Tíminn - 21.11.1970, Blaðsíða 2
■.u .•..
TIMINN
LAUGARDAGUR 21. nóvember 1970
GUÐBERGUR SÝNIR í SÚM SALNUM
Guðbergur Bergsson opnaði í dag sýningu á Ijóðum í Gallery SÚM við Vatnsstlg. Ljóðin orti Guðbergur á ár-
unum 1952—56, er hann var við nám í Kennaraskólanu m og segir hann að það form, sem Ijóðin eru ort í, sé
bein afleiðing af kynnum við þær aðferðir, sem notaða r eru til að kenna börnum að lesa. Þar skiptir niður-
röðun orða og stafa mikiu máli og notazt er við liti til að undirstrika ákveðin atriði og öllu fremur að gefa
þeim ákveðinn blæ. Eru ijóðin beinlínis samin inn í það form niðurröðunar og iita, sem hvert um sig hefur.
Nokkrar ijóðmyndanna eru hreyfanlegar. Höfundur segir, að fulldýrt sé að gefa þessl hugverk út í bók, en
hafi einhver áhuga á að kaupa, er reynandi að semja við Guðberg, sem vera mun í salnum meðan sýnbigin
stendur yfir. Myndln er af Guðbergi í SÚMsalnum. (Timamynd Gunnar)
Vegagerðin og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins:
Telja aðferð Sverris
ekki henta hér á landi
TVENNIR FJÖL-
SKYLDUT ÓNLEIKAR
KJ—Reykjavík, föstudag.
Á blaðamannafundi sem Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaSarins
og Vegagerð riklídns héldu í dag,
gerðu þessir aðilar athugasemdir
við blaðaskrif um aðferð þá við
vegagerð, sem Sverrir nokkur
Runóífsson hefur haldið mjög á
lofti nú um nokkurra mánaða
skeið. Lýstu þessir aðilar þvi yfir,
að aðferð þessi hentaði ekki hér
á landi, þar sem nóg væri af
grjóti og möl, en hinsvegar sögða
þessir sömu aðilar, að aðferð
þessi væri notuð þar sem lítið
væri af slíku, og verkefni í vega
'gerð væru stórbrotnari en hér
á ijmdi.
Aðaltalsmenn framanigireindra
stofnana voru þeir Siigurður Jó-
hannsson vegamálastjóri og Har-
aldur Ásgeirsson forstöðumaður
Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins.
Aðferð sú sem Sverriir Run-
ólfsson hefur verið að kynna,
byggist á því að í burðarlag vega
(ekki varanlegt slitlag) er hrært
saman þeim efnum sem fyrir eru
í vegastæðinu og sementi eða
asfalti. Eftir sem áður þarf að
ýta upp veginum, eða flytja í
hann efni, eða þá flytja brott jairð
veg til að vegurinn verði ekki því
hæðóttari, og setja á hann varan
legt slitlag. Aðferð Sverris er því
aðeins einn þáttur, og ekki sá
stærsti, í vegagerð. Það sem Vega
gerðin og Rannsóknarstofnun þygg
ingariðnaðarins hafa einkurn við
aðferð þá, sem Sverrir hefur ver-
ið að kynna, að athuga, er í fyrsta
lagi að vél sú sem um hefur ver
ið rætt i þessu sambandi leggur
ekki fullfrágengna vegi. Yfir-
leitt er ekki hægt að nota fyrir
liggjandi jarðefni til að hræra
saman við þau bindiefni, og vélin
sem um er rætt er dýr og óhag-
kvæm fyrir ísl. aðstæður.
Vegagerðin tók ekki alls fyrir
löngu, sýnishorn á níu stöð-
um í og við vegi í nágrenni
Reykjavíkur í samvinnu við
Syerri, og ieiddu rannsóknir á
sýnishornunum í ljós, að átta
þeirra bundust hvorki með 4%
né 8% íblöndun sements, en l
eitt batzt vel, og var það tekið
úr ofaníburði vegar.
Hér á landi er burðarlag vega
gert með óblönduðum sfnum, en
gerð hefur verið tilraun með að
blanda efnum í burðarlagið, og
hefur það ekki sýnt neina kosti
fram yfir hitt, en verið dýrara í
framkvæmd.
