Tíminn - 05.03.1971, Blaðsíða 4
fí
18
TIMINN
FÖSTUDAGUR 5. marz 1971
THOMAS DUKE:
NINETTE
28
Charles spriklandi við 'kné sér.
Eann var búinn að klæða hann
úr buxunuim báðum, svo rassinn
á Charles var nú opinberaður í
allri sinni dýrð. Hardy 1 yfti
hægri höndinni eins hátt og hann
gat, og lét hana falla af fullum
krafti á hinar ávölu rassikinnar
Charlesar. Hann gekk að verkinu
með dugnaði, og „hummaði“ við
hvern rass-skell. Augun voru sljó.
Hann var frá sér numinn í nautn
hefndarinnar.
Viðstaddir gláptu kvíðafullir á
þessa frumstæðu framíkvæmd refs-
ingar. Charles háorgaði, og tárin
streymdu niður kinnarnar. Sally
stóð við afgreiðsluborðið. með
skjaldbökuna Bibi í höndunum,
og fylgdist af miklum áhuga með
öllum hreyfingum Hardys.
— Óþokki, hrópaði Wivi, og
reyndi að ryðjast fram á gólfið.
— Hlaupum á hann, æpti frú
Wright, og tók gólfið í fáum, vagg-
andi stöikkum.
Þetta var merkið um almenna
sóknarárás. Frakkarnir sex
voru sem leystir úr álögurn og
réðust allir sem einn á Hardy,
sem sleppti Charles, og snerist
gegn Frökkunum. Frú Wright rak
upp ógurlegt heróp, og gekk fram
til orrustunnar sem ósvikin tröll-
kona væri. Hún hafðj náð traustu
taki í hárinu á Hardy, og lagðist
nú á, með öllum sínum þunga, til
þess að kippa honum afturábak
niður á gólfió'. Hardy, sem í hita
orrustunnar gat ekki tekið tiliit
til ,,hins veika kyns“, sló frú
Wright hnefahögg mikið. en við
það fuku gerfitennurnar út úr
henni og hurfu í iðu orrust-
unnar. Loksins gátu Frakkarnir
ráðið niðurlögum Hardys, og nú
lágu þeir allir ofan á honum á
gólfinu.
Þá var það, sem Maríus vatt
sér inn í vínstofuna. ásamt Lar
sen skipstjóra.
— Hann hlýtur að vera einhvers
staðar neðarlega. sagði Maríus, og
benti sem fagmaður á búnkann,
sem lá ágólfinu.
Larsen skipstjóri gaut augum,
ergilegur á svip, til Maríusar:
— Honum skýtur áreiðanlega
upp aftur innan skamms. En
'hvernig er það með staupið?
Maríus lét sem hann hefði ekki
heyrt það sem Larsen sagði, heldur
gekk hann þangað sem bardaginn
var háður. —Þú réttir mér nú ;
hendi fyrst, sagði Maríus af sinni!
alkunnu fortölulist.
Sem hinn þaulkunni maður
hverskonar viðureigna byrjaði
Maríus efst við annan endann.
Einurn og einum var Frökkunum
kippt upp úr hrúgunni. Einum i
sérlega vel vöxnum Frakka fleygóí ,
Maríus til Larsen skipstjóra. Lar-1
sem rak upp öskur, og skallaði
Frakkann í kviðinn. Frakkinn fór
í keng og átti nú svo sannarlega,
fótum sínum fjör að launa.
Þegar Maríus hafði „gengið frá“
þrem Frökkum og lagt þá til hlið
ar, blasti Hardy við allra augum.
Hann var hræðilegur álitum. Ann-
að eyrað skaddað eftir bit, hægra
augað sokkið fagurblátt, fyrir
utan hinar sjálfsögðu rispur, fleið-
ur og marbletti. Annars virtist
hann í fullum færum og vígreifur
vel. Nú var aðeins eftir að af-
greiða tvo Frakka niður á gólfið.
Frú Wright hafði löngu dregið
sig í 'hlé. Hún sat úti í einu horn-
inu, móð nokkuð og sinnulítil að
sjá. Hinn tannlausi munnur titr-
aði. Wivi hafði náð í annan fót-
inn á Charles og dregið hann á
maganum frá hættusvæðinu. Rass-
inn var blóðrauður og þrútinn
eftir hina svikalausu flengingu.
