Tíminn - 05.03.1971, Side 6
18
TIMINN
FÖSTUDAGUR 5. marz 1971
Fí tekur
aðra þotu
í notkun
ftO—Reykjavik, miðvikutlag.
Flugfélag íslands mun að öllum
líkindum taka aðra Boeing 727
þotu í notkun um miðjan maímán-
uð. Ekki er um að ræða kaup á
þotunni heldur verður hún tekin á
leigu, en með forkaupsrétti og
gengur leigan þá upp í kaupverð-
ið.
Örn Johnsen, forstjóri Flugfé-
lagsins, er nýkominn heim frá
Bandaríkjunum en þar hefur hann
kynnt sér með hvaða kjörum er
hægt að fá þotur sem þessar núna.
Undanfarið hafa fjórar áhafnir frá
Fl verið í þjálfun hjá Boeingverk-
smiðjunutn í Seattle.
Alríkislögregla
Framhald af bls. 13
fylki, en hann neitaði, þar sem
hér var um nokkurs konar út-
legð að ræða. Shaw var sagt upp
starfi, og tilkynnt að hann myndi
ekki fá annað starf á vegum Sam-
bandsþingsins.
f bréfi tólfmenninganna til Mc-
Govern, var sagt að þetta væri
ekki óvenjulegt. þegar starfsmenn
Alríkislögreglunnar féllu ekki í
kramið hjá Hoover.
Þeir, sem rituðu bréfið, báðu
öldungardeildarþingmanninn, að
láta ekki frumeintakið af hendi
undir nokkrum kringumstæðum,
þvl að þá væri auðvelt að finna út
hverjir standa að því, og mundu
þeir áreiðanlega verða fyrir of-
sóknum af hendi Hoovers.
McGovern lét gera eftirrit af
bréfinu og drcifði til blaða, og
hefur það að vonum vakið mikla
athygli. Bandaríkjamönnum þykir
að vonum nóg um allan þann
glæpafaraldur, sem gengið hefur
yfir á undanfömum órum, en að
hann skuli vera jafnvel enn
meiri en opinberar skýrslur
segja til um tekur út yfir allan
þjófabálk, og að þær skuli verða
lagfærðar til að ekki falli blettur
á nafn Hoo-vers er einum of mik |
ið af svo góðu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem!
Hoover er gagnrýndur í Banda-
ríkjkunum, en opinberir aðilar
hafa aldrei þorað að hreyfa við
gamla manninum, það er ekki fyrr
en nú að mikilsvirtur stjórnmála-
maður leggur til að þingið taki að
sér rannsókn á Alríkislögreglunni,
sem til þessa hefur verið algjör-
lega friðhelg.
Indíánahöfðinginn
Framhaid af bls 13
— Mér hefur faliið mjög vel
að leika þennan Cheyenne-höfð
ingja. Þessi Indíánaættflokkur
hefur af sumum verið nefndur
„mannlegur", af því að þessir
Indíánar hafa verið friðsamari
en margir aðrir. Fólki hættir
til að álíta, að Indíánar séu
allir miklir stríðsmenn, en svo
er alls ekki.
— Yngsti sonur minn var
með mér, þegar ég fór til þess
að leika í kvikmyndinni, og
hann fékk vinnu og var látinn
leika leiðsögumann. Mér fell-
ur ekki að vera einn á ferð.
Ég hef alltaf verið hjá fjöl-
skyldu minni, og hvenær svo
sem ég fer eitthvað í ferðalag
hef ég eitthvað barna minna
eða barnabarna með mér. Fjöl
skyldan hefur mikla þýðingu
fyrir mig. Hvíta fólkið virðist
vera atl glata öllu sem heitir
fjölskyldubönd. Það verður allt
af svo hrifið, þegar það sér
fjölskyldu mína, og finnst hún
svo samrýnd og elskuleg.
í raun og sanni er George
Indíánahöfðingi alls ekki leik-
ari, heldur leikur hann af
stjórnmálalegum hvötum.
— Það sem ég vil í raun
og veru er að fá tækifæri til
þess að tala fyrir málstað Indí
ánanna í Kanada. Þeir verða
að fá jafnrétti á við aðra íbúa
landsins. Fólk fer með okkur
eins og við getum ekki sagt
skoðun okkar á nokkrum hlut,
eða hugsað sjálfstætt. Því er ég
að þessu, kominn á fullorðins-
ár. Ég vil, að fólkið mitt hljóti
einhverja menntun. Við vild-
um að minnsta kosti fá Indí-
ána formælanda Indíánanna,
en ekki hvítan mann, eins og
nú er. Skoðun min er sú, að
einhvern tíma komi líka að
því. Þó getur vel verið, að ég
eigi ekki eftir að lifa þann
dag, sem það gerist, en þá
verður einhvern tíma.
