Tíminn - 19.02.1971, Qupperneq 3
fÖSTUDAGUK 19. febrúar 1971 " . ~ TIMINN
15
Svarfdælingar „skera út“ þorrann
- forsetinn og frö Eskeland hjálpuðu til
Það var hress og kátur hópur,
sem lagði undir sig íbúð eina í
Vogunum á mánudaginn, vopn-
aður hveitipokum og kökukefl-
um, svuntum og vasahnífum.
Þarna skyldi fara fram mikil
laufabrauðsorusta og það voru
Svarfdælingar, sem voru að
verki, enda með röskara fólki
á landi liér. Laufabrauðið átti
að nota á þorrablót Svarfdæl-
ingafélagsins, sem haldið verð-
ur á laugardaginn í Tjarnar-
búð. Blaðamaður og ljósmynd-
ari Tímans komu á staðinn, þeg
ar lokaþáttur laufabrauðsgerð
arinnar var að hefjast, þ.e.a.s.
útskurður og steiking, og fylgd-
ust með, sér til andlegrar upp-
lyftingar.
Það voru milli 20 og 30 Svarf
dælingar staddir heima hjá
Björk Guðjónsdóttur og Guð-
mundi Þórhallssyni að Gnoðar-
vogi 84 á mánudagskvöldið,
þegar okkur bar að garði og all-
ir höfðu nóg að starfa. Konurn-
ar voru búnar að standa við að
hnoða og breiða út í eldhúsinu
síðan um tvöleytið en karlmenn
imir voru seztir inn í stofu með
hver sína köku á bretti og gáfu
sköpunargleðinni lausan taum-
inn.
Þarna var mikill handagang-
ur í öskjunni og Þórhallur litli,
10 ára sonurinn á heimilinu
hafði sett upp stóra svuntu eins
og hinir og hljóp á milli manna
með óskornar kökur og fjar-
lægði þær, sem búið var að
skera og þetta var næstum eins
og í síldinni í gamla daga, því
ef stóð á einhverju, var kallað
„köku, köku“ eða „taka köku“.
Dyrabjallan klingdi í sífellu
og alltaf bættust fleiri Svarf-
dælingar í hópinn og það var
viðkvæði hjá þeim, þegar í
gættina kom: — Hér er aldeil-
is setinn Svarfaðardalur. Skyndi
lega birtist Bjarki Elíasson, yf-
irlögregluþjónn í fullum skrúða
og var greinilega ekki í em-
bættiserindum, því hann tók
ofan, s\úpti af sér jakkanutn og
bað um köku. Síðan settist hann
brauð. Ekki bar þó á öðru en
þetta tækist vel með hjólið, en
Pálmi fullyrti, að betra væri
að nota gamla lagið og tók upp
vasahnífinn aftur.
Þegar nokkuð var liðið á
kvöldið, bættist einn Svarf-
dælingurinn enn í hópinn,
Kristján Eldjárn, forseti. Hann
fékk sér kaffi og heitt laufa-
brauð og fór svo að skera lauf
af list og lyst með sveitungum
sinum.
Hallgrímur yfirrteikjari að verki í eldhúsinu.
inn í stofu og skar lauf og krúsi
dúllur af hjartans lyst.
Þarna bar einnig að frú Ásu
Eskeland í Norræna húsinu og
móiður hennar, sem aldrei hafði
séð laufabrauðsgerð og langaði
til að kynnast þessu norðlenzka
fyrirbæri. Ása virtist hins veg-
ar hafa snert á þessu áður, því
ekki leið á löngu áður en hún
var farin að skera án nokkurs
viðvaningsbragar, en Hallgrím-
ur Björnsson yfirsteikjari tók
að sér að kenna móður hennar
listina.
— Nú vantar ekkert nema
músík sagði Egill Júlíusson og
tók nokkur dansspor um leið og
hann brá sér inn í svefnherbergi
til að sækja sér köku. Það er
siður við laufabrauðsgeið, að
breiða stóra kaffidúka á rúmin
og leggja síðan laufakökurnar á.
