Tíminn - 20.12.1970, Qupperneq 13
SUJÍNUÖAGUR 20. desember 1970
TIMINN
13
cpnq-p
ffD
Ud
A5 hengja
bakara fyrir smið
Hrakfarir
í Rússlandsför
íslenzka landsliðið í hand-
knattleik fór enga frægðarför
til Rússlands, eins og kunnugt
er, tapaði öllum leikjum sín-
um, nema einum, gegn ungl-
ingalandsliði Tékkóslóvakíu.
í sjálfu sér er það ekki í
frásögur færandi, þótt íslenzka
landsliðið hafi tapað fyrir hin-
um sterku iandsliðum Júgó-
slavíu, Ventur-Þýzkalands og
Sovétrikjanna, ef ekki víeri
með jafnmiklum markamun og
raun varð á. Sérstaklega em
úrslitin í leiknum gegn Sovét-
ríkjunum hnekkir fyrir íslenzk-
an handknattleik, en sá leikur
tapaðist með 15 marka mun.
17:32. Er þetta eitt mesta tap
íslenzks landsliðs i handknatt-
leik í allri landsleikjasögunni.
Hvað íærðist í HM
í Frakklandi?
Enda þótt þessi úrslit séu
reiðarslag, er engin ástæða til
að hlaupa upp til handa
og fóta og krefjast afsögn
landslió'sþjálfara og landsliðs-
nefndar, eins og krafizt hef-
ur verið af bráðlátum manni í
íþróttafréttamannastétt, sem
virðist seint ætla að eld-
ast. Virðist hann, og raun-
ar fleiri, þéss sinnis, að ávallt
beri að hengja einhvern, ef
út af bregður. Skiptir þá engu
máli, hvort bakari er hengd-
ur fyrir smið, aðeins ef ein-
hver er hengdur.
Vafalaust eiga Hilmar Björns
son, landsliðsþjálfari og Jón
Erlendsson, formaður lands-
liðsnefndar, einhvérja sök á
því, hve landsliðið var illa bú-
ið undir þessa för, en senni-
lega bera þó félögin, sem leik'-
mennirnir koma frá, mesta sök,
því að hjá félögunum eiga þeir
að fá þrek- og úthaldsæfingar
fvrst og fremst, en ekki á lands
liðsæfingum, en það var ein-
mitt. brekið og krafturinn, sem
brást í leikjunum i Rússlandi.
í HM í Frakklandi fyrr á
bessu ári kom berlega í ljós,
að íslenzka liðið skorti þrek
og kraft í samanburði við aðr-
ar ’pjóðir, einkum og sér í
lagi austantjaldsþjóðirnar. Frá
því, aV þeirri keppni lauk, hef-
ur ekkert átak verið gert til
að lagfæra þetta atriði. en það
er tvímælalaust skylda félag-
anna að sjá leikmönnum sín-
um fyrir þrekæfingum, því að
vart er hægt að búast við því,
að hægt sé að útfæra þrek-
og úthald.sprógramm á strjál-
um landslið.sæfingum, sem eru
e. t. v. ekki nema einu sinni
í viku. Á meðan félögin gera
sér þessa skyldu ekki ljósa, er
vart hægt að búast við nein-
um framförum. Sömuleic.'is
verða leikmennirnir sjálfir að
gera sér þetta atriði Ijóst, en
nokkuð hefur skort á, að svo
sé, því að enda þótt. þeim hafi
boðizt aðstaða til sérstakra
þrekæfinga á vegum HSÍ á
undanfömum árum, var því
sáralítið sinnt,
Kjarni málsins er sá, að
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari og Jón Erlendsson, formaSur
landsliðsnefndar, bera þeir einir ábyrgð?
ekki er hægt að skella skuld-
inni á einn eða tvo aðila. Hér
þarf að koma til sameiginlegt
átak og skilningur á eðli vand-
ans meðal allra þeirra, sem
fást við handknattleiksmál.
Öðru vísi næst ekki árangur.
Enginn leiðandi mað-
ur í dómarastétt
íslenzku handknattleiksmenn-
irnir, sem léku í Rússlandi á
dögunum, réku sig óþyrmilega
á það, að í alþjóðahandknatt-
leik er dæmt öðru vísi en iíðk-
ast á íslandi. Var ekki laust
við, að þetta háði þeim nokk- |
uð. Leiðir þetta hugann að
því, ao' íslenzkir handknattleiks
dómarar, sem og aðrir dómar-
ar í flokkaíþróttum, þurfa
ávallt að fylgjast með þvi, sem
gerist í þessum málum erlend-
is. Árlega eru haldnir dóm-
arafundir erlendis, þar sem
dómarar bera bækur sínar sam-
an og ákveða vissar túlkunar-
reglur. Ef íslenzkir handknatt-
leiksdómarar fylgjast ekki með,
bitnar það ekki aðeins á þeim
sjálfum, heldur öllum hand-
knattleiksmönnum.
Á undanförnum árum hefur
íslenzkur handknattleikur ver-
ið svo heppinn að hafa innan
vébanda sinna mjög hæfan mann,
sem var leiðandi maður í þess-
um efnum. Er 'hér átt við
Hannes Þ. Sigurðsson. Eftir
að honum var hafnaó' sem milli
rikjadómara af dómaranefnd
HSÍ, hafa störf hans eðlilega
minnkað og er vart við því að
búast, að, hann hafi sérstak-
an áhuga á eða löngun til að
starf að þessum málum.
Enginn dómur skal lagður á
það hér, hvort réttmætt var
að svipta Hannes milliríkja-
dómararéttindum eftir lang-
an og glæsilegan feril, en fram-
hjá þeirri staðreynd verður
ekki gengi&', að nauðsynlegt
er að finna mann í hans stað.
Hér sannast það, sem oft hef-
ur verifj sagt, að allt flas veit-
ir eftisköst. — alf.
JOLATRESSALA
TAKID BÖRNIN MEÐ I JÓLATRÉSSKÓGINN.
ATH. Jólatrén eru nýkomln. nýhöggvin og hafa aldrei komiB
í hús. Tryggir barrheldni trjánna.
RAUÐGRENI — EÐALGRENI — BLAGRENI.
wKvf
SIMAR
JASkX * W7tf*
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðféiags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fóik með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2. Sími 13271.
ARISTO
léttir námið
SNYRTIVORUR
ERU HANDA „UNGUM"
KONUM Á ÖLLUM ALDRI
G. ÓLAFSSON HF.