Tíminn - 04.03.1971, Blaðsíða 12
u
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
FIMMTUDAGUR 4. marz 1971
Knattspymusafn í London
íslenzkir knattspyrnuáhuga-
menn, sem leið eiga um London
á næstunni, koma örugglega til
með að heimsækja hús eitt mik-
ið, sem stendur við Oxford
Street. Þar er ncfnilega verið
að opna þessa dagana sýningu,
sem hlotið hefur nafnið „Foot-
ball Hall of Fame“, og mun sú
sýning standa meðan knatt-
spyrna verður leikin í Englandi.
Á J^essari sýningu verður sýnt
allt er viðkemur knattspyrnu
— bæði gamlir hlutir og nýjir
— ásamt mynduin og sögu ein-
stala-a leikmanna og allra félaga
í Englandi. Daglega verða sýnd-
ar kvikmyndir af leikjum milli
félagsliða og af landsleikjum,
bæði gamlar myndir og nýjar.
Stjórn þessarar sýningar er val-
in árlega, en meðal þcirra sem
skipa hana nú eru : Sir Stanley
Rous, Sir Alf Ramsey, Derek
Dougan, Bobby Charlton og Sir
Matt Busby, en þeir 3 síðast-
nefndu eru liér á,.myndinni á-
samt ungum áhugamönnum, að
skoða safnið.
99
Gaflarar"
Ný deild innan Fimleikafélags Hafnarf jarðar
SíofnuS hefur verið deild innan
Fimleikafélags Ilafnarfjarðar fyrir
alla' velunnai-a FH, sem náð hafa
25 ára aldri og þá félagsmenn
yngri, sem hætt hafa þátttöku í
mótum á vegum félagsins. Deild-
inni hefur verið gefið nafnið
GAFLARAR, og er tilgangurinn
Svíar sigruðu
Svíþjóð sigraði í síðari lciknum
gegn Rúmeníu, sem fram fór á
miðvikudagskvöldið, með 13 mörk-
um gegn 11 (8.7). Ilafa Svíar
því sigrað í báðum leikjunum
gegn Rúmeníu, en fyrri lciknum
lauk með sigri þeirra 16:9.
f kvöld leikur Rúmenía síðari
lcikiun við Danmörku, en fyrri
leiknum lauk með jafntefli 15:15.
Rúmenska liðið er síðan væntan-
legt hingað á föstudag.
að stuðla að líkamlegu atgervi fé-
lagsmanna og auka félagsleg tengsl
þeirra, jafnframt því, sem stefnt
er a® eflingu félagsstarfsemi innan
FH. Stofnfélagar, jafnt konur sem
karlar, teljast þeir, sem skráð hafa
nöfn sín í félagaskrá fyrir fyrsta
aðalfund deildarinnar, sem hald-
inn verður á hausti komanda.
Gaflarar hafa þegar hafið viku-
legar æfingar i leikfimihúsi Barna
skóla Austurhæjar á þriðjudögum
kl. 19,50. Vonast þeir til að fá að-
stöðu í hinu nýja íþróttahúsi Hafn
arfjarðar, sem væntanlega verður
tekið í notkun í vor.
Til að byrja með er áformað að
halda mánaðarlega fræðslu- eða
skemmtikvöld og verður næsti
fundur að Skiphóli, í kvöld,
fimmtudaginn 4. marz. Bráðabirgða
stjórn er skipuð eftirtöldum mönn
um:
Aðalstjóm: Ingvar Viktorsson,
Ingvar Pálsson, Sigurður Oddsson.
Varasfjórn: Jóhann Bergþórsson,
Jón Sveinsson, Jón Brynjólfsson.
Danskir knattspyrnumenn
ekki lengur áhugamenn
DBU samþykkti tillöguna um heimild til að greiða leikmönnum kaup —
Á fundi danska knattspyrnusam-
bandsins, sem haldinn var um síð
ustu helgi, var samþykkt með yfir
gnæfandi meirihluta atkvæða, að
leyfa félögunum að greiða leik-
mönnum fyrir leiki. En það hefur
vcrið mikið hitamál í Danmörku
undanfarin ár.
Á fundinum voru mættir 110
fulltrúar og þurfti tvo þriðju at-
kvæða til að tillagan næði fram
að ganga. Við atkvæóhgreiðsluna
um tillöguna féllu atkvæði þannig,
að 33 sögðu nei, 74 sögðu já, en 3
seðlar voru auðir.
