Tíminn - 19.02.1971, Side 1

Tíminn - 19.02.1971, Side 1
 I <■ rtrt' , KJ—Höfn, Homafirði, finimtu- dag. Ekki var meira en svo, að HornfirSingar væru tilbúnir að taka á móti fyrstu loðnunni, sem fór að berast á miðviku- daginn, því almennt var ekki reiknað með, að hún færi að veiðast fyrr en um 20- þ.m. þótt Síldarleitarskipið Ámi Friðriksson, hefði fyrir nokkru fundið peðring hér og þar við Suðaustur-landið. Þorsteinn Gíslason á afla- skipinu margumtalaða, Gísla Árna, kom með fyrstu loðnuna, sem aðallega fór í beitu og svo auðvitað í bræðslu. Síðan komu í gærmorgun, eins og sagt var frá í Tímanum, Óskar Magnús- son frá Akranesi og skömmu síðar Ólafur Sigurðsson. Fyrsti heimabáturinn úr Höfn, Gissur hvíti, kom svo með loðnu í gær kvöldi, og þá nokkru áður hafði Þorsteinn RE, komið með 230 tonn, en Gissur var með heldur meira. Loðnubátarnir landa við ný- legan viðlegukant 1 Álaugarey, en þar er kaupfélagið nýbúið að reisa mikla vöruskemmu, sem er gerð af myndarbrag, eins og annað í Höfn. í Álaugarey er hægt að landa úr tveim bát- um í einu og er loðnunni síðan ekið út í svokallað Ósland, þar sem Fiskimjölsverksmiðja Hornafjarðar hf. er, en hún tók til starfa á loðnuvertíSinni í fyrra og tók þá á móti nákvæm- lega 10.500 tonnum, sem var góð byrjun, að því er mörgum finnst Hornfirðingar vonast að sjálf sögðu eftir a@ fá töluvert meira núna enda allt við það miðað og aðstaða orðin góð, hvað Iönd un og geymishirými snertir. Þróarrými í verksmiðjunni er fyrir um 5000 tonn í geymum og þró við hlið verksmiðjunn- ar. Nú eru komin um 1000 tonn í þróna og verður væntanlega byrjað að bræða um helgina. Sólarhringsafköst verksmiðj- unnar eru um 250 tonn. Yerið er að leggja síðustu hönd á undirbúning fyrir bræðslu í verksmiðjunni. Þar hefur nú verið komið fyrir tækjum, sem ekki voru fyrir hendi í fyrra. ViSar Karlsson, skipstjóri á Óskari Magnússyni. Loðnu landað úr Óskari Magnússyni í Höfn. (Tímamyndir Kári) í vertíðarlífið í Höfn Á því rekstur verksmiðjunnar að vera hagkvæmari núna í ár. Að megin uppistöðu til, eru vélar og tæki, svo og hráefnis- geymar frá Eskifirði, og má reyndar sjá það á sumum geym unum, að þeim hefur verið fleytt á öldum hafsins hingað suður, í Hornafjörð. Kaupfélag Austur-Skaftfell. inga á 45% af hlutafé í verk- smiðjunni, en ýmsir aðrir að- ilar 55%. Eftir Ijósum bátanna á mið- unum að dæma, sem sáust héð an frá Höfn í gærkv., er tölu- verður floti kominn á miðin, þótt ekki allir hafi verið feng- sælir, enn sem komið er. Að því er Viðar Karlsson, skipstjóri á Óskari Magnússyni frá Akra- nesi, sagði blaðamanni Tímans, þá virðist setn loðnan sé skemmra á veg komin í hrygn- ingu núna, í upphafi loðnuver- tíðar, en í fyrra. Virðast því auknir möguleikar á því, að loðnan veiðist vestar með land- inu, en í fyrra, en töluvert mik ið austurfall mun hafa verið á miðunum, hér fyrir utan Hornafjörð svo að loðnan á þá erfiðara með að ganga vestur með landi. Mun þetta vera gagn stætt því sem verið hefur, því vesturfallið var ráðandi á þess- um slóðum í fyrra. Þótt vertíðin sé í fullum gangi hér í Höfn, þá hleypir loðnan enn meiri krafti í at- hafnalífið. Vertíðin hefur að vísu ekki gengið sem bezt, það sem af er, bæði hefur verið lítill afli og svo kom langur ógæftakafli á dögunum. Línu- "..........■■... bátar beittu loðnu í gær, en aflinn virtist ekkert batna í dag, eftir því sem sjómenn, á fyrstu línubátunum, sem komu að, sögðu. Þróin, sem loðnan er sett í.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.