Morgunblaðið - 30.11.2005, Qupperneq 2
Lifandi kirkja
Útgefandi:
Reykjavíkurprófastdæmi vestra
www.kirkjan.is/vestra
Umsjón:
KOM almannatengsl,
Sýningar ehf.
Ritstjóri:
Þorsteinn G. Gunnarsson
Ábyrgðarmaður:
Jón Dalbú Hróbjartsson
prófastur
Umbrot og hönnun:
svarthvítt ehf.
Ljósmyndir:
Eitt stopp ehf. / Hreinn
Magnússon
Þorvaldur Örn Kristmundsson
Forsíðumynd:
Hreinn Magnússon tók
forsíðumyndina í Hallgrímskirkju
fyrsta sunnudag í aðventu,
27. nóvember 2005.
Auglýsingar: Markfell
Prentvinnsla: Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Nóvember 2005
Aðventa þýðir koma. Aðventutíminn,
fjórar vikur fyrir jól, er tími
undirbúnings og eftirvæntingar.
Boðskapur kirkjunnar á aðventu er
að benda á konung konunganna,
friðarhöfðingjann, sem kom, kemur
og mun koma. Hann kom í barninu
sem lagt var í jötu í Betlehem, hann
kemur í fagnaðarerindi jólanna
á hverju ári, og hann kemur við
endi aldanna eins og við játum í
trúarjátningu kirkjunnar.
Aðventa er tímabil, sem hefur
fengið á sig margar myndir. Fyrirtæki
og verslanir nota þennan tíma
til að selja sem mest af varningi,
veitingahús keppast um að bjóða
fólki góðan mat og þannig mætti
lengi telja. En það sem ekki síst
einkennir þennan tíma hin síðari ár
er áhugi fólks á að hlusta á fallega
tónlist og fá andlega uppbyggingu.
Kirkjur borgarinnar bjóða upp á
fjölbreytta dagskrá á aðventu í
helgihaldi og tónleikum og margir
kórar og hópar tónlistarfólks fá inni
í kirkjunum til að flytja fjölbreytta
tónlist. Kirkjur borgarinnar fyllast
aftur og aftur í þessu samhengi. Allt
þetta gefur aðventunni innihald og
lit sem hefur félagslegt, andlegt og
menningarlegt gildi. Kirkjan leggur
áherslu á að aðventan fái að vera
undirbúningstími jólanna, þannig
að við tökum ekki forskot á jólin
heldur leyfum sjálfum jóladögunum
að njóta sín þegar þeir renna upp -
hátíð ljóss og friðar.
97% þjóðarinnar vill að þjóðkirkjan
veiti öllum Íslendingum þjónustu
sína, samkvæmt nýlegri könnun
sem Gallup gerði um kirkju og trú á
Íslandi. Þjóðkirkjunni er sýnt mikið
traust, enda finnum við það, sem
störfum í kirkjunni, að störf okkar
eru vel metin.
Við sem nú störfum í kirkjunni á
höfuðborgarsvæðinu, og sendum frá
okkur þetta blað til kynningar á starfi
safnaðanna, viljum leitast við að efla
kirkjulegt starf. Við höfum sjálf reynt
hvað starfið í kirkjunni er gefandi,
uppbyggilegt og mannbætandi.
Við viljum efla kirkjuna á alla lund,
viljum sjá safnaðarstarfið dafna
enn meir. Kirkjan vill opna dyr fyrir
nýjum áherslum, prófa nýjar leiðir í
samstarfi við sem flesta.
Á undanförnum árum hefur
tónlist og söngur skipað stærri og
stærri sess í safnaðarstarfinu, sem
m.a. hefur leitt til þess að kirkjan
hefur orðið uppeldisstofnun fyrir
tónlistarfólk, því og söfnuðunum til
heilla.
Dans- og leiklist hefur einnig
fengið rými í safnaðarstarfinu og
eigum við án efa eftir að sjá mikla
aukningu á því á næstu misserum.
Á síðustu árum hefur
fræðslustarf einnig aukist mjög
mikið. Í vetrardagskrá kirkjunnar
í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
og víðar í söfnuðum landsins er
fjölbreytt fræðslustarf fyrir unga sem
aldna, fræðsla um grundvallaratriði
trúarinnar og fjölmörg önnur atriði
er snerta trú og siðfræði. Ekki
síst hugnast fólki að fá fræðslu
á markvissum námskeiðum, þar
sem gert er ráð fyrir hópastarfi og
samfélagi. Námskeið í þessum dúr
heita t.d. Alfa og Lifandi steinar.
Kærleiksþjónustan er einn af
grunnsteinum kristins boðskapar.
Kristur kallar okkur til að elska
Guð og náungann. Ábyrgð kristins
fólks er mikil í þessum heimi, við
erum kölluð til að sinna brýnum
verkefnum í nafni kærleikans.
Kirkjustarfið gefur fólki tækifæri
á að starfa að kærleiksþjónustu í
félögum og hópum, sem tengjast
safnaðarstarfinu, svo sem
kvenfélögum, safnaðarfélögum og
áhugahópum af ýmsu tagi.
