Tíminn - 19.02.1971, Page 4
£etii fiii AjcHtJarp
Spurningaþáttur sjónvarpsins
á sunnudaginn var, Hver, livar
hvenær?, var hinn skemmtileg-
asti, enda þar mættir til leiks
fróðir menn. Mér fannst þó, að
Helgi Sæmundsson bæri þar af,
enda virtist hann allt vita cins og
fyrri daginn, þótf hann hefði sig
ekki mikið í frammi við hnappa
ýtingar, og virtist raunar alveg
sama hvernig keppnin eða leikur
inn færi.
Þeir þættir, er Helgi og S'kúli Thor
oddsen hafa verið í, hafa verið lang
skemmtilegustu þættirnir, enda
í fyrsta sinn sem til leiks í báð
Lucy Ball verður á ferðinni á miðvikudagskvöW og mun skemmta sjónvarps-
áhorfendum með gamansemi sinng
um liðum mæta menn með ein-
hverja þekkingu, sem vita svar
við flestum eða öllum spurning-
um. Ætti að kappkosta að fá
slíka menn í þáttinn áfram, því
að þekkingarlitlir menn gera slik
an þátt aldrei skemmtilegan.
Eitt deilumál kom upp í pætt
inum, og var það um seltu sjáv
ar. Stefán Bjarnason taldi hana
3% en Skúli Thoroddsen taldi
hana nær 4% en þremur, og virt
ist stjórnandi þáttarins hafa feng
ið prósenttöluna 3 uppgefið sem
rétt svar. Samkvæmt erlendum
fræðiritum er selta hafsins 3.2%
til 3,6% og meðaltalsselta 3,5%.
Þar sem slíkar upplýsirtgar má
fá í öllum áreiðanlegum alfræði
bókum er óafsakanlegt fyrir
stjórnandann að hafa þær ekki
við hendina.
Dagskráin þennan sunnudag
var annars með bezta móti. .4
eftir spurningaþættinum var ein
af þessum myndum frá Samein
uðu þjóðunum, sem sýndar hafa
verið undanfarið í sjónvarpinu og
eru flestar fróðlegar. Var að þe-ssu
sinni fjallað um þau fornu lista
verk og önnur menningarverð-
mæti, sem nú eru í hætlu og
kunna að glatast ef ekkert er að
gert, og jafnframt var rakið það
mikla starf sem þegar hefur ver
ið innt af hendi og hefur bjargað
geysimiklum verðmætum írá
fornri tíð.
í lokin var svo brezka kvöld
skemmtunin, Sú var tíðin, en
þetta er með betri skemmtiþátt
um sjónvarpsins, bæði eru lista-
mennirnir frábærir og yfir þátt
unum hressandi og notalegur
blær.
Hins vegar er galli, að ekki skuli
hægt að þýða þessa þætti til hlit-
ar, og geta því ekki allir fylgzt
með þeim sem skyldi. En hvað
sem því líður, þá vona ég. að „Sú
var tíðin“ haldi áfram sem lengst
í sjónvarpinu okkar.
WASHINGTON
í myndinni um George Wash
ington, fyrsta förseta BandaríkJ