Tíminn - 30.10.1970, Page 3
JpjlSTUDAGUR 30. október 1970
Ályktun aðalfundar FUF á Akureyri:
Þaö samrýmist ekki
meginstefnu Framsóknar-
flokksins að vinna með
íhaldsöflunum
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri fagn-
ar þeim árangri er náðst hefur imeð prófkjörum. Þótt fram-
kvæmd þeirra sé ennþá á þroskastigi, gefa þau þó ótvírætt til
kynna vilja hins almenna kjósenda um val frambjóðenda sinna
og ræður nú sá vilji valinu, en eigi fámennur hópur manna.
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri álykt-
ar, að það samrýmist eigi meginstefnu Framsóknarflokksins að
vinna með íhaldsöflunum í landinu. Fundurinn telur það megin-
hlutverk Framsóknarflokksins að hafa forystu fyrir vinstri öfl-
um þjóðfélagsins og beri honum að vinna samkvæmt því eftir
næstu Alþingiskosningar.
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri lýsir
yfir stuðningi við þá stefnu ungra framsóknarmanna, að vanda-
mál þjóðfélagsins verði að leysa með félagslegri samstöðu. Fund-
urinn leggur áherzlu á að tef þessi fámenna þjóð á að geta lifað
efnahags- og menningarlega sjálfstæðu lífi í landinu, verður sterk
samstaða til að koma. Jafnframt því, að verða að nýta möguleika
og vera ávallt á verði til sköpunar verðmæta, þá verða fslending-
ar ætíð að standa traustan vörð um sjálfa sig, eigi þeir að geta
verið þeir sjálfir um framtíð.
hagsmunahópa. Hjá öðrum
floMtnum ríkir skilningsleysi á
þörfum alþýðu en hjá hinum
á þörfum atvinnuveganna, en
að sjálfsögðu eiga þarfir al-
þýðu og atvinnuveganna að
haldast í hendur. Innlend at-
vinnufyrirtæki eiga að eflast,
jafnt einkafyrirtæki og hluta-
félög sem Samvinnufyrirtæki
og fyrirtæki í eigu opinberra
aðila, en jafnframt skal tryggja
alþýðu meiri velmegun, aukna
menntun og tækifæri til þrosk
andi félagsstarfs- því fleiri
sjálfstæðir einstaklingar til
orðs og æðis, því öflugri verð
ur manngildishugsjón samfé-
lagsins.
Stjórnmálabaráttan á að ein
kennast meira af víðsýni og
hófsemi, og þvj eiga flokkar
eins og Framsóknarflokkurinn,
sem mótaður er af róttækri
stefnu og jafnaðarstefnu, mik
ilvægu hlutverki að gegna, og
án Framsóknarflokksins væru
vinstrimenn algjörlega áhrifa-
lausir. í nútímanum er enginn
raunverulegur munur á rót-
tækri stefnu, með hugsjónir
eins og samvinnufélög, almenna
fræðslu og almennt félagsstarf
og jafnaðarstefnu, sem trúir á
öfluga og samhenta verkalýðs
hreyfingu í baráttu fyrir þjóð
félagi, sem ber hag allra þjóð
félagsþegna fyrir bx-jósti. f
innsta eðli sínu er jafnaðar-
stefnan andvíg þvi að einstök
verkalýðsfélög eða hagsmuna-
hópar innan vei'kalýðshreyfing
arinnar berjist hvert fyrir sig
og notfæri sér séraðstöðu
sína, en láti sig Iitlu skipta
hvernig t.d. ófaglærðum verka
mönnum vegnar í baráttunni.
Nauðsynlegt er að verkalýðsfé-
lögin samræmi kröfur sínar og
berjist eitt fyrir öll og öll
fyrir eitt, svo tekjubilið verði
aldrei óeðlilega breitt á milli
þeirra ~em mest eiga og minnst
fá.
Framsóknarflokkurinn, sem
lýðræðislega uppbyggður og
án sterks miðstjórnarvalds, á
að vinna á grundvelli uppruna
legr^ manngildishugsjóna rót-
tækrar vinsfcrihreyfingar og
æskan á að sjá um það, að
hann dotti ekki á verðinum
og gera flokkinn að betri og
vaxandi vinstri flokki, flokki
sem byggir hugmyndir sínar á
arfi kristinsdóms og arfi hinna
mörgu framsæknu hugsuða og
brautryðjenda, sem báru hag
lítilmagnans fyrir brjósti.
Flokkurinn á að vera opinn
fyrir nýjum viðhorfum og hug
myndum, sem skapast með
breyttum tímum. Flokkurinn á
að vera svarinn andstæðingur
þeirra ógeðfelldu eðlisþátta
kapitalísks hagkerfis. sem skapa
sálarlaust, óábyrgt. siðlaust og
stjórnlaust frumskógarsam-
félag, en tileinka sér þá þætti
kerfisins, sem fóstra frjálsa og
heilbrigða hugsun. sem ekki
þolir hömlur í leit sinni að
meiri fullkomnun og betra
samfélagi.
TÍMINN
Stjórn FUF á Akureyri: F. v. Jón, Björn, Þórður, Hakon Eiríksson, Hákon H., Ingvar, Jakob.
Aðalfundur FUF á Akureyri:
Þörf er stóraukinnar
málefnalegrar umræðu
Þann 8. október s.I. komu|
félagar ungra framsóknar-|
manna á Akureyri saman til|
aðaifundar. Var þátttaka aðj
fundinum góð.
