Tíminn - 14.06.1970, Side 14
14
Gistihúsið
Varmá
MOSFELLSSVEIT
Opið 15. júní — 1. september
Gisting — Matur — Sundlaug — Hestaleiga —
Tjaldstæði — Svefnpokapláss.
Sími 66156
® Skrifstofa V.R. flytur
^ css;i t
Skrifstofa Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður lokuð mánudaginn 15. júní 1970, vegna
flutnings.
Skrifstofa félagsins verður opnuð þriðjudaginn
16. júní að HAGAMEL 4.
Athygli skal vakin á breyttu símanúmeri skrif-
stofunnar sem verður framvegis 26850.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Frá Húsmæðra-
kennaraskóla íslands
Umsóknarfrestur um skólavist næstkomandi vet-
ur, rennur út 1. júlí. Þeir umsækjendur sem
leggja vilja fyrir sig forstöðu mötuneyta, láti þess
sérstaklega getið í umsókn.
SKÓLAST J ÓRI.
i
SAFNVÖRÐUR
Starf safnvarðar við byggðasafn, sýsluskjalasafn
og héraðsbókasafn Borgarfjarðar er laust til um-
sóknar. (Fyrst um sinn er gert ráð fyrir hálfu
starfi).
Umsóknarfrestur er til 10. júlí. Umsóknir sendist
Sigurþóri Halldórssyni skólastjóra, Borgarnesi,
sem veitir nánari upplýsingar um starfið.
VEIÐiVÚTN
Stangveiði hefst í Veiðivötnum á Landmanna-
afrétti, þriðjudaginn 23. júní.
Stangafjöldi takmarkaður. Öll veiðileyfi seld í
Skarði í Landssveit. Tekið á móti pöntunum í síma
kl. 10.30—12.30 og 6—7 síðdegis.
TÍMINN
SUNNUDAGUR 14. juní 1970.
Hár hvaða máli skiftir það?
Framtiald af bls. 3.
Franska hárgrc'.'dan, mynd fjögur, virðist geta passaö á hvern
sem er, cn svo er þó ekki. Fólki með þunnt eða fínlegt andlit fer
betur að vera með stutt eða frekar stutt hár. Ef þið berið saman
myndir númer 5 og 7, (sem eru af sama andlitinu) þá sjáið þið
að sítt liár fer ekki hverjum sem er. Andlitið á mynd númer 7
er full pempíulegt með svona mikið hár.
Ef við tökum hins vegar andlitið á mynd númer G og 8, þá sjá-
um við hins vegar að það fer ekki öllum að hafa stutt liár heldur
— eða hvað finnst ykkur?
Hvernig þið gi-eiðið ykkur — það er auðvitað undir ykkur sjálf-
um komið, en það sakar ekki að taka eins alvarlegan hlut og hár-
greiðslu dálítið vísindalega einstöku sinnum.
(Ég vona að stelpur geti haft jafn mikil not af þessari grein
og strákar).
LAUGARDALSLAUGIN
LANDSKEPPNI í SUNDI
ÍSLAND - SKOTLAND
í DAG KL. 15.
Síldin komin á
miðin fyrir austan
ÞÓ—Nc.skaupstað, laugardag.
Þrír bátar hafa nú orðið varir
við síld fyrir austan land, á um 40
mílna svæði.
Stígandi frá Ólafsfirði var um
kl. 23 í gær staddur á 64.2 gráðum
norður breiddar og 11.45 gráðum
vestur lengdar, og var þá réttvís-
andj 65 sjómílur frá Gerpi. Varð'
hann þá var við mikla vaðandi
síld, og gizkaði skipstjórinn á að
þar væru um 30—40 torfur. Asdic-
tæki bátsins var bilað, en hann
reyndi að sigla yfir torfurnar og
mæla þykkt þeirra meS dýptar-
mælinum. Gizkaði hann á, að þykkt
in væri um 12 faðmar.
Sigurður Bjarnason var á leið
til Englands um sama leyti nokkru
vestar og var® hann var við síld.
Þá varð Sigurbjörg frá Úlafsfirði
vör við síld, er báturinn var um
130 mílur norðaustur af Færeyj-
um á leið til íslands.
Árni Friðriksson var væntanleg-
ur á þessi mið um sjöleytið í kvöld.
„Höfum sigSt í
Síðast unnum vi8 Dani. Teksf okkur að vinna
Skota? S.S.I.
JARÐVINNA
Tilboð óskast í að fjarlægja jarðveg úi; grunni
vegna stækkunar Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi. Áætlað magn er 7000 m3.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, gegn
1.000,00 króna skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
olíu í 27 daga<á
NTB—New York, laugardag.
Thor Heyerdahl, sem er kom-
inn vel álciðis yfir Atlanzhafið á
papýrusbátnum „Ra“, tilkynnti í
dag, að Suður-Atlanzhafið væri
meira og minna óhreint af olíu.
Hann sagði, að síðustu 27 dagana
hefði báturinn oftsinnis siglt gegn-
um olíubrák, sem sums staðar væri
líkust tjöru og í sjógangi skoluð--
ust tjöruklumpar á stærð við kart-’
öflur umivörpum um borð í bát-
inn. i
— Við höfum siglt 2.240 kíló-
metra í olíu hér úti á opnu hafi,
sagðj Heyerdahl og bætti við, að
það væri erfitt stundum að komast
í bað fyrir þessum óhreinindum.
Hann lýsti oliunni þannig, a®
þetta væru eins og stórir svartir
svampar, sem flytu á sjónum. Á
sumum væri þang og krabbar, en
nokkrir væru glijáandi og vírtust
nýir. — Heilu dagana sjáum við
ekki annað en olíumengaðan sjó,
sagðj Heyerdahl að endingu.
Led Zeppelin ,
Nágranni minn, Rúnar Júlíus
son í Trúbroti, hefur séð hljóm
sveitina „trcZs upp“, svo ég
spurði hann um daginn, hvern
ig þeir stæðu sig á hljómleik
um.
„Það er allt á fullu — og
ekkert stopp. Þeir halda manni
í stuði allan tímann — gætu
spilað í fimm til sex klukku-
tíma þess vegna. Ég sá þá úti
í New York — það voru eitt-
hvað í kringum fimmtíu þús-
und áhorfendur — og allt snar
vitlaust. Fólkið ætlaði aldrei
að geta hætt að klappa þá
upp“.
í tilefni af komu hljómsveit
arinnar birti ég hérna mynd
af Robert Plant, sem rnargir
telja komast næst Jimmy Page
að vinsældum innan hljómsveit
arinnar.
IÐNAÐUR - HÚSNÆÐI - HAGNAÐUR
í kauptúni á Norðurlandi er til leigu tæplega 300
ferm. húsnæði fyrir léttan iðnað. Húsnæðið leigist
aðeins fyrir upphitunarkostnaði. Þeir sem áhuga
hafa, leggi inn nafn heimili og símanúmer á af-
greiðslu Tímans, Bankastræti 7, merkt: „1122“.
KÆRU BÆNDUR
Ég sendi ykkur þessar línur í þeirri von, a8 þi8
gætuS ef til vill séS aS einhverjum jarSarskika,
helzt meS gömlu húsi, til fólks, sem þarf aS eiga
sér athvarf í sveit.
SendiS mér bréf á afgreiSslu Tímans, merkt:
„Samvinnukona".
i