Tíminn - 27.03.1971, Síða 2
TIM1NN
LAUGARDAGUR 27. marz 1971
Fernt flutt á
stysavarðstofuna.
eftir árekstur
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Hjón og tivö böm þeirra
voru flutt á slysavarðstofuna
eftir harðan bílaárekstur í dag.
Ekki var talið að neitt þeirra
væri stórslasað. Áreksturinn
varð á mótum Framnesvegar
og Hringbrautar.
Stór, ameríðkur fólksbíll ók
austur Hringbraut en Skoda
bíll ók noiður Fremnesveg. Á
gatnamótunum Skullu bilamir
saman og varð harður árekst
ur. í Skodanum vora hjón og
tvö börn þeirra, 10 og 14 ára
gömul. Voru þau í rannsókn
á slysadeild Borgarspítalans
þegar síðast fréttist.
Önnur konan sem slasaðist í
gær í árekstri á Miklubraut
reyndist hafa mjaðmagrindar-
og handleggsbrotnað. Hin kon
an, sem ók bílnum, liggur með
slæm höfuðmeiðsli. Auk þess
era báðar konumar víða marð
ar og skrámaðar. Bömin voru
minna meidd en ætlað var í
fyrstu.
VILJA KOSTA ADRA LIST-
SÝNINGU TIL NORÐURLANDA
Bkfci linnir ofeófcnum gegn nótt-
úrunnl Nú berast þær fréttir sunn-
an frá Þýzkalandi, að á unidanföm
am árum haf! verið læðzt norður é
Atlantshaf tH að sökkva þar tunn-
um í þúsundatali fullum af eitruðum
úrgangsefnum. Fylgir jafnframt sú
huggunarrfka fullyrðing þeirra, sem
þannig hafa unnið að því að gera
Atlantshaflð milli Islands og Noregs
að eiturhafi, að það muni taka mjög
langan tima fyrir tuenumar að
ryðga vegna þess, hive súrefnisinni-
halld sjávarins sé Jágt á tvö þúsund
rnetra dýpi. Þetta jafngildir yfirlýs-
ingu um það, að eiturhafið verði
efcfci banvœnt í tíð núlifandi kyn-
slóða, og þaT með sé mállnu borgið.
En þá fcernur að þeirri spumimgu,
hvort nútíminn beri enga ábyrgð á
framtíölnni, og hvort tæknibrjáliæð-
ið sé orðið það miMð og óviðráðan-
legt, að í dag séu til siðferðileg rök
fyrir því að drepa fisk, fugia og fólk,
einungis af því að það á að gerast
einhvem tima í óátoveðinni fram-
tíð. Sllífct alræðisvald geta ekki nema
glæpamenn tekið sér, og það er vlst
bezt að vera ekkert að tvínóna við
að gera sér grein fyrxr því, að þeir
sem nú taka sér fyrir hendur að
eitra jörðina með eins konar löngum
víxli á jarðlífið í framtíð, og bera
fyrir sig súrefnisleysi og mikið dýpi,
fcomast efcki undan þvi að vera flokk-
aðir með meistumm gjöreyðingar-
innar.
Eitraðar dætor
Atlantshatsirvs
Þó að eitunflutningar í hafið milli
Islands og Noregs séu aðeins brot
af þeirri glæpastarfsemi, sem nútíma
maðurinn telur sér heimilt að iðlka
gegn framtiðinni, ætti íslendingum
að verða betur ljóst en áður, að
eitruninni hefur verið varpað að
dyrum þeirra. Með það í huga ætti
þeim að verða betur ljóst en áður,
að fcominn er tímL til að hefja að-
gerðir hér innanlands, tfl að hindra
að tæfcnibrjólæðið nái hér yfirhond-
inni einnig. Isliamd er það norðaT-
llega á hnettinum, að spjöll senx hér
eru unnin á náttúru landsins, verða
seint bætt, vegna þess að öll gróð-
unmögnun er hér miklu hægari en
sunnar á hnettinum. Komandi kyn-
slóðir mega alveg eins búast við
því að landið umljúki eituThaf. Verði
einnig leyft með undanl'átssemd að
vinna stórspjöll á landinu sjólfu,
oyða náttúrugæðum þess í þágu
framvindunnar — því tæknibrjálœð-
ið er stundum nefnt því nafni — þá
gætu landsmenn staðið frammi fyr-
ir nýrri ördeyðu — sem í engu væri
frábrugðln ördeyðu myrkuraldanna,
að öðru leyti en þvi að efckert yrði
hægt að endurrelsa. Þá dygði enginn
Skúli fógeti, jafnvel þótt hann giengi
skartbúinn á móti Ægisdætrum, af
þvl að dætur Atlantshafsins verða
eitraðar í framtíðinni.
Svarttiöfði
FB—Reykjavík, föstudag.