Sally var nú komin á vettvang
með fötu af köldu vatni, og skvetti
framan í ,,líkin“, sem lágu á gólf-
inu. Jafnharðan og „líkin" vökn-
uðu til lífsins, tók Larsen skip-
stjóri í hnakkadrambið ó þeim,
og fleygði þeim á dyr. Maríusi
var farið að leiðast. því hann
hafði látið Hardy einan um þessa
tvo Frakka, sem eftir voru. Hann
seildist því, hálfpartinn út úr leið
indum í annan Frakkann og sló
hann þegar í stað niður í gólfið.
Eftir vel útilátið kjaftshögg frá
Hardy, hné hinn síðasti Frakki
einnig í valinn. Sally kom sam-
stundis með kalda vatnið, en Lar-
sen skipstjóri lét ekki standa á
sér að fleygja þeim á dyr þegar
þeir rumskuðu.
Á þessu augnabliki komu Grikk
irnir í dyrnar með þann eincygða i
í broddi fylkingar. Larsen skip-
stjórj hvessti á þá augun:
— Nú þykja mér flestir sótraft-
ar á sjó dregnir, sagði hann, og
hjólaði út að dyrunum til móts
við þá. Nokkur hræðsluóp heyrð-
ust. Þegar Grikkirnir sáu framan
í Larsen skipstjóra, lögðu þeir,
þegar í stað, á hraðan flótta nið-
ur torgið.
Hardy rétti Maríusi hendina
og sagði: Þakka þér fyrir að
þú komst.
— Skítt veri með þáð, svaraði
Maríus. og fór ofurlítið hjá sér.
Talsvert sérkennileg þrenn-
ing gekk nú yfir gólfið. í miðj-
unni hökti Charles með Wivi á
aðra hlið en frú Wright á hina.
Charles var kominn í buxurnar
báðar. Eigi aó síður mátti kalla
þetta sorglega sjón. Þegar þau
gengu þar hjá, sem Hardy stóð á
gólfinu, sleppti Wivi handleggnum
á Charles. Hvítfyssandi af reiði
vatt hún sér að Hardy, og hvæsti
lágt: — Viðbjóðslega skepna.
Eldur brann úr augum hennar.
— Við erum skilin að skiptum
að eilífu.
Hardy hló stuttum hlátri. — Já,
að sjálfsögðu.
Hún mældi hann hægt með
augunum í síðasta sinn, sneri sér
við og gekk út á eftir Charles og
móður hans.
Hardy furðaði sig á því hvað
hann hefði eiginlega séð við
þessa stúlku. Hún var raunar
ákaflega hversdagsleg og þar að
auki sjálfbirgingsleg, samanber
þegar hún var að tala yfir hausa-
mótunum á honum rétt áðan.
Hann fann með ánægju að jórn-
tjaldið var fallið, Wivi var hinum
megin við það. Hann gat ekki
skilió* hvað þessi staðreynd hafði
lítil áhrif á hann. Engin sorg,
ekki einu sinnj eftirsjá. Það var
mikil heppnj að augu hans luk-
ust upp áður en til giftingar kom.
— Nú er það kampavín handa
hetjunum, var sagt fra afgreiðslu-
borðinu. Sally stóð þar með
kampavínsflösku í höndunum og
var að losa um tappann. Hann
horfði undrandi í kring um sig,
því hann stóö aleinn úti á miðju
gólfi. Hann var vaknaður af löng
um draumi. Maríus og Larsen
skipstjóri voru fyrir löngu setztir
á hina háu stóla.
— Þetta var bara snotur sýn-
ing, var sagt hásri röddu bak við
hann.
Hardy snerist á hæl.
— Ert þao þú, fjandans tófan
þín, sagði hann stillilega.
Ninetta lyfti sér yfir píanóið
í horninu og gekk til hans. Hún
teygði varirnar ólundarlega fram.
— 'Brostu við mér, þú óviðjafn-
anlegi áflogamaður. Hún iðaði lít-
illega í mjöðmunum þegar hún
sagðj þetta.
Mót vilja sínum glápti hann á
hana fullur aðdáunar. Hún var í
brúnum sportfötum, og með þessa
einkennilegu vafhúfu é höfðunu.
Hún hló. — Ég fylgdist með þér
allan thnann. Eg 3á á maganum
bak við píanóið og sá alla vióur-
eignina. Nú gefck hún fast að hon-
um, og sagði á barnslegari tæpi-
tungu: Þú ert vonandi ekki reið-
ur við hana Ninette litlu?
