Tíminn - 04.03.1971, Side 7
FIMMTUDAGUR 4. marz 1971
Ásgrímur Halldórsson
kaupfélagsstjóri
um, og ekki sízt fyrir hinn ört
vaxandi ferðamannastraum.
Hvað samgöngur á sjó snertir,
þá erum við sæmilega settir, þar
sem Herjólfur kemur hingað, og
Herðubreið í strandferðum sín-
um, auk þess sem Eimskip og
Sambandsskipin veita góða þjón-
ustu, og oft við erfiðar aðstæð-
ur.
Auk Óskars Helgasonar odd-
vita eru í hreppsnefndinni þeir
Hafsteinn Jónsson vegaverkstjóri,
Eiríkur Einarsson fiskmatsmaður,
Benedikt Þoi’steinsson verkstjóri
og Þórhallur Dan Kristjánsson
hótelstjói’i.
Útflutningsverðmætið
frá Höfn nam um
240 milljónum kr. s.l. ári
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga,
eða KASK, er langstæi’sti atvinnu
rekandinn í Höfn, en kaupfélags-
stjóri er Ásgrímur Halldórsson.
Kaupfélagið rekur frystihúsið á
staðnum, og auk þess saltfiskverk-
un og skreiðarverkun. Frystihús-
stjóri er Óskar Guðnason. í und-
irbúningi er nú bygging nýs
frystihúss, cn gamla frystihúsið
er orðið allt of lítið, og sérstak-
lega vantar frystigeymslur. Undir
búningur er þegar hafinn að bygg-
ingu hússins, og er búið að
sprengja fyrir grunni þess á Kross-
eyju, sem reyndar er nú ekki leng
ur eyja, en er við höfnina. Ráð-
gert er að liefja byggingu hússins
á þcssu ári, en það verður byggt
í þrem áföngum. Fyrst verða
frystigeymslurnar byggðar, þá
vélasalur ásamt móttökusal og síð-
ast á að byggja fiskmóttöku. Kostn
aöai’áætlun við bygginguna hljóð-
ar upp á um 75 milljónir króna,
og á allt húsið að vera fullsmíð-
að á ái-unum 1973—1975.
Fastráðið stai’fsfólk kaupfélags-
ins er 50—60 manns, en verkafólk
er 120—150 manns auk þess sem
margt aðkomufólk er starfandi á
vegum kaupfélagsins yfir vetrar-
vertíð, svo alls er stai’fsfólk kaup-
félagsins þá á þriðja hundrað
uianns að staðaldri. Vinnulauna-
greiðslur námu á s.l. ári næi’i’i 50
milljónum ki’óna, en félagið varð
TIMINN
7
's-j "■ •
i
WMmm
einmitt fimmtíu ára þá. Vörusala
félágsins nam á s.l. ári um 150
milljónum ki’óna, og heildarvelt-
an i’öskar 400 milljónir króna, sem
er um 30",. aukning. Félagsmenn
voru um áramótin 450 talsins og
hafði fjölgað nokkuð á árinu.
Útflutningsverðmæti sjávar-
al'urða frá KASK, nam á s.l. ári
180—190 milljónum króna, og þar
við bætist útflutningsverðmæti
loðnumjöls og síldarafurða frá
Fiskimj ölsverksmiðj u Hornafjarð-
ar h.f., sem KASK á 45% í, en
verðmæti þessara afurða nam 45
-50 milljónum ki’óna. Alls er
þetta í kring um 240 milljónir
króna.
Síldarsöltunarstöð var starf-
rÁkt á vegum Fiskimjölsvei’k-
smiðjunanr á s.l. sumri, og voi'U
þar saltaðar 5.200 tunnur. Kaup-
félagið tók á móti 8.600 tonnum
af fiski til vinnslu, og þar af voru
217 tonn af humar. Alls voru
greiddar 92.4 milljónir króna til
útgerðarmanna fyrir innlagðan
fisk.
KASK starfrækir tvö sláturhús,
á Höfn og á Fagarhólsmýri, þar
sem félagið rekur einnig verzlun,
sem þjónar Öræfingum og hinum
fjölmörgu ferðamönnum, sem
leggja leið sína í Öræfin. Alls var
slátrað 21.914 kindum í sláturhús-
inu á s.l. hausti.
Mjólkursamlag kaupfélagsins
Verzlunarhús KASK í Höfn, stendur viS aðalgötuna.
Bókhald kaupfélagsins er nú fært
í tölvu Sambandsins í Reykjavík.
Fer götun fram í Höfn. Aðalbók-
ari er Hermann Hansson og full-
trúi kaupfélagsstjóra er Aðal-
steinn Aðalsteinsson.
Samvinna vélaverkstæða
Á Höfn í Hornafirðj eru nú
starfandi þrjú vélaverkstæði, sem
nýlega hafa rnyndað hlutafélag
ásamt tveim jarðræktai’sambönd-
í frystihúsinú. Verkstjórinn Egill Jónasson fylgist með handbrögðum
stúlknanna sem vinna við snyrtingu og pökkun á freðfiskinum.
tók til starfa árið 1956, og er nú
orðið rnjög aðkallandi að reisa
nýtt mjólkursamlag en mjólkur-
fi’amleiðsla hefur aukizt stöðugt
á félagssvæðinu.
