Tíminn - 07.04.1970, Qupperneq 12
apr3 7970
Ha iffræðingar ósamm ála Páli Bergþi árssyni - b ils. 1 5
Mikið tfón hfá fjórum
fyrirtækjum í Rúg-
brauðsgerðarbrunanum:
Engin vand-
kvæði að fá
þau lyf sem
ekki er hægt
að fram-
leiða hér
OÓ—Reykja'vík, mánudag.
Það lítur ekki út fyrir að nein
vandbvæði verði með að fá þau
lyf til landsins, sem við getum ekki
framleitt núna vegna brunans s.l.
laugardag, sagði Erling Edwald,
forstöðumaður Lyfjaverzlunar rík
isins í dag. Ætlað er að þær birgð
ir sem nú eru til af svokölluðum
dreypilyfjimi endist í eina viku,
en þau eru einkum framleidd fyr
ir sjúkrahús. Hafa verið gerðar
ráðstafanir til að kaupa tiltekin
lyf frá útlöndum þannig að engin
hætta er á að lyfjaskortur verði,
þrátt fyrir brunann.
Erling sagðist ekki geta sagt
um með vissu, hve mikið af vél-
um og tækjum þyrfti að kaupa, en
lyfjagerðin varð illa úti í brun
anum. Tækin eru illa farin af
reyk og er erfitt að sjá hve mik
ið þau eru skemmd. Má vera að
hægt verði að nota mestöll tækin
þegar búið er að hreinsa þau upp
og lagfæra.
Miklar skemmdir urðu þegar
eldur kom upp í Rúgbrauðsgerð-
inni, Borgart. 6 s.l. laugardag. Varð
eldsins vart á sjötta tímanum. Var
hann aðallega á annarri hæð húss
ins. Langmestar skemmdir urðu
Fracnhald á bls. 22
Slökkviliðsmenn að starfi
(Tímamynd Gunnar)
Árnesingar!
Almennur fundur um atvinnu
mál verður haldinn þriðjudaginn
14. apríl kl. 21 í Hótel Hveragerði
Frummælendur verða Helgi Bergs
verkfræðingur og Sveinbjörn
Björnsson, eðlisfræðingur, starfs
maður við Jarðhitadeild Orkustofn
una'r. Allt áhugafólk velkomið.
Framsóknarfélag Hveragerðjs og
FUF í Árnessýslu.
Hafnarfjörður!
FUF í Hafnarfirði heldur kaffi
fund í Skiphóli laugardaginn 11.
apríl n. k. Nánar auglýst síðar.
Stjórmn.
Reykjaneskjördœmi
Aukaþimg kjördæmissambands
Reykjaneskjördæmis verður hald
ið sunnudaginn 12. apríl næstkom
andi í Samkomuhúsinu Skiphól,
Hafnarfirði og hefst það kl. 13,30
eftir hádegi. Stjómin.
10 ÞUSUND MANNS 0G 3000
HROSS VERÐA AÐ SKÓGARHÓLUM
dagana 10. til 12. júlí í sumar — búizt við 1500 útlendingum á mótið
FB—Reykjavík, mánudag.
La'ndsmót hestamanna verður
að Skógarliólum í ÞingvaUasveit
dagana 10. — 12. júlí í sumar.
Gert er ráð fyrir, að allt að tíu
þúsund manns verði í Skógarhólum
mótsdagana og þar atf um 1500
útlendingar. Sennilega verða hross
in á Þingvöllum þessa daga ekki
færri en 3000 talsins, að sögn for-
svarsmanna landsmótsins. Þetta
er tuttugaista landsmót hestamanna
sem haldið er, en fyrsta mótið var
árið 1950.
Ákveðið hefur verið að koma
upp sérstökum tjaldbúðum, þar
sem reynt verður að tryggja nætur
ró tjaldbúðagesta. Verða tjaldbúð
irnar, sérstaklega ætlaðar fjölskyld
um. Hreinlætisaðstaða verður bætt
eins og kostur er, og rennandi
vatn verður á mótssvsóðinu. Þá
verður allt gert til þess að bæta
aðstöðu þeirra, sem verða með
hesta sína með sér, bæði keppnis
hross og önnur.
Sýnd verða tynbótahross með
og án afkvæma. Verður reynt að
leggja meiri áherzlu á afkvæma
sýningarnar en verið hefur, og ef
fært þykir verður einnig sýning
einstala-a hrossastofna.
Uæðinga'keppni verður tvískipt.
Annars vegar alhliða góðhestar og
LOBNUAFUNN ALDREI VERID MEIRI EN NÚ
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Á miðnætti s. 1. laugardag var
búið að fis'ka meiri loðnu á ver
tíðinni en dæmi eru þil áður, sam-
kvæmt upplýsinigum Fisikifélags
ins. Þá voru komnar á land 174.
;.>47 lestir. Heildarafli á vertíðinni
I fyrra var 171.009 lestum, en þá
k:om síðasta loðnan á land 5. apríl,
en í ár hófust veiðarnar seinna en
í fyrra. Um helgina var lítil loðnu
veiði. í dag fréttist af nokkrum
bátum sem voru að kasta og
fengu þrír bátar svo stór köst áð
þeir sprengdu nætur sínar.
Hæsta útgerðarstöðin er Vest-
mannaeyjar. Þar hafa borizt á
la-nd 73.668 lestir. Þá bemur Es'ki
fjörður 25.116 lestir, Neskaupstað
ur 16.586 og Seyðisfjörður 10.125
og Homaf jörður 8,865 lestir.
