Tíminn - 12.03.1971, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.03.1971, Blaðsíða 9
FOSTUDAGUR 12. marz 1971 TIMINN (ÞRÓTTIR 9 n LUGI í ÚRSLIT r r - SIGRAÐIISINUM RIÐLI12. DEILDISVIÞJOÐ. - JÓN HJALTALÍN ANNAR MARKHÆSTI MAÐ- UR DEILDARINNAR MEÐ 96 MÖRK í 15 LEIKJUM LUGI liS Jóns Hjaltalíns Magn ffesonar, sem hann liefur leikiS með í 2. deild í SvíþjóS s. I. tvö ár, hefur nú sigrað í sínum riðli í 2. deild. En um 70 lið keppa í 2. deiidinni í Svíþjóð. í úrslitakeppninni taka þátt sig urvegararnir úr riðlunum, sem eru 6. Oig leika þar allir við alla, og tekur þessi keppni því nokkuð langan tíma. Sigurvegararnir í riðlunum urðu þessi lið: Lugi, Bolton, Hallby, Sandvíken, Víking arna og Malmberget (Lioið, sem Ingólfur Óskarsson. lék með fyr ir nokkrum árum). Mjótt var á mununum hjá LUGI í lokasprettinum í keppninni í riðlinum. Fyrir síðasta leikinn var staðan þannig að Flottan, hafði 29 stig, en LIJGI 28, og átti LUGI þá eftir einn leik við ÍFK Ystad, en Flottan hafði lokið sínum leikj um. Varð því LUGI að sigra í síð asta leiknum til að komast í úr- slitakeppnina. Þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum, sem fram fór um síðustu helgi, hafði Ystad 1 mark yfir 15:14. En þá tók Jón Hjaltalín, sem eitt sænsku blaðanna segir að sé skotharðasti maó'urinn í Svíþjóð, — bæði með og án bolta! við sér og jafnaði, og bætti svo þrem mörkum við fyrir leikslok. Þessi mörk hans gerðu út um leikinn, LUGI sigraði 20: 17. Jón Hjaltalín var annar mark hæsti maðurinn í 2. deild í §ví þjóð, skóraði 96 mörk. Sá sem skoraði flest mörkin var félagi hans úr LUGI. Sten Áke Skog- lið áfram í skólamóti KSÍ Klp-Reykjavík, Fimm lið eru nú eftir í Skóla móti KSÍ í knattspyrnu, þar af tvö taplaus, en hin eru öll með eitt tap. Tvö töp þurfa til að lið sé úr keppni. f leikjunum um síðustu helgi urðu úrslit þau, að Kennaraskól inn, sem er taplaus, sigraði Menntaskólann við Hamrahlíð 4:2 eftir framlenigingu og Háskólinn, sem einnig er taplaus sigraði Menntaskólann í Reykjavík með sama mun 4:2. Verzlunarskólinn, sem er með eitt tap, sigraði svo Iðnskólann 2:1 og féll Iðnskólinn þar með úr keppninni. Á laugardaginn verður keppn inni haldið áfram. Þá leika á Há- skólavelli, Verzlunarskólinn — Háskólinn og Menntaskólinn í Reykjavík—Kennaraskólinn og hefst fyrri leikurinn kl. 14,00. Menntaskólinn við Hamrahlíð sit ur yfir í þessari umferð. Kynningin á ensku knatt- spyrnuliðunum, sem verið hef ur í blaðinu á föstudögum að undanförnu, kemur ekki að þessu sinni. En n. k. föstudag verður næsta lið kynnt. lund, sem skoi-aði 102 mörk, en hann lék alla leikina 18 talsins með LUGI, en Jón lék þremur leikjum minna. Þá var hann upp tekinn við aó skora fyrir Víking í 1. deildinni hér, en þar skoraði hann 28 mörk í 4 leikjum. Skog lund, skoraði mikið á því áð þeir Jón I-Ijaltalín og Eero Rinne, voru í góðri gæzlu í öllum leikjum, ög hann skoraði einnig úr vítum fyrir LUGI í síðustu leikjunum. Það eru 6 ár síðan LUGI lék