Tíminn - 20.03.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.03.1971, Blaðsíða 1
bHasorfq MUN DAR Bergþóruqöte 3 Slrrsar 18032 — 20010 66. tbl. — Laugardagur 20. marz 1971 — 55. árg. SsísSS ■ : Frá afhendingu kirkiukiukknanna í gær. Gestir virða fyrir sér klukkurnar þrjár, sem standa á fyrstu hæS turnsins. — (Tímamynd — Gunnar). Klukkumar sem SÍS gefur Hallgrímskirkju afhentar SB—Reykjavík, föstudag. Kirkjuklukkur Hallgrímskirkju. sem eru gjöf frá Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga, voru form lega afhentar í dag. Jakob Frí- mannsson formaður stjórnar SÍS, afhenti klukkurnar, en Dr. Jakob Jónsson, sóknarprestur þakka'öi gjöfina. Þarna er um áð ræöa þrjár stórar samhringingarklukk- ur, en turnklukka og klukkuspil, er vætanlegt til landsins innan tíðar. Klukkur þessar kostuðu um 2 milljónir króna. Viðstaddir athöfnina í Hall- grímskirkju í dag voru m.a. bisk- up íslands, húsameistari ríkisins, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, sóknarnefnd og sóknarprestur Hall grímskirkju og stjórnanmenn SÍS. MÁLLAUSIR EFNA TIL RÁÐSTEFNU EJ—Reykjavík, föstudag. Á morgun. laugardag, kl. 14 hefst í Skipholti 70 ráðstefna, sem styrktar- og foreldrafélag lieyrn ardaufra gengst fyrir. Þessi ráö- stefna er vafalaust einstæð hér á landi, þar sem ráðstefnugestir eru málleysingjar, og eins mun málleysingi flytja framsöguræðu og kynna verkefni ráðstefnunnar í upphafi. Tali'ð er, að um 40 málleysingj- ar víða af landinu sæki ráðstefn- una, sem er haldin til þess að rannsaka hver séu raunveruleg kjör heyrnadaufra á íslandi og aðstæður allar. Jakob Frímannsson, formaður stjórnar SÍS, flutti ræðu og sagði hann m.a.: „Það er vissulega athyglisvert. þegar um það er hugsað nú, hví- líkur stórhugur og bjartsýni ein- kennir þá menn, sem ákváðu bygg ingu þessarar miklu kirkju árið 1942 — en þá var heimstyrjöld- in síðari í algleymingi — Máske sáu þeir ekki fyrir allan vandann, sem þeirri ákvörðun fylgdi. En hvað um það, heill sé þeim og öllum sem síðan hafa stutt að framgangi málsins með ráð og dáð. Samvinnumenn í landinu brugðust strax í upphafi við til stuðnings Hallgrímskirkju með því að gefa fyrirheitið um kirkju- klukkur þær, sem í dag eru af- hentar. Einnig mun kirkjan ó liðn um árum hafa notið veruleg liðs- styrks einstakra samvinnumanna, sem í samvinnu við aðra góða menn hafa þokað byggingarmál um Hallgrímskirkju áfram jafnt og þétt. Vssulega væri æskilegt að þessi landskirkja gæti staðið fullgerð í aðalatriðum þjóðhátíðarárið 1974 á 300. ártíð sr. Hallgríms Péturssonar. Því marki er enn hægt að ná með samvinnu allra landsmanna. Mættu klukkur kirkj unnar, sem senn taka að hljóma frá kirkjuturninum, hvetja og samstilla íslendingar í því verki — Guði til dýrðar og öllum lands- Framhald á bls. 14. tryggingamáhim yfirsterkara EB-Reykjavík, föstudag. Eins og áður — skömmu fyrir þinglok — er nú mjög anna- samt á Alþingi. Fjöldamörg þingmál þarf að afgreiða áður en Alþingi er slitið, sem að þessu sinni verður líklega um páskana. Hafa þingmenn oft upp á síðkastið minnt á það í þing- ræðum sínum, að hraða þurfi afgreiðslu ákveðinna mála, vegna umrædds skamms tíma. Ráðherrarnir eru engin undan- tekning í þeim efnurn, enda hafa þeir verið afar iðnir við það undanfarið að hrúga stjóm arfrumvörpum imn á þing. Þrátt fyrir þetta, kom það fram í dag, að einn er sá ráð- herrann, sem ekkert virðist liggja á, að fá mál sín afgreidd — að minnsta kosti ef kokkteil- boð eru annars vegar. Er hér um að ræða Eggert G. Þorsteins son heilbrigðismálaráðherra. — Hann mælti í dag á fundi efri deildar, fyrir stjórnarfrumvarp inu um hækkun ellilauna, er Tíminn skýrði frá í gær. Hér er um að ræða viðamikið nanðsynjamál og því hefðu eðli lega orðið um það allmiklar umræður í dag, áður en því yrði vísað til viðkomandi þing- nefndar. En umræðurnar vildi Eggert ráðherra ekki að svo stöddu, því að búið var aö bjóða honum og öðrum ráðherrum í kokkteilboð í tilefni vígslu nýju tollstöðvarinnar við Reykjavík- Framhald á bls. 2. FLUTT í NÝJU TOLL- STÖÐINA UM HELGINA GE-Reykjavík, föstudag. Nýja tollstöðin við Ti-yggvagötu verður tekin til almennra nota á mánudaginn. Verður flutt inn í hana á morgun, laugardag. í dag bauð Magnús Jónsson fjármálaráð herra þingmönnum og ýmsum for- ustumönnum viðskiptalífsins að skoða tollstöðina. Magnús flutti stutt ávarp, en á eftir talaði toll- stjórinn í Reykjavík, Torfi Hjartar son, og lýsti framkvæimdum og byggingunni. Þakkaði hann fyrrverandi fjár- málaráðherra og ráðuneytisstjór- um fyrir þann skilning, sem þeir hefðu sýnt á þörfinni á nýrri toll- stöð. Rakti hann sögu húsnæðis- Úr afgreiðslusal tollstöSvarinnar. (Tímamynd — GE) mála tollgæzlunnar ,og lýsti þeim þrengslum, sem hún hefði átt við að búa undanfarin ár. Það var á árinu 1956, sem ákveðið var a'ð 1% af vörugjöldum skyldi renna til byggingar nýju tollstöðvarinnar. Síðar, eða með breytingu toll-lag- anna frá 1963, var gjaldinu breytt í 0,5%. Þessi sjóður hefur staðið undir öllum framkvæmdum við toll stöðina, og hefur ekki þurft að sækja fjármagn annað. Staðurinn var valinn með tilliti til þess að stutt er í banka og pósthús. í fyrstu vantaði skipulag yfir þetta svæði, en sttrax og það var fyrir hendi var byrjað að byggja. Ofan á þaki byggingarinnar er bílastæði fyrir 105 bíla. Fimm lyft ur eru í húsinu. Sjálf tollskrif- stofan er á efstu hæðinni. Á fjórðu hæð verður skattstofan til húsa, en töluvert af húsinu hefur Eimskip á leigu. Þá mun lögreglustöðin við Pósthússtræti verða flutt í bygging una. Um leið og Torfi Hjartarson bauð gesti velkomna, sagðist hann vonast til að geta veitt betri þjón- ustu, enda væri vinnuaðstaðan betri. Bauð hann si'ðan mönnum að skoða húsið, og kynna sér skipu lag þess og gllar aðstæður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.