Tíminn - 04.03.1971, Síða 6
6
TIMINN
FIMMTUDAGUR 4. marz 1971
Óskar Helgason símstöövarstjóri og Sigurður Hjaltason sveitarstjóri (t.h.) og 'Höfn í baksýn með fjallahrlnginn í kring. Á miðri myndinni er grunn-
urinn fyrir nýja frystihúsið, en gamla frystihúsið stendur á hafnarbakkan um. (Tímamyndir Kári)
KASK hefur á þriðja
hundrað manns í
vinnu að staðaidri og
greiddi á s.l.
ári í vinnulaun um
50 milljónir króna.
Útflutningsverðmæti
afurða frá Höfn nam
á s.l. ári
um 240 milljónum
Þeir, sem komiS hafa til Hornafjarðar á nokkurra ára
fresti nú undanfarin ár, hafa áþreifanlega orðið varir við
hina miklu uppbyggingu, sem þar hefur átt sér stað, á
mörgum sviðum. Staðurinn liggur líka vel við fiskimiðum,
og þar býr fólk sem stendur saman, og vinnur einhuga að
uppbyggingu staðarins. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga er
aðalatvinnurekandinn á staðnum, og hefur með höndum
umfangsmikinn rekstur, þótt það reki ekki bátana,
sem þaðan róa. Um þá hlið málsins sjá einstaklingar og ein-
stök hlutafélög að mestu, og með góðri samvinnu þessara
aðila allra. Allir hafa næga vinnu, og það svo að hraðfrysti-
húsinu hefur orðið að loka um tíma á sumrin, svo fólkið
geti tekið sumarfrí í þessum ört vaxandi ferðamannabæ.
Er fréttamaður Tímans kom til
Hafnar fyrir nokfcru, var fyrsti
loðnubáturinn nýkominn með
fyrsta loðnufarminn á þessari ver
tíð, en loðnan virðist ekki ætla að
svíkja þá Hornfirðinga frekar en
aðrar fisktegundir. Það var reynd-
ar nóg að gera fyrir á vetrarver-
tíðinni, þótt loðnan bættist ekki
við. Þar til í fyrra fór
loðnan fram hjá Höfn, án þess að
neitt bærist þangað í bræðslu, og
þótti mörgum súrt, þegar jafnvel
á kyrrum vetrarkvöldum mátti sjá
flotann úr landi, þar sem verið
var að ausa þessum nýja „gull-
fiski“ upp, rétt utan við höfnina
Bækur
gegn afborgunum
BÖKA-
MARKAÐURINN
SILLA OG VALDA-
HÚSINU ÁLFHEIMUM
í Höfn. Nú ta'ka Hornfiró-
ingar líka þátt í loðnuævin-
týrinu, en það eru mörg fleiri
ævintýri að gerast þar.
Okkar stóri draumur er
vega- og brúargerð
á Skeiðarársandi
Sveitarstjóri Hafnarhrepps er
Sigurður Hjaltason, og oddviti er
Óskar Helgason, sem jafnframt er
póst- og símstöðvarstjóri, og for-
maður stjórnar kaupfélagsins.
Þeir Óskar og Sigurður upplýstu
fréttamann Tímans um það helzta,
sem er á döfinni í sveitarstjórn-
armálum í Höfn.
Efst á blaði þar er bygging
skólahúss, sem hefst á þessu ári.
Þetta verður gagnfræðaskóli og
íþróttahús, og er ætlunin að hefja
framkvæmdir við 1. áfanga í sum-
ar. Húsið á að standa sunnan Vík-
urbrautar, og í 2. áfanga verður
byggður fullkominn íþróttasalur,
með áhorfendapöllum og tilheyr-
andi. Arkitéktarnir Hrafnkell
Thorlacius og Björn Emilsson
vinna nú að teikningum á húsinu.
Tilfinnanlegur skortur er á
kennslustofum í núverandj skóla-
húsi, þar sem barna- og miðskól-
inn er. Hreppurinn hefur nú til
ráðstöfunar 5 milljónir í skóla-
bygginguna.
