Tíminn - 27.03.1971, Qupperneq 1

Tíminn - 27.03.1971, Qupperneq 1
 ....... .,>v|,^-,« ',- 1N* ‘* # *' «#« 0*»'» llll®i Drengurinn enn með- vitundarlaus OÓ—Reykjavík, föstudag. Jón Marteinn Andréassen, sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugarinnar í Laug ardal í gærmorgun er enn rænulaus á gjörgæzludeild Borgarspítalans. Er hann þungt haldinn og tvísýnt um líf hans. Ekiki er vitað með vissu hve lengi drengurinn, sem er 9 ára að aldri, iá í vatninu. Þeg ar hann náðist upp var hjarta hans hætt að slá. en strax voru hafnar lífgunartilraunir með blástursaðfeið og hjartahnoði. Hóf hjarta hans brátt að slá aftur. Var pilturinn fluttur í sjúkrabíl í Borgarspítalann þar seim allt er gert sean hægt er til að bjarga lífi hans. SIÐARI HLUTI FYLGIR TÍMANUM í DAG YAHYA KHAN forseti Pakistan MUJIBUR RAHMAN leiStogi A-Pakistn Kortið til vinstri sýnir Pakistan i heHd, en kortið tii hægrl Austur-Pakistan sérstaklega. Á milli austur- og vesturhlota Paklstan eru um 1000 míior. Yahya Khan, forseti, reynir að faka Ausfur-Pakistan með hervalcíi: Austur-P akistanar segja sig úr lögum við vesturhlutann ic Borgarastyrjöld geisar nú í Pakistan, efttr að Mohammed Yahya Khan, forseti landsins, hef- ur fyrirskipað hernum að taka yfir stjórn Austur-Pakistan. Hefur komið til blóðugra bardaga þar, og margir fallið að sögn frétta- stofa. Leiðtogi A-Pakistana, Muji- bur Rahman, svarði hernaðarað- gerðum Pakistanstjórnar með því að lýsa yfir sjálfstæði Austur- Pakistan. Hvatti hann landsmenn til þess að veita hernum aUa þá mótspyrnu, sem mögulegt væri. Það var seint í gær, sem fréttir bárust um að Yahya Khan hefði sent herlið til Austur-Pakistan með fyrirskipun um að taka við stjóm landsins og berja niður alla mótspymu. Var viðbótarlið sent þangað í dag, og em nú um 70 þúsund hermenn í stjómar- hcrnuT? í Austur-Pakistan. Nokkru eftir að hernaðaraðgerð ir hófust hélt Mujibur Rahman ræðu um leynilega útvarpsstöð og Stjórnarfrumvarp um Þjóðleikhúsið: ÞjóðleikhússtjóH verði ráðinn til 4 ára í senn lýsti yfir sjáifsteeði Væri Austur-Pakisteai nú strclt alþýðulýðveiffi undir nafn- inu Bangla Desh. Hvatti hazm áQa landsmépn, sem era mn 75-miUjón ir talsins, að veita her Pakistan- stjómar alla þá mótspymu, sem möguleg væri. Fréttir hexma að barbst bafi. ver ið viða í landinu í dag, ma. i Dacca, sem er höfuðborg Anstur- Pakistans, og hafi mikið mannfaiH orðlð. Nákvæmar frétfir Hggja hins vegar ekki fyrir um ástanÆS. Ljóst er bins vegar, að þær deild- ir hersins í Austur-Pakistan, sem eingöngu em skipaðar Austur- Pakistönum, berjast gegn stjórn- arhemum og eins Kgregiulið landsblutans. LANGUR AÐDRAGANDí. EB—Reykjavík, föstudag. Stjórnarfrumvarp um Þjóðleik- húsið var í dag lagt fyrir Al- þingi og var til 1. umræðu í efri deild. — f frumvarpinu felasí margháttaðar breytingar frá gild- andi löggjöf um Þjóðleikhúsið. M. a. er kveðið á um það í frum- varpinu að þjóðleikhússtjóra skuli ráða til fjögurra ára í senn, og megi endurráða sama mann einu sinni, þannig að enginn geti gegnt þessu starfi samfellt