— Með þessari tillögu er brotið
blað í danskiri knattspyrnu, sagði
formaður DBU, Vilh. Skousen, eft
ir að atkvæði höfðu verið talin.
— Við erum ekki lengur síðustu
áhugamennirnir í heimi, sagði
hann, og bætti síðan við að engar
breytingar yrðu á áhugamanna-
reglunum í Danmörku við þessa
samþykkt.
Á fundinum var einnig samþykkt
Keppni úr fjarlægð
Árið 1957 fór fram í fyrsta sinn
svokölluð keppni úr fjarlægð milli
nemenda héraðsskóla landsins í
frjálsum íþróttum. Upphafsmaður
þessara keppni var Þorsteinn Ein
arsson, íþróttafulltrúi og hefur
hann stjórnað henni síðan. Keppni
þessi hefur verið vinsæl meðal nem
enda skólanna og glætt áhuga
þeirra á frjálsum íþróttum.
Samvinnutryggingar gáfu bik-
ar til að keppa um árið 1961 og
vann Héráðsskólinn á Laugum
hann til eignar árið 1967. Sama ár
gáfu Samvinnutryggingar annan
bikar og hafa sigurvegarar þess
bikars orðið:
1968 Héraö'sskólinn á Laugum.
1969 Héraðsskólinn á Reykjum.
1970 Héraðsskólinn á Laugum.
Þáttlaka í keppninni hefur
ávallt verið góð og í fyrra tóku
allir skólarnir nema einn þátt í
henni og voru fceppendur því nál.
800.
Útbreiðslunefnd FRÍ efnir í vet
ur í þriðja sinn til keppni úr fjar
lægð milli allra skóla á gagnfræða
stigi. Samvinnutryggingar hafa
einnig gefið veglega bikara til
þeirrar keppni. Keppt er í tveim
aldursflokkum og hafa þessir skól
ar sigrað:
A-flokkur, nemendur 16 og 16
ára.
1969 Gagnfræðaskóli Austurbæj
ar.
1910 iLér.að.sskólinii á Laugurn.
B-flokkur nemendur 13 og 14
ára.
1969 Gagnfræðaskóli Sauðár-
króks.
1970 Sami skóli.
Björn Vilmundarson, Sigurður 'Helgason og Einar Frimannsson, me3 hina
veglegu verSlaunabikara, sem Samvinnutryggingar hafa gefiS til keppn-
innar.
OF MIKIL SPARSEMI!
Frjálsíþróttam. bannað að nota gaddaskó í Baldurshaga. — VerSur knatt
spyrnumönnum bannað að nota knattspyrnuskó á völlunum í sumar? —
Eins og flestir vita cr undir
stúku Laugardalsvallarins, æf-
ingasalur fyrir frjálsíþrótta-
menn. Að vísa er liann ekki
nothæfur nema fyrir lítinn hóp
þeirra, þvíaðþarinni eraðeins
liægt að lilaupa styttri hlaup
og stökfeva þrístökk og lang-
slökk.
Salur þessi hefur verið nefnd
ur ,,Baldurshagi“ í höfuöíð á
Baldri Jónssyni, vallarstjóra.
Er gólfið í salnum lagt Gúmrní
asfalti (Rub-Kor blandað með
malbifci) og er talið gott að
halupa á því. Til að byrja með
fengu hlaupararnir að nota
gaddaskó við æfingar og keppni,
en fljótlega kom í ljós, aö moln
aði upp úr brautunuim ef gadda
skór voru notaðir. Og bannaði
þá vallarstjóri notkun þeirra.
Hefur þetta bann vakið
óánægju meðal frjálsíþrótta-
manna, og hafa þeir óskað eft-
ir að því yrði aflétt a.m.k.
þegar keppni fer fram. En vall
arstjóri hcfur ckki orðið við
þeirri ósk.
