Fréttablaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 10
Bandaríska flugfélagið SpiritAirlines bauð nýverið upp á
ókeypis ferðir þann 11. septem-
ber. Um er að ræða 90 flugferðir
til 14 landa. Ferðirnar seldust
upp á 8 klukkustundum. „Himinn
á að vera uppfullur af Banda-
ríkjamönnum þann 11. septem-
ber,“ sagði forstjóri fyrirtækisins
þegar tilkynnt var um hinn fríu
flug. Uppátækið mun kosta flug-
félagið rúmar 40 milljónir króna.
Að minnsta kosti 13 manns fór-ust og tæplega 30 særðust í
sprengingum í Bogota, höfuðborg
Kólombíu í gær, nokkrum mínút-
um áður en Alvaro Uribe sór eið
sem næsti forseti landsins.
Sprengjurnar sprungu nokkrum
húsasundum frá þinghúsi lands-
ins þar sem Uribe tók við emb-
ættinu.
AðstoðarutanríkisráðherraAngóla hefur hvatt Samein-
uðu þjóðirnar til að hjálpa stjórn-
völdum landsins og fyrrverandi
uppreisnarmönnum UNITA-sam-
takanna að byggja upp gott sam-
starf. Segir hann það nauðsynlegt
til að friður haldist í landinu.
Tvær manneskjur fengu lítils-háttar skrámur þegar stálbrú
fyrir ofan stóran vatnstank í sæ-
dýrasafni í Bandaríkjunum, gaf
sig. 10 manns lentu ofan í tanknum
sem var fullur af hákörlum.
Hormón sem getur dregið úrmatarlyst fólks um þriðjung
hefur verið uppgötvað af vísinda-
mönnum. Vonast er til að uppgötv-
unin geti hjálpað fólki sem á við
offituvandamál að stríða að losna
við aukakílóin. Hópur vísinda-
manna við rannsóknarstofur i
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Ástralíu vann saman að rannsókn-
inni.
Franskur dómstóll hefur fyrir-skipað lokun vefsíðu hægri-
öfgahreyfingar sem tengist
manninum sem talið er að hafi
ætlað að myrða Jacques Chirac,
Frakklandsforseta, á þjóðhátíðar-
degi Frakklands.
9. ágúst 2002 FÖSTUDAGUR10
SAKAMÁL Lögreglan á Englandi
birti í gær myndir frá eftirlits-
myndavél sem sýnir stúlkurnar
Holly Wells og Jessicu Chapman
ganga fram hjá íþróttamiðstöð
skammt frá heimilum þeirra í
þorpinu Sohma í austurhluta
Englands. Myndirnar voru tekn-
ar skömmu áður en þær hurfu
sporlaust síðast liðið sunnudags-
kvöld. Var aðeins fimm mínútna
gangur frá íþróttamiðstöðinni
að heimili annarrar stúlkunnar.
Lögreglan hefur beðið fjórar
manneskjur sem sáust á mynd-
unum nokkrum mínútum eftir
að stúlkurnar sáust, að gefa sig
fram. Ók fólkið burt á tveimur
bílum án þess hitta stúlkurnar.
Víðtæk leit stendur enn yfir
að Holly og Jessicu og taka um
250 lögreglumenn þátt í leitinni,
að því er kom fram á fréttavef
Sky.
Blöðin The Sun og The News
of the World hafa í sameiningu
boðið tæpar 20 milljónir króna
fyrir þann sem getur leyst
leyndardóminn um hvarf
stúlknanna.
Hvarf tveggja enskra vinkvenna:
Eftirlitsmyndavél
kom auga á stúlkurnar
BAGDAD, ÍRAK, AP „Allir þeir sem
ætla að ráðast á Írak munu deyja
vegna mistaka sinna,“ sagði
Saddam Hussein, forseti Íraks í
sjónvarpsávarpi sínu í gær. 14 ár
voru þá liðin frá því að átta ára
stríði Íraka og Írana lauk. Í ræðu
sinni minntist Saddam ekki bein-
um orðum á kröfur bandarískra
og breskra ráðamanna um að
hleypa vopnaeftirlitsmönnum
Sameinuðu þjóðanna inn í landið.
