Tíminn - 11.09.1970, Page 12

Tíminn - 11.09.1970, Page 12
FöshwJagur 11. september 1970. Dagskrá Hljóðvarps og Sjónvarps fylgir Landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga um skattamálin: Hækkun fasteignaskatta verði mætt með lækkun annarra skatta EJ—Reykjavík, fimmtu-dag. Landsþing Saimbands ísl. sveit- arfélaga, sem lauk í dág, f-jallaði m. a. um skattamál, og ályktaði á þá leið, að nú sé nauðsynlegt „að gerð verði víðtæk athugun á tekjuöflunarkerfi hins opinbera til undirbúnings nýskipunar skatta- mála. og hlýtur tekjuöflun sveit- arfélaga að verða einn liður í þess ari endurskoðun". Lögð er áherzla á nauðsyn þess, að sveitarfélögunum verði tryggð ir traustir tekjustofnar í samræmi við þau verkefni, er þeim her að annast í þágu íbúanna. Um skattamálin segir annars m. a. í ályktun þingsins: Hið nýja fasteignamat mun gjör breyta þeim skattstofni, sem fast eignaskattar og ýmis fleiri gjöld eru miðuð við, og verður því nauðsynlegt að breyta þeim ákvæð um laga um tekjustofna sveitarfé- laga, er um fasteignaskatta fjalla. Við væntanlegar breytingar á álagingu fasteignaskatta við lög festingu nýs fasteignamats er nauðsynlegt að leggja áherzlu á, að almennur fasteignaskattur verði áfram sjálfstæður tekjustofn sveit arfélaga. Einnig verði stefnt að því að hlutur fasteignaskatta í heildartekjum sveitarfélaga hækki nokkuð frá því, sem nú er. Fram búðarskipan fasteignasköttunar hlýtur hins vegar að bíða þeirrar heildarendurskoðunar á tekjuöfl- unarkerfi rikis og sveitarfélaga, sem nú er í undirbúningi. Nauðsynlegt er. að á móti hækk un fasteignaskatts komi lækkun annarra skatta til sveitarfélaga, þannig að heldarskattbyrði verði sem næst óbreytt. Slfk lækkun verður bezt framkvæmd með breyt ingu á núgildandi útsvarsstiga, er tryggi það, að útsvarsálagning á meðaltekjur og lágtekjur lækkí frá því sem nú er. Jafnframt lagfæringum á nú- Framhald á bls. 10 Skoðanakönnun Framsóknarmanna í Reykjavík Kynningarfundur Uppstillinganefnd fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík heldur kynningarfund frambjóðenda í Fram- sóknarhúsinu við Fríkirkjuveg þriðjudaginn 15. þ.m. kl. 20.00 stundvíslega. Frambjóðendur í skoðanakönnuninni, er fram fer 18. til 20. þ.m., halda stuttar ræður og svara fyrirspurnum á eftir. — Uppstillinganefndin. Eruð þér á kjörskrá ? Þeir, sem áhuga hafa á að taka þátt í skoðanakönnun Framsókn- armanna í Reykjavík, sem fram fer 18—20, september næstkom- andi, en ekki hafa enn gengið í * Islenzkir hestar leika í danskri kúrekakvikmynd FB—Reykjavík, fimmtudag. fslenzkir hestar verða stöð- ugt vinsælli erlendis eins og sjá má á því, að þeir eru nú farnir að leika í kvikmyndum í Danmörku. Blaðinu barst í dag „prógramm" af dönsku kvikmyndinni Preriens skrappe drenge, sem er verið að sýna þessa dagana í Danmörku, og á forsfðu þess er mynd af fjórum kúrekum á íslenzkum gæðingum. Preriens skrappe drenge er kúrékamynd, og fer danski gam anleikarinn Dirch Passer með aðalhlutvemkið. f prógramm)- in kemur fram. að hestarnir, sem í myndinni leika, og erti allir íslenzkir, eru í eigu danska hrossakaupmannsins iBeirt Jöinsson firá Lönholdt. Jönsson þessi var hér á fs- landi í sumar í þeim tilgangi að kaupa hér hross, og fór héðan flugleiðis með um hundrað hesta til Danmerikur. Þess má m. a. geta, að Tím- inn birti viðtal við Jönssou í sumar, þar sem hann hvatti íslendinga til þess að leggja meiri rækt við val þeirra V hesta, sem héðan eru seldir úr landi, til þess að spilla ekki áliiti