— Norræna húsið vildi gjarnan
taka þátt í því að senda í annað
sinn listsýningu til Norðurland
anna, svipaða þeirri, sem um
þessar mundir er á ferð í Nor
egi og Svíþjóð sagði Ivar Eske
land, forstjóri Norræna hússins,
á blaðamannafundi nú fyrir
skömmu, er skýrt var frá, hvernig
íslenzku llstsýningunni hefur ver
ið tekið í þessum tveimur lönd
um. Hafa sex verk listamannanna
Vilhjálms Bergssonar, Gunnlaugs
Gíslasonar og Ragnars Kjartans
sonar selzt á sýningunni, og eru
menn mjög ánægðir með þá sölu.
ívar Eskeland sagði, að hefði
Félag ísl. myndlistarmanna áhuga
á að efna síðar til annarrar slíkr
ar sýningar væri Norræna húsið
reiðubúið að standa undir kostn
aði að sýningarferðinni, t. d. til
Finnlands, Danmerkur eða Fær
eyja. Sýning sú. sem nú er hald
in í Noregi og Svíþjóð er stærsta
íslenzka sýningin, sem send hef
ur verið utan frá því Rómarsýn
ingin var 1956. Á sýningunni nú
eru veik eftir 17 núlifandi lista
menn, og eru verkin 78 talsins.
Listamennimir, sem eiga verk á
sýningunni eru bæði innan og
utanfélagsmenn Félags ísl. mynd
listaimanna.
Forgöngu að sýningunni hafði
ívar Eskeland forstöðumaður Nor
ræna hússins hér. Við opnun sýn
ingarinnar f Bergen komst hann
að orði á þá leið, að sýningin
ætti efcki einungis að kynna ís-
lenzka list. heldur væri hún hald
in í þeirri vissu, að norskir og
sænskir listamenn mættu af
henni læra. Við sama tækifæri
lét forstjóri norska ríkissafnsins
Per Rom svo urnmælt, að sýning
in væri „spennandi, leitandi, sterk
og sjálfstæð". Yfirleitt luku norsk
blöð lofsorði á sýninguna í heild,
og töldu gagnrýnendur, að hún
væri sérstaídega vél samansett og
bæri að því leyti af norskri sýn
Að ósk Sambands sveitarfélaga
í Austurlandskjördæmi hefur
Eimskipafélagið ákveðið að í
framtíðinni verði Reyðarfjörður
aðalhöfn fyrir Austfirði, og gildi
sömu reglur um flutninga þangað
og til annarra aðalhafna eins og
t d. ísafiarðar <n> Akurevrar. sem
ingu sömu tegundar, sem hafði
verið þar á ferð .Jafnframt gætti
þess í blaðadómuim að sýningin
þótti fjölbreytt og kom að ýmsu
leyti á óvart, sbr. t.d. eftirfarandi
ummæli Romsdalsposten, 9. nóv.
s. 1. „Maður stendur undrandi
frammi fyrir þessum verkum. Við
höfum einkum búizt við hefðbund
inni list, mótívum eins og græn
um högum. gráum fjöllum, hrauni
gufuhverum, gljáandi síld og
söltum sæ. Hins vegar stendur
maður hér allt í einu frammi fyr
ir 17 íslenzkum listamönnum, sem
spanna vítt svið og bera vitni
þeim meginstraumum, sem sprott
ið hafa fram í evrópskum mynd
listarheimi undanfarin 20—30 ár.“
Viðbrögð blaðagagnrýnenda við
sýningunni aknennt eru mjög á
þessa lund. Greinilegt er, að þessi
sýning vekur áhuga manna, þar
sem hún fer, og eins hitt, að all
mikil vanþekking hefur ríkt um
þróun íslenzkrar myndlistar a.m.k.
hinnar nýrri hjá frændum vorum
á þessum slóðum.
Það var sýningarnefnd Félags
ísl. myndlistarmanna, sem valdi
verkin á þessa sýningu. Fc :maður
nefndarinnar, sem valdi verkin
var Einar Hákonarson, en núver
andi formaður sýningarnefndar fé
lagsins er Bragi Ásgeirsson. í
Stjóm félagsins eru þeir Valtýr
Pétursson, Kristján Davíðsson og
Ragnar Kjartansson. f sýningar-
nefndinni eru hins vegar 8 lista
menn, og skiptist nefndin í þrjá
myndhöggvara og 5 málara, og
er það hlutfall ávallt hið sama.
42 tonn af ýsu
SB—Reykjavík. föstudag.
GIsli Ámi kom til Þorlákshafn
ar í kvöld með rúm 42 tonn af
ýsu. sem hann fékk austur af
Stokkseyri í dag. Von var á Þor
steini í kvöld með um 30 tonn
af ýsu. Ýsan fer væntanlegg til
vinnslu í frystihúsum í Reykjavík.
hvor um sig er aðalhöfn í við-
komandi landshlutum.