Sagði hann þó að „illir aðilar“
ógnuðu þjóðum araba og músli-
ma í heiminum. Ef nauðsyn
krefðist þyrftu landsmenn að
vera tilbúnir til að verja sig. Um
15 þúsund meðlimir í hreyfing-
unni „Her Jerúsalems“ gengu
um götur Bagdad, höfuðborgar
Íraks, í gær til að lýsa yfir
stuðningi sínum við forsetann.
Gengu þeir með myndir af
Saddam auk palestínskra og íra-
skra fána.
Saddam krafðist í ræðu sinni
svara við þeim 19 spurningum
sem Írakar létu Kofi Annan,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, fá á fundi í mars, sem
öryggisráð SÞ hefur ekki enn
svarað. Um ýmsar kvartanir
Íraka er að ræða, þar á meðal
umfang vopnaeftirlits í landinu
og horfur á hugsanlegri árás
Bandaríkjanna.
Miklar vangaveltur hafa und-
anfarið verið uppi um hvort
Bandaríkjamenn ætli að ráðast á
Írak og steypa Saddam af stóli.
Segja bandarísk stjórnvöld að
Írakar séu að þróa gjöreyðingar-
vopn og þess vegna þurfi að
stöðva þá. Bandamenn Banda-
ríkjanna í málefnum Mið-Aust-
urlanda hafa hvatt þá til að efna
ekki til árása á Írak.
Nýlega buðu Írakar vopnaeft-
irlitsmönnum Sameinuðu þjóð-
anna að heimsækja landið til að
ræða við þá um að endurvekja
vopnaeftirlit í landinu. Banda-
ríkjamenn segja boðið vera brel-
lu af hálfu Íraksstjórnar.
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili
á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Árásir á Írak dæmd-
ar til að mistakast
SADDAM
Saddam Hussein flytur sjónvarpsávarp sitt. Hann segir ekki ráðlegt fyrir aðrar þjóðir að ráðast á Írak.
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF
Saddam Hussain heldur sjónvarpsávarp fyrir þjóð sína. Segir „illa aðila“
ógna þjóðum araba og múslima.
BRÉF TIL BLAÐSINS
GRÁTANDI FORELDRAR
Kevin Wells og Nicola Wells, foreldrar hinnar 10 ára gömlu Holly, brustu í grát á blaða-
mannafundi sem haldinn var á miðvikudaginn.
AP
/M
YN
D
AP/M
YN
D
Bjórframleiðandinn Carlsberggerði það gott á fyrra helm-
ingi ársins. Sala á bjór jókst um
22% en sala á gosdrykkjum um
4%. Hagnaður fyrirtækisins eftir
skatta var 672 milljónir danskra
króna, á móti 593 milljónum í
fyrra. Tekjuaukningin skýrist
aðallega á auknum umsvifum í
Evrópu.
Atvinnuleysi hefur ekki veriðminna í Danmörku síðan árið
1976. Í júní voru 128.000 manns
atvinnulausir. Tala þeirra sem
ekki vinna er þó mun hærri bend-
ir Berlingske tidende á. Fjölmenni
er á eftirlaunum eða í vinnu sem
ríkið hefur útvegað þeim. Frá
árinu 1994 hefur dregið úr at-
vinnuleysi í Danmörku og reikna
hagfræðingar með að sú þróun
haldi áfram.
NÁMSKEIÐ Foreldar og aðrir sem
koma eitthvað nálægt börnum geta
haft gagn af því námskeiði sem Ís-
lensku menntasamtökin standa fyr-
ir á morgun. Á því talar bandarísk-
ur prófessor, dr. David Lassire, um
fjölgreind og dr. Bob Sanders, um
mikilvægi þess að setja sér mark-
mið í lífinu.
