Tíminn - 01.08.1970, Blaðsíða 10
10
TIMINN
FULLT TUNGL
Effir P. G Wodehouse
53
torvelt afi bæta á hamingju Bills,
en bó gerðist dálítið sem skyggði
töluvert á gleði hans. Hann heyrði
raddir margra manna, utan af
ganginum, og hað varð til þess
að hann þaut á fætur og stóð
þarna allt í einu eins og stein-
runninn og lagði við hlustir, enda
reyndist skelfing hans ekki
ástæðulaus, því þarna frammi
* þekkti hann rödd frú Hermione,
( og þeirra kynni höfðu verið slik
að eitt orð úr þeirri átt nægði til
* þess að Bill fékk skjálfta, frúin
* sagði:
> —Ertu viss? — Bi-11 þekkti
t ekki röddina sem svaraði, sem
ekki var von, því enn hafði hon-
um ekki veitzt sú ánægja að kynn
ast Wedge hershöfðingja, sem
svaraði:
— Alveg viss góða mín, það
var ekkert um að villast, hann
reisti andstyggilegan stóran stiga
upp við vegginn og þaut upp
hann, þarna fyrir augunum á mér.
ég skal sýna þér stigann komdu
og sjáðu hann er þarna niðri.
Nú varð þögn um stund, sem
skiljanlega varð vegna þess að
fóllkið hafði gengið út að einum
gangargkigganum til að gæta að
stiganum, svo sagði frú Hermione
—I>etta er stórfurðulegt, ég sé
stigann.
— Hann bara klifraði upp fjár
ans svalirnar.
— Hann getur ebki hafa klifr-
að niður aftur.
—Hárrétt, og ef hann hefði
farið niður stigann þá hefðum við
mætt honum, þess vegna hlýtur
þorparinn að leynast hérna í ein-
hverju hei-berginu, ég ætla því að
ieita í þeim öllum.
— Ó, nei, Egbert.
— E, hvers vegna ekki? ég er
með skammbyssuna sem ég not-
aði í hernum.
— Nei, þú gætir særzt, bíddu
þangað til Karl og Tómas koma,
þeir ættu að vera komnir fyrir
löngu.
— Jæja, allt í lagi, ekkert ligg-
ur á, þorparinn kemst hvort sem
er ekki á brott, svo maður getur
haft sína hentisemi.
Ævinlega þegar hætta steðjar
að fólki úr öllum áttum þá kem-
ur að þvi að fórnarlambið finnur
að ástandið er orðið óbærilegt,
eins og dæmin sanna, enda kom
þessi tilfinning nú yfir Bill, hann
vissi ekki hvaða menn Karl og
Tómas voru, en vér höfum kynnzt
þeim fyrr, þegar þeir voru að
bera inn í dagstofuna rjóma og
sykur, þeir voru sem sé fyrsti og
annar þjónn í kastalanum og voru
á þessari stundu að hressa sig á
tei og öðru góðgæti og höfðu held
ur lítinn áhuga á því verkefni
sem Beach var að fela þeim. þess
um ágætu þjónum fannst þáð sem
sé ekki í sínum verkahring að yf-
irbuga innbrotsþjófa og það í
miðri máltíð.
En e ins og vér höfum áður
sagt þá kannaðist Bill ekki við
þessi nöfn, en honum varð ljóst
að þessir menn voru væntanlegir
og hann hafði enga löngun til að
kynnast þeim, ekki svo að skilja
að máður eins hugrakkur og sterk
ur og Bill var óttaðist átök við
hundrað Karla og Tómasa, frekar
en þúsund hershöfðingja með
byssu, nei! það sem fékk Bill til
að hopa var eingöngu hugsun
in um að standa a ndspænis frú
Hermione, sú tilhugsun orkaði á
hann eins og hann hefði sezt á
kaktus. Það fyrsta sem Bill gerði
var að læsa að sér, til að tefja
fyrir innrásinni, að þvi loknu
hraðaði hann sér út á svalirnar.