Hardy halfkiknaðj við. Og sv»
þetta fjandans ilmvatn. — Nei,
fjandinn hafi það. Þegar hann var
laus við cina, kom önnur í stað-
inn og lagði hald á hann.
Hann bauð henni arminn.
— Komdu með niér og fáðu þér
í glas, sagði hann í örvæntingu
sinni.
— Sama og þegið, mon ami
Hún dró hægt aó sér handlegginn.
— Ekki í kvöld. Ég hef verk-
efni, sem ég má til með að vinna
að. Hún tók glettnislega undir
hökuna á honum. — En þú getur
gengið heim með mér ef þig
langar til.
Án þess að bíða eftir svari,
gekk hún að útgöngudyrunum.
Hardy stóð á báðum áttum en
gekk svo á eftir henni.
Það var liðið að kveldi, og
gestirnir byrjaðir aó tinast inn.
ikt •
•-"WWCTBKT'I
er föstudagurinn
5, marz
Árdegisháflæði í Rvík kl. 00.24.
Tungl í hásuðri kl. 21.03.
HFTT.SI 'OÆZLA
Slysavarðstofan i Borgarspltalan-
um et opln allan sðlarhrindnn
Aðeins móttaka slasaðia. Simt
81212
Slökkviliði? og sjúkrablfrelðlt *vr
Ir Revkjavfk og Kópavog slmi
11100
Sjókrahifreið i Hafnarflrðl. slmi
51336
Almennar upplýslngar um læ'.tna
þjónustu l bnrginni eru gefnar
simsvara Læknafélags Revkiavíli
ur. sim. 18888
Fæðingarheimiiið I Kópavogi
Hlíðarvegi 10 síml 4264A
Tannlæknavakt er i Heilsuvemc r
stöðinnl. þar sem Slysavarðstof
an var. og er opln laugardaga re
sunnudaga kt 8—6 *• h Slmi
22411
Kópavogs Apótek er oplf ' “
daga kl. 6—19. laugardaga kl 6
—14 h~ - Haga kl 13—lð
KeflavíkUi Apótek ei oplð vlrka
daga kl 9—19. laugardaga kl
9 14 hel<Tidn?a 13—15
Anótek Hafnarfjarðat er opið alla
virka daga frá kl 9—7. á laug
ardögum kl 9—2 og á sunnu
lögum og öðrum helgidögum -n
opið frá kl. 2—4
Mænusóttarbóluse,’>ina fyrlr full
orðna feT fram 1 HeSuverndar
stöð Revkjavíkur á mánudögum
kl 17—18 Gengið tnn frá Bar
ónsstis vfir brúna
Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka
í Reykjavík vikuna 27. febrúar
— 5. marz annast Reykjavíkur
Apótek og Borgar Apótek.
VlSA DAGSINS
Allir syngi einum rómi:
Elskum landið, heyjum stríð.
Þeir eru okkar þjóðarsómi
Þingeyingar alla tíð.
cim r\TrAR
SkipaútgerS ríkisins:
Hekla er á Norðurlandshöfnum á
vesturleið. Herjólfur fer frá Homa-
firði i dag til Vestmannaeyja og
Rvíkur. Herðubreið fer frá Kvfk
síðdegis í dag vestur um land til
ísafjarðar.
Skipadeild S.Í.S.:
Amarfell losar á Vestfjörðum, fer
þaðan til Norðurlandshafna. Jökul-
fell fór 26. f.m. frá New Bedford til
Islands. Dísarfell fór frá Svendborg
2. þ.m. til Islands. Litlafell fór frá
Rvík í gær til Austfjarða. Helgafell
er á Hofsósi, fer þaðan í dag til
Húsavíkur. Stapafel! losar á Vest-
fjarðahöfnum. Mælifell fer vænt-
anlega 6. þ.m. frá Augusta/Sikiley
til Rvikur. Nordie Proctor fór frá
Stetiting 2. þ.m. til Rvíkur.
F1 1 ]OÁ ^TT ANTR
Loftleiðir h.f.:
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá NY kl. 0800. Fer til Luxemborgar
fcl. 0845. Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 1700. Fer til NY
kl. 1745.
Guðrún Þorbjarnardóttir er væntan-
leg frá NY kl. 0830. Fer til Óstóar,
Gautaborgar og Kaupmannahafnar
kl. 0930.
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug,
Gutlfaxi fór til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:45 í morgun og
er væntanlegur þaðan aftur til
Kefliavíkur kl. Í8:45 í kvöld,
Gullfaxi fer til ósto og Kaupmanna-
hafnar ki. 08:45 í fyrramálið.
