Morgunblaðið - 30.11.2005, Side 6

Morgunblaðið - 30.11.2005, Side 6
 Lifandi kirkja „Við erum alltaf að leita að leiðum til að koma fagnaðarerindinu á framfæri. Hvernig trúin getur veitt blessun inn í mannlífið. Þetta er sannarlega ein leiðin” segir Hjálmar. “Persónulega hef ég góð kynni af AA - samtökunum. Í minni fjölskyldu, eins og svo mörgum, er alkóhólismi. AA-samtökin urðu til mikillar hjálpar og komu með bjart ljós inn í lífið. Ég veit hvernig dimman víkur fyrir dagsljósinu þegar ný von fæðist.” Ólíkar hefðbundnum messum Æðruleysismessurnar eru ólíkar hefðbundnum messum á ýmsan hátt. Sálmar og söngvar eru til að mynda á léttari nótum. “Við höfum æðruleysismessurnaráléttumnótum og þær eru yfirleitt mjög vel sóttar. Það sem einkennir samkomurnar er glaðværð, léttleiki og innileiki” segir Hjálmar. Fastur liður í messunum er persónuleg frásögn messugests. Hjálmar segir að það geti verið mjög grípandi stund þegar viðkomandi segir frá því hvernig hann hefur komist frá drykkju og eiturlyfjum og hvernig lífið hefur komist í þokkalegt jafnvægi. “Stundum er þó stutt í sorgina og erfiðleikana. Fólkið sem sækir þessar messur hefur oft á tíðum lifað tímana tvenna. Sumir lifa í skugga þess að eitthvað hefur brotnað eða farið úrskeiðis í lífinu á erfiðu tímabili. En það er sammerkt okkur öllum að við komum bara rétt eins og við erum. Það er svo sem ekki frábrugðið öðru helgihaldi. Það er enginn sem telur sig öðrum meiri. Og það er öllum sameiginlegt að ekki er svifið í gegnum lífið á rósrauðu skýi. Það eru sjaldnast til einfaldar lausnir á lífsvandanum og ég held að skyndilausnir séu yfirleitt ekki mikils virði.” Guð gefi mér æðruleysi... Æðruleysismessurnar fara fram þriðja sunnudag í hverjum mánuði. Þær draga nafn sitt af svokallaðri Æðruleysisbæn sem er í hávegum höfð í AA-samtökunum. Æðruleysisbænin er svohljóðandi: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Miðað er við að messurnar standi ekki lengur en eina klukkustund. Hjálmar segir að í lok hverrar messu sé fólki gefinn kostur á að koma upp að altarinu og þiggja sérstaka fyrirbæn áður en það gengur út úr kirkjunni. Þetta eru í raun bæði fyrirbænir og sálgæsla. Hjálmar segir að það séu bæði einstaklingar sem hafa átt í erfiðleikum með áfengi og vímuefni og aðstandendur sem mæta í messurnar. Fjöldi aðstandenda fer þó sífellt vaxandi. Og svo eru þeir býsna margir sem kunna betur að meta þetta messuform en hið hefðbundna. Hann segir að það sé ánægjulegt að sjá hversu opið fólk er fyrir nýjum valkostum og fyrir fagnaðarerindinu. “En mikilvægast er auðvitað það að leyfa góðum hlutum að gerast í sínu lífi.” Séra Svanhildur Blöndal hefur verið ráðin sem prestur á Hrafnistu í Reykjavík og Vífilsstaði. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, setti séra Svanhildi Blöndal inn í embættið við hátíðarmessu sunnudaginn 2. október síðastliðinn. Organisti var Jónas Þórir en kór Hrafnistu og kórfélagar úr kirkjukór Áskirkju sungu en einsöngvari við athöfnina var Júlíus Vífill Ingvarsson, eiginmaður Svanhildar. Svanhildur er fyrsti presturinn sem ráðinn er eingöngu til starfa á Hrafnistu. Hún er í 80% stöðu við Hrafnistu í Reykjavík og í 20% stöðu á Vífilsstöðum sem Hrafnista rekur. Áður var Hrafnistu þjónað frá Áskirkju af sr. Árna Bergi Sigurbjörnssyni. Séra