Tíminn - 24.05.1970, Page 11

Tíminn - 24.05.1970, Page 11
SUNNUDAGUR 24. maí 1970. TIMINN n Hvað hafa þeir. .. Framhald af bls. 1. gefi um ]>að yfirlýsingu og loforS, að sérsamningum aðila, sem beita sér fyrir lausn kjaradeilunnar, verði ekki mætt með hefndarráð- stöfunum gegn launþegum í formi gengislækkunar eða annarra bú- sifja o galls ekki með hefndarráð- stöfunum í fjármálakerfi landsins gegn þeim fyrirtæ'kjum, sem for- ystu hefðu um slíka sérsamninga. Forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar vita það mætavel, að án slíkrar yfirlýsingar fá þeir trauð- lega aðila til að ganga fram fyrir skj'öldu nú og höggva á hnútinn. Sérstaklega ættu verkalýðsleið- togar að biðja ráðherra Alþýðu- flokksins um að gefa slík loforð. Láta þá nú þegar gefa yfirlýs- ingu um það, að þeir muni tryggja það, í stjórnarsamstarfinu, að Alþýðuflokkurinn muni aldrei fall- ast á slíkar hefndaraðgerðir. Þeir hljóta að eiga jafn auðvelt með að koma í veg fyrir það að það reynist auðvelt fyrir ráðherra Sjálfstæðisflokksins að koma í veg fyrir hækkun ellilífeyris — að sögn Alþýðuflokksráðherra. Eru ráðherrar Alþýðuflokksins fáanlegir til að gefa slíkar yfir- lýsingar og slík loforð nú? Er ekki rétt að láta reyna á það? En af hverju spyrja Alþýðu- bandalagsmenn, Hannibalistar og Alþýðuflokksmenn og málgögn þeirra ekki einhverja fleiri en for- ystumenn Framsóknarflokksins að því af hverju ekki sé samið og gengið að kröfum verkafólks? Framsóknarflokkurinn ræður ekki Sambandinu og Vinnumálasam- band samvinnufélaganna er ekki deild í Framsóknarflokknum. I stjórn SÍS sitja menn úr fleiri flokkum en Framsóknarflokknum. Þar eiga meðal annars sæti full- trúar hinna svokölluðu ..verkalýðs- flokka". í stjórn SÍS sitja þeir Ragn/ar Ólafsson og Ólafur Þ. Kristjánsson. Ekki eru þeir „vond- ir Framsóknarmenn". Miðstjórn Framsóknarflokksins hefur gert ályktun og áskorun til samvinnuhreyfingarinnar um að ganga til móts við kröfur verka- fólks. Ekki hafa aðrir flokkar orð- ið til þess. Hvers vegna beita þeir Ragnar Ólafsson og Ólafur Þ. Krist jánsson sér ekki fyrir því í stjórn SÍS að samið verði tafarlaust við verkalýðshreyfinguna? Og af hverju semur ekki KRON? Ekki ráða Framsóknarmenn þar! Það er líka staðreynd, að það eru Al- þýðubandalagsmenn undir yfir- stjórn Lúðvíks Jósefssonar, sem ráða öllu í helztu atvinnufyrir- tækjunum í Neskaupsstað? Af hverju er Lúðvík ekki búinn að semja fyrir löngu? Af hverju geng- ur hann ekki strax og umyrða- laust að kröfum verkalýðshreyf- ingarinnar? Hafa menn nokkuð heyrt um það, að Lúðvík hefði forystu um það á Norðfirði að bjóða fram kjarabætur til handa verkafólki? Það er unnt að leggja spurn- ingar fyrir fíeiri en forystumenn Framsóknarflokksins. Ef forystumenn verkalýðshreyf- ingarinnar meina eitthvað með tali sinu um samvinnuhreyfinguna ættu þeir í-ljósi reynslunnar frá 1961. að beita nú öllum áhrifúm sínum og áróðursmætti blaða sinna til að knýja fram yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar og þá sér- staklega loforð ráðherra Alþýðu- flckksins, ,.verkalýðsflokksins“ í ríkisstjórninni, um að komandi kjarasamningum verði eaki mætt með hefndaraðgerðum gegn laun- þegum, ef þeir aðilar. sem rfkis- stjórnin hefur ekki velþóknun á leyfa sér að taka iorustu um lausn kjaradeilunnar. Það er verkalýðs- foringjunum verðugra -erkefni og launþegum í landinu til meira gagns, en rógur og illmælgi nm þann stjórnmálaflokk. sem er sam- herji verkalýðshreyfingarinnar í þessari kjaradeilu. Sumarstarf Framhald af bls. 3. vinnuvélar. Þá verður kennsla í hestamennsku, skyndihjálp og fl. Einnig verður efnt til skoðana- ferða, garðræktar o.fl. Þátttaka í þessu námskeiði er bundin við 300 unglinga á aldrinum 10—15 ára og þátttöku'gjald er 80 kr. Þá verður sú nýjung í sumar- starfi æskulýðsráðsins, að kartöflu og rófurækt verður í Saltvik und- ir umsjón Jóns Pálssonar. 30—40 unglingum á aldrinum 13—15 ára, sem ekki komast í sveit í sum- ar, eða hafa ekki fasta vinnu, verð ur gefinn kostur á að fá til slíkrar ræktunar 100 fermetra garðland. Ráðgert er að þessi hópur fari einnig austur í Þingvallasveit á vegum Búnaðarfélags fslands og vinni þar m.a. við fræ- o:g ábuxB- ardreifingu í einn dag. Einnig er sú nýjung að frá því í júní og til júlíloka verða ungmenn um á aldrinum 9—14 ára veitt tækifæri til ódýrra ferða og dags- dvalar í Saltvík. Siglingar eru ætíð vinsælar me® al unga fólksins og verður Sigl- ingaklúbburinn í Nauthólsvík op- inn í sumar mánudaga, miðviku- daga, fimmtudaga og laugardaga, auk þess sem sérstakur tími verður fyrjr yngstu télagana og byrjendur í siglingalistinni. Stang- veiðiklúbbur unglinganan mun starfa líkt og undanfarin sumur og einnig fer starfsemin í Tónabæ fram með líku sniði og í fyrra- sumar. Skömm Geirs Framhald af bls 1. Siálfstæðisflokkinn til þess að tryggt sé að það verði gæzlustjóri hagsmuna Sjálfstæðisflokksins, sem verði borgarstjóri í Reykja- vík næsta kjörtímabil. Er þetta ekki að bíta höfuðið af skömminni? Auglýsið í íímanum Bifreiðaeigendur Getum aftur tekiS bifreið- ar yðar til viðgerða með stuttum fyrirvara. Réttingar, ryðbætingar, grindaviðgerðir, yfir- byggingar og almennar bílaviðgerðir. Höfum sílsa í flestir gerð- ir bifreiða- I Pljót og góð afgreiðsla. — j Vönduð vinna. I BfLASMIÐJAN KYNDILL Súðavogi 34. Sími 32778. i ESKIFJÖRÐUR í vetur var sá háttur á út- gerð frá Eskifirði, að stærstu skipin voru á loðnuveiðum. B/V Jón Kjartansson var með 4010 lestir, Krossanes með 3000 lestir M/S Seley var með 3100 lestir og M/S Guðrún Þorkelsdóttir 2540 lestir. Sam- tals lönduðu þessi fjögur skip 12650 lestum. Alls var landað á Eskifirði 30120 lestum af loðnu og voru frystar 195 lest- ir. Bræðslu lýkur sennilega um 15. maí. Um áramótin hófu tvö skip- anna veiðarnar með troll hitt með línu, en sökum inflúensu- faraldurs varð minna úr en efni stóðu til. M/S Hólmanes hefur verið á togveiðum frá því 20. janúar, en afli hefur verið heldur lítill. Nýlega landaði B/V Jón Kjartansson 163 lestum af þorski eftir stutta útivist. Eítir loðnuvertíðina reyndu M/S Sel ey og M/S Krossanes hring- nótaveiði fyrir þorsk. M/S Guð rún Þorkelsdóttir hóf grálúðu- veiði