstofnanir. Ásta Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Faðir minn, afi okkar og bróðir Baldvin Bjarnarson, málari andaðist aðfaranótt laugardagsins 28. marz. Steinunn Bjarnarson og dætur Björn Bjarnarson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin- manns míns, Jóns Elíassonar frá Vaðli. F. h. móður og barnanna, Sigríður Þorgrímsdóttir.
j Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og iarðarför, Björns Kolbeinssonar, sem lézt 12. marz s. 1. Fjölskylda hins Iátr*a.
Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma, Ósk Kristjánsdóttir, Öldu, Blesugróf, lézt að Vífilsstöðum 28 marz. Jarðarförin fer fram frá Possvogs- kirkju, föstudaginn 3. apríl kl. 1.30 Gunnar Einarsson, Kristján Steinar Kristjánsson, Björg Sigurvinsdóttir og börn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, afa og tengdaföður, Jóhanns Sigurðssonar, Úlfsstöðum. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, börn, barnabörn og tengdabörn.
Hafísinn
Framhald af' bls. 16
mjög saltur sjór á yfirborði
liafsins hefur sokklð og heitari
sjór og saltminui flotið upp.
Líklegt er að haldi ísinn áfram
að bráðna geti það haft áhrif á
veðráttu hér á landi næsta ár,
þannig að veður verði mildara
og að minni hætta verður á að
ís verði landfastur við ísland.
Flóinn sem my-ndazt hefur í
ísinn kom fram á myndum sem
teknar voru úr gerfihnetti og
eins hafa brezkir ískönnuðir
komizt að sömu niðurstöðu. ís-
inn sem er að bráðna er allt ís
sem myndazt hefur á hafínu á
á þessum vetri. Er hann allt að
2ja metra þykkur. ísbrúnin er
nú komin að skilum eldri og
þykkarri íss sem bráðnar mun
seinna en nýrri ís.
Yfirborðssjórinn á íshafinu
er mun saltari en á meira dýpi.
Stafar það af því, að þegar
sjórinn frýs skilar ísi-nn tals-
verðu af saltinu í sjóinn aftur.
Þegar svo þessi salti yfirborðs
sjór kólnar míkið sekkur hann
en heitari sjór stígur úr djúp-
inu upp á yfirborðið.
Ef þessi bráðnuin heldur á-
fram getur það valdi'5 því að
veðurlag hlýni nokkuð hér á
landi.
í dag var farið ískönnunar-
flug á vegum Landhelgisgæzl-
unnar. í ljós kom að á siglinga-
leið frá Horni fyrir Skagatá að
Eyjafirði eru dreifðir jakar og
spangir, vel greiðfært. Á sigi-
ingaledð frá Eyjafirði að Rauða
núp eru dreifðar ísspang-ir 1—
3/10 að þéttleika. Undan
Slétlu er 2 tH 3 sjóm. ísbelti
við landið og er þéttleiki þess
7—9/10. Utan við þetta ís-
beltj er þéttleikinn 1—3/10- Á
Þistilfirði eru dreifðir jakar
og spangir 1—3/10 að þéttleika.
Is 7—9/10 að þéttleika er 45
sjóm. undan Barða. 31 sjóm.
undan Straumnesi, 18 sjóm.
undan Kögri, 18 sjóm. undan
Horni, 36 sjóm. undan Skaga,
16 sjóm. undan Grímsey og
30 sjóm- undan Sléttu, ís 4—
6/10 að þéttleika er 12 sjóm.
NV af Rauðanúp og 7 sjóm.
NA af Hraunhafnartanga.
Isinn sem kannaður var er
þunnur 1 árs ís, nema á djúp-
miðum fyrir N.-landi þar sem
talsvert er af nýmynduðum fe.
Veður til ískönnunar var
frekar slæmt, snjókoma og
skyggni lélegt.
