Tíminn - 20.05.1970, Síða 2
m.
TIMTNN
i r • * • v» f • r; > f , , (» »■ * r T 'r »;> 1 *» .1 1' •
MIÐVIKUDAGUR 20. maí 1970/
Launagreiðslur Kaupfélags Skagfirðinga
námu 50 milljönum króna á síðasta ári
Kaupfélag Skagfirðinga er lang
stærsta fyrirtækið á Sauðárkróki
og í Skagafjarðarsýslu. Eru lið-
in rúm 80 ár frá stofnun þess
og stendur hagur kaupfélagsins
og fyrirtæk.ia þess með ágætum.
Má marka stærð kaupfélagsins og
þeirra fyrirtækja sem rekin eru á
þess vegum, á því að á síðasta ári
var velta 405 millj. kr,- Launa-
greiðslur námu 50 miilj. kr. og
alls voru um 800 manns á launa
skrá.
Tíminn hafði tal af Sveini Guð-
mundssyni, kaupfélagsstjóra, en
hann hefur stjórnað fyrirtækinu
s. 1. 25 ár.
Hver eru helztu fyrirtæki, sem
rekin eru á vegum Kaupfélags
Skagfirðinga?
Öll fyrirtæki kaupfélagsins eru
staðsett hér á Sauðárkróki, nema
víða um héraðið. Hér er Fiskiðj-1
an, mjólkursamlag Skagfirðinga,'
bifreiða- og vélaverkstæði, og þar
með talið rafmagnsverkstæði
kjötvinnsla, —_ trésmíðaverkstæði
og sláturhús. Útibú hefur kaupfé-
lagið á Hofsósi og Varmahlíð og
Sameiginleg lækna-
þjónusta á sjúkrahúsinu
Sjúkrahús Skagfirðinga og Sauð
árkróks er staðsett á Sauðárkróki
og eru sýsla og bser eigendur
i>ess. Tók sjúkarhúsið til starfa
í nýtízkulegri byggingu árið 1961.
Ólafur Sveinsson hefur verið
sjúkrahúslæknir þar síðan.
Sagði hann Tímanum, að rúm
væri fyrir 40 sjúklinga og skipt-
ist sjúkrahúsið í tvær deildir,
hjúkrunardeild sem ætluð er lang
legusjúklingum og sjúkradeild.
Starfseoni sjúkrahússins er tviþætt
það er að taka við og annast
sjúkt fólk og heilslugæzla, en
Starfsemin er nokkuð óvenjuleg
að því leyti, að heimilislækningar
eru reknar í sjúkrahúsinu. Þar
hefur héraðslækniánn, Friðrik J.
Friðriksson, aðsetur og lækninga-
stofur okkar eru hér í húsinu.
Allar spjaldskrár varðandi sjúkl-
inga og sjúkdóma eru sameigin-
legar, og fólk getur komið og
talað við hvorn okkar sem er.
Þriðji læknirinn Bjarni Þjóðleifs-
son bættist við í vetur. Teljum
við nauðsynlegt að hér starfi að
minnsta kosti þrír læknar, bæði
vegna heimilislækninga og anna
meinsfélag Skagafjarðar hefur rek
ið leitarstöð frá 1963.
Starfsemi sjúkrahússins hefur
aukizt mj'ög undanfarið og brátt
fer ^ð verða fullþröngt og þyrfti
að stækka húsið. Sérstaklega vant
ar oft rúm fyrir langlegusjúkl-
inga.
Við sem hér störfum lítum á
þetta sem læknamiðstöð. Er
sjúkrahúsið sæmilega búið tækj-
um, en lengi má bæta við og
gömul tæki ganga úr sér.
Ólafur Sveinsson
sjúkrahúslæknir
á sjúkrahúsinu. Öll heilbrigðis-
starfsemi í bænum fer fram hér.
Héraðslæknirinn annast berklaeft-
irlit og heilsugæzlu og Krabba-
þungavöruuppsátur á Skaga, en
þangað eru fluttar vörur á haust-
in og er það talsverð stoð þeim
Vifilstaðahreppsbúum. Kaupfélag-
ið rekur níu sölubúðir og eru
margar þeirra sérverzlanir.
