Tíminn - 09.12.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.12.1970, Blaðsíða 6
8 TÍMINN WH>VIKUDAGUR 9. desember 1970 Tíu bækur koma út hjá Menn ingarsjóði og Þjóðvinafélagi EJ—Reykjavík, föstudag. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins hefur gefið út ýmsar bækur og tíimarit. Fer yfir- lit yfir útgáfuna hér á eftir. DOKTOESRITGERÐ LtJÐVÍKS IN GVARSSONAR Þá kemur út hjá bókaútgáfunni doktorsritgerð eftir Lúðvík Ingv- arsson fyrrverandi sýslumann og nefnist hún Refsingar á íslandi á Þjóðveldisöld. Er þetta mikið verk, á 5. hundrað blaðsíður. Wmm&'&m Stephan G. Stephansson GJAFABÓK TIL FELAGSMANNA Þá gefur Þjóíðvinafé.’agið að venju út gjafabók, sem allir fé- lagsmenn bókaútgáfunnar og Þjóð vinafélagsins fá senda. Nefnist hún Frá einu ári, og geymir kvæð-i, bréf og erindi St-ephan G. Stephans sonar frá árinu 1891. Þjóðvinafélagið verður 100 ára á næsta ári, og er ætlunin að reyna að gefa út í sambandi við það úrval úr bréfum til Stephans G. Stephans sonar, en áður hafa bréf Stephans verið gefin út á vegum félagsins. Þess má geta, að næsta eintak af Andvara venður einnig helgað afmæli félagsins. Hannes Pétursson BÓK IIANNESAR UM STEINGRÍM LJÓSPRENTUÐ Einnig er komin út ljósprentuð bók Ilannesar Péturssonar skálds um Steingrím Thorsteinsson, en bók þessi var gefin út árið 1964 og h’aut mjög góða dóma og sölu. Fjallar Hannes um æskuslóðir Steingríms, uppvöxt hans og æfi, skólagöngu, æskuverk, dvöl hans í Kaupmannahöfn og ljóðagerð á þeim árum, ævi Steingríms eftir hoimknmnna til Reykjavíkur og bcfkmeuntasioit haus þá og viðhorf hans til stjórnmála og skáldskapar. Þorsteinn Sæmundsson ALMANAK ÞJÓÐ VIN AFÉL AGSIN S Almanakið fyrir 1971 er komið út, og er Þorsteinn Sæmundsson ritstjóri. Nokkrar breytin-gar hafa orðið á efni þess, m. a. feUdir nið- ur margir dýrlingar, en bætt við stjarnfræðilegum upplýsingum. Arnór Sigurjónsson LOKABINDI SÖGU EINARS ÁSMUNDSSONAp Einnig er að koma út þriðja og síðasta bindi af ævisögu Einars Asmundssonar eftir Arnór Sigur- jónsson. Fyrsta bindi þessa verks kom út árið 1957 og annað bindiið 1959, og hefur þvi nokkuð ,'angur tími liðið.á milli annars og þriðja bindis. Með þriðja bindinu er nafnaskrá fyrr allt verkið. Bjarni frá Hofteigi ÍJTVARPSLEIKRIT BJARNA BENEDIKTSSONAR Um þessar mundir heitir bók, sem útgáfan gefur út og geymir fimm útvarpsleikrit eftir Bjama heitinn Benediktsson frá Hofteigi, en hann skrifaði mörg leikrit fyr- ir útvarp sem kunnugt er. SÍÐASTA BINDI AF SÖGU FORSYTANNA Út er komið þriðja og síðasta bindið af sögu Forsytanna, eftir John Galsworthy, en þessi saga er mjög þekkt hér á landi vegna sjónvarpsþátta þeirra, sem sýndir voru í íslenzka sjónvarpinu. Þetta þriðja bindi er hið síðasta hinnar upphaflegu Sögu Forsyteættarinn- ar. Þýðandi er Magnús Magnús- son. STUDIA ISLANDICA Þá er komið út 30. heftið af Studia Islandica, og hafa því tvö eintök af því tímariti komið út á þessu ári — hið fyrra innihélt rit- gerð