Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 11
11Lifandi kirkja „Við leggjum gríðarlega mikla áherslu á barna og æskulýðsstarf hérna í Seltjarnarneskirkju,“ segir Arna Grétarsdóttir prestur. Hún hefur starfað með kirkjunni í sjö ár, fyrst sem æskulýðsfulltrúi og síðar sem prestur, en tvö ár eru síðan hún var vígð til embættis. Barnastarfið er mikilvægt „Barnastarfið er í raun okkar aðalsmerki. Við erum með hópa fyrir 6 til 9 ára, 10 og 11 ára og svo 12 ára börn. Svo starfar hér æskulýðsfélag sem er fyrir unglinga í 8. til10. bekk grunnskóla. Ásamt þessu starfar með okkur ungt fólk í menntaskóla en þau hafa komið inn í starfið sem einskonar aðstoðarleiðtogar,“ segir Arna en á öllum fundunum er hugleiðing og fræðsla og svo taka leikir og ýmiskonar föndur við. Vinsælir foreldramorgnar Í Seltjarnarneskirkju eru foreldramorgnar einu sinni í viku. Arna segir að morgnarnir séu vel sóttir af mæðrum, en nokkrir feður hafi komið í fyrra. Foreldramorgnarnir voru settir á fót til að stuðla að auknum s a m s k i p t u m nýbakaðra foreldra og barna þeirra í sókninni. „Þessir foreldramorgnar hafa verið vinsælir hjá okkur og hafa sumar mæðurnar jafnvel haldið áfram að líta við eftir að þær hafa lokið fæðingarorlofi. Við erum með fræðslu aðra hvora viku og reynum að hafa hana á þann veg að hún byggi mæðurnar upp bæði sem uppalendur og einstaklinga. Sem dæmi má nefna höfum við fengið Heilsugæsluna hér á Seltjarnarnesi til að vera með fræðslu um brjóstagjöf, næringu og fleira sem tengist ungabörnum ásamt því sem við höfum haft erindi um sjálfstyrkingu,“ segir Arna. Hlúð að öldruðum í sókninni Einu sinni í mánuði eru sérstakir hádegisfundir fyrir eldri borgara í nágrenninu. Fundirnir hefjast með helgistund og altarisgöngu í kirkjunni ásamt erindi frá ræðumanni sem getur komið hvaðanæva að. „Við reynum að hafa þessi erindi áhugaverð og til að mynda stefnum við að því að hafa bókakynningu í desember. Að loknu þessu er snæddur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Þar höfum við spilað tónlist og mun Þorvaldur H a l l d ó r s s o n heimsækja okkur tvisvar í vetur,“ segir Arna og bætir við að starfsmenn kirkjunnar fari einnig einu sinni í viku í heimsókn á Skólabraut þar sem íbúðir aldraðra eru til staðar. Þá hefur Seltjarnarneskirkja farið í ferðalög með eldri borgara og var síðasta vor farið í heimsókn að Reykholti með um sjötíu manns. Góð sókn Aðspurð um sóknarvitund Seltirninga telur Arna að hún sé almennt góð. „Þetta er lítið og samheldið samfélag. Í sókninni eru um fimm þúsund manns og aðeins ein kirkja. Ég tel að það sé mjög sterkt í huga fólks sem hér býr að það sé Seltirningar og fyrir vikið held ég að sóknarvitundin sé sterkari. Við búum einnig mjög vel að því að sóknarnefndin okkar er frábær. Hún styður við allt starf hjá okkur og gætum við í raun ekki verið heppnari. Ég tel að gæði sóknarnefndarinnar liggi í því að hún hefur mikinn skilning á starfi kirkjunnar,“ bætir hún við. Vinsæl kirkja Seltjarnarneskirkja er mjög vinsæl kirkja, bæði meðal þeirra sem nú búa á Seltjarnarnesi og þeim sem hafa alist þar upp en eru brottfluttir. Arna segir að kirkjan gæti í raun ekki verið bókuð meira. Þau hafa t.d þurft að breyta dagskrárliðum á ýmsum atburðum hjá sér því kirkjan sé svo þétt bókuð. Arna segir að fólk leiti einnig mikið til kirkjunnar í leit að ráðum og stuðningi. „Við sinnum mikið sálgæslu og stuðningi við sóknarbörn. Við merkjum einnig mikið að fólk sæki þjónustu hingað úr öðrum sóknum. Ég held að margir Seltirningar hafi sterkar taugar til kirkjunnar sinnar,“ segir Arna að lokum. Dóms- og kirkjumálaráðuneyt- A L M A N N A T