Morgunblaðið - 30.11.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.11.2005, Qupperneq 10
10 Lifandi kirkja Jón Stefánsson tónlistarstjórnandi og organisti Langholtskirkju var aðeins sautján ára gamall þegar hann réð sig til starfa hjá kirkjunni. Það var árið 1964 og hann var þá enn í námi og sinnti afleysingum til að byrja með. Síðar það sama ár var hann fastráðinn við sóknina. „ Ég hélt stöðu minni á meðan ég lauk námi mínu, bæði hérna heima og framhaldsnáminu erlendis. Ég tók við mjög góðu búi hér í Langholtskirkju. Hér var hefðbundinn kirkjukór ásamt því sem hefð hafði skapast fyrir því að hann héldi tónleika einu sinni á ári og æfði hann því meira en aðeins kirkjusöng,“ segir Jón. Fjölgun í kórnum „Þegar ég kom heim úr námi þá langaði mig að takast á við stærri verkefni en kórinn var of lítill. Þá voru reglur kórsins þannig að hann fékk eina greiðslu á ári sem deildist á alla félagana sem gerði að verkum að erfiðara var að fjölga í kórnum því þá minnkaði hlutur hvers og eins. Árið 1973 var lögum kórsins breytt þar sem kórfélagarnir afsöluðu sér þessari þóknun og í staðinn voru peningarnir lagðir í sameiginlegan sjóð til að efla kórinn og kórstarfið“. Í kringum 1990 hafði kórinn flutt flest stóru kirkjutónverkin og hann orðinn gríðarlega öflugur. Jón segir að þetta hafi í raun verið í fyrsta skiptið sem kirkjukór hafði náð að hasla sér völl á þessu sviði. Á svipuðum tíma var Kammerkór Langholtskirkju stofnaður. Jón segir að verkefnin hafi til að byrja með fyrst og fremst snúið að söng við athafnir eins og jarðarfarir en fljótlega sá hann að það var ekki nóg fyrir kórinn til að starfa af metnaði. „Við fórum því að æfa meira, halda tónleika og fara í tónleikaferðir, bæði innan lands og utan. Kammerkórinn hefur tekið þátt í ýmsum kórakeppnum og m.a. unnið kammerkórakeppni einu sinni. Hann hefur einnig gefið út tvo geisladiska og er sá þriðji í bígerð,“ bætir hann við. Fjölbreytt barnastarf Á tíunda áratug síðustu aldar átti tónmenntakennsla í grunnskólum undir högg að sækja sem gerði að verkum að kórastarfi hnignaði mikið í grunnskólum. Starfið færðist í kjölfarið að miklu leyti yfir til kirkjunnar. Jón segir að sóknarnefnd Langholtskirkju hafi beðið hann um að stofna barnakór haustið 1990 og hefur það starf verið í stöðugri þróun síðan. „Við byrjuðum með kórskóla til að kenna börnum tónfræði og veita þeim markvissa raddþjálfun. Kórinn samanstóð þá af börnum á aldrinum átta til sautján ára“. Eftir fyrsta starfsárið fluttu elstu börnin í barnakórnum Mattheusarpassíuna með kór Langholtskirkju. Í kjölfarið varð til sérstakur kór sem fékk síðar heitið Gradualekór Langholtskirkju. „Þegar Gradualekórinn hafði tekið til starfa fannst okkur ákjósanlegt að fá börnin fyrr inn í starfið. Við stofnuðum þá Krúttakórinn sem í eru börn frá fjögurra til sex ára aldurs. Hugsunin var sú að skapa markvissa, samfellda leið fyrir börnin að stærri kórunum. Í Krúttakórnum er meira lagt upp úr sönggleði og því að syngja saman en þau fá líka strax að kynnast þeim aga sem fylgir að syngja með kór. Þegar börnin koma svo í kórskólann læra þau tónfræði og fá frekari raddþjálfun. Þá taka þau einnig þátt í samsöng með Graduale kórunum og fá því að kynnast því snemma að syngja í tveimur til fjórum röddum. Kórskólinn er hliðstæður tónlistarskóla nema í stað þess að vinna með hljóðfæri vinna börnin með eigin raddir.