í skýrslu stjórnar kom meðal
annars fram, að helztu viðfangs-
efni félagsins liðið stai-fstímabil
hefðu verið xíndirbúningur og fram
kvæmd prófkjöra fyrir bæjarstjórn
ar og Alþingiskosningar, svo og
starfsemi fyrir bæjarstjórnarkosn
ingar vorið 1970. Félagið hefur
eins og eðlilegt er, haldið uppi
funda og umræðustarfsemi. Þó
hefur sú leið verið farin undan
farið, að byggja starfsemi þess
mikið til upp í samstarfi við eldri
félagsmenn á staðnum, þar sem
hefur þá gefizt kostur á að féTag
ar á ýmsum aldri og reynslustigi
leiddu saman sjónarmið sín.
Þá var tekið fyrir það málefni,
er telja máfcti aðalmálefni fund
arins, en þar var framtíðarvett-
vangur og starf félagsins. Urðu
um það miklar umræður og reynd
ist mikill áhugi vera á eflingu
starfsins. Telja félagar áð stór auk
innar málefnalegrar umræðu sé
þörf varðandi þjóðfélagsmál, al-
menningur verði að vera virkari og
taka ákveðnari afstöðu til mála,
svo sem nauðsynlegt er og sjálf
sagt í lýðræðisþjóðfélagi. Telja
félagar að þetta sé stórt hlutverk
stjórnmálafélagss'kapar ungra
manna.
Er umræðum um framtíðarstarf
semina lauk, vættu fundarmenn
kverkar sínar með kaffisopa, en
er hann hafði runnið niður, var
lögð fram ályktun fundarins og
hófust þá á ný miklar umræður un»
innihald hennar. Eftir umræðuv
var ályktunin samþykkt samhljóða
til birtingar.
Verður eigi annað sagt, en að
fundur þessi hafi tekizt mjög vel
og sé þeim er að * honum stóðu
hvatning til áfi-amhaidandi starf
semi og baráttu fyrir málefnum
ungra Framsóknarmanna.
Núverandi stjórn skipa: Hákon
Eiríksson, formaður, Þórður Ingi
marsson, Jón Hensley. Hákon Há-
konarson, Ingvar Baldursson,
Jakob Þórðarson og Björn Inga-
son.
Þórð'ur Ingimarsson, ritari.
FUF Á AKUREYRI UM
EFLINGU FLOKKSSTARFS-
INS í KJÖRDÆMINU
Aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna á Akureyri skorar
á stjórn kjördæmissambands Norð
urlandskjördæmis eystra svo og
félaga og stuðningsmenn flokks-
ins að haldið verði uppi. sem víð-
tækastri og öflugastri starfsemi i
kjördæminu. Stuðlað verði að því
að flokkurinn geti haldið opinni
skrifstofu a Akureyri og að félags
líf verði stóraukið. Fundurinn
leggur áherzlu á aukin samskipti
yngri félaganna við samherja sína
annars staðar á landinu og einkan
lega við forystu Sambands ungra
framsóknarmanna. Telur fundur-
inn nauðsyn á að félagai kynnist
og að félögin úti um landið verði
að vera í beinum tengslum við
forystuna, bannig að beix er fjær
höfuðstöðvunum búa. fylgist með
þvi hvað sé á döfinni á hverjum
tíma og fái aðstöðu til að taka
þátt í heildarstarfinu. Annað væri
eigi samkvæmt þeirri stefnu, er i
Samband ungra framsóknarmanna
og Framsóknarflokkui'inn beit%
sér fyrir.
Aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna á Akureyri gerir þá
kröfu að meginhluti ágóða af happ
drætti flokksins í kjördæminu
renni til stai'fseminnar bar, en sé
eigi fluttur suður til Reykjavíkur
til höfuðstöðvanna. Telur fundur
inn að þessi krafa sé aðeins >
samræmi við stefnu Framsóknar
flokksins um jafnvægi í byggð
landsins. T framhaidi af því vill
fundurinn benda á. að Akureyri
er langstærsti þéttbýlisk.iarni land#
ins utan Reykjavikursvæðisins Á
Akureyri * flokkurinn vaxandi
fylgi að fagna og eru góðir mögu
leikar á að svo verði í ríkara
mæli með auknum vexti bæjar
ins. Stór hluti kjördæmisins er
sveitir, en j sveitum landsins hef
1 ur aðaifylgi Framsóknarflokksins
i verið til skamms tíma. Staðreynd
in er sú, að eigi verður haldið
uppi neinni starfsemi án fjár-
muna og vill fundurinn telja að
það verði aðeins styrkur fyrir
fjokkinn sem heild að haldið sé
uppi öflugri starfsemi í Norður
landskiördæmi eystra
Aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna á Akureyri leggur
áherzlu á að málgagn Framsóknar
flokksins á Akureyri „Dagur“
verði gert að meira baráttublaði
fyrir málstað flokksins en verið
hefur. Telur fundurinn nauðsyn-
legt að félagarnir sjálfir leggi
stóraukna hönd á ológinn varð-
andi sköpun bteðsips og verði blað
ið þannig meiri umræðuvettvang
ur en verið hefur. Telur fundur
inn eðlilegt og nauðsynlegt að
Félag ungra framsóknarmanna fái
fulltrúa i stjórn blaðsins og að
stjórnin starfi meira að málefn
um þess en raun ber vitni.