Tíminn - 17.01.1971, Blaðsíða 1
■-yuswis-, ,
LJÓSA
PERUR
XXhúöLtíxt/tAAéÁctSt, A/
RAFTÆKJADHLD, HAFIMHSTIMETJ 23, SlM! 133*5
.
(Tímamyndir GE)
Kjell Foss borinn út úr Gljáfaxa á Reykjavíkurflugvelli kl. 4,30 í gæ rmorgun.
MfSSIR AF TAM 0G
FIHGRUM
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Gljáfaxi kom til Reykjavík-
ur frá Danaborg í Grænlandi
kl. 4.30 s.l. nótt. Fór vélin til
að sækja danskan mann sem
kól á höndum og fótum og
þurfti ag komast sem fyrst
undir læknishendur, Vélin hef
ur verið teppt í Danaborg síð
an á mánudag, fyrst vegna
skemmda, og síðar vegna veð-
urs. Var loks hægt að fljúga
í nótt. Maðurinn sem flugvél-
in fór eftir, heitir KjeU Foss
og er 25 ára gamall. Hann var
fluttur í Borgarspítalann í
morgun og var skipt um urn-
búðir á höndum hans og fót-
um. Er hann talsvert kalinn
og má búast við að hann missi
nokkra fingur og tær. Fór mað
urinn til Kaupmannaliafnar í
morgun með þotu Flugfélags
fslands.
Til stóð í gær að Gljáfaxi
kæmi fynr til Reykjavíkur en
raun varð á- Þegar flugvélinni
loks tókst að komast í loftið í
Danaborg varð að lenda henni
aftur. Var ekki hægt að taka
hjólin upp. Eitthvað var frosið
í hjólaútbúnaðinuim og urðu
flugmennirnir að lenda aftur
til aff taka hjólin úr lás, eins
og það mun kallað. Þegar Gljá
faxi var kominn á loft í annað
sinn gekk vel að ná hjólunum
upp, en talsverðar tafir urðu
vegna þessa. Síðan var milli-
lent í Meistaravík og flogið það
an beint til Reykjavíkur.
Á flugvellinum beið sjúkra-
bíll o,g var Foss borinn út í
hann og fluttur á Borgarspít-
alann. Á flugvellinum biðu tveir
ættingjar hans, sem komu frá
Danmörku til ag taka á móti
honum.
Á Borgarspítalanum var skipt
um umbúðir á kalsárum manns
ins. Er hann mikið kalin á hönd
um og hægra fæti. Telja má
víst að Kjefl missi nokkra fing-
Framhald á bls. 14.
Myndin er af áhöfn Gljáfaxa og er tekin skömmu eftir að þeir komu
til Reykjavíkur eftir langa og stranga Grænlandsferð.
Bók er kennir
nemendum að
standa upp í
hárinu á
kennara sínum
EJ—Reykjavík, laugardag.
Blaðið fregnaði í dag, að vænt-
anlegt væri í íslenzkri þýðingu
lítið rautt kver fyrir skólanem-
endur. Þetta rauða kver hefur ver
ið gefið út á flestum hinna Norð
urlandanna og vakið mikið umtal,
því að þar eru ýmis sérstæð ráS
um það, hvernig uppreisnarsinn-
aðir skólanemendur eigi að haga
sér.
Að því er blaðið fregnaði, er
íslenzka þýðingin þegar komin í
setningu, og mun það gefið út í
tengslum við SINE — Samtök
íslenzkra námsmanna erlendis.
Blaðinu tókst þó ekki að ná í for-
ráðamenn SÍNE í morgun til þess
að fá þetta staðfest.
Þetta rauða kver kom út fyrir
fáein.um árum, í Danmönku og
vakti strax mikið. umtal og deil-
ur. Er þrot þess, hið sama og á
hinu þekkta rauða kveri Maos,
og efnið mjög róttækt að öllu
leyti. Nemendum etr þar kennt
hvernig þeir eigi að haga sér gagn-
vart kennurum og ræða og deila
við þá, auk margs annars sem
vafalaust þykir forvitnilegt hér á
landi.
Útgáfa þessa rauða kvers varð
m.a. til þess, að ýmsir aðrir í Dan
mörku gáfu út svipaðar bækur en
andstæðar að efni og boðskap.
MEÐVITUNDARLAUS
í 11 DAGA
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Guðrún Þ. Reykjalín, sem varð
fyrir bíl á Hringbraut 5. jan. s.l.
liggur enn meðvitundarlaus. Guð-
rún var á gangi yfir Hringbrautina
ásamt systur sinni þegar bíll ók á
þær. Lézt hin konan, en Guðrún er
mikið slösuð.
Missti hún meðvitund strax eft-
ir áreksturinn og hefur ekki vakn-
að síðan. Hún liggur á Borgar-
spítalanum. Guðrún er hátt á
áttræðisaldri.
*
Skipólagðar þotuferðir í sólskinið á Kanaríeyjum.
Hægt aö sækja sumarið heim í skammdeginu
FB—Reykjavík, laugardag.
íslendingar hafa upp á síð-
kastið gert nokkug af því að
sækja sumarið heim suður í
lönd að vetrarlagi, enda veitir
ekki af að lýsa ofurlítið upp
skammdegið hér heima. Skipu.
iagðar þotuferðir eru um þess-
ar mundir til Kanaríeyja og
láta menn vel af þessmn ferð-
um, meira að segja þótt íbú-
um eyjanna finnjst svalt í 20
stiga hita.
Við ræddum stuttlega við
Anton Guðmundsson vélvirkja
og Bjarghildi Stefánsdóttur
prófarkalesara, en þau voru
meðal þeirra sem fóru í þotu
flugferð til Kanaríeyja nú um
áramótjn, og spurðum um skoð
un þeirra á vetrarferðum í suð
urlöndum.
— Ég tel vetratrleyfi mjög
nauösynlegt, sagði Anton. —
Sumarfríjn hér heima, sem öll
eru tekin yfir hásumarið lama
margan atvinnuveginn miklu
meira en skyldi. Þótt fyrirtækj-
um sé ef tjl vill lokað í einn
mánuéð yfir sumarið, til þess.
að starfsliðið geti fengið frí á
góðum tíma, fer mun lengri tími
í leyfið í raun og veru fyrir
fyrirtækið, því það tekur tölu-
verðan tíma, aó komast í gang
að nýju, eftir svo langt hlé.
En svo er annað, ég tel, að sé
maður, sem fórnar sumrinu og
vinnur, eigi aftur á móti að fá
lengra frí að vetrinum, og
greitt sé fyrir á allan hátt, að
fólk geti þá farið utan, til dæm-
is, til þess að fá einhverja sól
argeisla.
Anton sagðist hafa tékið
heldur styttra sumarleyfi síð-
ast lioið sumar, til þess síðan
að taka fríið í vetur og bregða
sér til Kanaríeyja, og vora
Framhald á bls. 14.