Svo hófst söngurinn og Svarf-
dælingar eru greinilega mikið
söngfólk. Þarna var sungið með
öllum röddum, „Yfir kaldan
eyðisand“, „Fjallið Skjaldbreið-
ur” „Ólafur reið með björgum
fram“ og margt fleira skemmti-
legt. Allt í einu mundi svo ein-
hver eftir framhaldsþættinum í
sjónvarpinu og þar sem fáir
vildu missa af honum, var gert
hlé á söng og laufaskuiði í bili
og sezt við sjónvarpið með
kaffibolla og kleinur og safnað
kröftum í næstu lotu.
Síðan var byrjað að steikja
og það var Hallgrímur, sem
stjórnaði steikingunni, meðan
hitt fólkið hélt áfram að skera.
Brátt iltmaði steikingarlyktin
um alla íbúðina og ýmsir kíktu
fram i eldhús í von um, að ein-
hver kakan hefði gallast í
steikingu.
— Þetta er ómögulegt app-
arat, lýsti Pálmi Pétursson yfir
og gerði sig líklegan til að skera
köku með hjóli, sérstaklega út-
búnu til að skera með laufa-
í eldhúsinu steikti Hallgrím-
ur og steikti og staflar af
indæhs laufabrauði hlóðst upp
á bekkjum og borðum og ár-
angurinn af dagsverki Svarf-
dælinganna varð 400 kökur.
Ekki er gert ráð fyrir, að
ein einasta verði afgangs, þeg-
ar búið er að blóta þorra Svarf-
dælinga í Tjanarbú® á laugar-
dagskvöldið. Þetta verður mynd
ar samkoma, með mörgum
skemmtiatriðum og dansi á
eftir, auk þorramatarins. Ef eín
hverjir miðar verða óseldir á
laugardaginn, verða þeir seldir
við innganginn um kvöldið.
„Það er miklu betra að hafa gamla
lagið á," sagði Pálmi, og notaði hníf-
inn.
,Hópurinn var farinn að þjiao-
ast, þegar við loks gátum feng-
ið okkur til a® yfirgefa staðinn,
en þeir, sem eftir voru, skáru
enn og steikarlyktin elti okkur
út á götu. S.B.
brauð í ein 75 ár.
; IGNIS BÝÐUR IÍRVAL •
OG NÝJUNGAR
Þarna er ekki setið auðum höndum. Ekki kunnum við að nefna alla á myndinni, en fremst ti( vinstri situr Ása Eskeland og móðir hennar situr við
*ilið Egils Júlíussonar í sófanum, en hinum megin við lampann er Bjarki Elíasson.
(Tímamyndir Gunnar)
HÉR ERU TALDIR
NOKKRIR ÞEIRRA
KOSTA, SEM IGNIS
ÞVOTTAVÉLAR ERU ■
BÚNAR
■
Gerðirnar eru tvær — 10 og •
12 valkerfa.
Hvor gerð þvær 3 eða S kg af j
þvotti eftir þörfum. -
Bara þctta táknar, að þér fáið •
sania og tvær vélar í einni. ;
Tvo sápiilióif, sjálfvirk, ank .
liölfs fyrir lifræn þvottaefni.
Bafscgiillæsing liindrar, að
vélln geti opnazt, mcðan liún
gengnr.
Bö’rn geta ekki komizt t vél,
som cr í gangi.
Sparar sápn fyrir minna ;
þvoltarmagn — sparar um -
ieið rafmagn.
Veltipottnr úr ryðfríu stáli. ]
Stjórnkcrfi öli að framan — ,
því hagkvæmt nð fella vélina -
í iiinréttingii í eldliúsi.
ÁRANGURINN en
Þvottadagur án þreytu ;
Dagur þvotta dagur þæginda .
AÐALUMBOÐ:
RAFIÐJAN — VESTURGÖTU 11
SlMI: 19294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL
'SlMI: 26660