Hershöfðinginn hafði ályktað að
ekkert lægi á, því þorparinn ætti
enga undankomuleið, Bill hefði
líka verið fyrstur manna til að
viðurkenna að missir stigans var
alvarlegt áfall, en hann hefði ekki
samþykkt að hann væri alveg um
kringdur, það sem hershöfðing-
inn hafði gleymt að reikna með,
var sú driffjöður sem þorparar
fengu við þá hugsun eina að
standa andspænis eiginkonu hans,
slík tilhugsun var mönnum sann-
kölluð uppörvun, áhrifin verða
eins og af eldingu, enda má segja
að því hafi bókstaflega lostið nið
ur i Bill að á veggjum allra húsa
væru niðurföll frá rennum, sem
menn gætu rennt sér niður eftir,
andartaki síðar hafði Bill líka
komið auga á pípu, en honum
leizt ekki á þégar hann sá að iiún
var að minnsta kosti í tólf feta
fjarlægð frá honum. Fyrir æft fjöl
leikahúsfólk hefði svona stökk
sjálfsagt verið barnaleikur
einn, svoleiðis náungi hefði
sjálfsagt hneigt sig fyrir áhorf-
endum, kinkað kollí til kunningj-
anna á fremstu bekkjunum, dust-
að rykið af fálmurunum og stokk
ið þennan spöl af fullkomnu kæru
leysi. Bill datt aftur á móti ekki
í hug að hann gæti þetta. hann
þekkti eigin takmarkanir. Hann
hafðj'séð fimleikamenn fljúga
i gegnum loftið. eins og ekkert
væri en sá maður hafði áreiðan-
lega haft margra ára þjálfun, þar
sem Bill var algjör byrjandi. Og
sem hann nú stóð þarna og velti fyr
ir sér hvað gera skyldi, þá sá hann
allt í einu að ekki var öll von
úti því á veggnum var mjó sylla
og þar sem Blandingskastali var
ævaforn þá hafði töluvert af vafn
ingsviði fest rætur á syllunni, og
maður setn þarf að komast af
svölum og ná til næsta niðurfalls
rörs getur haft mikið gagn af
syllu og vafningsviði. En það sem
fékk Bill til að hika var hvort
hann væri maður.til að gera þetta.
Þessi gróður leit út fyrir að vera
sterkur, greinarnar voru gildar og
samanflæktar o^g litu út fyrir að
þola þunga hans, en maður getur
þó aldrei treyst vafningsviði,
hann getur litið nógu vel út og
svo svíkur hann þegar mest á ríð
ur og Bill var eins farið og Fredd
ie, báðir þráðu örugga samvinnu
og það var atriði sem þeir vildu
mega trysta. Það var líka auðséð
að ef þessi vafningsviður sveik, þá
var öllu iokið, þá hentist maður
beint niður á grasflötina og hún
leit út fyrir að vera hörð og laus
við allt fjaðurmagn. Bill sá sjálf-
an sig hendast upp tvisvar þrisv-
ar sinnum og liggja síðan lífvana
þarna niðri. Bill var enn að velta
fyrir sér hvað hann ætti að gera
þegar hann heyrði konurödd, sem
greinilega ver orðin æst, konan
sagði:
Dyrnar eru læstar, þér verðið
að brjótast inri Karl. Og í sömu
andrá varð Bill ljóst að maður
getur hlotið verri örlög en að
liggja dauður á grasflöt, enda
klifraði hann samstundis yfir
svalariðið og steig út á syllúna.
í sama mund skauzt Tipton Plim-
soil fram hjá flokknum á gang-
inum, hann var eins snarboruleg-
ur eins og kanína sem skýzt inn
í holuna sína, þegar hann vatt sér
inn í herbergið sitt. Tipton sett-
izt í stói og varpaði öndinni létti
•lega, eins og "maðúr sem er kom-
inn á leiðarenaa, að vísu var
hann dálítið móður því hann
hafði þotið upp stigann á met-
tíma, ef einhver hefði verið við-
staddur hefði sá hinn sami séð
LATJGARHAGUR 1. ágwé^lQP.Q.
að jakkinn hans fór illa öðru!
megin, eins og maðurinn væri allt
í einu kominn með stærðar æxli'
vinstra megin. Um það leyti sem’
Bill var búinn að heyra allt, sem1
hann kærði sig uffl að heyra, um^
Karla, Tómasa og byssur og var'
kominn út á svalirnar og farinn'
að svipast um eftir vatnsrörum,
þá var Tipton að yfirgefa íbúð-
hins æruverða Galahads, á neðstu ’
hæðinni. Allt atferii Tiptons var
flóttalegt, að vísu Ieit hann ekki
alveg út eins og umkringt veiði-'
dýr, en þó var greinilegt áð hann
átti þá ósk heitasa að vekja enga
athygli og fá að vera einn. Tip-Í
ton hafði sem sé verið að sækja'
pelann sinn, sem hann hafði ver ,
ið svo fávís að láta af hendi, þó i
hann hefði getað sagt sér sjálfur í
að sá tími myndi koma að hannj
þyrfti á innihaldi hans að halda ;
og þáð illilega. Og bað var ein-j
mitt vegna þess að hann var meði
þennan pela innanklæða að hann;
hafði hlaupið svona hratt framhjá;
hópnum i ganginum, ef öðruvísi;
hefði staðið á fyrir Tipton, hefðii
hann áreiðanlega numið stáðar r
og spurt hvað væri á seýði, þvi að'
þarna á ganginum voru saman- 't
komin frú Hermione, Wedge hers [
höfðingi, br.vtinn Beach og tveir'
þjÓDar, en hann þorði ekki að,
hætta á neitt vegna .hræðslu við .
