Fréttablaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 12
12 9. ágúst 2002 FÖSTUDAGURFRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
GÖNGUGARPUR
Pólverjinn Robert Korzeniowski fagnar hér
sigri í 50 kílómetra göngu karla á Evrópu-
meistaramótinu í frjálsum íþróttum í
Munchen í Þýskalandi. Hann setti nýtt
heimsmet, 3:36:39 klukkustundir, en það
fæst þó ekki staðfest þar sem gönguleið-
irnar eru svo misjafnar.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.55 RÚV
Evrópumótið í frjálsum íþrótt-
um
18.30 Sýn
Íþróttir um allan heim
19.00 Hásteinsvöllur
Símadeild kvenna (ÍBV - Valur)
19.00 Stjörnuvöllur
Símadeild kvenna (Stjarnan -
FH)
19.00 KR-völlur
Símadeild kvenna (KR - Breiða-
blik)
19.00 íR-völlur
1. deild karla (ÍR - Haukar)
19.00 Skallagrímsvöllur
2. deild karla (Skallagrímur -
HK)
19.30 Sýn
Gillette-sportpakkinn
22.30 Sýn
Landsmótið í golfi
Flísar
- úti og inni -
Varanleg lausn
Verðdæmi:
30 x 30 kr. 1.450,- m2
- fyrsta flokkun
Gegnheilar útiflísar
á svalir, tröppur,
sólstofur og
jafnvel bílskúrinn.
Golf:
Um 40
manns náð
drauma-
högginu
GOLF Um 40 kylfingar hafa farið
holu í höggi hér á landi það sem af
er sumri. Þetta kemur fram á vef-
svæðinu golf.is. Þar kemur einnig
fram að fleiri hafi líklega náð
draumahögginu en einhver mis-
brestur er á að golfklúbbar til-
kynni það til Golfsambands Ís-
lands, þótt þeim beri skylda til
þess.
Á sunnudaginn kemur verður
Einherjamótið haldið á Keilisvell-
inum í Hafnarfirði. Mótið er ætlað
þeim sem hafa náð þeim einstaka
árangri að fara holu í höggi.
KSÍ Knattspyrnusamband Íslands,
KSÍ, hefur ákveðið að selja
áskriftarmiða á fjóra heimaleiki
A-landsliðs karla á Netinu. Miða-
salan hefst á morgun og stendur í
viku, til 17. ágúst. Leikirnir sem
um ræðir eru vináttuleikir við
Andorra, þann 21. ágúst, og Ung-
verja, þann 7. september svo og
Evrópuleikir við Skotland og Lit-
háen, 12. og 16. október.
Á Netinu verður einungis hægt
að kaupa miða á alla leikina fjóra.
Hægt er að velja um tvenns konar
miða. Miði 1 gildir í sæti fyrir
miðju vallarins og kostar sex þús-
und krónur. Miði 2 gildir í sæti út
við endamörk og kostar fjögur
þúsund krónur. Ef áhorfandi
kaupir miða á leikdag á alla leik-
ina fjóra kostar 10.500 í miðju
sæti en átta þúsund í önnur.
Á Netinu er einnig veittur 50%
afsláttur fyrir 16 ára og yngri.
Miðana er hægt að nálgast á
heimasíðunum ksi.is og esso.is.
MIÐASALAN KYNNT
Forsvarsmenn Knattspyrnusamband Íslands vonast til að geta boðið upp á áskrift á
heimaleiki landsliðanna á Netinu í komandi framtíð.
KSÍ með tilboð á heimaleiki:
Bjóða áskrift á Netinu
FÓTBOLTI Þrír leikir fara fram í
kvöld í tíundu umferð Síma-
deildar kvenna. Óhætt er að
segja að stórleikur umferðarinn-
ar verði í Frostaskjóli þar sem
heimastúlkur í KR fá Breiðablik
í heimsókn. Síðast þegar liðin
mættust í deildinni höfðu Vest-
urbæjarstúlkurnar betur og
unnu með þremur mörkum gegn
engu. KR-stúlkur eru efstar í
deildinni með 24 stig og hafa að-
eins fengið fjögur mörk á sig.
Breiðablik er í þriðja sæti,
þremur stigum á eftir KR. Hafi
Kópavogsstúlkur betur í kvöld
geta þær náð KR að stigum.
Í Vestmannaeyjum mætast
ÍBV og Valur. Hlíðarendastúlk-
urnar eru í öðru sæti deildarinn-
ar, með 22 stig. Þær hafa sýnt
frábæra knattspyrnu í sumar.
ÍBV-liðið er í fjórða sæti deildar-
innar og er komið með nýjan
þjálfara.
