Tíminn - 24.12.1970, Qupperneq 6

Tíminn - 24.12.1970, Qupperneq 6
í heimsókn hjá Henný Hermanns „Ævintýraþráin var það, sem íreistaði mín“ i / Ég hugsaði með mér, að aldrei væri „góð vísa of oft kveðin“. Þess vegna fannst mér hreint ekki svo vitlaust að ná sambandi við Henný Her- manns, sem eins og kunnugt er hefur sýnt landi okkar mikinn sóma í hvívetna því víða hefur Henný komið við, og þótt ekki sé hún nema 18 ára, þá hef- ur hún þegar farið tvívegis í kringum hnöttinn og geri aðrir betur'. Ég var komin í heimsókn og rétt setzt niður til að virða fyrir mér gullfallega bikara og aðra fagra minjagripi, sem Henný hafði unnið íslandi til sigurs. — Já unnið fyrir okkur. Ég hugsaði hvílík reynsla. Henný kom með irjúkandi kaffi og líkjörslögg, sem átti mjög vel við hlýlegt og smekk- legt heimili hennar, sem ber svo sannaiiega vott um mikla gestrisni. — Henný var klædd i svartar þröngar buxur, en að ofan var hún i þunnri svartri blússu með rauðum rósum, sem fór mjög vel við ljósan hára- lit hennar. Ég tók eftir þrem fallegum hringum sem hún bar en einn þeirra skar sig þó úr, því að sá hringur var sérstak- lega hannaðuir af islenzkum gullsmið, sem eftirlíking af kórónunni er hún vann, þegar hún fékk titilinn „Miss Young International“. Ég bað Henný að sýna mér myndir og erlend blaðaum- mæli, sem ég virti fyrir mér, og komst ég að raun um, að engin önnur 18 ára stúlka hef- ur uppfyllt þær kröfur sem ætlazt er til, betur en Henný Hermanns, enda viðurkennir Henný að hún hafi þroskazt að mun, allt frá því japanski fUlltrúinn kom til íslands og valdi hana til þátttöku ^ í al- heimskeppni fyrir íslands hönd. — Auðvitað leit ég á það sem heiður, að mér skyldi bjóð ast slíkt tækifæri, en ég hugs- aði aldrei um að ég myndi sigra. Datt það ekki í hug. En ævintraþráin var það, sem freistaði mín, sagði Henný. Ég spurði Henný um dóm- nefndina i bessari fegurðar- samkeppni. Svarið olli því að mér fannst ekki úr vegi að skilgreina hana hér nánax: — Höfum við íslendingar gert okkur grein fyrir hvað raunverulega þarf.tjl , þess að sigra slíka samkeppni. Dómarar voru 15 talsins og 12 þeirra fylgdust með hverju fótmáli hinna 48 stúlkna er þátt tóku í keppninni, án þess að þær raunverulega vissu að þeir væru dómarar, sem sé stúlkurnar voru undir smásjá allan timann .Til dæmis ma&- urinn sem afhenti þeim lykl- ana í gestamóttöku hótelsins var dómari . . . þjónninn sem gekk um beina var dóm- ari ... kona forseta keppninnar var dómari . . þjónninn sem hugsaði um herbergin (stúlk- umar voru þrjár saman í hverju herbergi, en ein þema, sem kölluð var „mamma“ hugs aði um hvert herbergi) hún var dómari . . ,s „æðisgenginn" bítill var fenginn í hlutverk bvennagullsins til að reyna við stúlkurnar, eða sjá hvað þær væru tilkippilegar, hann var dómari . . sá sem var farar- stjóri þeirra, hvert sem stúlk- urnar fóru, hann var dómari.. og svo mætti nefna þrjá sesn dæmdu framkomu við fyrstu sýn — svo að eitthvað sé nefnt — hugsið ykkur. Indverska stúlkan í keppn- inni var búin a& fá sjö kórón- ur áður en hún fór í þessa keppni og Henný Hermanns- sem fékk ekki einu sinni eina fyrir þátttöku í unglingakeppni hér á íslandi — enda var hún vonlaus um sigur. Þama varð hún að standa, bugta sig og beygja, brosa og vera kát —• aílt fyrir okkur íslendinga, — vonlaus um sigur. En kannski var