Svanhildur Blöndal sinnir sálgæslu og trúarlegri þjónustu við heimilismenn, aðstandendur og starfsfólk Hrafnistu. Auk þess að vera til staðar fimm daga vikunnar er Svanhildur með helgihald vikulega í Helgafelli, samkomusal Hrafnistu og messar þar mánaðarlega. Hún hefur einnig reglubundnar bænastundir á deildum Hrafnistu og Vífilsstaða, Svanhildur Blöndal lauk embættisprófi í guðfræði frá HÍ haustið 2002 en starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur. Hún lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1979 og síðar framhaldsnámi sem heilsugæslu- hjúkrunarfræðingur. Í hverri einustu viku sækir fjöldi eldri borgara kirkjurnar heim þar sem boðið er upp á samverustundir og afþreyingu fyrir eldri borgara. Ýmist bjóða kirkjurnar upp á þessar samverustundir einu sinni í viku eða oftar og ekki er óalgengt að um það bil 75–100 manns sæki hverja samverustund. Hverkirkjaskipuleggurstarfiðfyrir sig.Starfsfólkogsjálfboðaliðarsjáum stjórnina á hverjum stað. Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma er til halds og trausts í þessu starfi og þar er Valgerður Gísladóttir framkvæmdastjóri. Hún aðstoðar við skipulagningu og tekur þátt í starfinu, auk þess sem hún sér um fundi og fræðslunámskeið fyrir þá sem sinna starfinu og leiðbeina í kirkjunum. Sjálfsagt í hverri sókn Rétt eins og flest það sem unnið er innan kirkjunnar byggjast samverustundirnar í kirkjunum á sjálfboðaliðastarfi. Valgerður segir að þessi starfsemi í kirkjunum hafi hafist áður en borgin fór að byggja upp félagsmiðstöðvar aldraðra. „Neskirkja var fyrsta kirkjan til að bjóðauppásérstakarsamverustundir fyrir eldri borgara fyrir u.þ.b. 30 árum. Nú þykir sjálfsagt að bjóða upp á þetta starf í hverri sókn. Hugmyndin var og er enn að gefa öldruðum kost á uppbyggilegu tómstundastarfi og bjóða upp á félagsskap í stað þess að einangrast heima fyrir. Starfsemi kirkjunnar er ekki í neinni samkeppni við félagsmiðstöðvar borgarinnar enda mörg dæmi um að þeir sem sækja dægradvölina til okkar sæki líka félagsmiðstöðvar borgarinnar,“ segir Valgerður. Margbreytileg dagskrá Að sögn Valgerðar tengist helgihald ávallt samverustundunum, ýmist í upphafi þeirra eða í lokin. „Dagskráin er síðan margbreytileg og margir mæta eingöngu til þess að njóta samverustunda með jafnöldrum sínum. Margir taka í spil og aðrir stunda handavinnu enda leggjum við töluvert upp úr því að vera með handavinnu og ýmiss konar föndur á samverustundunum. Leiðbeinendurnir eru þá gjarnan „yngri eldri borgarar“, gamlir handavinnukennarar eða myndarlegar húsmæður. Oft koma gestir í heimsókn og flytja fróðleg erindi eða eru með bókmenntakynningar, svo eitthvað sé nefnt. Hóparnir fara einnig oft úr húsi, í leikhús eða á aðra menningarviðburði. Einnig fara hóparnir í dagsferðir út á land í upphafi eða endi vetrarstarfs,“ segir Valgerður. Uppbyggilegt starf og góður félagsskapur Æðruleysismessur: Glaðværð og léttleiki Undanfarin átta ár hafa æðruleysismessur verið haldnar í Dómkirkjunni. Messunum er ætlað að höfða til þeirra einstaklinga sem leita sér hjálpar í gegnum AA - samtökin og 12 spora kerfið. Sr. Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, hefur þjónað við þessar messur síðustu árin. Prestur ráðinn til Hrafnistu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.