LÉTT Á FÆTl
EKKI RÁL
audveld í umhirdu
Fást sem venjuleg
stígvél og sem
reidstigvél i öllum
betri skóbudum
Vatnssala
Framhald af bls. 1
því, að engin hreinsun af einu
eða öðru tagi e5a klórhlöndivn eigi
sér stað. Ávinningurinn af þess-
ari sölu vatns fyrir Reykjavíkur-
borg er mikill. Við lögðum áherzlu
á það, að helmingurinn af vatns-
magninu samkvæmt þessum fyrsta
samningi yrði greiddur fyrirfram
og þegar í stað. Þetta fé er nú
til .reiðu og mun koma sér vel
næstu tvo mán-uði, því fyrirhug-
aðar eru alveg sérstaklega miklar
framkvæmdir á vegum Reykjavík
urborgar í apríl og maí mánuði
og búizt við að unni-5 verð. dag
og nótt. Telja sérfræði..jar, að
það sé eina leiðin til að útrýma
atvinnuleysinu í Reykjavík. Svo
koma þarna r. 'klar og óvæntar
tekjur til Sundahafnarinnar. Ut-
litið var orðið svart. Mikið fjár-
magn hefur verið fest í mann-
virkjum þar, en fyrirsjáanlegt var
orðið, að tekjur hafnarinnar yrðu
litlar sem engar á næstu árum.
Þetta gjörbreytir viðihorfunum og
á eftir að sanna, að ráðizt var í
gerð Sundahafnarinnar á réttum
tíma.
— En hvað um fyrirsjáanlegan
vatnsskort í Reykjavik af þessum
sökum, borgarstjóri?
— Það eru ekki allar höfuðborg
ir, sem skartað geta slíkum perl-
um sem Elliðaárnar eru og þær
munu fullnægja vatnsþörf borgar-
búa um ófyrirsjáanlega framtíð,
þótt Reykjavikurborg verði enn
stærri útflutningsaðili vatns í fram
tíðinni.
Þá sneri blaðið sér til Bjarna
Benediktssonar, forsætisráðherra.
— Þetta mál allt kemur mjög
á óvart forsætisráðherra?
_ — Já, við komum oft á óvart.
Ég vil sem minnst um betta segja
á þessu stigi. Það á eftir að und-
irrita samninga og það verður boð-
að til blaðamannafundar og gefin
út ítarleg fréttatilkynning um
málið og sjálfsagt hefur sjónvarp-
ið viðtal við Mr. A1 T. Igamni,
sem er maður samningalipur. Ég
vil aðeins segja það að lokum, að
þetta mál kemur á réttum tíma.
Þetta kveður niður gagnrýni, því
að þetta sannar svo að ekki verð-
ur um deilt, að Jóhai.nes er af-
burðamaður. Það er Seðlabankinn
sem hefur haft frumkvæði í mál-
inu.
ísafjörður
Framhald af bls. 3.
í bænum. Á föstudag og laugar-
dag var veður fremur þungbúið,
en skíðafólkið lét það engan veg-
inn há sér. Á páskadagsmorgun
var síðan komin ófærð svo ekki
var unnt að koonast á bílum upp
í Seljalandsdal. Ekki var heldur
hægt að komast til Hnífsdals nema
á stærstu bílum, og var dansleik,
sem þar átti að hefj'ast eftir mið-
nætti á páskadag, frestað af þeim
sökum. Margir létu hvorki veður
né ófærð aftra sér frá skíðaiðkun
um og leituðu uppi skíðabrekkur
nær kaupstaðnum, en nú var eng-
in lyfta, svo klífa varð upp brekk-
ur upp á gamla móðinn.
Margt var um a'5 vera í bænum
vegna skiðavikunnar,, barna-
skemmtun, kirkjutónleikar, kvöld-
vaka í Skíðheimum, og dansleik-
ir eftir miðnætti aðfaranótt annars
í páskum. Ýmsir sóttu þessar sam
komur og var ekki sízt gerður
góður rómur að kirkjukvöldinu
í ísafjarðarkirkju. Leikfélag Flat-
eyrar hélt einnig sýningu á Rjúk-
and: ráð, á laugardagskvöld.