— Stærsta takmark mitt er
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig á sex-
tugsafmæli mínu 28. febrúar s.l. með héimsóknum, gjÖf-
um og heillaskeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Oddný Methúsalemsdóttir.
Maðurinn minn og faðir okkar
Kristmundur Jóhannsson
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, laugardaginn 6. marz,
klukkan 10,30.
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir
Gunnþóra S. Kristmundsdóttir
Guðný J. Kristmundsdóttir
Þökkum öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hjálp við frá-
fall og jarðarför
Reynis Þórarinssonar
frá Mjósyndi.
Ingunn Hróbjartsdóttir
og börn.
að allur aðskiinaður hverfi úr
sögunni. Nú hafa forráðamenn
irnir lokað heimavistarskólan-
um okkar, og þcss í stað sækja
skólabílar börnin rkkar og
flytja þau í blandaða skóla. í
upphafi var þetta erfitt fyrir
börnin okkar, því ekki var
farið vel með þau sum hver.
Nú geta þau hins vegar sótt
háskóla, iðnskóla og hvaða
skóla sem er, því þau liafa
vanizt þvf að vera úti á meðal
fólks.
— Samruni kynþáttanna
verður að virka í báðar áttir.
Þegar saman kemur það bezta
úr menningu hvíta mannsins
og það bezta frá Indíánanum
verður það þjóð okkar til mik-
ils framdráttar. í upphafi var
ég andvígur þessari samein-
ingu, vegna þcss að börnin
voru hrædd, en þegar ég fór að
hugsa alvarlega um málið,
varð ég því mjög svo fylgjandi.
Þetta verður okkur öllum til
góðs. — FB
Loðna
Fran.hald af bls. 20.
bátar lönduðu þar í dag. Lítið
þróarrými er nú eftir í Höfn, en
fer að iagast eftir tvo sólarhringa,
ef ekki bætist þeim mun meira
við. Fiskimjölsverksmiðjan í Höfn
hefur nú tekið við tæpum 6 þús.
lestum síðan loðnuvertíóin hófst.
Grindvíkingur iandaði í dag 350
lestum í Grindavík, Þorkell Magn
ússon 230 lestum, Ilafrún 230 lest
um, Hörður 200 lestum, Ólafur
Sigurðsson 230 lestum og Þor-
steinn 230 lestum. Ekki var von á
flciri bátum til Grindavíikur í
kvöld. Bátarnir fóru strax út aft
ur eftir löndun og héldu til móts
við loðnugönguna. Mest af því sem
landað er í Grindavík fer í
bræðslu þar. Búizt er við að þrærn
ar þar fyllist á morgun. og verð-
ur þá hætt að taka á möti í bili.
í morgun var ekki nema nokk-
urra mínútna sigling á loðnumið-
in frá Vestmannaeyjum, en gang-
an gekk hratt vestur á bóginn.
Þegar leio' að kvöldi var orðin um
fjögurra tíma sigling á loðnumið
in frá Eyjum.
í morgun kom Ilaraldur til Akra
ness með 170 lestir og Höfrung-
ur III. með 350 lestir í kvöld.
300 lestum var í dag landað í
Sandgerði úr Jóni Garðari, og
Eldey landaði fullfermi í Kefla-
vík.
Samræming
Framhald af bls. 20.
útboð að ræða á vegum Innkaupa
stofnunarinnar, þegar um viðhalds
vinnu væri að ræða, þegar því
yrði við komið. Að minnsta kosti
að ekki yrði unnið, nema eftir
uppmælingu eða miklu auknara
eftirliti. En eins og málin stæðu
í dag, væri langalgengast, að iðn-
meistarar ynnu verkin fyrir borg
ina eftir reikningi, án þess, að
með því væri fylgzt, hvort allt
efni, sem þeir keyptu eða útveg-
uðu sér sjálfir, væri notað, eða
hvort þeir menn, sem gefið væri
upp að hefðu unnið við tiltekið
verk, hefðu yfirleitt unnið nokkuð
við þau.
Hér þyrfti að koma til meiri
samræming og aukin tcngsl milli
Innkaupastofnunarinnar og birgða
stöðvar áhaldahússins. Enn frem-
ur væri fyllsta ástæða til að
kanna ítarlega, hvort Innkaupa-
stofnunin gæti ekki haft hönd
í bagga mcð innkaupum einstakra
borgarstofnana, fleiri en þeirra,
sem áhaldahúsið hefði með að
gera.
Nokkrar umræður spunnust
eftir framsöguræðu Alfreðs Þor-
steinssonar, og verður frá þeim
, greint í blaðinu á morgun.
©fenrofl
Gettu 12
Ég hef fjóra fætur, sem ég nota
aðeins til að standa á. Ég hef
fiður, en er samt ekki fugl. Ég
get borið mann, en verð samt
aldrei þreytt?
Ráðning á síðustu gátu:
Kirsuber.
