Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 8
 Lifandi kirkja www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 30 37 0 11 /2 00 5 Guðþjónustan er þungamiðja kirkju- starfsins. Almennar guðsþjónustur eru alla sunnudaga og helgidaga ársins kl. 11 yfir sumarið en kl. 14 á vetrartíma. Barnamessur eru haldnar í Bústaðakirkju hvern sunnudag frá september og út maí og er mjög stór hluti þeirra sem koma í þær messur foreldrar með börn sín. „Mér þykir ljóst að ungir foreldrar hafi vaknað mjög til vitundar um hversu mikilvægt er að hafa gæðatíma fyrir fjölskylduna en báðir foreldrar fylgja gjarnanbörnumsínumíbarnastarfið. Í barnamessunum höfum við lagt mikla áherslu á að vera vel mönnuð og að hafa messurnar sérstakar messur en ekki hluta af almennum messum safnaðarins. Í sumum kirkjum eru barnamessur hluti af hefðbundnum sunnudagsmessum en hjá okkur eru þær það vel sóttar að við viljum hafa þær aðskildar. Sem dæmi má nefna voru hátt á fjórða hundrað manns í barnamessunni síðasta sunnudag, það var fullt út úr dyrum,“ segir Pálmi. Bústaðakirkja hefur verið í mjög góðu samstarfi við skólana í hverfinu. Þeir hafa komið í heimsókn í kirkjuna ásamt því sem starfsfólk kirkjunnar er ávallt velkomið í skólana. „Við höfum reynt að sinna þessu starfi á trúarlegum og félagslegum grunni fyrir íbúana í hverfinu. Það er heldur ekki óalgengt að unga fólkið líti við í kirkjunni, spjalli við starfsfólk kirkjunnar og fái sér hressingu,“ segir Pálmi. Fyrir nokkrum árum voru stofnuð samtökin Betra líf í Bústaðarhverfi en það eru regnhlífarsamtök með fulltrúa frá öllum stofnunum og félögum sem starfandi eru í hverfinu. Pálmi segir að samtökin hafi það að markmiði að gera lífið betra í hverfinu. Þau hafi staðið fyrir hátíð Sumardaginn fyrsta ár hvert. „Þá hefst hátíðin á því að við grillum pylsur við Grímsbæ, förum svo í kirkjuna og svo í skrúðgöngu sem endar í Víkinni. Þessi dagur er einnig dagur Víkings þar sem afmælis félagsins er minnst og keppnisfólk er heiðrað. Skátarnir hafa einnig verið mjög virkir í þessum hátíðarhöldum með okkur. Þetta er öflugt og skemmtilegt starf sem er byggt á breiðum grunni,“ segir Pálmi. Áhersla á tónlistarlíf Þegar minnst er á æskulýðs- og unglingastarf innan kirkjunnar segir Pálmi að það sé mikil barátta um tíma ungmennanna. „TTT starf ungmenna 10–12 ára gengur mjög vel. Unglingar á fermingaraldri hafa mjög langa stundaskrá og mjög upptekin við það stóra stökk að fara í unglingadeild í Réttarholtsskóla. Auk þess eru þau virk í tónlistar- og íþróttastarfi sem útheimtir mikinn tíma.Vegnaþessaákváðumviðbreyta til frá hefðbundnu æskulýðsstarfi með fasta fundartíma og leggja meiri áherslu á tónlistarstarfið. Þess vegna réðum við kórstjóra í fullt starf sem starfar með og undir stjórn organista kirkjunnar. Auk þess höfum við einbeitt okkur að stærri verkefnum, átaksverkefnum með ungu fólki sem taka mikinn tíma meðan þau vara en frí á milli. Þá höfum við verið í miklu og góðu samstarfi við Bústaði og það frábæra fólk, sem þar starfar, bæði varðandi málefni unglinga og starfsemi Betra lífs í Bústaðahverfi,“ segir Pálmi. Þessi stóru verkefni, sem Pálmi minnist á, eru t.d söngleikir en fyrir nokkru var söngleikurinn Jesus Christ Superstar settur upp innan kirkjunnar. „Í þessum uppfærslum, sem eru mjög metnaðarfullar, hefur ungafólkiðséðumallanhljóðfæraleik og söng. Það voru um 120 ungmenni, sem komu að þessum söngleik, sem tókst í alla staði mjög vel.