Helgu Kress um Guðmund Kamban. í 30. heftinu, sem er á ensku, er ritgerð Hermanns Páls- sonar og Paul Edwards um nokkr- ar fornaldarsögur. ANDVARI Tímaritið Andvari, sem nú er orðið að ársriti, er komið út fyrir 1970. í ritinu er m. a. ritgerð um Jónas Jónsson frá Hriflu, eftir Þór arinn Þórarinsson, ritstjóra. Aðrir þeir, sem rita í blaðið, eru Jóhannes úr Kötlum, Sigurð- ur Þórarinsson, sem fjallar um Atlantisgátuna, Finnbogi Guð- mundsson, sem ritar um Sighvat skáld Þórðarson, Ólafur M. ÓJafs- son, Jörgen Bukdal, Sverrir Kristjánsson, sem fjallar um frönsku byltinguna og Napoleon, Richard Beck, sem rítar um ljóðá- þýðingar vestur-íslenzkra skálda úr erlendum málum, Sveinn Skorri Hösku.’dsson, sem fjallar um is- lenzkan prósaskáldskap 1969, — Ólafur M. Ólafss. og Sigurgeir Friðriksson. Sr. Sveinn Víkingur: 1 GETIÐ f EYÐUR SÖGUNNAR FB—Reykjavik, fimmtudag Getið í eyður sögunnar heitir bók eftir séra Svein Víking, sem komin er út hjá Kvöldvökuútgáf- unni. Bókdn skiptist í átta kafla, sem bera eftirtaldar yfirskriftir: íslendingasögumar, Hvers vegna byggðu landnámsmenn inn til da’a og heiða?, Kristinn siður og kirkj- ur á íslandi fyrir 1000, Kristnitak an á Alþingi, Var kirkja á hverj- um bæ?, Greftrunar siðir og graftr arfcirkjur, Kirknaskrá Páls biskups og Fólksfjöldi á íslandi frá upp- hafi til okkar daga. A bókaifcápu segir útgefandi: Séra Svednn Víkingur sýnir hér enn einu sinni framúrskarandi hugkvæmni og hugmyndagnótt, en í þessari bók tebur hann til með- ferðar og úrlausnar ýmsar for- yitnilegar spurningar um upphaf ísJandsbyggðar og um kirfcju og kristinn dóm til forna. í þessari bók opnar séra Sveinn ný svið sögunnar og leiðir lesandann inn á ótroðnar slóðir. Hann hefur á takteinum margar nýjar skýringa- tilraunir á vafaatriðum og rökræð- ir þau á þann örvandi og skemmti- lega hátt, sem honum er laginn. í fonmála segir séra Sveinn: Síðastliðinn aldarfjódðung hef ég verið að dunda við það öSru hverju, að safna saman í eitt rit þeim upplýsingum, sem ég hef náð til, varðandi kirkjustaði og bæna- hús hér á ,’andi frá élztu tílð til okkar daga. Við öflum og athugun þeirra ga-gna hafa ósjálfrátt vakn- að í huga mínum spurningar varð- andi fjölmörg atriði I sögu lands- ins á fyrri öldum, og þá einkum í bednu eða óbeinu sambandi við sögu kristni og kirkju. Hið sanna er, að enda þótt við eigum meiri og merkari heimildir um sögu okkar frá elztu tíð, en flestar þjóð ir afðrar, verður því ekki neitað, að f þá sögu eru margar eyður, sem freistandi er að reyna að geta {. Fyrir þeirri freistingu, eins og raunar mörgum öðrum um dagaua hef ég fallið.