í 1. deild í Sviþjóð. Á þeim tíma hefur liðið oft háð harða baráttu við að komast í úrslitakeppnina, en nú tókst það loks. Keppnin aö þessu sinni verður áreiðanlega mjög hörð og jöfn, og er engu liði spáð öruggum sigri, en tvö lið komast í 1. deild af þessum sex. LUGI varð fyrir þv? óhappi að Eero Rinne, hand- leggsbrotnaði í síðasta leiknum, og kemur það til með að veikja liQið mikið. Lokastaðan í suðurriðlinum í 2. deild varó' þessi: Lugi Flottan Vaxjö Karlskrona KFUM Lund KA 2 H 43 IKF Ystad Malmö FF Malmö BI i — 30 29 20 19 17 16 15 13 11 10 ...f.tr- Heföi verið hægt að fá hann heim Jón Hjaltalín átti að vera með íslenzka landsliðinu í leikj unum gegn heimsmeisturunum frá Rúmeníu um síðustu helgi. Hafði verið rætt við hann beg ar hann var hér að leika með Víkingi fyrir nokkru, en hann gaf ekld kost á sér, þar sem hann átti að vera í prófum í Svíþjóð um svipað leyti. Ekkert varó' þó af þeim prófum vegna kennaraverkfalls ins í Svíþjóð, og hefði bví verið hægðarleikur að fá hann heim, en landsliðsnefndin vissi ekki af þessu fyrr en of seint. Jón kemur heim mjög fljót lega úr þessu, og verður jafn- vel kominn fyrir landsleikinn (eða landsleikina) við Dan- mörku. Þá verður fróðlegt að vita hvort hann verður valinn, því sjálfsagt er landsliðsnefnd in mjög ánægð með útkomuna úr leikjunum við Rúmeníu — ( það gerir jafnteflió í síðari leiknum og ekki svo víst að hún breyti liðinu nokkuð frá þeim leik. — klp. Jón Hjaltalín skorar eitt af sínum 96 mörkum í 2. deild í Svíþjóð í vetur. Hann skoraði þessi mörk í samtals 15 leikjum, en á íslandi skoraði hann 28 mörk í 4 leikjum í 1. deild, — geri aðrir betur. T Tíí>»rtfv rffí /ln ij ) fí 6ui/loíl Jiii'idtUL>',c. 1 i ;«.t AÐALFUNDUR KNATTSPYRNUDEILDAR HAUKA verður haldinn laugardaginn 13. marz kl. 14,00 í félagsheimilinu á Hvaleyrarholti. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Stjórnin. Allir TRIMMAÐ Kominn er út bæklingur á veg- um íþróttasambands íslands og Ferðafélags íslands, sem hlotið hefur nafnið ,,Göngu trimm“. Er í þessum bækling að finna m. a. upplýsingar um gönguferð ir, stuttar og langar, sem Ferða félagið skipuleggur út frá Reykja vik í sumar. Veroa þessar ferðir 46 talsins, og var sú fyrsta farin um síðustu helgi — en ferðir verða um hverja helgi í sumar. Eru þessar ferðir mjög viðráð anlegar fyrir fól-k á öllum aldri, og eiga þær trúlega eftir að verða vinsælar. Bæklingur þessi fæst í öllum bókabúðum og Sportvöruverzlun um og kostar 25 krónur. / li§ \ 5lO/l MÚRHÚÐUN TilboS óskast í innan- og utanhúss múrhúðun á 1. áfanga barnaskólans á Reykhólum, A.-Barða- strandarsýslu. Heildargólfflötur um 11002. Efni og uppihald verður lagt til. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, gegn 2.000,00 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð 30. marz n.k. kl. 11.00. SVEFNHERBERGISSETT í MÖRGUM GERÐUM OG VIÐARTEGUNDUM SKEIFAN KJÖRGA R-ÐI SÍAAf. ,18580-16975

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.