Á síðasta ári var Kaupfélag
Skagfirðinga á Hofsósi sameinað
Kaupfélagi Skagfirðinga. Þegar
félagssvæðið var stækkað, var sú
breyting gerð á stjórninni, að þar
sitja nú sjö rnanns í stað fimm
áður.
Á döfinni er nú breyting á
fóðurvörus'ölu. Og er kaupfélagið
að undinbúa kornmölun. Hér hef-
ur lengi verið starfrækt fóður-
blöndun en í undirbúningi er að
auka þá starfsemi mjög og taka
hingað ómalað korp.
Auk fyrrnefndra fyrirtækja sér
kaupfélagið um olíudreifingu um
héraðið og rekur alhliða skipa-
afgreiðslu.
Kaupfélagið er stærsti atvinnu-
veitandinn í héraðinu. Fastir
starfsmenn hjá KS eru 110—120,
en á launaiista hjá kaupfélaginu
og fyrirtækjum þess eru mun
fleiri eins og að framan greinir,
og eru þá. ekki meðtaldir verk-
takar, sem unnið hafa ýmis verk
á vegiun KS. Áður er getið um
veltu félagsins og launagreiðsl-
ur en því má bæta við, að opinber
Sveinn Guðmundsson
kaupféla'gsstjóri
gjöld til sveitarfélaga og ríkis voru
á s. 1. ári 9.4 millj. kr.
Sfðasta aldarfjórðung hefur KS
lagt fram miklar fjárupphæðir til
menningarmála, en kaupfélagið
hefur sérstakan menningarsjcð
sem veitt er úr til stofnana og
félaga. Á s. 1. ári var framlagið
í menningarsjóðinn 500 þús. kr.
en í sjóöinn er veitt árlega ákveð
inni upphæð á aðalfundi. Stærsta
upphæðin sem veitt hefur verið
er til sjúkrahússins, það fékk 300
þús. kr. til tækjakaupa. Ung-
mennasambandi Skagafjarðar voru
veittar 50 þús. kr. Aðrir stýrk-
þegar eru safnaðarheimilið á Sauð
árkróki, þá er veitt til útgáfu-
starfsemi bóka og skjalasafn Skag
firðinga hefur hlotið veitingu úr
sjóðnum.
Svartárvirkjun mun tvöfalda raf-
orkuframleiðslu á orkusvæöinu
Með fjölgun fyrirtækja og vax-
andi iðnvœðingu á Sauðárkróki er
mikil þörf á aukinni orku. Helgi
Riafu Traustasou er formaður raf-
veitustjórnar og bað Tírninn
hann að segja nokkuð frá þeim
HÆKKUN ÞUNGASKATTSINS
KEMUR NIÐUR A ALMENNINGI
Kristján og Jóhannes heitir flutn
ingafyrirtæki á Sauðárkróki og
eru eigendur þess brqpður sem
fyrirtækið heitir eftir. Kristján
Hansen, sem er annar eigenda,
sagði Tímanum að fyrirtækið hafi
verið starfrækt í 16 ár og haldið
uppi ferðum á vöruflutningabílum
milli Sauðárkróbs og Reykjavífcur.
— Við höldum uppi tveim föstum
ferðum í viku og svo eru oft auka-
ferðir þegar mikið er um flutn-
inga. Aðallega flytjum við vörur
milli Sauðárkróks og Reykjavíkur
en einnig tökum við að okkur
vöruflutninga á öðrum leiðum þeg
ar þörf er á. Við fiytjum varning
fyrir verzlanir og verkstœði og
einnig er mifcið um flutninga fyrir
almenning, og þá aðallega bygg-
ingarefni alls konar.
— Reynt er að hafa föstu ferð-
irnar sem tryggastar svo að fóik
geti treyst á þær með flutninga,
en oft er erfitt að komast á milli
vegna færðar og slæms vega-
ástands. Þetta er nú orðið mun
skárra en áðrr var, því oft þurfti
maður að vera einn að moka sig
áfram í vondum veðrum á Holta-
Kristján Hansen
bifreiðastjóri
*
vörðuheiði, en nú höfuin við yfir
leitt fleiri samffot saman og Vega-
gerðin aðstoðar bílana við að kom
ast yfir. En það sem kemur okkur
verst núna eru þungatakmarkan
irnar, sem oft eru í 5—6 vikur.