“ Graduale Nobili og söngvarar framtíðarinnar Þegar Gradualekórinn hafði starfað í um níu ár var Jón farinn að horfa á eftir mjög færum kórfélögum, sem höfðu sungið hjá honum í fjölda ára, en voru orðnir of gamlir fyrir kórinn. „Stúlkurnar voru margar hverjar orðnar gífurlega færir söngvarar og því erfitt að horfa á eftir þeim. Við ákváðum þá að stofna Graduale Nobili sem eins konar framhald af Graduale kórnum“. Graduale Nobili er úrvalskór sem er smár í sniðum, en aðeins 24 stúlkur syngja með honum. Skilyrði fyrir inngöngu í þann kór er að hafa fengið tónlistaruppeldi í GradualekórLangholtskirkjuogvelur Jón félagana sjálfur inn. Hann segir að það sé hreint stórkostlegt að vinna með þeim kór en flestar stúlknanna eru að auki í tónlistarnámi eða hafa lokið slíku námi. Jón segir að þegar reynsla hafi verið komin á kórskólann og Krúttakórinn hafi komið í ljós að fyrir þau börn sem höfðu farið þá leið var kórskólinn heldur of auðveldur. Þau voru hins vegar ekki orðin nógu gömul til að taka þátt í Graduale starfinu auk þess sem inntökupróf eru í þann kór. Það var því ákveðið að stofna einn kórinn enn sem fékk heitið Graduale Futuri og segir Jón að þetta skipulag hafi gefið mjög góða raun. Jón segir að auk þessa hafi fyrir nokkrum árum síðan verið ákveðið að fjárfesta í Gradualekórnum með söngkennslu í grunnámi. „Kórinn hefur styrkt þá félaga í Gradualekórnumsemhafahaftáhuga á því að fara í enn frekara söngnám og erum við í mjög góðu samstarfi við Söngskólann í Reykjavík. Við erum mjög stolt af þessu starfi hér og höfum undanfarin ár getað státað af nemendunum með hæstu einkunn í grunnprófinu. Það segir okkur að við erum á réttri og góðri leið“. Mikil vinna Það gefur auga leið að töluverð vinna fer í að halda úti svona miklu kórastarfi en í kórum Lanholtskirkju starfa nú um 270 manns. Jón stýrir sjálfur fjórum af kórunum. Tveir kennarar sjá um Krúttakórinn og þrír kennarar eru með kórskólann og Graduale Futuri. Ólöf Kolbrún Harðardóttir sér um raddþjálfun hjá stóra kórnum ásamt kórskólanum. Gradualekórinn er rekinn af foreldrafélagi en í hinum kórunum þurfa nemendur að greiða skólagjöld. Jón segir að foreldrafélag Graduale kórsins sé gríðarlega öflugt og hafi skilað ótrúlegu starfi. „Fyrir okkur sem stöndum að þessu er ótrúlega gefandi að sjá hvað þetta starf hefur skilaðsérútítónlistarlífið.Fjölmargir út kórunum hafa haldið áfram í söngnámi og hafa t.d þrjár stúlkur úr Graduale Nobili kórnum komist inn í mjög góða tónlistarháskóla erlendis á þessu ári“. Framtíðin og aðventan Jón hefur lengi gengið með það í maganum að stofna drengjakór. Hann segir að það sé aðeins einn drengjakór starfandi við kirkju á landinu. „Ég tel að ef að við myndum stofna annan drengjakór þá myndi sá sem fyrir er eflast til muna. Hins vegar stendur og fellur slíkt starf með góðum stjórnendum og það má eiginlega segja að við séum að bíða eftir tónlistarstjórnanda til að taka verkið að sér“, segir Jón. Hann bætir við að framundan sé aðventan og þá taki kórarnir ávallt mikinn þátt í helgihaldinu. Kór Langholtskirkju syngur sína hefðbundnu jólasöngva síðustu helgina fyrir