Þriðji og síðasti leikur kvölds-
ins verður á Stjörnuvelli þar
sem nágrannaliðið FH kemur í
heimsókn. Stjörnustúlkur eru í
fimmta sæti deildarinnar með
átta stig en þær hafnfirsku eru
stigi á eftir í næsta sæti fyrir
neðan. Allir leikirnir hefjast
klukkan 19.00.
Á ÆFINGU
Mikið mun mæða á KR-stúlkum í kvöld þegar þær fá Breiðablik í heimsókn. Kópavogs-
stúlkurnar verða að sigra í leiknum, ætli þær sér að berjast um titilinn.
10. umferð Símadeildar kvenna:
Stórleikur í kvöld
Viltu spara
Tíma og peninga
Láttu okkur um
járnin
Komdu með
teikningarnar
Við forvinnum
járnið lykkjur,
bita og súlur
Vottaðar mottur
5,6,7mm
550 3600
FRJÁLSAR Jón Arnar Magnússon,
frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki,
hafnaði í 4. sæti á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsum íþróttum
sem fram fer í Munchen í Þýska-
landi. Jón Arnar fékk 8.238 stig og
varð 52 stigum á eftir Rússanum
Lev Lobodin sem varð í þriðja
sæti.
Roman Sebrle frá Tékklandi
sigraði örugglega í keppninni,
með 8.800 stig
og í öðru sæti
varð Erki Nool
frá Eistlandi
með 8.438 stig.
Finninn Jaako
Ojaniemi varð í
fimmta sæti og
skammt á eftir
honum kom
Þ j ó ð v e r j i n n
Mike Maczey.
Eftir fyrri
dag keppninnar
var Jón Arnar í
fjórða sæti
k e p p n i n n a r,
með 4.334 stig.
Hann hljóp 110 metra grinda-
hlaup á 14,51 sekúndu, sem var
fyrsta keppnisgrein gærdagsins,
og varð fimmti í sínum riðli. Tím-
inn dugði honum til að halda
fjórða sæti í samanlagðri keppni.
Sebrle náði langbesta tímanum í
greininni, en hann hljóp á 14,04
sekúndum og Lobodin varð annar
á 14,25.
Næsta þraut var kringlukast.
Jón Arnar þeytti kringlunni 45,12
metra, sem var sjöundi besti ár-
angur keppenda. Lobodin náði
hins vegar besta kasti allra kepp-
enda, 48,93 metra. Í stangastökk-
skeppninni vippaði Jón Arnar sér
yfir 4,90 metra en felldi fimm
metrana þrisvar sinnum. Hann
hélt fjórða sætinu og var rúmum
150 stigum á eftir Lobodin í sam-
anlagðri keppni þegar tvær grein-
ar voru eftir. Lobodin stökk 5,20
metra í stangarstökkinu en Erki
Nool stökk hæst eða 5,30.
Í næstsíðustu greininni kastaði
Jón Arnar spjótinu 63,96 metra,
sem var fimmti besti árangurinn.
Sebrle kastaði lengst eða 68,51
metra. Jón Arnar náði sér ekki á
strik í síðustu greininni sem var
1.500 metra hlaup. Þar hafnaði
hann í 16. sæti á tímanum 4.59,95
mínútum. Finninn Jaakko Oj-
aniemi náði besta tímanum, en
hann hljóp á 4.31,93.
Jón Arnar varð
fjórði í tugþrautinni
Jón Arnar Magnússon stóð sig með ágætum á Evrópumeistaramótinu í Munchen. Hann fékk
8.238 stig og hafnaði í 4. sæti. Roman Sebrle sigraði með miklum yfirburðum.
MEISTARI Á FERÐ
Tékkinn Roman Sebrle leggur af stað í 110 metra grindarhlaup. Sebrle sigraði tugþrautarkeppnina á Evrópumeistaramótinu í Munchen
með miklum yfirburðum.
JÓN ARNAR
Jón Arnar náði sér
ekki á strik í síðustu
greininni sem var
1.500 metra hlaup.
Þar hafnaði hann í
16. sæti á tímanum
4.59,95 mínútum.
LOKASTAÐAN Í TUGÞRAUTINNI
Land Stig
1. Roman Sebrle TÉK 8.800
2. Erki Nool EIS 8.438
3. Lev Lobodin RÚS 8.390
4. Jón Arnar ÍSL 8.238
5. Jaakko Ojaniemi FIN 8.192
6. Mike Maczey ÞÝS 8.158
7. Laurent Hernu FRA 8.051
8. A Pogorelov RÚS 8.016
9. William Frullani ÍTA 7.863
10. Zsolt Kurtosi UNG 7.806
AP
M
YN
D