það þess vegna sem Henný vann. Ég ætla, að þeir for- ráðamenn, sem koma frá annarri heimsálfu til að velja eina stúlku, af okkar fríða hópi til þátttöku í alheims- keppni, viti, hvaS þeir eru að gera, og einmitt þess vegna mundi ég viija benda ungum stúlkum á að ef ein- hver fulltrúi slíkrar keppni knvr á dyr — hugsið ykkur TIMINN FIMMTUDAGUR 24. desember 197® tvisvar um áður en þið neitið. Henný fór og Henný sigraði, en það var heldur engu að tapa. Eg spurði Henný hvar henni þætti fegursta bvenfólkið á þessari jarðkúlu. Hún kvað norðurlöndin bera þar sigur úr býtum, bæði hvað vaxtarlag og „týpur“ landanna yíirleitt snerti. Það er alveg dæmalaus öf- und sem ríkir hér á íslandi — við vitum það öll. Er ekki timi til kominn að samgleðjast í staðinn? Henný var okkar stolt, stóð sig betur en nokkur önnur, hvað framkomu, hæfi- leika og fegurS snerti — auð- vitað erum við hreykin. Ég er sammála Henný að öfundin er ljóta kérlingin sem segir nei. Hefur það komið fyrir ykkur að vinfólk ykkar taki ekki und ir kveðju ykkar mætist þið á götu, heldur gengið rakleitt flissandi og hlæjandi af einskærri öfund í stað þess að samgleðjast? Þetta hefur komi& fyrir Henný, kannski þig — og kannski þig. En var það notalegt augna- blik? Ef til vill eru það margir, sem hafa enn ekki velt þessu leiðigjarna smáatriði fyrir sér. En er þá efcki tími til kom- inn? , Við þurfum öll að hjálpa til og breyta þessum íslenzka móral. Erlendis er borin virð- ing fyrir slíkum sigiri sem þeim, er Henný vann. Hérlendis er litið á málið, sem hégóma. Miðvikudagsmorgun fyrir skömmu, var hringt í Henný alla leið frá útvarpsstöð i Kaliforníu, svona rétt til aó‘ vita hvernig ferðin gekfc heim og hvernig henni liði. Var þama um að ræða útvarpsþul, sem Henný kynntist á sínu síðasta ferðalagi, sem ákvað að gefa milljónum manna ■ um alla Kaliforníu, fcost á að heyra rödd hennar. Henný dvaldist í Ástralíu um daginn ásamt öðrum fegurðar- dísum. Starf þeirra var í því fólgið ao* koma fram á ýmsum frægum stöðum, sem fulltrúar sinna þjóða, hvort heldur var í ýmsum kynningarþáttum í sjónvarpi, sem skemmtikraftar eða sýningarstúlkur. Alls stað- ar var Henný jafn vel _ tekið. Hún sagði mér að Ástralía væri „unga fólkið“. Á hverjum degi í útvarpi og sjónvarpi væri ungt fólk að verki. —Ég kunni mjög vel við fólkið í Ástralíu, þar eru mjög enskar „týpur“, hélt Henný áfram, en ekki gæti ég hugsaó’ mér að búa þar langdvölum. Mawaii-er paradís á jörðu, en ísland er bezta landið. í Hollywood var Henný kjör- in „drottning drottninganna“ þ.e.s.a. af þeim fjórum alheims keppnum, sem haldnar eru ár- lega. Keppendurnir voru „Miss World“, „Miss Universe" ,Miss International" og „Miss Young International“. S’tærri titil er ekki hægt að fá í drottninga keppni, en venju- legast er sem minnst um slík- an titil talað, enda gæti það verið hættulegt gagnvarb titl- um hinna. En bikarinn s„nnar titilinn því að hann er persónu lega áritaður Henný Hermanns dóttur sem drottningu drottn- inganna. Að lokum segir Henný: — Ég hef hugsað mér að vera ég „sjálf" og halda áfram danskennslu, því að ég kem ti.‘ með að taka við dansskól- anuro af föður mínum (Her- manni Ragnars), en vel gæti ég hugsað mér að fara í tizku- sýningarferðir svona þrjá mán- uði af árinu. -Eva Benjanúos.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.