Morgunblaðið - 08.11.2005, Page 5

Morgunblaðið - 08.11.2005, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 5 BÆKUR nokkrum árum og standi enn. „Þó verður eiginlega að segja að samhliða því leyfist allt. Höfundar eru ekki bundnir af neinni stefnu eða viðhorfum í skrifum sínum fyrir börn í dag. Það er allt í gangi. Efni myndabókanna er stundum kallað fantasía en oft væri nær að kalla þær dæmisögur, þar sem verið er að kenna börnum ákveðin grundvallaratriði með frásagnaraðferð æv- intýrisins. Bók Ragnheiðar Gestsdóttur um regn- bogann er ágætt dæmi þar sem frumlitirnir eru kát- ir krakkar og markmið bókarinnar öðrum þræði að kenna börnunum litablöndun. Þegar Rauður og Gulur renna sér saman þá verður röndin appels- ínugul. Boðskapurinn er að saman getum við annað og meira en hvert fyrir sig. Svo má ekki gleyma því að vinsælasta bókin í fyrra var bók Guðrúnar Helgadóttur sem er best lýst sem raunsæissögu úr Reykjavík. Hið sama má segja um Fíusól. Sögur sem gætu gerst heima hjá mér og þér. Engir töfrar og engir galdrar. En bráðskemmtilegar. Fant- asíubækurnar eru engu að síður óskaplega vinsælar enda töfrar og aðrir heimar heillandi söguefni.“ Undirbúningur fyrir allt Hvar dragið þið svo línuna í efri aldursmörk- unum? „Við gefum auðvitað út bækur sem við ætlum unglingum og eru flestar reyndar þannig að full- orðnir hafa líka gaman af þeim. En við viljum brúa bilið betur á milli unglinganna og hinna fullorðnu því það er mjög misjafnt á hvaða stigi í lestri ung- lingar á aldrinum 13–16 ára eru. Við vildum þó gjarnan sjá að fullorðna fólkið héldi bókum meira að ungling um því lestur dettur talsvert niður þegar börnin komast á unglingsár. Minna þó eftir því sem þau hafa vanist meira á lestur. Það er staðreynd sem við hömrum stöðugt á. Bóklestur er undirbún- ingur fyrir allt sem barnið mun síðar taka sér fyrir hendur í lífinu. Það gildir jafnt um tök á tungumál- inu og hæfni í stærðfræði og allt þar á milli. Illa læs einstaklingur í nútímasamfélagi er verulega fatl- aður. Þess vegna er ekki til betri undirbúningur fyr- ir börnin en að byrja að lesa fyrir þau sem fyrst og halda því áfram á hverjum degi þangað til þau eru orðin vel læs. Síðan að halda bókum að þeim uppfrá því. Það er besta gjöfin sem við getum gefið börn- unum okkar og hún þarf ekki að kosta mikið. En það þurfa auðvitað að vera góðar, skemmtilegar og fallegar bækur.“ orðin svo mikil í því að segja sögur með myndum að það er ekki óalgengt að myndirnar verði til um leið og textinn. Oft er það líka þannig að sami listamað- ur er höfundur bæði mynda og texta. Sigrún Eld- járn, Áslaug Jónsdóttir og Björk Bjarkadóttir eru góð dæmi um slíka höfunda. Þar má segja að mynd- irnar beri uppi frásögnina og textinn styður við. Dæmi um samstarf þar sem myndir og texti verða nánast til samtímis og í samvinnu rithöfundar og myndlistarmanns er bókin Rissa vill ekki fljúga eft- ir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Bald- ursdóttur sem áður unnu saman verðlaunabókina Engill í vesturbænum.“ Myndasögur fyrir eldri börn Eftir því sem börnin eldast og lestrarkunnáttunni fleygir fram eykst vægi textans og myndum fækkar þó þær hverfi engan veginn alveg úr bókunum. „Góð dæmi um þetta er Steinhjartað, þriðja bók Sigrúnar Eldjárn um systkinin Stínu og Jonna sem Sigrún myndskreytir sjálf og önnur bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Fíusól, gleðisprengjuna sem náði einstaklega vel til krakka í fyrra og síðan hefur ekki linnt fyrirspurnum um hvort komi nú ekki örugglega framhald. Þar á textinn meira pláss á síðunum en myndir Halldórs Baldurssonar eru einstaklega húmorískar og bæta alltaf einhverju við.“ Sigþrúður bætir því við að myndir skipi sífellt stærri sess í bókum fyrir stærri krakka. Hún bendir á bókina Dýr sem Halldór Baldursson hefur mynd- lýst. „Þetta eru geysilega fallegar myndir og sög- urnar eru alls ekki fyrir unga krakka, stundum ansi safaríkar og jafnvel hrollvekjandi. Myndirnar und- irstrika það og t.d. er ein sem sýnir leðurblökur á knæpu og það er ekki oft sem slíku umhverfi er myndlýst í barnabók!