Fjögur skip hafa fengið yfir
5000 lestir á vertíðinni, sjö bátar
hafa fengið milli 4000—5000 1. og
14 bátar hafa veitt milli 3000 og
4000 lestir, en alls hafa 62 bát-
ar landað einhverjum afla.
Aflahæsta veiðiskipið er Eld
borg 5,587 lestir, þá er Súlan með
5. 375 lestir, Gísli Árni 5.334 lest
ir og Örninn 5.074 lestir.
Flestir loðnubátanna eru nú
hættir og farnir á net, aðallega
þeir minni.
hins vegar klárhestar með tölti.
Keppt verður í eftirfarandi
kappreiðagreinum og verðlaun
þessi:
250 m. skeið 1. verðl. 25.000,—
2. verðl. 10.00,— 3. verðl. kr.
5,0Q0,— Metverðl. kr. 25.000,—.
300 m. stökik 1. verðl. 6.000,— 2.
verðl. 4.000,— 3. verðl. kr. 2.000,
— Metverðlaun 4,000.—
800 m. stökfc 1. verðl. 25,000 2.
verðl. kr. 10.000,— 3. verðl. kr.
5,000,— Metverðlaun 'kr. 5,000,—.
í fyrsta sinn í sumar munu ís-
lendingar taka þátt í Evrópumeist
aramóti íslenzka hestsins í Rínar
löndum. í því tilefni verður sér
stök keppni að Skógarhólum, og
verður keppt í þremur flokkum,
skeiðhestar, klárhestar og alhliða
gæðingar. Hafa íslendingar fengið
boð um að senda fimm hesta á
þetta mót, sem verður fyrstu vik
una í september. Fyrsti hestur í
hverjum flökki öðlast rétt til
þátttöku í Evxópumeistaramótinu,
verða eigendur þeirra að vera
reiðubúnir til þess að selja hest-
ana að mótinu loknu, þar sem ekki
er leyfilegt að flytja hestana aft
ur hingað heim.
í Skógarhólum er einnig fyrir
huguð sérstök sölusýning, til
að auðvelda seljendum og kamp
endum hesta að ná saman. Má
reikna með að þarna verði mifcil
verzlun, og efcki síður af hálfa
útlendinga en innlendra hesta-
kaupmanna.
Allt verður gert til þess að
heildarsvipur þessa laodsmóts
verði sem beztur. M. a. verða allir
'knapar í hópreið hestamannafélag
anna klæddir félagsbúningum,
sem margir hverjir eru mjög
skrautlegir. Þá verður .lögð áherzla
á að búnaður reiðmanna og hesta
verði til fyrirmyndar á allan hátt.
I Landssambandi hestamanna
félaga eru nú 34 félög með allt
að 3000 félagsmönnum. Aðildar-
félögum hefur mikið fjölgað að
undanförnu, en í upphafi voru fé-
lögin 18 talsins.
Framkvæmdastjóri mótsins að
Skógarhólum verður Agnar
Guðnason, ráðunautur hjá Búnað
arfélagi íslands, sem_ einnig er
aðili að þessu móti. í Landsmóts
nefndinni eru þessir menn:
Sveinbjörn Dagfinnsson frá Hesta
mannafélaginu Fáki, form.
Pétur Hjálmsson frá Hestamanna
Frainhald á bls. 22
HELLISHEIÐIL0KUÐ
í MESTALLAN VETUR
KJ—Reýkjavík, mánudag.
I dag var unnið að því, að
ryðja ■snjö af vegum yfir Hellis-
heiði, en heiðin hefur verið lok
uð í mest allan vetur, og segja
kunnugir, að heiðin hafi sjaldan
verið eins lengi lokúð og í vetur.
Ekki var búið tð tpaa •Á«»Us
heiði í kvöld, en aðalsnjóruðnings
tækið, öflugur og afkastamikill hef
ill var bilaður og gekk snjóruðning
urinn því e'kki eins vel og skyldi
Heiðin tepptist fyrst fyrir jól,
var svo opnuð eftir nýjárið, en var
svo teppt þar til fyrir páska, en
þá var vegurinn opinn í 2—5 daga
--■i iwtwir <iðan ærið iokaður.
FÉLAGSMÁLANÁMSKEIÐ
HEFST Í KEFLAVÍK Í KVBLD
EJ—Reykjavík, mánudag.
Á morgun hefst í Keflavík
félagsmálanámskeið •'g verður
það haldið í sal Iðnaðarmanna
félagshússins. Námskeið þetta
er, eins og svipuð námskeið
sem haldin hafa verið annars
staðar á landinu undanfarið,
öllum opið án tillits til stjórn
málaskoðana.
Fyrsti fundur námskeiðsins
verður ánnað kvöld kl. 8,30
og næsti fundur á miðvikudags
kvöldið á sama tíma, en alis
verða fundirnir fimm. Á þess
um fundum verður veitt tilsögn
í grundvallaratriðum ræðugerð
ar og ræðumennsku og kennd
fundarstjórn og fundarsköp.
Leiðbeinandi á þessu námskeiði
verður Atli Freyr Guðmunds
son, erindreki.
Atli Freyr tjáði blaðinu í dag
að þetta væri þriðja námskeiðiö
af þessu tagi-sem haldið væri
úti á landi. Hin tvö fyrri voru
haldin á Isgfirði og Akureyn
og tókust mjög vel. Hafa ungir
sem aldnir sótt þessi námskeið,
og þátttakendur haft misjafnar
stjórnmálaskoðanir, en eins oí
áður segir eru þessi námskeið
öllum opin.
Námskeið þeSsi eru haldin
fyrir forgöngu FUF-félaganna
á hverjum stað, og um 20. þessa
mánaðar hefst slíkt námskeið
á Akranesi.