jól, en þetta eru 27. jólin sem það er gert. Í ár heldur kórinn ferna tónleika og verður sem áður notaleg stemning á staðnum, með heitu súkkulaði og piparkökum. Gunnar Gunnarsson organisti í Laugarneskirkju er löngu þekktur fyrir áhuga sinn á djasstónlist. Á liðnum árum hafa Gunnar og séra Bjarni Karlsson sóknarprestur í Laugarnessókn útfært kvöldmessur annað hvert sunnudagskvöld í mánuði þar sem flutt er vönduð djasstónlist auk hefðbundinna sálma. Að sögn Gunnars er um hefðbundið messuform að ræða, ,,og sálmabók kirkjunnar er lögð til grundvallar öllum tónlistarflutningi og messuliðirnir eru hefðbundnir.” Gunnar bætir því við að þessar messur hefðu aldrei orðið að veruleika nema fyrir gott samstarf og víðsýni þeirra presta sem þjónað hafa í Laugarneskirkju. ,,Kvöldið hentar vel til messuhalds og við höfum haft kvöldmessur í Laugarneskirkju á sumrin, einkanlega til þess að mæta þörfum þeirra sem nýttu helgarnar til ferðalaga eða sumarbústaðaferða en vildu engu að síður geta sótt messur í kirkjunni sinni. Þessi messutími hefur verið mjög vinsæll og kvöldmessurnar með djassívafi yfirveturinneruenginundantekning frá því.” Messan í aðalhlutverki Gunnar segir að ef vel eigi að vera verði organistar í kirkjunum að líta á sig sem starfandi listamenn sem sífellt eru að þróa sína list en það er einmitt það sem liggur til grundvallar djassmessunum í Laugarneskirkju. Reyndar vill Gunnar kalla samkomurnar kvöldmessur, ,,því sjálf messan skiptir meira máli en tónlistin,” segir Gunnar og bætir við að hefðbundnar sunnudagsmessur séu ekki kallaðar sálmamessur! ,,Í mínum huga getur kirkjutónlist verið nytjalist þar sem tónlistin er notuð til þess að lofa Drottin. Í kvöldmessunum nýti ég mér hins vegar tónlistarlegt frelsi mitt og hef áherslurnar aðrar. Fyrir vikið náum við til annars hóps sem síður sækir hefðbundnar messur,” segir Gunnar. Að sögn Gunnars er það hvorki sjálfgefið né einfalt að leika gömlu sálmalögin í djassútsetningum, ,,því sálmarnir eru langt frá því að vera taktfastir enda ekki hugsaðir þannig. Yfirleitt er sungin ein lína og síðan kemur þögn til þess að söngfölkið geti andað áður en það syngur næstu línu. Ég þarf því að útsetja hvern sálm upp á nýtt og setja í þá takt þar sem bassi og trommur mynda grunninn.” Messan gerir öllum gott Kvöldmessurnar hefjast klukkan hálfníu en hálftíma fyrir athöfnina er boðið upp á djasstónlist og tónlistarmennirnir sem leika með Gunnari eru engir aukvisar. Tómas R. Einarsson leikur á bassa, Matthías Hemstock á slagverk og Sigurður Flosason á saxafón. Kvartettinn leikur djasstónlist fram að athöfninni og hefðbundin sálmalög í djassútsetningum Gunnars Gunnarssonar meðan á athöfninni stendur. Sjálf athöfnin er í engu öðru frábrugðin hefðbundnum messum; þar er miskunnarbæn, dýrðarsöngur og altarisganga í lokin. Gunnar segist hafa fengið góð viðbrögð djassáhugamanna við tónlistarflutningnum í messunum og oft segist hann sjá þekkta djassáhugamenn í kirkjunni ,,og það er gott ef tónlistin verður til þess að fleiri sæki kirkju, því messan gerir öllum gott,” segir Gunnar Gunnarsson, organisti í Laugarneskirkju. Kvöldmessur með djassívafi í Laugarneskirkju Brautryðjendur í kórastarfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.