Tíminn - 17.01.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.01.1971, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 17. janúar 1971 TÍMINN 3 KLUKKAN TIFAR - ÁRKN SKIPTAST Liðna árið lokar sínum dyr- um og enginn lýkur þeim upp að eilífu. Nýja árið birtist huldu and- liti eins og austurlenzk hefðar- frú. Nýársnóttin dylur augna- blikin sem hugsast á milli þeirra dregin, sem þó eru nán- ast 12 slög stundaklukkunnar í kirkjuturninum. Ljósrákir hellast um himin- inn, kirkjuklukkur kallast á frá turni til turns og skipin við hafnarbakkann andvarpa langdregnum sogum allt í einu. Allt kemur og fer — kemur og fer. Við erum líkt og ofur- straumi tekin, berumst með nauðug viljug, ekkert tjáir að mótmæla né spyrna við. Framtíðin óráðin, óviss bío- ur ein við þröskuldinn og varp ar skuggum efans á undan sér. Tilveran er svo furðuleg í framrás sinni. Tækniundrin fæðast eitt af öðru. Þao' sem engan grunaði í fyrra er allra eign í ár. En í öllum þessum svimandi hraða og öru hreyfingum er manneskjan — mannkynið — heild jafnt sem einstaklingur á hættusvæði. Áhættan er hvarvetna ríkj- andi, ebki sízt gagnvart hinni andlegu þörf og þrá hugans og hjartans. Þrátt fyrir þær bylt- ingar til bóta fyrir daglegt líf, sem hver ný uppgötvun veitir, þá er hún á aðra hönd til að auka hætturnar, skapa ótta, angist, mengun, voða og vanda, sem engum gat áður til hugar komið. Gleðin yfir framförum er því beizkju blandin. Mann- eskja — mannsbarn finnur hvergi hreina hamingju. Það er höggormur í hverri paradís. Flestir verða ráðvilltir, ráð- þrota, óhamingjusamir, jafn- vel enn þá vansælli en áður, meðan öll þessi undur lífsþæg indanna voru óþekkt. Er guðstrúin í brotum eða á undanhaldi? Einsemd jarðar barns getur orðið svo mögnuð, ef það finnur hvergi fótfestu í kviksandi hins hverfula straums hversdagsleikans, hvergi frið, hvergi hvíld, hvergi öryggi. Helgar ritningar oröa lcið- beiningar til fólksins á þennan fjarræna hátt: „Spekin byggði sér hús, reisti sjö súlur, slátraði alifé sínu, blandaði sitt vín og bjó til veizlu. Hún sendi út þern- ur sínar og lét þær kalla á æðstu stöðum borgarinnar: „Hinn kærulausi komi hingað. Komi og bragði mitt brauð, dreypi á mínu vini. Bæg- ið brott hugsunarleysi og heimsku, þá munið þið iifa. Haldið fram vegu skynsemi og skilnings. Lotning frammi fyr- ix Drottni og auðmýkt viö fót- skör hans er hin sanna vizka. þekking á hinu heilaga er sönn speki: Höfum við athugað þetta um þessi tímamót? Eða gleym- um við þessu og göngum svo aftur á bak í öllum framför- unum. Og hið heilaga og hinn heil- agi hvað er það? Auðvitað er hvert hraðamet stórkostlegt, hvert íþróttaaf- rek ný sönnun á krafti manns- ins, hver uppgötvun tákn um óskeikulleika mannlegs máttar og hugsunar. En ekkert af þessu er þó né verður að neinu gagni, ef það‘ nær ekki tökum á sálinni gefur ekki gleði og unað, veit- ir ekki hjartafrið, ef það verð- ur að engu liði í sorg og dauða, léttir ekki einstæðings- kennd og angist, tekur ekki brott