Hið myndarlega verzlunarhús
KASK var tekið í notkun á árun-
um 1963—1964, en þar er kjör-
búð með allar nauðsynjavörur,
búsáhaldadeild og bókabúð. Á efri
hæð eru svo vefnaðarvörur, auk
fatnaðar og skóvara. Jái-nvöru- og
byggingavöi’uverzlun félagsins er
í gamla kaupfélagshúsinu, og þar
uppi á lofti eru ski’ifstofur KASK.
um, útgerðarmönnum, einstakling
um og kaupfélaginu, um að reisa
sameiginlegt vei’kstæðishús fyrir
öll verkstæðin. Verður starfsemi
þeirra um leið sanxeinuð. Búið er
að gei’a fi’umteikningar að húsinu,
sem verður 1200—2000 fermetra
stórt, og hefst bygging þess vænt-
anlega x sumar, en stjórnarformað
ur er Aðalsteinn Aðalsteinsson. Á
þetta nýja verkstæði að standa á
iðnaðai-svæðinu á Höfn, en þar er
nú nýrisið hús Veiðai’fæi’agei’ðar
Hornafjarðar h.f., sem er tiltölu-
lega nýstofnað fyrirtæki á staðn-
um, og aðaleigendur eru þcir
Kristján Gústafsson og Haukur
Þorvaldsson.
Myndarlegur hótelrekstur
í vetur hefur verið unnið að
stækkun Hótel Hafnar í Horna-
firði, og eykst gistirými hótelsins
um helming við stækkunina. Byrj
að var á stækkuninni af fullum
krafti í haust, og er nú unnið við
húsið að innan. Alls verða 33
gistirúm í viðbyggingunni, og bæt
ir það úr brýnni gistiþörf yfir há-
sumai’ið, jafnframt því senx í’ekst-
ur hótelsins mun verða hagkvænx
ai’i, þar sem eldhús, boi’ðsalur og
fieira. var byggt með það fyrir
augum, að þessi viðbygging kæmi
við hótelið. Eigendur Hótel Hafn-
ar eru þeir Árni Stefánsson og
Þórhallur Dan Kristjánsson, og
hafa þeir unnið gott verk, en erf-
itt. með því að koma hótelinu
upp.
Höfn i Hornafirði er vaxandi
ferðamannastaður, cnda ákjósan-
legur sem slíkur, og kannski ekki
síður að vetrarlagi þegar vel
viðrar, og fjallahringui’inn sem
myndar hina fallegu umgjörð um
Höfn og næi’sveitir skartar sínu
fegursta. í vesti’i blasir Öræfajök-
ull við og þar fyrir austan renna
ski’iðjöklar niður á milli fjalla-
tindanna, en í austi’i eru það Al-
mannaskarðið og Stokknesið, sem
loka s.jóndeildarhringnum.
15 bátar gerðir út í vetur
Fi’á Höfn era 15 bátar gei’öir
út í vetur. og bættist Skinney —
sá fimmti — í hópinn nú fyrir
skemmstu. Bátai’nir eni Bergá,
Sævaldur og Ljósá, sem Kristján
Gústafsson á. Boi’gai’ey h.f. á vél-
bátinn Hvanney og Skinney h.f. á
Skinney og Steinunni. Óskar
Valdimarsson og Ársæll Guðjóns-
son ciga Gissur hvíta SF-1 og
Gissur hvíta SF-55. Akurey á
Haukur Runólfsson h.í., Esk-
ey er eign sanxnefnds hluta-
félags. Fálkanes er eign Bi’aga
Eymundssonar og Húna II. á hluta
félagið Einir. Hlutafélagið Jón
Eiríksson á samnefndan bát. Ólaf
Tryggvason á Tryggvi Sigui-jóns-
son h.f. og Sigurfara á Sigui’ður
Lárusson. Flestir þessara báta
eru á bolfiskveiðum, en Skinney
og Gissur hvíti SF-1 eru á loðnu.
Höfnin er ekki
nema fyrir vani sjómenn
Sjómennirnir í Höfn þekkja
höfnina oi’ðið veh en liún getur
verió' varasöm fyrir að'komusjó-
menn. Þess vegna fá flestir, ef
ekki allir stæi’i’i fiskibátar, sem
til Hafnar koma, hafnsögumann
unx boi’ð þegar siglt er inn og út
Hoi-nafjarðarósinn. Eymundur
Sigurðsson er hafnsögumaður
núna, og hefur verið fastráðinn
sem slíkur í nálægt níu ár, en í
20 ár sagðist hann hafa verið við-
loðandi starfið. Hann þekkir því
orðið vel til allra aðstæðna í
Hox-nafirðinum, cnda er það
betra, þegar um er að_ ræða stór
og di-ekkhlaðin skip. Á lóðsbátn-
um er Garðar Sigurjónsson, og
sögðu þeir félagar að starf
þeirra hefði fæi’zt mjög í aukana
með tilkomu stóru fiskibátanna.
Rifið við innsiglinguna færist
mjög til og frá og er ci’fitt fyrir
nema þaulkunnuga að þekkja á
það. M eru sti’aumar nxiklir stund
urn þarna í ósnurn. Það er því
beti’a að hafa kunnuga menn í
brúnni þegar siglt er inn og út
ósinn, en eftir að komið er inn
á höfnina þui’fa sjómenn víst litl-
ar áhyggjur að hafa af bátum
sínum, því skjól er gott, þar sem
hafaldan nær sér ekki upp.
Kári Jónasson.
VELJUM ÍSLENZKT <h> ISLENZKAN IÐNAB
Nokkrir bátanna, sem ger«ir eru út frá hÖfn í vetur.
ihártTnei
Spennustillar
6, 12 og 24 volt
V-bvzk aæðavara
Vér bióðuni
6 mánaða
ábyrgð
02 auk þess
lægra verð
H A B E R G H.F.
Skeifunni 3 E Sími: 82415