Kökubasar Bjarkar
Björk, félag Framsókrarkvemna
í Keflavík, heldur kökubasar í
Tjarnarlundi laugardaginn 21. ..óv.
kl. 3. Viinsamlegast skilið kökum
eftir kl. 1 á laugardag.
Tónleikar fyrir yngstu hlust
endurna, skólabörn á aldrinum 6
—13 ára hafa löngum verið þýðing
armikill og i senn vinsæll þáttur
í starfi sinfóníuhljómsveitarinnar
á undanförnum árum. Hafa þessir
tónleikar veirið haldnir í ýmsu
formi, en á síðastliðnu ári sem
fjölskyldutónleikar. Hafa tónleik
ar með þessu sniði gefizt vel, og
Iþótt verkefnin sióu fyrst og
fremst valin við hæfi barnanna
eru þau að sjálfsögðu einnig til
ánægju fyrir foreldra. Vísasti veg
urinn til þess að barnið þroskist
eðlilega og læri að hlusta á tón-
list, skilja hana og njóta hennar,
er að það verði fyrir þessari tón-
listarreynslu með foreldrum sín-
um.
Ákveðið hefur verið að Sin-
fóníuhljómsveit íslands haldi
tvenna fjölskyldutónleika á þessu
starfsári. Tónleikarnir verða í
Háskólabíói, hiniir fyrri sunnudag
inn 29. nóvember 1970, kl. 15 og
hinir síðari sunnudaginn 21. marz
1971, kl. 15. Aðgöngumiðar hafa
verið til sölu í barnaskólunum, en
mánudaginn 23. nóvember verða
þeir einnig til sölu í bókabúð Lár
usar Blöndal. Aðgöngumiðinn kost
ar kr. 100.00 og gildir að báðum
tónleikunum.
Á efnisskrá fynri fjölskyldutón
leikanna, sem haldnir verða 29.
nóvémber n. k. eru þessi verk:
Tveir þættir úr Carmensvítu eft
ir Bizet, þrír ungverskir dansar
eftiir Brahms, síðasti þáttur úr
konsert fyrir fagott og hljóm-
sveit eftir Mozart, einleikari er
Hafsteinn Guðmundsson, fyrsti
þáttur, konserts fyrir trompet og
Basar Kvenfélags
Hallgrímskirkju
Kl. 2 á laugardag, 21. nóv., hefst
basar í Safnaðarheimili Hall-
grímskirkju. Ekki er vafi á. að
margir góðir munir verða þar á
boðstólum á hagstæðu verði.
Ég vil hvetja konur í sókninni
og aðra velunnara kirkjunnar til
þess að koma og kaupa muni þar.
Með því vinnst tvennt: góð kaup
eru gerð fyirir heimilið, og gott
málefni er stutt. Ennfrcmur vil
ég vekja athygli á fallegum jóla
kortum, sem kvenfélagið hefir lát
ið gera og seld eru til ágóða fyrir
Hallgrímskirkju.
Ragnar Fjalar Lárusson.
hljómsveit eftir Haydn, einleikari
er Lárus Sveinsson, fyrsti þáttur
5. sinfóníu Beethovens, og syrpa
af suður-amerískum dönsum.
Stjórnandi þessara tónleika er
Proinnsias O’Duinn og kynnir er
Þorsteinn Hannesso'n.
Ódýr kynnis-
ferð til SÞ
Félag Sameinuðu þjóðanna og
Ferðaskrifstofan Sunna, efna í
sameiningu til stuttrar, ódýrrar
kynnisferðar til New York í til-
efni af 25 afmæli Sameinuðu
þjóðanna.
Flogið verður milli Keflavíkur
og NY með hinum nýju þotum
Loftleiða. Tekur ferðalagið um
5 klst. hvora leið. Búið verður á
hóteli í miðborginni (Manhattan).
Meðan dvalið er í . New York
ÞiSgja gestir boð Sameinuðu þjóð
anna, heimsækja aðalstöðvamar og
eiga þess kost að v-era við fundi
allsherjarþingsins sem þá stend
ur yfir þar. Auk þess verður efnt
til skemmtiferða um New York
borg og nágrenni og í heilsdags-
ferð til höfuðborgarinrar, Was-
hington.