Nú hafa til lærnis verið þunga-
tabmarkanir á vegunum í 2 vikur,
en þær eru nokkuð árvissar en
standa misjafnlega lengi eftir tíð-
arfari. Þegar flutningarnir stöðv-
ast eða takmarkast kemur það sér
oft illa fyrir fólk, sem er orðið
vant að fá alla vöru eftir hend-
inni þegar þörf er á. Verzlunin
hér er ekki svo ör að búðirnar
liggja ekki með stóran lager í
langan tíma. Er því mikils um vert
að flutningarnir gangi greiðlega
og að ekki verði mikil töf á þeim.
f sambandi við flutningana erum
við mjög óánægðir með þær nýju
aðgerðir, sem búið er að boða,
að taka þungaskatt eftir kílómetra
mæli. Hækkaðir sikattar á okkur
hljóta að hafa áhrif á flutnings-
gjöldin, sem þýðir aukin útgjöld
fyrir almenning. Það er ekki rétt
að beita þessum aðgerðum gegn
fáum aðilum, það er að segja
flutningafyrfrtækjum og sérleyfis
höfum, en sleppa minni bílum við
hæfckun á flutningsgjaldi. Við
höfum enn efcki fengið að vita
hve hátt gjaldið verður, en það
á að koma til framkvæmda
1. júlí n.k.
möguleikum sem fyrir hendi eru
til aakinnar orkuframleiðslu.
Á undanförnum árum hafa ver-
ið rannsakaðir virkjunarmöguleik-
ar í Reykjafossi í Svartá í Skaga-
fírði. Rennslismælingar eru til frá
árinu 1936 og er óvenju jafnt
rennsli í ánni að sögn fróðra
manna. Virkjun við Reykjafoss
getur gefið af sér milli 3.8 og 4
megavött. Þannig að með því að
virbja þarna mundi orkan nánast
tvöfaldast frá því sem nú er.
Seinni part vetrar var fyrirtækinu
Virki h.f. falið að hanna þessa
framkvæmd og væntum við þess
að tekin yerði ákvörðun um það
alvej á næstuuni hvort virkjað
verður eða orkunnar aflað eftir j
öðrum leiðum.
Á síðustu árum hefur verið
starfandi samstarfsnefnd í raforku [
málum fyrir Norðvesturland og
eru Skaigfirðingar, Sauðárkróks-
búar og Húnavatnssýslurnar aðilar
þar að og væntanlega munu Sigl-
firðingar koma inn í samstarfið.
Þessi nefnd hefur aðallega unnið
að athugun á orkuöflun og á henn
ar vegum flutt á þingi frumvarp
um Norðvesturlandsvirkjun. Hef-
ur algjör samstaða ríkt á svæðinu
um þessi mál og hefur nefndin
lagt höfuðkapp á að fá annan orku
gjafa og ódýrari en dieselvélar.
Áætlaður kostnaður við Svartár-
virkjun mun vera um 70—75
millj. kr. Ef af virkj-uninni verður,
teljum við eðlilegt að við verðum
eignaraðilar að henni. Þörfin fyrir
aukna orku er mikil, til dæmis er
að skapast hér orkufrekur iðnað-
ur. Eftir að Svartá hefur verið
virkjuð, mun verða næg raforka
á svæðinu næstu 8—10 ár, en þá
þyrfti að koma viðbótarvirkjun.
Kæmi þá til álita að virkja Víði-
Helgi Ratfn Traustason
formaður rafveitustjórnar
dalsá, eða fá raforkuna með linu
frá Akureyri, en þeir verða þá
aflögufærir þar.
Fáist samþykki stjórnvalda til
að Svartá verði virkjuð, þá er
hægt að hefjas'. handa um fram-
kvæmdir strax, og leggjum við á-
herzlu á að \ 'rkjunarframkvæmd-
irnar hefjist í sumar. Talið er að
verfcið taki um tvö ár. Er þegar
búið að hanna verkið svo að sá
undirbúningur ætti ekki að þurfa
að tefja verkiJ. Verði virkjunin
gerð, er reiknað með að skapa
laxgönguleið upp fyrir Reykja-
foss, en fram að þessu hefur lax
ekki komizt lengra upp í ána.