Tíminn - 12.03.1971, Side 2

Tíminn - 12.03.1971, Side 2
2 TIMINN FÖSTUDAGUR 12. marz 1971 íslendingar frumsýna leikrit í Höfn í dag FB—Reykjavik, miðvikudag. Á föstudaginn er áformað að frumsýna leikritið Andrókles og ljónið, hjá Leiksmiðju Andróklesar í Kaupmannahöfn. Leikritið hefur Ólafur Haukur Inga Bjarnason og 'Helga Hjörvar í hlutverkum sínum í Jóðlífi, sem sýnt var í Kaupmannahöfn 23. desember sl. Símonarson samið eftir sam- nefndri sögu Guðbergs Bergs- sonar. f október s.l. stofnaði hópur ungra íslendinga í Kaupmanna höfn leiksmiðjuna. Fyrsta verk efni leiksmiðjunnar var ein- þáttungurinn Jóðlíf, eftir Odd Björnsson. Leikstjóri þess verks var danski leikarinn Folmer Rubæk, en jóðin léku þær Helga Hjörvar og Inga Bjarnason, en Þorbjörg Höskuldsdóttir gerði leiktjöld. Frumsýnt var í Þorláksblóti Félags - fslenzkra námsmanna í Kaupmannahöfn. 5. febrúar s.l. efndi „Leik- smiðjan Andrókles" til list- kynningar í húsi Jóns Sigurðs- sonar (Islandsk Kulturhus). Þar var „Jóðlíf“ endursýnt, Hörður Torfason söng þjóð- lög, Ólafur Haukur Símonar- son og Ólafur Torfason lásu upp úr eigin verkum, Ólafur Torfason sýndi frumgerða ræmu og sýnd var kvikmynd- in „En börnefilm“ eftir Hans Henrik Jörgensen, en eina hlutverk myndarinnar leikur Helga Hjörvar. Jafnframt var opnuð sýning á myndum eftir þau Ólöfu Pálsdóttur, Tryggva Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson og Þorbjörgu Höskuldsdóttur. REFSIVERD FRAMKVÆMD TEKJUSTOFNALAGANNA? EJ—Reykjavík, miðvikudag. Sum sveitarfélög fara ekki eftir ákvæðum gildandi laga um tekju- stofna sveitarfélaga um niðurjöfn un útsvara og innheimtu fast- eignaskatta. Þessi framkvæmd tckjustofnalaganna „kynni að telj- ast sem brot í trúnaðarstarfi, er gæti varðað sveitarstjórnarmenn ábyrgð, bæði fébóta- og refsi- ábyrgð,“ sagði Hallgrímur Dal- berg í félagsmálaráðuneytinu á ráðstefnu um sveitarstjórnarmál í dag. Um þessi brot á lögum sagði hann: „f nokkrum hreppum hafa ver- ið lögð á lágmarksútsvör. Við af- sláttarprósentu útsvara er stund- um ekki veittur afsláttur af eignar útsvari. Loks hafa nokkrir hrepp- ar ekki innheimt lögákveðna fast eignaskatta. Sum sveitarfélög hafa veitt sérstakan afslátt á álögð át- svör, ef greitt er fyrir tiltekmn dag, í stað þess að gera gjaldend- um, sem ekki standa í skilum, að greiða dráttarvexti eins og lögin gera ráð fyrir.“ „Þegar framkvæmd tekjustofna laganna er með þeim ágöllum, sem lýst hefur verið hér að frati.- an, verða álögð útsvör ekki rétt ákveðin, en það gæti þýtt að gjald endur væru ekki skyldir, lögum samkvæmt, að greiða útsvörin. Við lögtak mundi lögtaksréttur sennilega ekki vera viðurkenndur. Þá má minna á, að þetta kynni að teljast sem brot í trúnaðar- starfi, er gæti varðað sveitar- stjórnarmenn óbyrgð, bæði fábóta- og refsiábyrgð," sagði hann. Félagsmálaráðuneytið: LÉT RANNSAKA BÚKHALD NOKKURRA SVEITARFÉLAGA Ekki vantar það, að nóg er tal- að um búkmenntirnar. Nú hefur Ölafur Jónsson, einn af talsmönnum örna-bókmenntanna, lolkið við að birta greinar í málgagni sínu, þar sem hann áréttar fyrri flokkun sina um gagnlausar og gagnlegar bók- menntir, og kemst að þeirri niður- stöðu enm einu sinni, að viðleitnin til endurnýjunar prósastíls hafi ekki borið endanlegan árangur fyrr en á allra síðustu árum. Svefnvitranir sem þessar eru ekki óal'gengar, og birtast m. a. í því að áhugamenn um íþróttir eiga það til eftir stranga keppni að vakna með andfælum um miðjar nætur og hrópa: Afram KR, eða eitthvað í þeim dúr. Hins vegar er ekki vitað nema um sárafáa, sem hafa lag't það fyrir sig að fara í símann að nóttunni til að leggja sl'lkum hugarefnum lið. Annars minnir sú flokkunarstreita, sem nú bjáir okkar vísustu menn í bók- Skákkeppnin Svart: Taflfélag Akureyrar: Jóhann Snorrason og Margeir Steingrimsson. v a t n 3 í i> H ABCDEPGB Hvítt: Taflfélag Reykjavikur Gunnar Gunnarsson og Trausti Rjörnsson 28. leikur svarts: c5—c4. menntadómum dálítið á aðfarir við flokikun á gærum í sláturhúsum á iiaustin. Gærufloíkikunin á bókmennt- unum fer að því leyti eins fram, að engan varðar um þá fjallasauði sem gærurnar báru, og þrátt fyrir mikil greinarskrif Ólafs Jónssonar og ann- arra um bókmenntir, hefur þeim