Þátttaka í þessari ferð er öll-
um heimil.
Fararkostnaður, flugferðir og
hótel er kr. 15.850,00.
Leiðrétting
Sú missögn var í blaðinu í gær
i fréttinni á forsíðu um húsameist
aramálið, að húsameistara skyldi
greidd í aukavinnu jafnhá fjár-
hæð og sú er Ríkisendurskoðunin
taldi hann þurfa að greiða aftur
vegna rangrar færslu. Eins og
fram kemur í ræðu Halldórs E.
Sigurðsson á bls. 6 í blaðinu í gær,
þá greiddi húsameistari ríkisins
það sem honum bar að grei'ða að
dómi Ríkisendurskoðunarinnar og
yfirskoðunarmenn fengu skil-
greint frá hendi rikisendurskoðun
arinnar um dagsetningu á öllum
greiðslunum. Var hér um nokk
uð hærri upphæð að ræ'ða, en þá
er dómsmái'aráðherra úrskurðaði
að húsameistari fengi fyrir yfir-
og aukavinustörf.
STÓRSKEMMDI BÍL
OG STAKK AF
Þorlákur Haldorsen sýnir í Bogasalnum
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Hvítum, amerískum bíl var sl.
nótt ekið á kyrrstæðan bíl á Tjarn
argötu. Var áreksturinn mjög
harður og stórskemmdist bíllinn
sem ekið var á, en tjónvaldurinn
ók á brott og hefur ekki fundizt
síðan.
Áreksturinn varð kl. 1,35. Bíll
inn ,sem ekið var á, er af Singer
Sunbeam gerð, módel 1970, rauð
ur að lit. Einkennisnúmer hans er
5-4053. Ekið var á aftanverðan
þílinn og kastaðist hann 15 metra
vegalengd og stöðvaðist á ljósa
staur og girðingu. Maður í nær-
liggjandi húsi vaknaði við hávað
ann og hljóp út að glugga. Sá
hann þá að stórum, amerískum bíl
var ekið á miklum hraða suður
Tjarnargötu, og er talið að hann
hafi beygt austur Hringbraut. Er
bíllinn hvítur eða Ijósleitur
Bíllinn sem ekið var á er svo
mikið skemmdur, að taka varð
hann aftan í kranabíl til að koma
honum á verkstæði. Efcki fer hjá
því, að talsvert sjái á ameríska bíln
um. Lögreglan leitar hans nú. Er
sá sem ók honum beðinn að gefa
sig fram við lögregluna og eins
eru þeir sem orðið hafa varir við
þennan hvíta, skemmda bif beðn-
ir að gera hið sama.
Vitni vantar að öðrum árekstri.
Fimmtudaginn 17. sept. s. 1. lentu
bílar, sem koriur óku, í árekstri
á mótum Grensásvegar og Soga
vegar kl. 14,30. Ekki ber konun
um saman um með hvaða hætti
áreksturinn varð. Lögreglan hef-
ur spurnir af miðaldra manni sem
varð vitni að árekstrinum Stanz
aði hann á staðnum um stund og
lét orð falla um að hann hefði
séð bílana aka saman og væri
reiðubúinn að bera vitni. Er hann
nú beðinn að standa við þau orð
sín.
SJ—Reykjavík, föstudag.
Þorlákur Haldorsen, listmálari,
opnar málverkasýningu í Boga
sal Þjóðminjasafnsins kl. 18 á
morgun, laugardaginn 21. nóvem
ber. Þar eru 38 olíumálvex-k, sem
öll ei'u til sölu. Þau eru máluð
á síðustu árum og eru fyrirmynd
irnar sóttar í ríki náttúrunnar.
Flest eru málverkin austan úr
Fljótshlíð.
Þorlákuir hóf myndlistarnám
1943 og stundaði um skeið nám
hjá Alexander Schultz í Noregi.
Fyrstu sýningu sína hélt Þorlákur
1950 og var henni vel tekið. Síð
an hefur hann efnt til margi-a
einkasýninga og tekið þátt í sam
sýningum.
Sýning Þorláks verður opin dag
lega frá 14—22 til 30. þessa mán-
aðar.