Sjálfsagt er að létta þvi banni
þegar mót fara fram, þó svo
að strigaskór séu notaðir við
æfingar. Það er ástæðulaust að
hafa frjálsíþróttafólk útundan
ár eftir ár, og standa i vegi
fyrir framþróun í frjálsum
íþróttum hér á landi með smá
munum eins og þessum. Það
mundi örugglega heyrast eitt-
hvað í knattspyrnumönnum okk
ar, ef þeim yrði bannað að
nota knattspyrnuskó á völlum
borgarinnar, en hað er víst
kannski næsta ráðið til að spara
viðhaldskostnað1? — klp.—
1. deildin í Danmörku
HG í efsta sæti
Tvær umferðir eru eftir í 1.
deildarkeppninni í handknattlcik
karla í Danmörku, og hefur HG
nú tekið forustu í deildinnj með
1 stigi meira en Efterslægten.
HG skaut sér upp fyrir Efter-
slægten í leikjunum um helgina,
en þar sigraði IIG — AGF 19:11,
Efterslægten tapaði óvænt fyrir
Stadion, liðið sem Gert Ander-
sen, þjálfar 11:20.
HG hefur nú 24 stig, Efterslægt
en 23 Ilelsingör 21 og Stadion
20 stig. í 2. deild er Tarup/Parup
í efsta sæti með 25 stig, en Ajax
í öðru sæti með 22 stig.
með 92 atkvæðum gegn 18, að
kalla heim atvinnumennina, sem
eru erlendis. í landsleiki, en hing-
að til hefur það ekki mátt. Einnig
var samþykkt með 90 atkvæðum
gegn 20, að heimila félögunum að
greiða foráðamönnum sínum vinnu
tap, sem þeir verða fyrir vegna
starfa á vegum félagsins. Og er
það einnig nýmæli í danskri knatt-
spyrnu.
•jV Meistaramót íslands í lyfting-
um 1971 fer fram helgina 20.—21.
marz n.k. Keppt verður í öllum
þyngdarflokfcum. Þátttökutilfcynn-
ingar ásamt með 100 kr. þátttöku
gjaldi þurfa að hafa borizt til
Björns Lárussonar, Grettisgölu 71
sími 22761 eða 40255, í síðasta
lagi sunnudaginn 14. marz.
Þátttöbutilkynningar, sem kunna
að berast síðar verða eigi teknar
til greina. Koppnisstaður verður
tilkynntur siðar.
■ijV Breiölioltshlaup ÍR fer fram
í 3ja sinn sunnudaginn 4. marz
og hefst eins og fyrri hlaupin kl.
14.00.
2 fyirstu hlaupin voru fjölmenn
og hafa nú rúmlega 150 hlaupið
að þessu sinni og því er nú búizt
við enn fleirj þátttakendum. All-
ir nýjir þátttalkendur eru því beðn-
ir að mæta tímanlega til skrásetn
ingar, helzt ekki síðar en kl. 13.30,
svo númeraúthlutunin gangi fljótt
og greiðlega.
Eins og fyrri hlaupin er þetta
hlaup opi® öllum og ajlir vel-
komnir til að reyna sig. Skokkar-
ar og Trimmarar eru cnn einu
sinni bo'ðnir sérstaklega velkomn
ir.
-þr Belgíumaðui'inn Gaston Roe-
lats, sem er einn þektasti milli-
vegalengdarhlaupari toeims, hefur
aldrei orðið svo frægur að sigra
í Olympiuleikjum. en tvívegis hef
ur hann verið mjög nálægt því.
Hann er nú orðinn fullorðinn
og svo til hættur aó' keppa í milli-
vegalengdum, en hann ætlar samt
að taka þátt í næstu olympíuleikj
um. Þar ætlar hann að keppa í
Maraþonhlaupinu, og segir liann
að það verði jafnframt kveðju-
hlaup sitt.
Fyrir skömrnu fór fram knatt-
spyrnuleikur á Spáni milli áhuga-
mannaliðs Spánar og Red Star
fná Júgóslavíu. Var þessi leikur
styrktarleikur fyrir spænskan 1.
deildardómara, Antonio Rigo, sem
í nóvember 1969- er hann var að
dæma leik 1 1. deild, varð fyrir
því að einhver áhorfanöi kastaði
einhverjum hlut, sem lenti í and-
litj hans. Var hann þegar flutbur
á sjúkrahús, en þar kom í Ijós
að hann hafði misst sjónina. Inn-
koman á leiknum var um 6000
stelingspund, og ætlar Rigo að
nota þá upphæð til að koma fjöl-
skyldu sinni betur fyrir, og síðan
aö leita til sérfræðinga í Sovét-
rfkjunum eða Bandaríkjunum með
augun.