spurningar út af því sem hann •
var með innanklæða, sem sást
svo greinilega. Hann var því ’
meira en feginn að öll athygli *
fólksins beindist að næstu dyrtim ’
við herbergið hans, enda komst
hann framhjá án þess að nokkur!
tæki eftir honum. Tipton komst
í örugga höfn inn til sín, þar dró !
hann upp pelann og horfði á hann
bæði af ástúð og tilhlökkun, að
vísu leit hann enn út eins og
hundeltur hjörtur, en þó eins og
hjörtur sem ætlar að fara að
svala þorsta sínum. Hann sleikti
út um, allt útlit Tiptons var gjör
breytt frá því hann var síðast í
sviðsljósinu. Hann var algjörlega
búign að vinna bug á skapillsk-
unni sem hafði gripið hann þegar
hann þreif festina af Veroniku og
er laugardagur 1. ágúst
— Bandadagur
Tungl í hásuðri kl, 13.05
Árdegisháflæði í Rvík kl. 6.07
HEILSU GÆZLA~
siökkviliði i'.irrnhi1 -"Iðlr
Sjúkrahifreið i Hafnarflrði
síma 51336
fyr vkja'Tk >B KOpavog
síml 11106
Slvsavarðstofan i Borgarspltalanuir
er opln allan sólarhrlngtnn 40
elns mrtttaka slasaðra Stml
8121L
Krtpavoas-Aprtteli »a Keflavibnr
itnASf.t ost on'- virk« daga ki
9—19 langardaga ki »—14 helgi
daga kl 13—16
Atmennai upplýsingæ um rælcn*
DiónusLU 1 oorgmn-' aru eetnaj
símsvara læknaféla"1 Rerkiavtk
ur. slml 18888
Fi garhr ’ • Krtpavoei
HLÍðarvegl 40 simi 42P44
Fópavogs-apótek og .teflav’kur
apótek era opu nrka taga kl
—19 taugardaga kl Ö—14. aeigi
daga fcl 16-16
Apóteb HafnarfiarOa: ei opið aiia
***•»"*. fri £j. jiu—11 * lauvar
dögum fcl 9—2 og a summidögum
og öðrum helgidögum er opifi i.á
kl 2—4
Tannlæknavakl er ’ Hei.suvernd
arstöfiinni (þai »em slysavarð
stofan var) og er oplri laugardag?
og sunnudaga fcl 5—6 e h Símt
22411
Kvöld- og helgarvörzfu apóteka
í Reykjavík vikuna 1.—7. ágúst
annast Reykjavíkur Apótek og
Borgar Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 1. ágúst
og 2. ágúst annast Guðjón Klemenz-
son.
Næturvörzlu í Keflavík 3. og 4.
ágúst annast Kjartan Ólafsson.
KIRKJAN
Dómkirkjan.
Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns.
llallgrímskirkja
Messa kl. 11. Ræðuefni: Hví er
fagnaðarerindið boðað sjúkum.
Dr. Jakob Jónsson.
Langholtsprcstakall
Engin messa vegna lagfæringa í
kirkjusal. Séra Siguiiður Haukur
Guðjónsson.
Neskirkja.
Messa fe.'Iur niður.'
Háteigskirkja.
Lesmes-sa kl. :0 f.h. Daglegar
kvöldbænir í kirkjnnni kl 6,30
Séra Arngrímur Jónsson. .
STOT ÍNQAR
Skipadcild S.Í.S.:
Arnarfell fór i gær frá Rvík ti!
Norðurlandshafna. Jökulfell er i
New Bedford. fer þaðan 4 þ m
til Rvíkur. Disarfe'i fer í dag frþ
Luþeck lil Svendborgar. Liilafell
fer væntanlega í dag frá Rvík til
Breiðafjai-ðarhafna. Helgafell fer
væutan.'ega i dag frá Ventspils til
Svendborgar og íslands. Stapafell
er í olíuflutningum á Faxaflóa.
Mælifell er í La Spezia, fer það-
an til Saint Louis Du Rohne og
ísfands. Bestik er í Kristiansund.
Una er í Þorlákshöfn.