tómleikann, gefur ekkert öryggi á úrslitastund. Þegar þetta er til umræðu og athugunar, kemur aukin tækni að engu gagni og vélin Lifandi mannssál verður ekki veitir hvorki vernd né frið. læknuó', né meinum hennar og friðleysi létt með skrúfu né skrúfjárni. Ef við giötum trúnni á ei- líft líf og finnum ekki öryggi um sigur hins góða, þá .liðum við það sálartjón og það ham- ingjuhva • . =em ekkert hið ytra fær bætt. Við veröum því ag lifa í samræmi við eilífóina, í sa'T- rærni við Guð, hinn heilaga, ef uppgötvanir og tæknisigrar ættu að verða að nokkru liði á lífsins vegum. Og hið heilaga birtist í elsku og sannleika, réttlæti, fegurð og friði. Það er þekking á þessu, inn- lifun og útgeislun elsku og sannleika. sem verður hinn eini grundvöllur mannlegr- ar hamingju, og það getur svo aftur gefið tækninni gildi og öllum hennar hjólum og vél- um orku og kraftstöðvum. Annars geta vélarnar eytt öllu lífi og gert veröld alla að auðn og eiturgufum. Það er hinn forni Gróttasöngur, sem þar verður hin sanna spásögn í allri sinni réttlátu dul. Ekkert ættum við því fremur að hugleiða þegar klukkan tifar yfir áramótin og flugeldarnir beina hug til hæða. Og frumskilyro'i gagnkvæmr- ar elsku, sem er uppspretta og grundvöllur vizkunnar, er þakklæti og traust. Þökkum því allt, sem veitt- ist til verndar og heilla á liðnu ári. Þökkum heimili og vin- um, þökkum fyrir starf og starfsþrek. Þökkum þjóð og fósturjörð. Þökkum mat og drykk. Þökkum Guði, uppsprettu lífs og ljóss og látum þessa þökk verða og veita aukinn kraft til innlifunar og útgeisl- unar hins góða. Það eitt gefur nýja árinu gildi og gerir það þess um- komið að veita hamingju. 31.12 1970. Arelíus Níelsson. BÍLASKOÐUN & STILUNG Skúlagötu 32 LJÚSASTILLINGAR HJOLflSTILLIfJGAR MOTORSTIILINGAR LátiS stilla í tima. 4 Fljót og örugg þjónusta. I 13-100 Vörubílar til sölu Scanía Vabis árgerð 1970, frambyggður, tveggja hás- inga, 17 tonn á pall, mjög góður bíll. Scania 56 — 76 — 75 — 51 — 56 árg. ‘66, ’64 — ’66 — ’62 — '59 — ’67 Mercedes Benz: 1920 — 11 tonn, 1413 — 327 — 322 — 1418 — yfirbyggður Volvo: N-88, 10 tonn. 495 465 465 375 385 F-85 Frambyggður Treiter — 55 árg. ’66 — ’66 — ’63 '61 '65 árg. '66 — ‘66 — ’63 — '62, — ’61 — '59 — ’67 árg. ’63 MAN, pall og sturtulaus 9165 ár ’68 850 — '67 650 — '67 1413 — með burðarhásingu 14 tonn á pall. ’65 Fprd: D 800 F 500 árg. ’66 — '62 Bedford árg. '68 - '67 — ’66 — ’62 — ’61 Ennfremur eldri gerðir al Ford og Chevrolet, bæði bensín og díseL BÍLA- OG BÚVÉLASALAN H F. VIÐ MIKLATORG - Símar 23136 og 26066. Laus staða StaSa efnaverkfræSings við Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi, er laus til umsóknar. Starfið er fólgið i almennum eftirlitsstörfum í verk- smiðjunm, eftirliti og rannsóknum á rannsóknar- stofu undir stjórn yfirverkfræðings. Umsóknir sendist tii aðalskrifstofu Sementsverk- smiðju ríkisins á Akranesi. Umsóknarfrestur er til 1 febrúar 1971. Sementsverksmiðja ríkisins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.