lengur en átta ár. Þá er lagt til, að leikár Þjóðleikhússins verði framvegis frá 1. september til 31. ágúst, en ekki frá júlíbyrjun til júníloka eins og nú er. Aðrar veigamestu breytingarn- ar er felast í frumvarpinu em þessar: • 1) Kveðið er skýrar á um það en áður, að þótt flutningur leik- rita sé aðalhlutverk Þjóðleikhúss- ins, beri því einnig að flytja og sýna óperu og sýna listdans að staðaldri og að á hverju leikári skuli eitt eða fleiri viðfangsefni sérstaklega ætlað börnum. 2) Skipan þjóðleikhússráðs er gjörbreytt. Starfstímabil þess er tímabundið og fulltráun í því fjölgað til þess að það geti orðið vettvangur sem flestra þeirra, er leikhúsreksturinn varðar. 3) Myndað er fimm manna framkvæmdaráð, þ.e. 4 auk þjóð- ieikhússtjóra. 4) Ráða skal leikhúsinu bók- mennta- og leiklistarráðun. (drama turg), listdansstjóra (balletmeist- ara) og tónlistarráðunaut. 5) Miða skal við, að svo margir leikarar, söngvarar og listdansar- ar starfi við Þjóðleikhúsið, að það geti jafnan leyst af hendi þau verkefni, sem því ber að sinna. 6) Lögfest sé, að blandaður kór starfi við leikhúsið. 7) Þjóðleikhúsi og sjónvarpi er ætlað að koma á fót leikmuna- safni, er Leikfélag Reykjavikur og önnur leikfélög geta gerzt aðilar að, en safnið leigi búninga, leik- tjöld og annan sviðsbúnað til leik- félaga. 8) Lögð er á .^rzla á aukið sam- starf Þjóðleikhússins við leikfélög Framhald á bls. 2. Deilan milli Austur- og Vestur- Pakistans, sem nú hefur endað í borgarastyrjöld, á sér langan að- draganda. Austur-Pakistanar hafa lengi verið óánægðir með hlut sinn og talið, að rfldsstjóm landsins, sem hefur aðsetur sitt í Vestur-Palí.istan, hafi lítt skipt sér af málefnum Austur-Pakistan Framhald á bls. 14. Vilja fá 43,9% hækkun á iðgjöldum bílatrygginga FB—Reykjavík, mánudag. Fyrir viku barst heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu um- sókn frá tryggingafélögunum um að fá að hækka iðgjöld af ábyrgð artryggjngum bifreiða um 43,9% á tryggingaári því, sem hefst 1. maí næstkomandi. Ráðuneytið hef ur sent Efnahagsstofnuninni um- sóknina til athuguuar, og hafa niðurstöður þeirrar athugunar ekki borizt eun, samkvæmt upplýs ingum Páls Sigurðssonar raðu- neytisstjóra. Tryggingafélögin bera fyrir sig, að gífurleg kostn a'ðarhækkun hafi orðið undanfar ið, og sé því óhjákvæmilegt, að liækka iðgjöldin til þess að hægt verði að mæta tjónum ársins, sem er íramundan. I Blaðið sneri sér til Ásgeirs Magriússonar framkvæmdastjóra Samvinnutrygginga, og spurði hann um þessa 43,9 iðgjaldahækk un. sem sótt hefur verið um leyfi fvrir. Hann sagði: — Við teljum þetta vera lág- markshækikun til þess að ábyrgð artrysgingar bifreiða geti staðið undir sér á tryggingaárinu, sem hefst núna 1. maí. Kostnaðarhækk anirnar eru gífurlegar. Það em hækkanir á sjúkrakostnaði, út- seldri vinnu á bílaverkstæðunum, það eru hækkanir á varahlutum, og það eru hækkanir á slysabót um, sem koma fram vegna þess að vinnulaunin hækka. Þessar hækkanir, sem við emm að fara Framhald á bls. 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.