Tíminn - 20.03.1971, Blaðsíða 3
IíAUGARDAGUR 20. marz 1971
TIMINN
3
Marinó Þorsteinsson og Sigmundur Örn Arngrímsson í hlutverkum sinum
Frumsýndu Tópus
Leikfélag Akureyrar frumsýndi
á sunnudagskvöld gamanleikinn
Tópas eftir Marcel Pagnol, en það
er fjórða verkefni félagsins þetta
leikár. Leikstjóri er Jóhanna Þrá-
insdóttir, en leikmynd er eftir
Arnar Jónsson. Bjarni Guðmunds
son íslenzkaði leikinn. Leikrit
þetta var sýnt af Þjóðleikhúsinu
fyrir um það bil 19 árum og hlaut
þá miklar vinsældir. Fyrir nokkr
um árum var það kvikmyndað og
lék þá hinn frægi gamanleikari
Fernandel, sem nú e rnýlátinn, að
alhlutverkið Tópas.
Leikstjóri Jóhanna Þráinsdótt-
ir er Reykvíkingur og hefur stund
að nám í leikstjórn við Listaaka-
demiuna í Prag og leikhúsvisindi
við háskólann í Vínarborg. Tópaz
er fyrsta verkefnið sem hún stjórn
ar fyrir Leikfélag Akureyrar. en
hún er þriðja konan sem stjórnar
leikriti á vegum félagsins þetta
leikár.
Með helztu hlutverk fara Sig-
mundur Örn Arngrimsson sem leik
ur Tópaz, Marinó Þorsteinsson
sem leikur Castel-Benac og Þór-
ey Aðalsteinsdóttir sem leikur
Suzy. Með önnur hlutverk fara Jón
Kristinsson, Saga Jónsdóttir, Gest
ur Einar Jónasson, Þórhalla Þor-
steinsdóttir, Arnar Jónsson. Svan-
hildur Jóhannesdóttir, Helena
Gunnlaugsdóttir, Jóhann Þráins-
dóttir, Þorgrímur Gestsson, Egg-
ert Þorleifsson og auk þess kem-
ur fram hópur drengja í hlut-
verkum nemenda Tópazar.
Skip Eimskipafélagsins:
Komu 804 sinnum á
49 hafnir úti á landi
Á árinu 1970 voru 53 skip í
förum á vegum Eimskipafélags fs-
lands og fóru samtals 223 ferðir
milli íslands og útlanda. Er það
29 ferðum fleira en árið 1969.
Eigin skip félagsins fóru 146 ferð
ir og leiguskip 77 ferðir, þar af
fóru 5 innlend leiguskip 32 ferðir.
Skip félagsins og leiguskip þess
komu á árinu 1970, 804 sinnum á
49 hafnir úti á landi. Oftast komu
skipin til Vestmannaeyja 67 sinn-
um, til Akureyrar 63 sinum, Kefla
víkur 63 sinnum og Akraness 33
sinnum. Á öðrum höfnum úti á
Ir.ndi voru samtals 438 viðkomur.
KOMK) UPP UM
TÉKKAFALSARA
OÓ—Reykjavíik. föstudag.
Rannsókarlögreglan í Hafnar-
firði hafði í gær upp á ávísana-
föslurunum, sem notuðu ávísana-
eyðublöð sem sérstaklega voru
prentuð til kennslu í gagnfræða-
skólum, til að svíkja út fé. Fals-
ararnir reyndust vera tvær 15 ára
skólastúlkur í Hafnarfiiði og föls
uðu þær alls þrjár ávísanir, tvær
upp á þúsund krónur og eina
tveggja þúsund kr. ávisun. Tvær
ávísananna seldu þær í Reykja-
vík og eina í Hafnarfirði. Eins og
skýrt var frá í Tímanum voru
ávísanir þessar prentaðar og yfir-
prentaðar, eingöngu til að nota
við kennslu í viðskiptafræðum í
gagnfræðaskólum. Voru þær að
öllu leyti eins og ávísanir Verzl-
unarbankans, nema að ekkert
,,seríunúmer“ var á þeim og prent
að var yfir þær stórum rauðum
stöfum „ógilt eintak“. Þetta var
skafið út og var það illa gert. en
samt tókst að selja ávísanirnar,
og jafnvel þótt þær væru einnig
vitlaust útfylltar.
