Fréttablaðið - 09.08.2002, Page 11
11FÖSTUDAGUR 9. ágúst 2002
INNLENT
UPPGJÖR Í sex mánaða uppgjöri
Aco Tæknivals námu rekstrar-
tekjur félagsins 1.698 milljónum
króna. Það er verulega undir tekj-
um á sama tíma 2001. Á sama tíma
hefur launakostnaður lækkað um
165 milljónir króna og annar
rekstrarkostnaður um 160 millj-
ónir á þessu sex mánaða tímabili.
Gert er ráð fyrir að enn frekari
lækkun verði á rekstrarkostnaði á
þriðja og fjórða ársfjórðungi
þessa árs. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu.
Meginhluti endurskipulagning-
ar á rekstri félagsins fólst í því að
einfalda reksturinn og skýrist
verulegur hluti lækkunar rekstr-
artekna á því að félagið hefur lok-
að 3 verslunum, hætt sölu á
Heidelberg lausnum fyrir prent-
iðnað og sérhæfðum lausnum fyr-
ir sjónvarpsstöðvar. Þó svo að
rekstrartekjur hafi lækkað um
900 mkr. á milli ára þá er fram-
legð af vöru- og verksölu hærri
eða 530 milljónir í stað 500 millj-
óna króna á þessu tímabili.
Aco Tæknival:
Samdráttur
í vörusölu EFNAHAGSMÁL Þegar litið er á þró-un allra skráðra gjaldmiðla heims
frá áramótum kemur í ljós að ís-
lenska krónan hefur styrkst mest.
Í Fjármálafréttum SPRON kemur
fram að Norska krónan kemur
næst íslensku krónunni hvað
varðar styrkingu og hefur lækkað
um 3,5% gagnvart íslensku krón-
unni.
Íranski gjaldmiðillinn rial hef-
ur hins vegar lækkað mest eða um
tæp 80% gagnvart íslensku krón-
unni og argentínski pesóinn kem-
ur þar rétt á eftir, hefur lækkað
um 75%.
Styrking gjaldmiðla gagnvart evru:
Krónan styrkst mest
STYRKING / VEIKING GAGNVART EVRU
Mesta styrking Mesta veiking
Ísland (króna) + 10,27% Íran (rial) - 79,76%
Noregur (króna) + 6,05% Argentína (peso) - 74,30%
Indónesía (rúpía) + 5,12% Venesúela (bolivar) - 48,56%
Suður Afríka (rand) + 4,40% Urugay (peso) - 43,47%
Tékkland (koruna) + 3,11% Brasilía (real) - 31,02%
Botswna (pula) + 2,22% Kolumbía (peso) - 21,94%
Kýpur (pund) + 1,69% Tyrkland (libra) - 18,48%
Sviss (franki) + 1,27% Nígería (naira) - 16,46%
Japan (jen) + 0,13% Kosta ríka (colon) - 14,73%
Nýja Sjáland (dollar) + 0,04% Ísrael (shekel) - 14,31%
Félag sumarbúa í Súðavík hafaopnað nýja félagsmiðstöð í
bænum, en hún er staðsett í
gamla pósthúsinu, sem staðið
hefur autt frá því að ný þjónustu-
miðstöð Súðvíkinga var tekin í
notkun seint á síðasta ári. bb.is
Hreppsnefnd Rangárþingseystra hefur samþykkt að
flytja 5., 6. og 7. bekk grunnskóla
Austur-Landeyja í Hvolsskóla á
næsta skólaári. Tveimur skóla-
stofum verður bætt við skólann
til að leysa úr brýnni húsnæðis-
þörf hans. Ekki þarf að ráða
fleiri kennara við Hvolsskóla
vegna þessa. Dagskráin
Valnefnd mælir með því aðÞorvaldur Víðisson verði ráð-
inn prestur í Vestmannaeyjum í
stað Báru Friðriksdóttur, sem er
að láta af störfum. Biskup Ís-
lands, herra Karl Sigurbjörnsson,
kveður endanlega úr um það hver
valinn verður, en reyndin mun
vera sú hingað til að hann fari að
áliti valnefndar. eyjafrettir.is
Stjórn félags Þroskahjálpar áSuðurlandi styður kröfu Páls
Péturssonar um að skipt verði
um stjórnendur á Sólheimum í
Grímsnesi. Að mati stjórnarinnar
er það starf sem nú fer fram á
Sólheimum hvorki í anda upphaf-
legra markmiða Sólheima né unn-
ið með hagsmuni fatlaðra að leið-
arljósi. Dagskráin
ÍBÚAR Í HÆTTU
Íbúar í Austurríki girða hús sitt af til varnar
því að vatn flæði þangað inn.
Evrópa:
Mikil flóð
valda usla
VÍN, AUSTURRÍKI, AP Gífurleg flóð
hafa valdið usla í Austurríki eftir
miklar rigningar þar í landi und-
anfarna þrjá daga. Brýr og vegir
hafa skolast í burtu auk þess sem
fjöldi fólks hefur þurft að yfir-
gefa heimili sín. 350 austurrískir
hermenn, þúsundir slökkviliðs-
manna og hópur sjálfboðaliða frá
Rauða krossinum tóku þátt í
björgunaraðgerðum í gær. Á norð-
urhluta Ítalíu og í Lundúnum
lentu menn einnig í töluverðum
vandræðum vegna flóða. Spáð er
meiri rigningu víða í Evrópu á
næstu dögum.