Aðkomufólki á ísafirði þótti gæf
an heldur hafa snúið við sér baki
hvað skíðaíþróttina snerti á
páskadag og um nóttina greip
unga fólkið til þess ráðs að létta
sér upp á dansleikjum, sem stóðu
til fjögur um morguninn með
miklu fjöri. En viti menn, á ann-
an í páskum var veðrið orðið
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 197«.
n m □ n
mm
Gettu
Fjórir ganga
fimm hanga,
einn dingtar aftan við,
aldrei kemst hann fram fyrir.
Bandprjónar
jafnvei enn betra en á skírdag,
glampandi sól og hiti, og fljótlega
var lokið við að ryðja veginn upp
td skíðalandsins. Tveir af fim®
páskafrídögum urðu dýrlegir hvað
veður snerti svo dumbungur
hinna og snjó'koma gleymdust al-
veg. Eftir langan dag lét Gull-
foss síðan frá bi'yggju á ísafirði
kl. 11 aið kvöldi annans páskadags
en hinir glaðlyndu og hjálpsömu
bæjarbúar kvöddu gesti sína með
því að fjölmenna á bryggju á bif-
reiðum með fullum ljósum og
þeyta flautur í ákafa, en farþeg-
ar þökkuðu gestrisni með faguað-
arópum til heimamanna.
Uir. borð í Gullfossi var ýmis-
legt til skemmtunar. Kvöldvökur
voru haldnar, dansað, sungið og
spilað á spil. Sérstök ástæða er
til að geta frá’bærrar þjónustu
starfsfólks skipsins, sem allt virt-
ist samhuga um að sýna ferðafólk
inu ýtrustu hjálpsemi og alúðlegt
viðmót.
Þátttakendur í páskaferð Gub
foss voru á öllum aldri, en þó
sennilega meira um fjölskyldur
með börn en í fyrra. Margir létu
í Ijósi þá skoðun, a'ð rétt . æri að
Eimskipafélagið beindi í næstu
ferðum þeim tilmælum til fólks, að
það sendi börn sín í rúmið eða
til klefa á einhverjum ákveðnum
tíma á kvöldin, t. d. kl. 9 eða
10. Einnig vakti það nokkra furðu
að jafnvel ungum börnum var
leyft að vera við bar skipsins og
kaupa gosdrykki ’á þeim tímum
dags, sem áfengi var framreitt.
Óliöpp, sem sum vöktu kátínu.
Ýmsir hlutu að vonum hyltur
og marbletti í skiðabrekkunum, e°
til allrar hamingju urðu engio
alvarleg meiðsli á þátttakendum
í ferðinni. Þó meiddist ung kona
lítið eitt á fæti. Ýmsir höfðu
einkabifreiðar sínar með í ferð-
inni. en Eimskipafélagið hafði tvo
stærri bíla til að flytja farþega
til og frá Seljalandsdals. Með í
för voru einnig tveir snjósleðar,
sem reyndust þó nokkúð heilsu-
veilir. Lenti annar í sjónum milb
skips og bryggju, en eigandanum
tókst á síðustu stundu að henda
sér út úr honum, og varð ekki
meint af. Ilafði benzíngjöf stað-
ið á sér og valdið óförunum. Ann-
ar maður var á hinum snjósleðan-
um í humátt á eftir þeim fyrn,
og varð ökumanni svo um, er hann
sá ófarir hins fyrri, að hann fylg"
hans fordæmi, og henti sér líka ut
á bryggjuna. Sleði hans stöðaðist
hius vegar. Varð af þessu mikm
gaman. Hófust nú rökræður um
hvort nokkur lög væru til u®
árekstra skips og snjósleða. Toks
innan skamms að ná fyrri sleðun-
um upp úr sjónum. Næsta na=
bilaði síðari snjósleðinn UPP 1
fjalli, og varð uigandinn að sku.m
hann eftir. Þá varð einnig mmnu
háttar óhapp, er vérið var &
flytja bíl eins farþegans. u°r'
stein Jónssonar, flugmanns, ut
skipið að einhver útbúnaður sli
aði og bifreiðin féll að nokki
niður á þilfarið og skemmdist.
En mest var um vert að a
aivarleg áföll eða slys ur°u?(.0”
amenn ánægja ríkti með fer r
og ferðalangar í sólskinsskapi e
páskaleyfið.