Innanlandsflug.
1 dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir) til Vestmannaeyja,
Húsavíkur, ísafjarðar, Patreksfjarð-
ar, Egilsstaða og til Sauðárkróks.
A morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir) til Vestmanna-
eyja, Isafjarðar, Homafjarðar, Norð-
fjarðar, og til Egilsstaða.
a r;si tF
Kvæðamannafélagið Iðunn.
Heldur árshátíð sína í Lindarbæ
föstudaginn 5. marz. Hefst með
borðhaldi kl. 7. Miðapantanir í
síma 14893 og 24665 fyrir miðviku
dagskvöld 3. marz.
GuðspekifélagiS Ingólfsstræti 22.
I kvöld kl. 9, flytur Dagur Þorleifs-
son blaðamaður erindi er hann
nefnir: Myndlist Búddismans. Utan-
félagsmenn jafnt sem félagsmenn
velkomnir. Stúkan Dögun.
ORÐSENDING
Minningarspjöld Barnaspítala-
sjóðs Hringsins fást á eftirtöldum
stöðum: Vesturbæjar-Apóteki Mel
haga 22 Blóminu Eymundssonar
kjal’.ara Austurstræti Skartgripa-
verzlun Jóhannesar Norðfjörð
Laugavegi 5. Hverfisgötu 49 Þor-
steinsbúð Snorrabraut 61 Háaieitis
Apóteki Haaleitisbraui 68 Garðs
Apóteki, Sogavegi 108 Minmnga-
búðinni Laugavegi 56.
GENO TSSKR Á N7NG
Nr. 22 — 1. marz 1971.
1 Bandar doliaT 87,90 88,10
1 Steriingspund 212,40 212,90
1 Kanadadollar 87,30 87,50
100 Danskar kr. 1.174,44 1.177,10
:oo Norskar kr 1.230.71, 1.233.S0
100 Sænskar kr. 1.702,00 1.705,86
100 Finnsk mörk 2.109,42 2.114,20
íoo FranskiT fr. 1.593,80 1.597.40
100 Belg. fr 177.15 ' "’7 “I
100 Svissn. fr. 2.041,00 2.945,66
100 Gvllim 2.443."' 1 n 1" 30
100 V.-þýzk m. 2.417,58 2.423,00
100 Lirur 14,10 14,14
100 Austurr sch. 339,35 340,13
100 Escudos 308,55 309,25
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Rekningskrónur
Vöruskiptalönd 99,86 100,14
1 Reikningsdollar —
Vöruskiptalönd 87,90 88,10
1 Reikningspund —
Vöruskiptalönd 210,95 211,45
Aðalfundur Vekakvennafélagsins
Framsóknar
verður nk. sunnudag kl. 14,30 í Iðnó,
I. Venjuleg aðalfundarstörf. n. Önn-
ur mál. Félagskonur fjölmennið og
sýnið skirteini við innganginn. Stjórn
in.
Ranðsokkar.
Nýir starfshópar um dagheimilis-
mái skipulagðir á Asvallagötu 8,
kjallara. föstudagskvöldið 5. marz
kl 8.30
Kvcnfélag Hallgrímskirkj
heldur sína árlegu samkomu fyr-
ir aldrað fóik. sunnudaginn 7 marz
kl 3 síðdegis. Sigurbjörn Einars-
son biskup flytur ræðu. Frú Rutb
Magnússon syngur einsöng. Upp-
lestur. Kaffiveitingar.
Lárétt: 1) Maður. 5) Spýja. 7)
Eituríoft. 9) Grænmeti. 11) Ö-
nefndur. 12) Gylta. 13) Fljót. 15)
Kyn. 16) Tímabils. 18) Fliss.
ICrossgáta
Nr. 750
Lóðrétt: 1) Tileinkir 2) Fugl
3) Fæði. 4) Dreif. 6) Bog-
inn. 8) Elska. 10) Kærleik-
ur. 14) Verkfæri. 15) Óró-
leg. 17) Slá.
Ráðning á gátu nr. 749:
Lárétt: 1) Dældir. 5) Ari.
7) Agn. 9) 111. 11) UÚ 12)
Áa. 13) Glæ. 15) Bið. 16)
Flá. 18) Stólar.
Lóðrétt: 1) Drauga. 2) Lán.
3) Dr. 4) III 6) Glaður. 8)
Gúl. 10) Lái. 14) Æft. 15)
Bál. 17) Ló.