Tíminn - 01.04.1970, Qupperneq 16
Lærbrotinn piltur komst tii
læknis eftir sólarhring
PE-HvoíSvelli, þriðjudag.
Að venju dvaldi fólk í skálun-
um í Tindfjöllusn uim pás'kana.
og var þarna níu manna hópur að
þessu sinni. Á páskadag, laust
Félagsmálaskólinn
Á fundi Félagsmálaskólans í
kvöld flytur Jóhannes Elíasson,
bankastjóri, framsöguerindi um
bankakerfið.
Fundurinn er haldinn að Hring-
braut 30, og hefst kl. 20.30. Allir
eru velkomnir á fundi Félagsmála-
skólans.
Keflvíkingar
Félag ungra Framsóknarmanna
i Keflavík heldur almennan fund
um atvinnumál mánudaginn 6.
apríl kl. 8,30 e. h. í Aðalveri.
Ræðumenn verða Tómas Karlsson,
og Steingrimur Hermannsson. —
Stjórn FUF í Keflavík.
eftir hádegið, vildi það óhapp til,
að lö ára piltur, sem var að renna
sér á snjóþo'tu, lærbrotnaði, og
komst ihann ekki undir læknis-
hendiir fyrr en eftir rúman sólar-
hring.
Pilturinn bar fyrir sig annan
fótinn, með þeim afleiðingum, að
hann lærbrotnaði. Var strax send-
ur maður á skíðuim til byggða, til
að sækja hjálp. Sex manna hópur
úr iflugbjörgun'argveitinni undir
Austur-Eyjafjöll'jm, fór af stað
titn klukkan þrjú á páskadag, og
var ætlunin, að flytja piltinn til
byggða á snjóbil sveitarinnar, sem
farið hafði verið með uppeftir um
páskana. Þegar til átti að taka,
reyndist snjóbíllinn bilaður, en
björgunarmönnum tókst að gera
við hann, en bfllinn bilaði aftur.
Var þá farið á fjórhjóladrifsbílum
eins langt og komizt varð, en á
leiðinni urðu björgunarmenn að
halda kyrru fyrir í um 5 tíma
vegna veðurofsans, sem þarna
var. Munu þeir þá hafa verið
í um 1200 metra hæð, en Tind-
fjöllin eru hæst um 1460 metrar.
Þegar björgunarmenn komust
ekki lengra á bílum sínum, gengu
þeir það sem eftir var að skálan-
um til piltsins. Þeir höfðu útbúið
sleða, sem þeir festu sjúkrakörf-
una á, og þannig var pilturinn
fluttur niður að bílnum, sem kom
honum síðan á sjúkrabíl, er flutti
hann til Reykjavíkur. 'Rómuðu
björgunaitnenn mjög fraimmistöð'U
piltsins, sem allan tímann var
mjög rólegur. Ofan af Tindfjöll-
um komu björgunanmenn um há-
degið á annan páskadag, og leið
því rúmur sólarhringur frá því
hann lærbrotnaði, þar lil hann
var kominn undir læknishendur.
Aðalfundur
Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins hefst að
Hótel Sögu í Reykjavík föstu-
daginn 3. aprí. kl. 13.30.
Mikill ís bráðnar norður af landinu
Getur va/cííð hlýn-
andi vebráttu
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Geysilegt ísmagn norður af
íslandi hefur bráðnað undan-
farna daga. Fyrir rúmri viku
veittu veðurfræðingar því
athygli, að komin var greini-
leg geil í ísinn norðaustur af
Jan Mayen. Myndaðist þar flói
sem fer stækkandi. Hefur nú
bráðnað ís á svæði sem er
þrisvar sinnum stærra en Is-
land að flatarmáli. Samkvæmt
upplýsingum Páls Bergþórsson
ar, veðurfræðings, bráðnar
ísinn af því, að kaldur og
Framhald á bls. 14
Sveinn M. Friðvinsson
Stefán B. Pedersen
Guðión Ingimundarson
Marteinn Friðriksson
Stefán Guðmundsson
Kristján Hansen
FRAMBOÐSLISTINN A SAUÐARKROKI
Framboðslisti Framsóknarmanna
við bæjarstjórnarkosningarnar á
Sauðárkróki 31. maí næstk omandi
hefur verið lagður.fram. Á listan-
um eru þessir menn:
1. Guðjón Ingimundarson kennari,
2. Marteinn Friðriksson fram-
kvæmdastjóri.
3. Stefán Guðmundsson bygginga-
meistari.
4. Kristján Hansen bifreiðastjóri.
5. Stefán B. Pedersen ijósmynd-
ari.
6. Sveinn M. Friðvinsson bifvéla-
virki.
7. Sæmundur Á. Hermannsson
sjúkrahúsráðsmaður.
8. Dóra Magnúsdóttir frú.
9. Magnús Sigurjónsson deildar-
stjóri.
10. Ingimar Antonsson vélvirki.
11. Pálína Skarphéðinsdóttir fi'ó-
12. Pálmi Sighvatsson verkamaður.
13. Egill Helgason verkamaður.
14. Guttormur Óskarsson gjaldb-
Jónas Gestsson
Sigu rbergur
Þórarinn Sigurðsson Ingibjörg Sveinsdóttir Njáll Gunnarsson
/
FRAMBOÐSLISTINN I EYRARSVEIT
Birtur hefur verið framboðslisti
Framsóknarmanna og óháðra við
sveitarstjórnarkosningarnar í Eyr-
arsveit 31. mai næst komandi. Á
listanum eru eftirtaldir menn:
1. Jónas Gestsson, bankaútibú-
stjóri
2. Sigurberg Árnason, trésmiður.
3. Þórarinn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri.
4. Ingibjörg Sveinsdóttir, húsfrú.
5. Njáll Gunnarsson, bóndi.
6. Hjáimar Gunnarss., skipstj.
7. Þórður Sveinbjörnsson, verka-
maður.
8. Jón Hansson, verkamaður.
9. Þórunn Jénssen, húsfrú.
10. Arnór Kristjánsson, bóndi.
Ti: sýslunefndar:
Aðalmaður: Hjálmar Gunnarsson.
skipstjóri.
Varamaður: Þórólfur Guðjónsson
verzlunarmaður.