Að sögn Svövu Markar, aðstoðar-
konu framkvæmdastjóra Áslands-
skóla, er Lassire þekktur fyrir það
hversu vel honum gengur að færa
fræðin í aðgengilegt form þannig að
þau nýtist til kennslu til að mynda.
Fjölgreindarkenningin á rætur
sínar að rekja til Howards Gar-
dners sem taldi að skilgreiningin á
greind væri of þröng. Í stað hefð-
bundins skilnings sagði hann að
undir greind féllu málgreind, rök og
stærðfræðigreind, rýmisgreind, lík-
ams- og hreyfigreind, tónlistar-
greind, samskiptagreind, sjálfs-
þekkingargreind og umhverfis-
greind.
Auk námskeiðs fyrir foreldra
standa samtökin fyrir námskeiðum
fyrir kennara þessa dagana. Á
morgun hefst námskeið fyrir leik-
skólakennara. Íslensku menntasam-
tökin eru samtök áhugafólks um
menntun.
Einstaklingsbundið nám á nýrri öld:
Kenningar
færðar í kennslu
NÁMSKEIÐ Í ÁSLANDSSKÓLA
Hófust í gær og standa fram í næstu viku.
Námskeiðin eru opin öllum sem hafa
áhuga á menntun.
ERLENT
NORÐURLÖND
Fullorðið fólk
verra en unga
fólkið!
Starfsmaður á skemmtistað skrifar:
Eftir að ég las Bakþanka ÞráinsBertelssonar um „vitlausrar-
mannahelgina“, sem mér fannst
mjög góðir, varð ég að fá að bæta
aðeins við þá.
Alltaf heyrum við talað um
hvað unga fólkið sé nú slæmt, en
ég segi: Lítið í eigin barm! Ég hef
unnið á nokkrum veitinga- og
skemmtistöðum í gegnum tíðina
og ekki bara hér á landi. Nú vinn
ég á skemmtistað á höfuðborgar-
svæðinu og aldrei hef ég kynnst
annarri eins frekju, dónaskap eins
og um síðustu helgi, og ekki var
það unga fólkið sem var þar á
ferð. Það var „eldra“ fólkið, 40 ára
og eldra, sem lét mest í sér heyra.
Ég veit ekki hvort þessu fólki
finnist það vera komið á þann ald-
ur að það megi haga sér eins og
því sýnist eða hvort það sé bara
orðið það „þroskað“ að það sé búið
með sinn skammt af kurteisi!
Við á þessum skemmtistað
fengum að heyra ýmislegt
óskemmtilegt, margt svo ljótt að
ekki er hægt að skrifa það í frétta-
blað. Alltaf stóð „unga“ fólkið og
beið pollrólegt eftir afgreiðslu,
brosti sínu blíðasta og þá sérstak-
lega yfir öskrunum og látunum í
„eldra“ fólkinu. Vil ég nú spyrja
þetta fólk hvort það gangi inn í
troðfullan banka og ÖSKRI yfir
salinn: „ÉG VAR NÆSTUR!“
„GETURÐU EKKI AFGREITT
MIG UM BARA EINN HELV...
GÍRÓSEÐIL?!“ eða „ÉG ER BÚ-
INN AÐ BÍÐA Í HÁLFTÍMA.
GETURÐU EKKI VÉLRITAÐ
HRAÐAR HELV... *#*#*#*“
Hvergi í heiminum hef ég
kynnst svona yfirgangssemi og
frekju eins og í Íslendingum, fólk
bíður bara rólegt þangað til það
fær afgreiðslu - eins og „unga“
fólkið gerir. Er þetta fordæmið
sem við viljum gefa unga fólkinu?
Viljum við vera þekkt sem „dóna-
lega þjóðin“?!
Spáið aðeins í það næst þegar
þið farið á opinbera staði hvort
þið hagið ykkur eins þar og á
skemmtistöðum. Starfsfólkið á
skemmtistöðunum er líka fólk og
okkur sárnar við að fá úthúðanir
sem við eigum ekki skilið. Við höf-
um bara tvær hendur - eins og þið.
Sýnum tillitssemi, og brosum -
það getur gert kraftaverk!