Skipaútgcrð ríkisins:
Hekla fer frá ísafirði í dag á
norðurleið. Herjólfur fer frá
Vest.mannaeyjum kl. 12.00 á há-
degi í dag til Þorláþshafnar, það-
an aftur kl. 17.00 til Vestmanna-
eyja Á morgun (sunnudag) og
mánudag verða ferðir á sömu tím-
um mil.'i Vestmannaeyja og Þor-
lákshafnar, en kl. 21.00 á mánu-
dagskvöld fer skipið frá Vest-
mannaeyjum til Rvíkur. Herðu-
breið er á Austfjarðahöfnum á
nonðurleið.
FLUGÁÆTLANIR
Millilandaflug
Guilfaxi fór til Lundúna jd- 08.00
í morgun. og er væntanlegur aftur
til Keflavíkur kl. 14.15 í dag. Vél-
in fcr til Kaupmannahafnar k.'.
15.15 í dag og er væntanleg þaðan
aftur til Keflavíkur kl. 2305 í
kvöld.
‘ DC-6B vél félagsins fór til
Lundúna kl 07 00 í morgun og er
væntanleg aftur tif Reykjavíkur
kl. 17-50 í kvöld.
Ferð Gullfaxa til Kaupmannai'afn
ar sem fara átti aðfararnótt sunnn
dagsins 2. ágúst, fel.'ur tiiður og
fer DC-6B vél félagsins til Kaup-
mannahafnar kl 23.00 í kvöld frá
Reykjavík
Innanlandsflug.
I dag er áætlað að fljúg'a til Akur-
eyrar (3 féi’ðiri til Vcsfmannacyja
(2 fer'ðir) til Hornnfjarðar, ísa-
fjarðar. Egi.'ssíaða o? Sauðárkróks
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (3 ferðir) til Vest-
mannaeyja (2 ferðir) til ísafjarð-
ar, Egilsstaða, Hornafjarðar og
Fagurhólsmýrar.
Flugfélag íslands h.f.
bréfaskipti
Davide D’Ágata
via Basile n. 38
95124-Catania
á ítalíu óskar eftir að eignast hér
pennavin. Hann safnar póstkortum,
frímerkjum, dægurlagaplötum og
mynt, og vill skipta á þessum
hlutum. Helzt vill hann skrifast á
við stúlku.
SÖFN OG SYNINGAR
tslenzka dýrasafnifi
verður opið daglegi t Breififirð-
msabuð Skólavörðustte 6B kl
10—22 Isl dýrasafnið
gengisskráning
Nr. 88 — 22. júlí 1970
1 Bandar. dollar
1 Sterlingspund
1 Kanadadollar
100 Danskar kr.
100 Norskar kr.
100 Sænskar kr.
100 Finnsk börk
100 Franskir fr.
100 Belg. frantear
100 Svissn. frantear
100 Gyllini
100 V.-þýzk mörk
100 Lírur
100 Austurr. sch.
100 Escudos
100 Pesetar
87.90 88,10
210,20 210,70
84.90 85,10
1.171,80 1.174,46
1.230,60 1.233,40
1.694,30 1.698,16
2.109,42 2.114,20
1.592,90 1.596,50'
177,10 177,50'
2.043,34 2.048,00'
2.438,70 2.444,20'
2.421,08 2.426,50 ’
13,96 14,00’
340,57 341,35 •
307,50 308,20.
126,27 126,55;
99,86 100,14
87.90 88,10 ’
100 Reikninigskrónur .-
Vöruskiptalönd
1 Reikningsdoliar
Vöruskiptalönd
1 Reikningspund —
Vöruskiptalönd 210,95 211,45'
Lárétt:
1 Seiður. 5 Fiskur. 7 Biblíumaður
9 Happ. 11 Beggja megin við S-
12 Reyta 13 Taut. 15 Þvottur. 16
Ai. 18 Hættulegur.
Krossgáta
Nr„ 593
Lóðrétt: 1 Karldýr. 2 Dauði.
3 550 4 Hár. 6 Brauð- 8
Maðk. 10 Fiska. 14 Draup. 15'
Töf. 17 Öi^ast.
Ráðning á gátu nr- 592:
Lárétt: 1 Mumlar. 5 Jóð. 7
Kló. 9 Afl. 11 Ká. 12 Ró. 13'
Ann. 15 Bít.. 16 Eir. 18 Efn-'
aða.
Lóðrétt: 1 Makkar. 2 Mjó. 3
Ló. 4 Aða.-6 Flótta. 8 Lán.
10 Frí. 14 Nef. 15 Bra. 17
In.