E N G S L Samheldni á Seltjar- narnesi Hörður Áskelsson, organisti í Hallgrímskirkju og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar er holdgerfingur metnaðarfullrar kirkjutónlistar á íslandi. Áhugi hans á orgelleik á rætur að rekja til rokktónlistarinnar sem hann hlustaði á sem unglingur norður á Akureyri. Á þessum árum hafði Hörður sérstakt dálæti á Deep Purple og þá sérstaklega mögnuðum orgelleik Jon Lord. „Á unglingsárunum fannst mér einnig merkilegt að stærsta pípuorgel landsins væri í Akureyrarkirkju og það var mjög heillandi tilhugsun að fá að stjórna svona trylltu hljóðfæri,” segir Hörður. Eftir tónlistarnám á Akureyri og síðar í Reykjavík var Hörður við nám í Düsseldorf í þýskalandi þar sem hann nam tónlist við Robert Schumann Hochschule á árunum 1976 til 1981. Eftir að hafa starfað sem organisti í eitt ár í Düsseldorf flutti Hörður heim og hefur starfað sem organisti og tónlistarstjóri í Hallgrímskirkju þar sem hann stjórnar enn trylltara og stærra hljóðfæri en því sem heillaði hann í Akureyrarkirkju á sínum tíma. Hörður segir að hlutverk organistans sé í raun og veru að vera forsöngvari. „Hér á árum áður var lagviss og raddsterkur maður fenginn til þess að leiða söfnuðinn í sálmasöngnum. Starf mitt er nánast það sama, að leiða kórinn og söfnuðinn með orgelleiknum og allt mitt starf miðar að því að þjóna Guði. Tónlistin sem við flytjum er trúartónlist, hvort heldur það er við hefðbundnar messur eða á tónleikum en það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fá fólk í kirkjuna til að njóta tónlistar.” Auk þess að vera organisti í Hallgrímskirkju og stjórnandi Mótettukórsins og Schola cantorium er Hörður í forsvari fyrir listvinafélag Hallgrímskirkju sem stofnað var árið 1982 með það að markmiði að efla listalíf í kirkjunni. Hörður segir að þótt hann sé í forsvari sé langt því frá að hann sé einn um alla vinnuna sem tengist þessum störfum. „Ég er það heppinn að hafa með mér ósérhlíft og metnaðarfullt fólk sem hikar ekki við að leggja þessu starfi lið í sjálfboðavinnu og án þeirra væri tónistar- og listalíf Hallgrímskirkju annað og minna,” segir Hörður Áskellsson. Tónlistahátíð á jólaföstu í Hallgrímskirkju hófst þriðju- daginn 29. nóvember með jólatónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju og stendur til 11. desember. Þar verða flutt hugljúf aðventu- og jólalög. Jólaóratóría Bachs verður flutt í heild með Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitinni í Den Haag undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sjá nánari dagskrá á www.hallgrimskirkja.is Frá því stærsta yfir í það langstærsta Auk sóknanna tíu sem falla undir Reykjavíkur prófastdæmi vestra, heyrir margvísleg sérþjónusta undir prófastdæmið. Á Landspítalanum starfa sjö prestar við sálgæslu. Fangaprestur, prestur fatlaðra og prestur heyrnalausra heyra undir prófastdæmið, svo og fjöldi presta erlendis, en prófastdæmið sér um prestsþjónustu í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Englandi og Lúxemborg. Tíu djáknar eru starfandi innan prófastsdæmisins. Þar af er einn djákni á Landspítalanum við Hringbraut, einn á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund og einn á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Tveir djáknar starfa á stofnunum í tengslum við söfnuð Laugarneskirkju, einn í Hátúni og Skjóli og hinn á Heilsugæslunni í Lágmúla. Í Hallgrímskirkju og Áskirkju eru djáknar ráðnir til starfa í söfnuðunum. Að auki eru þrír vígðir djáknar að störfum á svæði prófastsdæmisins, á Biskupsstofu og í Grensáskirkju. Margvísleg sérþjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.