“ Enn ein útfærslan á mynd- skreytingum eru myndasögur Emblu Ýrar Báru- dóttur og Ingólfs Arnar Björgvinssonar eftir Njálu. „Við renndum algjörlega blint í sjóinn með hvern- ig þessu yrði tekið en skemmst er frá því að segja að Njálumyndasögur þeirra, Blóðregn og Brennan slógu algerlega í gegn og nú er þriðja bókin, Vetr- arvíg, komin út. Aðferð þeirra Emblu og Ingólfs er að taka efni Njálu og beygja það að teiknimynda- söguforminu, stundum mjög frjálslega en þeim tekst þetta alveg einstaklega vel.“ Þegar talið berst að sjálfu efni bókanna segir Sig- þrúður að sannkölluð fantasíubylgja hafi hafist fyrir og fallegar bækur Morgunblaðið/Þorkell bóka hjá Eddu útgáfu. dór Baldursson og Tove Appelgren. Risaeðlur í íslensku samhengi. Risaeðlutíminn eftir Ingibjörgu Briem og Maribel Gonzalez Sigurjóns. Þór í vagni sínum með hafrana góðu. Úr Völuspá eftir Þórarin Eldjárn og Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur. Í kjölfar einstakra vinsælda Da Vinci lykilsins og Engla og djöfla hafa aðrar spennubækur eftir Dan Brown klifrað upp í efstu sæti metsölulista um allan heim síð- ustu misseri. Þeirra á meðal er Blekkingaleikur (Deception Point) sem Bjartur hefur nú gefið út í ís- lenskri þýðingu Karls Emils Gunn- arssonar. Í Blekk- ingaleik mynda nútíma geimrann- sóknir og bandarísk samtímastjórnmál umgjörð um æsi- lega atburðarás með óvæntum upp- ljóstrunum og ófyrirsjáanlegum endi. Bandaríska geimferðastofnunin NASA þykist hafa himin höndum tekið þegar gervihnöttur á hennar vegum gerir merka uppgötvun yfir Norð- urheimskautinu. Stofnunin á undir högg að sækja og uppgötvunin er ekki aðeins líkleg til að greiða fyrir frekari geimrann- sóknum heldur hafa afdrifarík áhrif á bandarísku forsetakosningarnar. Í Hvíta húsinu er ákveðið að biðja Rac- hel Sexton, unga konu sem starfar við að skrifa njósnaskýrslur, um að greina fyrirliggjandi gögn um málið. Fyrr en varir er Sexton komin út á kaldan heimskautaklakann ásamt hópi sérfræðinga, þeirra á meðal hin- um þekkta sjónvarpsmanni Michael Tolland. Þau verða þess fljótt vör að uppgötvun NASA byggist á vísinda- legum blekkingum – blekkingum sem gætu hleypt heimsmálunum í bál og brand. Prentun: Bookwell í Finnlandi. Kápuhönnun: Ásta S. Guðbjartsdóttir. Verð kr. 4.280. Nýjar bækur Sunnlenska bókaútgáfan á Selfossi hefur gefið út ljóðabókina Einnar báru vatn eftir Sigríði Jónsdóttur, bónda í Arnarholti í Biskupstungum. Þetta er fyrsta bók höfundar en í kynningu útgefanda segir m.a.: „Ljóðin eru þroskuð og vel ort. Þau ganga nærri lesanda vegna þess hvað þau eru persónuleg, hlý og op- inská: Ljóð sem verða lesin aftur og aftur. Í ljóðum Sigríðar renna saman tveir heimar, tungutak vorra daga og viðfangsefni þúsund ára bændaþjóð- ar.“ Sunnlenska hefur einnig gefið út Þykkskinnu hina síðari eftir Helga Hannesson (1896–1989) sem er safn sagnaþátta úr Rangárþingi. „Bókin er sjálfstætt framhald Þykks- kinnu eftir sama höfund sem kom út haustið 2003 og var vel tekið. Í skrif- um Helga fara saman sagnagleði höfundar, frábær tök á íslenskri tungu og hispursleysi í frásögnum sem á fáa sína líka. Bókina prýða einstakar ljósmyndir úr safni Helga.“ Útkall útgáfufélag hefur sent frá sér bókina Líkami fyrir lífið fyrir konur eft- ir Pamelu Peeke í þýðingu Guðjóns Guðmundssonar. Metsöluhöfund- urinn og lækn- irinn Pamela studdist við nýj- ustu rannsóknir þegar hún lagaði aðferðirnar úr Lík- ami fyrir lífið að þörfum kvenna. Bókin er sniðin að hormónabúskap, efnaskiptum og lífeðlisfræðilegum þörfum kvenna. Bókin kennir þér að jafnvægið milli æfinga og næringar skiptir mestu máli. Á öllum aldri. Þú borðar fimm til sex litlar máltíðir á dag og verður aldrei svöng. Þú velur gæðaprótín, fitu og kolvetni en slepp- ir ruslfæðinu. Þannig færð þú orku til að brenna líkamsfitunni með hreyf- ingu og styrkjandi æfingum. Konur þurfa ekki að óttast að verða of vöð- vastæltar – þær hafa einfaldlega ekki genin í það. Með þessu móti nærðu varanlegum árangri og gefst ekki upp. Bókin er 260 bls. Verð: 4.490 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.