Stúlkurnar skrifuðu nauðsynleg
númer á eyðublöðin, en undirskrift
in var nafn einnar skólasystur
þeirra, sem annars átti engan
þátt í svikunum.
Þegar lögreglan í Hafnarfirði
náði stúlkunum viðurkenndu þær
falsanirniar, en öllum peningun
um vonu þaer búnar að eyða.
Stolið af
þvotta-
snúrum
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Hafnfirzkar húsmáeður mega
vara sig á að skilja ekki eftir
þvott á snúrum sínum yfir nóttina
nú í þurrki og veðurblíðu. Þvott-
urinn á það nefnilega til að hverfa
í næturmyrkrinu, og hefur kveð-
ið nokkuð að þessu undanfarið. í
fyrrinótt var stolið þvotti af snúr-
um á fjórum stöðum í Hafnar-
firði. Var hið eigulegasta af þvott
inum hirt úr en annað skilið eftir.
Það, sem þvottaþjófurinn hafði
aðallega áhuga á, voru sængur-
ver, lök og koddaver, og alveg sér
staklega fatnaður af börnum um
þriggja ára að aldri.
Einnig var stolið öllum kven-
nærbuxum sem til þerris voru, en
það er reyndar engin ný bóla, því
iöngum hefur viljað við brenna
að kvenbuxum sé stolið af þvotta-
snúrum, og leikur grunur á, að
þeir sem þar eru að verki, séu ekki
beinlínis buxnaþurfi.
Leitin árangurslaus
SB—Reykjavík, föstudag.
Leit að rækjubátnum Víkingi
frá Hólmavík, sem hvarf á Húna-
flóa í fyrradag, var haldið áfram
í dag, aðallega á sjó. Fjöruleit
er mjög erfið, vegna klaka og
kraps. Brakið, sem fannst í Kóngs-
ey í gær, reyndist vera matarkista
af Víkingi, Ákvörðun verður tek-
in um það í kvöld, hvort leit verð
ur haldið áfram.
Andrés Önd
ogfélagar
Vegna mikillar aðsóknar um síð-
ustu helgi, endurtaka Andrés önd
og félagar barnaskemmtun í Há-
skólabíói á morgun, sunnudag,
kl. 1.15 e.h. Fyrst spilar skóla-
hljómsveit Kópavogs, þá verður
kvikmyndasýning —- teiknimynda-
syrpa, „Þrjú á palli“ syngia nýja
skemmtidagskrá fyrir börnin. Þá
stjórnar Svavar Gests ýmsum
leikjui. og hefur spurninga-
keppni, þar sem mörg góð verð-
laun verða veitt.
Um leið og skemmtuninni lýk-
ur fá öll bömin afhenta sérstaka
gjafapakka frá Andrési önd.
Allur ágóði rennur til barna-
heimilisins að Tjaldarnesi og líkn-
arsjóðs Þórs, — (Lionsklúbburinn
Þór).
TONLEIKAR
í BIFRÖST
JE-Borgarnesi, föstudag.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar efn
ir til tónleika að Bifröst sunnudag-
inn 21. marz n.k. Nemendur Tón-
listarskólans í Reykjavík koma
fram á tónleikunuim, bæði söngvar-
ar og hljóðfæraleikarar.
Á efnisskrá eru verk eftir Dvor-
ak, Gabriel Fauré, Chopin, Grieg,
Lizt, Mozart, Karl Ó. Runólfsson
og Snorra Birgisson.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar hef
ur starfrækt tónlistarskóla í 4 ár.