í gatnagerðarmálum er mesta
framkvæmdin að steypa 345 metra
langan kafla af aðalgötunni í
þorpinu, en fyrir nokkrum árum
var hluti götunnar steyptur. Kafl-
inn sem steyptur verður, er frá
kjörbúð KASK og á móts við
Víkurbraut. Þetta er 9 metra
breið gata, og er þegar búið að
undirbyggja kaflann. Þá þarf að
leggja nýjar götur vegna nýrra
hverfa, en um 33 hús munu nú í
smíðum í Höfn, að því er þeir Sig-
urður og Óskar sögðu. Þá er hús
Landsbanka fslands langt komið,
og búið er að slá upp fyrir 1. hæð
ráðhússins í Höfn, en í því verða
skrifstofur hreppsins, auk lög-
reglu- og slökkvistöðvar. Þá er ný-
búið að taka í notkun nýja póst-
og símstöðvarhúsið, en þar er
m.a. nýja, sjálfvirka stöðin, og
eru þá tveir staðir á Austfjörðum
með sjálfvirkt símasamband (hinn
er Egilsstaðir).
— Eru ekki hafnarmálin ofar-
lega á dagskrá hjá ykkur?
— Jú, þau eru það. Árið 1968
var ný bryggja tekin í notkun í
Álaugarey, þar sem vöruskemm-
ur kaupfélagsins eru. Þá var auk
þess unnið að dýpkun og rýmkun
innsiglingarinnar. Aðkallandi er
orðin viðgerð á gömlu hafnar-
bryggjunni og þá þurfum við að
gera löndunarbryggju fyrir fram-
an nýja frystihúsið, og eins við
Fiskimjölsverksmiðjuna í Óslandi.
Verður væntanlega unnið eitt-
hvað við höfnina í sumar.
— Er ekki skortur á iðnaðar-
mönnum vegna allra þessara fram
kvæmda, sem á döfinni eru hér
í Höfn?
— Iðnaðarmenn eru störfum
hlaðnir, og oft verður að fá að-
komumenn til starfa við húsbygg-
ingar. Nú standa yfir framkvæmd-
ir við holræsi vegna nýs hverfis.
Var leitað tilboða í verkið, og
hlutu það verktakar hér eystra.
— Hvað um samgöngumálin
hér á Hornafirði?
— Okkar stóri draumur er
vega- og brúargerð á Skeiðarár-
sandi, segir Óskar, og finnst okk-
ur að hringvegur í kring um land-
ið ætti að vera númer eitt í
vegafræmkvæmdum þegar frá eru
taldar hraðbrautarframkvæmdir
í kring um höfuðborgina. Okkar
skoðun er sú, að byrja eigi strax
á vegalagningu og brúargerð yfir
Skeiðarársand yestanmegin, en
ekki að bíða með alla fram-
kvæmdina. Þessum framkvæmd-
um ætti að verða lokið þjóðhátíð-
arárið 1974, og yrði það verðug
afmælisgjöf til þjóðarinnar.
Fjögur ár eru nú liðin frá því
Lóðsinn Eymundur Sigurðsson er til
Garðar Sigurjónsson, sem er á ióðsb
flugvöllurinn var fluttur, en við
það gjörbreyttust allar aðstæður
með flugsamgöngur, því áður
þurfti að fara á bát yfir Horna-
fjörð, til að komast að og frá
flugvellinum, og var það oft erf-
itt. í fyrra var sett upp lýsing
á annarri flugbrautinni, og var
það mikil bót, en mjög nauðsyn-
legt er að bæta alla aðstöðu á
flugvellinum fyrir farþega, og
stefna ber að því að gera völl-
inn að fullkomnum millilandaflug-
velli. Það er ekki ósjaldan að á
Hornafjarðarflugvelli lendi vél-
ar, sem eru að koma að utan, eða
á leið utan. Flugfél. veitir okkur
góða þjónustu, og flýgur hingað
þrisvar í viku yfir vetrarmánuð-
ina, enda eru tíðar flugsamgöng-
ur bráðnauðsynlegar hinu mikla
athafnalífi, sem er hér á staðn-
'i á myndinni og við hlið hans er