“ Hann getur þess, að þessar athug anir hafi átt að koma sem for- spjall að riti hans um kirkjustað- ina, en hins vegar hafi orðið að ráði að birta nokkuð af þessu efni í sérstakri bób, sem hann nú nefnir Getið í eyður sögunnar. Bók- in er 260 Ws. og aftast í henni ear nafnaskrá. Svelnn VRclngvr 50 gátur BÓK UM ÍSLAND Einnig er komin út 19. bókin í bókaflokknum Lönd og lýðir, og fjallar húm um ír’and. Höfundur er Loftur Guðmundsson, rithöf- undur. Bók þessi er 177 blaðsíður að stærð og skiptist í 10 kafla, sem heita: Landið, saga, borgir, þjóð- in, atvinnuvegir, írsk tunga, írskar bókmenntir írsk myndlist, írsk tón list og írsk-íslenzk samskipti. Bók- in er prentuð í A^þýðupnentsmiðj- unni. FB—Reykjavík, Cmmtudag. KvöMvökuútgáfan sendir nú frá sér 50 Visnagátur, þriðja hefti, eftir sr. Svein Víking í formála segir sr. Sveinn: Óþarft er að hafa langaa formála .fyrir þessu litla kveri. Gáturnar eru með sama eniði og í Vísnagáfcum minum I og H, er út komu 1968 og 1969. Lausnarorð hverrar gátu er að jafnaði fólgið í hverri hendingu vísunnar, en í mismunandi merkingu. Aftast í heftiou er tvíritaður listi, og er þar ætlazt til að menn skrifi ráðndngarnar og sendi síðan annað eintak hans tíl Kvöldvöku- útgáfunnar, Fjölnisvegi 13 í Reykja vík, fyrir 1. júnf 1971. Verður þá dregið úr réttum úrJausnum og hinum 10 útvöldum send bóba- verðlaun. Jafnframt munu og verða birtar í dagblöðum lausnir á öllum gátunum. SJÁLFSSTJÓRN I STORM- VIÐRUM LÍFSINS eftir Norman Vincent Peale. Bókaútgáfan Lindir hefir sent á markað bókina SJÁLFSSTJÓRN í STORMVIÐRUM LÍFSINS eftir Norman Vincent Peale, hölund bókanna Vörðuð .’eið til lífsham- ingju og Lifðu lífinu lifandi, en allar eru þessar bækur ] ddar af Baldvin Þ. Kristjánssyni. llin nýútkomna bók nefnist á frummálinu Sin sex and self-contro. Hún sýnir hvernig öðlast má sjáTs þekkingu og sjálfsstjórn, og lifa glöðu, öguðu og auðugu lífi. Hún gefur athyglisverð’ svör við áleitn um spurningum kvíðafullrar kyn- slóðar ,sem þráir að umbreyta lífs- háttum sínum. Efni bókarinnar er skipt í níu kafla, sem nefnast: Siðferðiskreppa ,'íðandi stundar, Grámygla heiðar- leikans, Hristu rykiið af gumnfána þinum, Stormviðri kynlífsins, Kyn- líf og sjálfstjórn, Hjónabandið, Stjórn eða öngþveiti. Fjölskyldan, Hellubjarg eða kviksyndi, Útboð okkar innra manns, Leitin að sjálfs valdi. Svo sem kaflaheitin bera með sér höfðar höfundurinn til mann- dóms og innri sjá.’fsstjómar ein- staklingsins með það fyrir augum að gera hann sannfrjálsan og óháð- ari ytri boðum og bönnum. Þýðandi bóbarinnar segir í fcw> málsorðum, að efni hennar spanni yfir víðara mannlífssvið en nafn bóbarinnar á frummálinu gefi til kynna. Hins vegar sé það svo, að kynlíís- hjúskapar- og fjölskyldu- mál skapi hinn rauóa þrá'ð bókar- innar. Varðandi boðskap höfund- ar segir þýðandi, að það eigi sjálf- sagt hezt við að „hver einn gái að sinni sekt“. Muni þá vart hjá því fara, að athugulum Msanda opn- ist að einhverju leyti ný og fersk innsýn í eigið lif og annarra. og að sú skynjun leiði til endurmats á fyrra lífsviðhorfi, og hver einn standi styrkari fótum eftir en áð- ur. Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Eddu. Káputeikn imgu gerfá Haukur Halldórsson, dreifingu bókarinnar annast Bóka-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.