Aðalhafnir Eimskipsfélagsins
eru nú alls átta á landinu og eru
þær auk Reyðarfjarðar, Reykja-
vík. Hafnarfjörður. Keflavík. Vest
mannaeyjar. ísafjörður Akureyri
<>x> Húsavík.
Grafíksýning í
listasafni ASl
SB—Reykjavík, föstudag.
Dönsk graflistarsýning verður
opnuð á morgun í Listasafni Al-
þýðusambands íslands að Lauga
vegi 18. Sýningin er á vegum
Norræna hússins, kom hingað frá
Kaupmannahöfn, en hefur undan
farið verið sýnd í fleiri löndum.
Myndirnar eru 57 talsins. eft-
ir sex danska listamenn.
Listamennirnir eru þeir Povl
Christensen Petrea og eru 10
myndir úr Fást meðal verka hans
á sýningunni, Henry Heerup,
Palle Nielsen, Dan Sterup-Han-
sen. Svend Wiig Hansen og
Mogens Zieler.
Sýningin verður opin fram und
ir páska, alla daga frá kl. 2—6.
Þjóðleikhúsið
Framhaild af bls. 1
áhugamanna, t.d. með því að láta
þeim í té leikstjóra og gistileik-
ara.
9) Árlega skulu farnar leikferð
ir um landið á starfstíma Þjóðleik
liússins.
10) Komið skal á fót sérstökum
leiklistar-, sönglistar-’ og listdans-
skóla ríkisins.
11) Komið skal upp öðru leik-
sviði til eflingar starfsemi leik-
hússins .
Þetta frumvarp er samið af
nefnd sem menntamálaráðherra
skipaði í fyrravetur til þess að
endurskoða löggjöf og reglugerð
um Þjóðleikhús. f nefndina voru
skipaðir Birgir Thorlacius, for-
maður, Baldvin Tryggvason og
Þórður Eyjólfsson.
Þegar frumvarpið var til 1. um-
ræðu í dag, minnti Einar Ágústs-
son 4 frumvarp það er hann lagði
fyi- þingið í haust um að stofn-
aður yrði leiklistarsfcóli, og er það
ekki í fyrsta skipti sem hann flyt
ur frumvarp um það efni, en rhí-
isstjómin hefur ekki viljað sam-
þykkja það. Einar sagði, að í frum
varpi því, er nú væri til nmræðu,
væri að óverulegu leyti komið til
móts við frumvarp það er hann
flutti um rikisleiklistárskólann. f
20. gr. Stjórnarfrumvarpsins stæði
að menntamálaráðuneytið setti
nánari ákvæði um skólann í reglu
gerð. Sagði Einar að það ætti að
vera í verkahring Alþingis að gera
það. — Þá spurðist Einar Ágústs-
son fyrir um það, hvort ríkisstjórn
in legði áherzlu á að þetta stjórn-
arfrumvarp yrði samþykkt á þessu
þingi.
Gylfi Þ. Gfslason, menntamála-
ráðherra, sagði að of skammur
tfmi væri nú til þingloka til þess
að afgreiða frumvarpið. — 1. um-
ræðu lauk og var frumvarpinu
þvl næst vísað til nefndar.
Skákkeppnin
Svart: Taflfélag Aknreyran
Jóliann Snorrason og
Margeir Steingrimssoa
VgD0350e
Hvftt: Taflfélag Reykjavíkur>
Gunnai Gunnarsson
og Trausti Björnsson.
34. leikur svarts: Rd6xe4ý.
stérfrétts
VOGUE
OPNAR
fjórfalt stærri verzlun á tveimur hæðum að
Skólavörðustíg 12.
VOGUE
GEFUR
heppnum viðskiptavini efni,að eigin vali í
kjól og kápu,ásamt saumalaunum.
ÞÉR
TAKIÐ
þátt í „opnunarhappdrættinu*/ dagana frá
27. marz til 3. apríl að báðum meðtöldum,
ef þér skrifið greinilega nafn og heimilis-
fang aftan á kassakvittun yðar.er þér verzl-
ið í Vogue þessa áðumefndu daga. Stingið
kvittuninni í safnkassa við útgöngudyr
Vogue Skólavörðustíg 12.
VERIÐ VELKOMIN
í Vogue,takið þátt í opnunarhappdrættinu
og njótið framvegis hinna bættu aðstæðna
í stærstu álnavöruverzlun landsins. Allar
tegundir vefnaðarvöru. Allt til sauma í
Vogue Skólavörðustíg 12. Opið tilklé í dag
REYÐARFJORÐUR AÐAL-
HÖFN FYRIR AUSTFIROI
I