því, sem menn hafa feng ið á ný á íslenzka hestinum, en hann var orðinn heldur lágt skriíaður í Danmlöriku fyrir síðari heimsstyrjöldina, aðallega vegna þess. hve lé- legir hestar höfðu verið seldir þangað, og hve ungir þeir' voru, þegar þeir fóru héðan. Jönsson taldi, að væru of ung ir hestar seldir héðan, þeir teknir og tamdir í gjörólíku umhverfi, því, sem þeir eiga að venjast hér, gæti það orð- ið til þess að brjóta niður andlegt atgjörvi þeirra, svo þeir töpuðu þeim eiiginleik- um, sem menn hafa metið hvað mest til þessa. Præriens skráþp^ drenga er framleidd hjá Mefry Film, og er þetta litmynd. Leikendur eru rúmlega 20 taldir upp í skránni. og eru Dirch Passer, Willy Rathnoy og Paul Hag- en einna þekktastir. Þá má nefna Sisse Reingaard og Ove Sprogöe, sem einnig munu vera þekkt meðal kvibmynda- húsgesta. ' ' NÝJU SÍMASKRÁNNISEINKAR! SB—Reykjavík, fimmtudag. Allmikil seinkun verður að lík- iudum á útkomu nýju símaskrár- innar, en áætlað var að hún kæmi út nú um næstu mánaðamót. Ástæða seinkunarinnar er sú, að tengingum í nýju Grensástöðinni er ekki lokið og því ekki hægt að gefa skrána út strax, þar sem 4—500 númer yrðu enn sambands laus. Hafsteinn Þorsteinsson, ritstjóri símaskrárinnar. sagði blaðinu í dag, að í Reykjavík bættust við 1000 númer í nýju Grensásstöð- inni, og eru þau frá 85000—85999. Ekki er enn búið að úthluta nema um helmingi þessara númera, þannig að ef þau kæmu nú út í nýrri símaskrá, yrði enginn til að svara hringingum í þau. Meðal þessara númera eru nokkur hjá stórum fyrirtækjum og það yrði ótækt, að gefa út símaskrá með skökkum númerum í marga mán- uði. Símaskráin kémur því ekki út, fyrr en öllum þessum breyt- ingum er lokið, en Hafsteinn sagði að ekki væri mögulegt, að segja, hvenær það gæti orðið. Þegar nýja símaskráin kemur, verður hún í höfuðatriðum svipuð þeirri síðustu. nema hvað hún stækkar eins og venjulega. Götu- og númeraskrá kemur ekki út á næstunni, sú síðasta er síðan í maí, og sagði Hafsteinn. að hún væri ekki orðin mikið skökk ennþá. Skoðanakönnunin í Reykjavík Utankjörstaðarkosning hefst n.k. mánudag Framsóknarfélögin í Reykjavík, geta útfyllt intökubeiðnir á skrif- stofu flokksins að Hringbraut 30. Skrifstofan er opin á venjulegum skrifstofutíma. Einitngis þeir, sem eru félags- I 'nn í Framsóknarfélögunum, hafa ogheimili í Reykjavík oo hafa | náð 18 ára aldri, þegar skoðana- könnunin fer fram, hafa rétt til þátttöku í skoðanakönnuninni Skoðanakönnun Framsóknar- manna í Reykjavík fer fram dag- ana 18- til 20. september næst- komandi. Kjörstaður er að Hring- braut 30. Ákveðin hefur verið utankjör- staðakosning vegna skoðanakönn- unarinnar, og fer hún fram sam- kvæmt eftirfarandi reglum: 1- Þeir, sem rétt hafa til þátt- töku í skoðanaköimuninni (Þ.e. félagsmenn í framsóknarfélögun- um í Ueykjavík, sem lögheimili liafa í borginni og uáð hafa 18 ára aldri) ng verða fjarvcrandi kjördagana, geta greitt atkvæði á skrifstofu Framsóknarflokksins að Hringbraut 30 frá og með mánu- deginum 14. september til og með fiir.mtudeginum 17 september kl. 17—18. Skal viðkomandi greiða atkvæði hjá sérstökum fulltrúa uppstillinganefndar, sgm verður staddur þar á ofangreindum tima. 2. Þeir, sem rétt hafa til þátt- töku í skoðanakönnuninni, en eru nú fjarverandi og koma ekki til Reykjavíkur fyrr en eftir að skoð anakönnunin hefur farið fram, geta cinnig greitt atkvæði, en þeir verða að smia sér til formanns Framhald á bls. 10

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.