en veður var óhagstætt og lítil veiði. Á siðasta hausti var aukin afkastageta frysti- hússins og.ekki ólíklegt að af- kastageta hússins sé nú helm- ngi mteiri en áður var, ef fólk er fyrir hendi, og hrá- efni er nægilegt. Um 1904 er talið að fyrsti vélbáturinn komi til Eskifjarð- ar og eru það bræðurnir á Svínaskála sem hann eiga. um 1906 er talið að nokkrir bátar séu til og er þá talað um báta smíðastöð og norskur maður talinn yfirsmiður. Fjölgar Dát um ört og þegar komið er fram undir fyrri heimstyrjöld er verulegur bátaútvegur orð- inn á Eskifirði. 1930 eru skráð- ir 17 vélbátar, 1 línuveiðari, yfir 50 lestir og einn togari. Á vetrarvertíð urðu bátarn- ir að sækja frá Hornafirði eða Djúpavogi, en allflestir reru þeir frá Hornafirði. Aðalatvinna var fiskvinnsla og var þurrkað mest af fisk- inum. Einstaka útgerðarmenn áttu þurrkhús en mest var þó þurrkað úti, ýmist á grindum eða grjótreitum. 1931 er togarinn seldur frá Eskifirði og útgerð dróst sam- an eins og annars staðar Á árunurn milli 1930 og 1940 voru keyptir nokkrir bátar tii staðarins fyrir atbeina sam- vinnufélags sem efnt var til. En eins og áður hefur verið getið er ekki hægt að róa frá Eskifirði yfir vetrarmánuðina. svo að stundum fóru Eskifjarð arbátar til Sandgerðis og Vest- mannaeyja og var þeim haldið út þaðan yfir vertíðina. A ár- unum 1927 til 1929 var mikil síld í Reyðarfirðinum og var saltað mikið á þessum árum af fjarðarsíld. Aðalveiðiáðferðin var að fiska með landnótum og var kallað að geyma síld- ina í lás sem stundum var gert og þá tekið eftir hendinni það sem hægt var að verka Hvern dag. Á kreppuárunum fækkaði bátunum verulega og má segja að ekki hafi lifnað yfir út- gerðinni aftur fyrr en um og eftir 1960 er síldin fór að verða meira við Austfirðina. Á Eski firði er bæði frystihús eins og fyrr segir og þar er einnig sí’d ar- og fiskimjölsverksmiðja. Bolungarvíkurbátar hafa landað frá áramótum sem hér segir. frá 1.1. til 30.4. 1970: Sólrún lína 693.1, Guðmundur Péturs 634.5 lestir, Einar Hálf- dáns 480.8 lestir, Flosi 455.4 lestir og Hugrún hefur verið á togveiðum og hefur landað 430.5 lestum. Rækjuveiðar ganga vel eins og áður. Ingólfur Stefánsson. SKOLAVÓR-ÐUSTIG'2 <gníincníal BLOMASTOFA FRIÐFINNS SuSurlandsbraut 10. ÚRVAL FALLEGRA POTTAPLANTNA * Skreytum viS öU tækifæri. * Opið öll kvöld og allar helgar tö kl. 22,00. Shni 31099. — PÓSTSENDUM — LAFAYETTE MULTITESTER MALVERK Gott úrval. Afborgunar- kjör. Vöruskipti. — Um- boðssala. Gamlar bækur og antik- vörur. Önnumst innrömmun mái- verka. MALVERKASALAN TÝSGÖTU 3. Simi 17602. Hjólbarðaviðgerðír OPIÐ ALLA DAGA (LiKA SUNNUDAGA) FRÁ KL 8 TIL 22 GÚmíVINNUSTOFAN HF. Skipholti 35, Roykjavik SKRIFSTOFAN; s(mi 3 06 88 VERKSTÆÐIÐ; s(mi310 55 Hinir vinsælu LAFAYETTE mælar komnir aftur. Sendum í póstkröfu. HLJÓÐBORG Suðurlandsbraut 6. Sími 83585. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður. Bunkastræti 12. ENSKIR RAFGEYMAR fyrirliggjandi. LONDON BATTERY Lárus Ingimarsson, heildverzlun. Vitastíg 8a. SimJ 16205.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.