Sérþjónusta kirkjunnar hefur
aukist og dafnað með hverju ári
sem líður og er að starfi inni á
sjúkrahúsum, öldrunarheimilum og
fjölmörgum öðrum stofnunum, þá
sinnirsérþjónustaneinnigsérstökum
hópum fólks á öllum aldri. Þá starfar
kirkjan meðal Íslendinga á erlendri
grund.
Þjóðkirkjan hefur sett sér
fræðslustefnu til nokkurra ára,
í haust vill kirkjan í heild vekja
athygli á heimilinu og fjölskyldunni.
Þetta verður útfært með ýmsum
hætti. Kirkjan vill í starfi sínu
styðja heimilin í landinu, t.d. með
foreldramorgnum, fjölbreyttu
barna- og unglingastarfi, helgihaldi
og fræðslu fyrir foreldra.
Ágæti lesandi, ég hvert þig til að
lesa þetta blað og fræðast um það
öfluga starf sem unnið er í kirkjum
Reykjavíkurprófastsdæmis vestra.
Þetta blað gefur innsýn inn í starf
þessara safnaða, en er um leið kveðja
kirkjunnar inn á heimili landsmanna,
hvatning til allra um að kynna sér
starf og samfélag heimakirkjunnar
hvar sem er á landinu. Ég hvet alla
til að taka þátt í því fjölbreytta
starfi sem í boði er á aðventu.
Þannig getum við undirbúið hug og
hjarta fyrir komu jólanna jafnhliða
margvíslegum ytri undirbúningi.
Guð gefi landsmönnum öllum
innihaldsríka og blessaða aðventu-
og jólahátíð.
Jón Dalbú Hróbjartsson
prófastur
Undanfarin þrjú ár hefur verið
gerð könnun á kirkjusókn í
Reykjavíkurprófastsdæmum fyrstu
vikuna í október. Talið hefur verið
hve margir mæta í helgihald og
athafnir, barna og unglingastarf,
tónlistastarf, fullorðinsfræðslu og
ferðamenn.
Nú liggja tölur fyrir með
samanburði við síðastliðin tvö ár
og eru gröf fyrir hverja kirkju í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
aðgengileg á vefnum www.kirkjan.
is/vestra.
Fjölgun kirkjugesta var um 28% í
báðum prófastsdæmum í fyrstu viku
október í ár miðað við sömu viku
í fyrra. Heildarfjöldi kirkjugesta í
Reykjavík án ferðamanna var 25.013.
Ferðamennvoru4.541ogþaraf4.300
í Hallgrímskirkju. Fjöldi kirkjugesta í
Reykjavíkurprófastdæmi vestra var
12.772 en í eystra prófastdæminu
voru kirkjugestir 12.241. Greinilegt
er að heldur dró úr kirkjusókn í
kennaraverkfallinu á síðasta ári,
sérstaklega í barnastarfi kirknanna.
Þrátt fyrir það er mætingin í ár betri
en bæði árin 2004 og 2003.
Aðventa og jól!
Kirkjusókn eykst milli ára
Lifandi steinar er námskeið um kristið
lífsviðhorf. Það fjallar um messuna,
uppbyggingu hennar og leyndardóma.
Námskeiðið er byggt upp með
hópumræðum, boðun, kyrrðarstundum,
íhugun og heimaverkefnum. Það verður
haldið á vorönn í suðursal Hallgrímskirkju,
sex miðvikudagskvöld, kl. 0–, frá
1. feb. til 8. mars. Enn fremur er langur
laugardagur (kl. 10–15) einu sinni á
tímabilinu. Leiðbeinendur verða sr.
Bára Friðriksdóttir og Bergþóra
Baldursdóttir sjúkraþjálfari.
Markmið
Markmið námskeiðsins eru
margþætt. Það á að veita
innsýn í guðsþjónustuna,
skapa samfélag við aðra
í söfnuðinum, auka trú
þátttakenda á eigin
möguleika í lífinu, að auka
tengsl milli trúar og
daglegs lífs, einkum
í samskiptum
við aðra.
Einnig er unnið með spurningar er vakna
um trúna og lífið og er markmiðið aukinn
trúarþroski.
Lifandi steinar
– lifandi samfélag
Í námskeiðinu er þátttakendur virkjaðir.
Hver og einn hefur áhrif á námskeiðið
með framlagi sínu. Í námskeiðinu er
séð til þess að þátttakendur geti
myndað tengsl hverjir við aðra,
deilt lífsskoðunum og víkkað út
sjóndeildarhringinn. Lögð er
áhersla á mikilvægi þagnarskyldu,
að það sem sagt er í trúnaði
geymi hver með sér. Leitast
er við að auka skilning á gildi
trúarinnar í hinu daglega lífi og
á því hvernig sunnudagurinn
og guðsþjónustan geta
glætt hvunndaginn lífi. Í
Lifandi steinum á fólk að
láta uppbyggjast í trú
og samfélagi.
Lifandi steinar