B
||
Veljið fermingarúrin
tímanlega.
Mikið úrval af herra og
dömu-úrum, ásamt
úrvali af skartgripum
til fermingargjafa.
Úra- og skartgripaverzlun
MAGNÚS ÁSMUNDSSON
Ingólfsstræti 3 Sími 17884
Fiskvinnslustöðvar
Framhald af bls. 20.
meðferð á alls kyns fiskafurðum,
og verða þær gefnar út í bækl-
ingsformi og sendar viðkomandi
aðilum.
Þá eru í fréttabréfinu ýmsar
tölur um fiskvinnslustöðvar og
útflutning fiskafurða. Þar kemur
til dæmis fram að á síðasta ári
voru starfrækt liér á landi 94
hraðfrystihús, en voru 90 árið
áður. Rækjuvinnslustöðvar voru
40, en 16 árið 1969. Hörpudisks-
vinnslustöðvar voru á s.l. ári 17
talsins, á móti 2 árið á undan.
Saltfislrframleiðendur voru 229
árið 1970, en 215 árið áður. Og
jafnvel skreiðarframleiðendum
fjölgaði og voru 158 á s.l. ári,
en 145 árið 1969.
Á s.l. ári voru flutt út af heil-
frystum fiski og flökum 92,311
tonn. Af frystum humar, voru
flutt út 999 tonn, af hrognum
2,922 tonn, af frystri síld 5 tonn,
og er það eina fisktegundin, sem
útflutningur var minni á árið
1970 en áður. Af frystri loðnu
voru flutt út 1.019 tonn og af
rækju 768 tonn.
Af saltfiski voru flutt út sam-
tals 29.062 tonn og af skreið
3.785 tonn.
Úlflutningsfanmar matsskyldra
fiskafurða voru á síðasta ári alls
323. Skiptast þeir þannig: Út voru
fluttar frystar afurðir með 110
skipsförmum, 85 skipsfarmar af
saltfiski og 54 af skreið. Af ís-
vörðum fiski og rækju voru flutt
ir út 74 flugfarmar. Hefur orðið
mikil aukning á fiskflutningi í
lofti, því árið áður voru fluttir
lit 45 flugfarmar og árið 1968
2 flugfarmar.
Heildarkostnaður við Fiskmat
ríkisins og ferskfiskeftirlit árið
1970 nam rúmlega 22 millj. kr.
)J
þjóðleIkhijsid
ÉG VIL — ÉG VIL
sýning í kvöld kl. 20.
LITLI KLÁUS
OG STÓRI KLÁUS
sýning laugardag kl. 15. Uppselt
SÓLNESS
BYGGINGAMEISTARI
sýning laugardagskvöld kl. 20-
Næst síðasta sinn.
LITLI KLÁUS
OG STÓRI KLÁUS
sýning sunnudag kl. 15.
FÁST
sýning sunnudag M. 20.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,15 til 20. Sími 1-1200.
Kristnihald í kvöld. Uppselt.
Jörundur laugardag.
Hitabylgja sunnudag.
Kristnihald þriðjudag.
Jörundur miðvikud. 86. sýning.
Aðgöngumiðasalan I Iðnó er
opin frá kl. 14. Sími 13191.
Skák föstudag
Hvítur mátar I tveimur leikjum.
Skákþraut þessi er eftir Tékk-
ann Zdenek Masek og lausnarleik-
urinn er 1. He3! — Dxg4/Rxg4 þá
2. Df6/Hf3 mát.
RIDG
Suður spilaði 4 Sp. á eftirfarandi
spil í sveitakeppni á Englandi ný-
lega.
A 9532
V G7 52
4 Á4
* KD 4
A KG106 A D
V 10984 V KD63
4 G972 ( 4 D10 8 3
4 6 * 8753
4 Á 8 7 4
V Á
4 K 6 5
4 ÁG1092
V spilaði út Hj-10, S tók á Ás og
spilaði strax litlum Sp. A fékk á
D og lét Hj-D, sem S trompaði, og
tók á Sp-Ás. Þegar V sýndi eyðu
spilaði S L á D og trompaði aftur
Hj. og spilaði síðan L. V tromp-
aði og A fékk síðan á Hj-K og V
slag á tromp og sögnin tapaðist.
5 var óheppinn með skiptinguna, en
óafsakanlegt er þó að tapa slíku
spili í sveitakeppni. Aleð slíkri
trompskiptingu og hjá N og S er
oftast rétt að gefa fyrsta tromp-
slaginn, en ekki, þegar 100%
öruggt er að vinna spilið gegn allri
trompskiptingu mótherjanna nema
5—0. Sagnhafi leggur einfaldlega
niður Sp-Ás i öðrum slag og spilar
síðan L. Á þvi gæti auðvitað tap-
azt yfirslagur, en tryggir sögnina,
sem er jú fyrsta skilyrðið í sveita-
keppni.