ekki tekizt að komast inn úr gær- unni, heldur fimbulfambast þeir í óljósum hug'tökum almennum, og forðast að skýra frá því um hvað höfundar eru að skrifa. Höfundar eru bara staddir hér og þar í stiganum, aliveg eins og þeirra eina hugsjón hafi verið að komast í gærumatið. Eiga persónur að vera án sálarlífs? Þessi mikla feimni rýnanna við að fjalla um eiginlega innviði bókmennt- anna gæti stafað af því, að þeir treysti sér raunverulega ekki til þess að lesa bælkur, eða þá að það sé of- viða sálarlífi þeirra. Tailsmaður örna- bókmenmtanna segir orðrétt: ,Auk annars eru allar bókmenntir heim- ildir um samtíma og samfélag sitt, j skáldsögur um kvennamál kaup- mannsins og hjúskaparraunir héraðs. læiknisins eða sálariíf sauðaþjófsins, svo ekki séu tekin hégómleg dæmi einvörðungu." Olafur hefði getað bætt því við að þær væru liíka heim- ildir um sálarlíf snigilsins á meðan hann beygist frá nefnifal'li til eignar- falls, sálarlíf kostulegra samgrón- inga og sálarlif rassbögubálksins mikla, sem hefur frelsað oss um tíma og eilífð frá Ieiðinlegum skáld- um og ambögum eðliiégra tilfinn- inga. En Ólafs er að ljúka sinni upp- talningu. Þjóðfélagslega séð skiptir sálarlíf snigilsins mestu máli, og það er sannað mál, að endanlegtir ávöxtur nýsköpunar í prósastíl stendur og fellur með þvl sálarllfi, að viðbættu þvi sáiarlífi sem fyrir- finnst hjá forgöngumönnum örna- bókmenntanna. Selfoss - nágrennj SíSasta spilakvöldið í þriggja kvölda keppninnj verður í Skarp héðinssalnum sunnudaginn 14. marz og hefst kl. 21. Góð verð laun og veitingar. Afhent verða heildarverðlaun fyrir keppnina. Allir velkomnir, Framsóknarfélag Selfoss. FUF í Keflavík Almennur félagsfundur verð ur haldinn laugardaginn 13. marz kl. 14 í fundarsal iðnaðarmanna, Tjarnargötu 3. Dagskrá: Inntaka nýrra fé- laga, kosning fulltrúa á flokks- þing, og önnur mál. Stjórn FUF. EJ—Reykjavík, miðvikudag. Mikill misbrestur hefur orðið á, að sveitarstjórnir gæti þess að skila ársreikningum sveitarfélaga til félagsmálaráðuneytisins á til- settum tíma. Hefur ráðuncytið margoft þurft að gefa þcim við bótarfrest til að koma því í verk, og í nokkrum tilfellum „hefur þessi dráttur eða trassaskapur gengið svo langt, að ráðuneytið hefur orðið að beita ákvæðum 61. greinar sveitarstjórnarlaganna og hlutast til um rannsókn og endur- skoðun á bókhaldi, fjárreiðum og rekstri nokkura sveitarfélaga,“ sagði Hallgrímur Dalberg í ræðu á fræðsluráðstefnu um sveitar- stjórnarmál í dag. „Ég vil leyfa mér að brýna al- varlega fyrir sveitarstjórnarmönn um, að gefa gaum að hinum lög- bundna skilafresti ársreikninga sveitarfélaganna. Ráðuneytið er ákveðið í að veita vaxandi aðhald í því efni, og þætti mjög miður, ef grípa þyrfti í framtíðinni til harkalegra viðurlaga, sem geta samkvæmt 62. grein laganna ver- ið fólgin í lögsókn x-áðherra til að koma fram ábyrgð á hendur þeim sveitarstjórnarmönnum, sem ábyrgð bera á misfellum", sagði hann. Hann sagði, að einnig hefði ver ið misbrestur á að reikningar sýslusjóðs og sýsluvegasjóðs, ásamt fylgiskjölum og úrskurð- um, hafi verið sendir ráðuneytinu til staðfestingar, og hefði það und anfarið gengið hart eftir að þau drægjust ekki úr hömlu og hafi það þegar haft veruleg áhrif. Gullna hliðið sýnt átta sinnum EB—Reykjavík, miðvikudag. Síðastliðinn laugardag sýndi Ungmennafélag Reykdæla „Gullna hliðið” í 8. sinn í Loga landi fyrir fullu húsi. Sýning- arnar hafa vakið mikla athygli og þykja stórvirki, þar sem ekki á stærri aðili hlut að, en ungmennafélagið. Þessi mynd er tekin í lok sýningarinnar á laugai-daginn. Sýnir hún leikendur, en lengst til vinstri er einn aðili til við- bótar, Guðmundur G. Hagalin rithöfundur. Fór hann upp á sviðið í lok sýningarinnar og ávarpaði leikendur og aðra þá, er að uppsetningu verksins hafa staðið. Þakkaði Guðmund- ur þetta glæsilega framlag og sagði síðan frá persónulegum kynnum sínum af Davíð Stef- ánssyni, hugmyndum hans um „Gullna hliðið“ og tildrögin til þess. Var þetta ánægjulegt lokaatriði að allra dómi á mjög ánægjulegri kvöldstund. 9. sýning á „Gullna hliðinu” er á sunnudagin kemur. — ^liðapantanir um Reykholt. Svarthöfði

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.