“ Kirkjuleg sveifla Tónlistarstarfið í Bústaðakirkju er í miklum blóma. Þar eru starfandi barna- og unglingakórar þar sem vel á annað hundrað barna á aldrinum 4–17 ára taka þátt. Þess utan er öflugur kirkjukór og kammerkór auk kórs Kvenfélags Bústaðakirkju. „Innan kirkjunnar er einnig starfandi lítil bjölluhljómsveit ásamt því sem hljómsveit ungmenna spilar í öllum barnamessum. Auk þessa er nóg af litlum hljómsveitum, poppgrúppum, starfandi í hverfinu sem spila í messum og hafa haldið tónleika í kirkjunni. Við teljum mjög mikilvægt að unga fólkið viti að það á kirkjuna, hún er eign fólksins í hverfinu,“ segir Pálmi. Aðspurður um frekara tónlistarlíf innan Bústaðakirkju segir Pálmi það vera í miklum blóma. „Hjá okkur er starfandi vel menntaður og metnaðarfullur organisti sem heitir Guðmundur Sigurðsson. Við byrjuðumfyrirnokkruásamverusem við köllum kirkjulega sveiflu. Þessi samvera er í raun og veru messa en þar er flutt önnur tónlist með öðrum textum en venjan er í messuhaldi og með léttara yfirbragði. Við höfum einnig verið í samstarfi við Guitar Islandico sem hafa komið reglulega og spilað með okkur. Þessi fjölbreytni gefur kórunum og tónlistarfólkinu innan kirkjunnar mjög mikið og ekki síst það að finna fyrir jákvæðum viðbrögðum safnaðarfólks,“ segir Pálmi. Þegar talið víkur að íbúum hverfisins segir Pálmi það augljóst að umhyggja íbúanna fyrir kirkjunni sé mjög sterk. „Ég tel að það sé mjög sterk sóknarvitund hérna í hverfinu og fólk er mjög fúst til að starfa fyrir kirkjuna. Við höfum einnig aldrei átt erfitt með að fá fólk til að starfa fyrir kirkjuna. Foreldrafélögin, sem starfa í kringum kórana og unglingastarfið, eru mjög virk en það er gífurleg vinna sem það fólk leggur af mörkum. Ég tel að það séu allt að 180 manns sem starfa í nefndum, félögum, foreldrafélögum og kórum innan Bústaðakirkju og það allt í sjálfboðaliðastarfi.“ Pálmi hefur fengið töluverða athygli fyrir að messa í Bláfjöllum. Aðspurður segir hann að hann leggi áherslu á að kirkjan taki virkan þátt í því sem íþróttahreyfingin sé að gera en hingað til hafi tengslin ekki alltaf verið nægilega sterk. „Ég hef messað í Bláfjöllum ef snjór er til staðar. Einnig höfum við messað í sundlaugum og í sérstökum göngumessum. Með þessu leyti höfum við reynt að virkja fólk og leggja áherslu á að það er ekki nóg að hugsa um sálina heldur er nauðsynlegt að hafa heilbrigða sál í hraustum líkama til að hlutirnir gangi upp.“Í Bústaðakirkju er bæði öflugt barna- og unglingastarf sem og líflegt tónlistarstarf. Sr. Pálmi Matthíasson er sóknarprestur í Bústaðakirkju og leiðandi í þessu starfi. Mikil samkeppni um tíma ungmenna Síðustu ár hefur nýtt fræðsluefni fyrir fullorðna í kirkjunni náð miklum vinsældum. Það ber nafnið Tólf sporin og er byggt á tólf sporum AA-samtakanna. Konur og karlar, sem hafa tekið þátt í námskeiðinu, hafa fundið að vinnan í Tólf sporunum hefur leitt lækningu og bata inn í líf þeirra og verið þeim andleg vakning. Þetta er innra ferðalag þar sem markmiðið er að græða skaddaðar tilfinningar. Hver þátttakandi skoðar eigið líf með hjálp verkefnabókarinnar Tólf sporin – andlegt ferðalag. Þátttakendur finna samhljóm og stuðning hver meðöðrumþvíaðþeirerusamferða í andlegu ferðalagi sem veitir líkn og græðslu. Eina þátttökuskilyrðið er að viðkomandi vilji bæta líf sitt og taka frá tíma til að vinna að því. Farið er í gegnum byrjunarefnið á fyrstu þrem fundunum. Þar athugar hver og einn stöðu sína og metur hvort hann langi til að vera með. Síðan er hópunum lokað á fjórða fundi og lagt er af stað í ferðalagið sem tekur 30 vikur eða tvær skólaannir. Eftir að því lýkur getur fólk sótt sporafundi til að halda vinnu sinni áfram að frekari bata. Í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra er tólf spora námskeiðið nú haldið í Neskirkju, Laugarneskirkju, Hallgrímskirkju, Grensáskirkju og í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Flest námskeiðin hefjast að hausti en í Laugarneskirkjubyrjarvæntanlega nýtt námskeið eftir áramót. Nánar má finna upplýsingar um fundartíma og stað, innihald, reynslusögur, bænir o.fl. á www. viniribata.is Tólf spora vinnan í kirkjunni slær í gegn 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.