Skólastaðir hafa verið 4, Borgar-
nes, Kleppsjárnsreykir, Varmaland
og Leirá. Aðsókn að skólanum fer
vaxandi. Nemendur eru nú yfir
90. Kennarar eru fjórir. Skólastj. p
er Jón Þ. Björnsson. Félagsmenn B
í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar eru
um 150.
Ljósafoss í höfn í Vestmannaeyjum.
i
Myndarlegur
uppgangsstaður
Höfn í Hornafirði er mikill
myndar- og uppgangsbær. Þar
er rekið öflugt kaupfélag, sem
m a. rekur arðbezta frystihús-
ið í landinu. Kaupfélagið hef-
ur um Iangt árabil notið for-
ystu Ásgríms Halldórssonar,
kaupfélagsstjóra, og er ekki of
mælt að framsýni hans og hag-
sýni hafi átt sinn drýgsta þátt
í velferð kaupfélagsins og
íbúanna í Höfn, því að kaup-
félagið er langstærsti atvinnu-
rekandinn á staðnum og nam
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða frá Hornafirði 240 millj.
króna á s.l. ári.
í myndarlegri frásögn hér í
Tímanum fyrir nokkru um
Hornafjörð sagði m.a.:
„Kaupfélagið rekur frysti-
húsið á staðnum, og auk þess
saltfiskverkun og skreiðarverk-
un. Frystihússtjóri er Óskar
Guðnason. f undirbúningi er
nú bygging nýs frystihúss, en
gamla frystihúsið er orðið allt
of lítið, og sérstaklega vantar
frystigeymslur. Undirbúningur
er þegar hafinn að byggingu
hússins, og er búið að sprengja
fyrir grunni þess á Kross-
eyju, sem reyndar er nú ekki
lengur eyja, en er við höfn-
ina. Ráðgert er að hefja bygg-
ingu hússins á þessu ári, en
það verður byggt í þrem áföng-
um. Fyrst verða frystigeymsl-
urnar byggðar, þá vélasalur
ásamt móttökusal jg síðast á
að byggja fiskmóttöku. Kostn-
aðaráætlun við bygginguna
hljóðar upp á urn 75 milljónir
króna, og á allt húsið að vera
f””"míðað á árunum 1973—
1975.
Fastráðið starfsfólk kaup-
félagsins er 50—60 manns, en
verkafólk er 120—150 manns
auk þcss sem margt aðkomu-
fólk er starfandi á vegum kaup
félagsins yfir vctrarvertíð, svo
alls er starfsfólk kaupfélags-
ins þá á þriðja hundrað manns
að staðaldri. Vinnulaunagreiðsl
ur námu á s.l. ári nærri 50
milljónum króna, en félagið
varð einmitt fimmtíu ára þá.
Vörusala félagsins nam á s.l.
ári um 150 milljónum króna,
og lieildarveltan röskar 400
milljónir króna, sem er um
30% aukning. Félagsmenn
voru um áramótin 450 talsins
og hafði fjölgað nokkuð á ár-
Stóri draumurinn
f viðtali við Tímann skýrðu
þeir Sigurður Hjaltason, sveit-
arstjóri og oddviti, og Óskar
Helgason, póst- og símstöðvar-
stjóri og formaður kaupfélags-
ins í Höfn, m.a. um stærsta
hagsmunamál íbúanna í Horna-
firði:
„Okkar stóri draumur er
vega- og brúargerð á Skciðar-
ársandi,“ segir Óskar, „og
finnst okkur að hringvegur í
kring um Iandið ætti að vera
númer eitt í vegaframkvæmd-
um, þegar frá eru taldar hrað-
brautarframkvæmdir £ kring
um höfuðborgina. Okkar skoð-
un er sú, að byrja eigi strax
á vegalagningu og brúargerð
Framhald á bls. 14.