Fréttablaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 13
13FÖSTUDAGUR 9. ágúst 2002
FÓTBOLTI
STANGASTÖKK „Ég tel möguleika
Þóreyjar Eddu mjög góða. Ég
sagði fyrir mótið að hún ætti að
geta verið meðal átta efstu og ég
stend við það. Ef hún gerir það
er það framar öllum vonum,“
sagði Vésteinn Hafsteinsson,
landsliðsþjálfari í frjálsum
íþróttum, þegar Fréttablaðið
ræddi við hann í gær. Þórey
Edda keppir í úrslitum stanga-
stökkskeppninnar á Evrópu-
meistaramótinu í frjálsum
íþróttum sem fram fer í
München í Þýskalandi í dag
klukkan 18.00 að íslenskum
tíma. Fimmtán stúlkur eru í úr-
slitum. Þórey Edda tók léttar
hlaupaæfingar og teygði í gær.
Vésteinn segir hana vel stemmda
fyrir keppnina. Henni hafi geng-
ið vel á æfingum fyrir mótið.
Þórey Edda stökk yfir 4,30
metra á miðvikudag sem nægði
henni í úrslitin. Vala Flosadóttir
stökk hins vegar yfir 4,00 metra
og er úr leik. Vésteinn segir það
hafa verið mikil vonbrigði fyrir
Völu. „Það voru töluverð von-
brigði en hún er búin jafna sig á
því. Það þýðir ekkert að grenja
það. Það verður bara að vinna í
málunum og koma aftur.“
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Stangastökkskona úr Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. Hún hóf íþróttaferil sinn í fimleikum
hjá Björk.
Landsliðsþjálfarinn um Þórey Eddu:
Á góða möguleika
á átta efstu sætunum
Terry Venables, knattspyrnu-stjóri Leeds United, segir að
ensk lið eigi eftir að lenda í erfið-
leikum þegar leikmannamarkaður-
inn lokar í lok mánaðarins. Áður
gátu lið keypt leikmenn til áramóta
en nú hefur reglunum verið breytt.
Venables segir að margir knatt-
spyrnustjórar eigi eftir að leggjast
á bæn þegar meiðsli fara að hrjá
leikmenn. „Þeir verða að vera und-
irbúnir því að leikmenn geta
meiðst og nú er ekki hægt að
kaupa nýja leikmenn í staðinn,“
sagði Venables, sem eitt sinn þjálf-
aði á Spáni þar sem slíkar reglur
hafa verið í gildi. „Þeir halda að
hópurinn sé nógu stór en síðan á
annað eftir að koma í ljós.“
RÚSSNESKA
PARIÐ
Rússneska parið
sýnir hér listir
sínar á Ólympíu-
leikunum í Salt
Lake City. Franski
dómarinn lýsti
því yfir í fyrstu að
hann hefði verið
beittur þrýstingi
til að gefa þeim
hæstu einkunn.
Hann yfirlýsingu
sína til baka
stuttu síðar.
Alþjóðaskautasambandið:
Hunsaði
ekki sönn-
unargögn
SKAUTAR Alþjóðaskautasambandið,
ISU, neitar að hafa hunsað sönn-
unargögn sem varpa eiga ljósi á
að úrslitum í listdansi á skautum
hafi verið hagrætt á Ólympíuleik-
unum í Salt Lake City. Sambandið
segist aldrei hafa fengið raunsæj-
ar og trúverðugar sannanir sam-
kvæmt yfirlýsingu sem það sendi
frá sér. Skautaheimurinn hefur
orðið fyrir mikilli gagnrýni í kjöl-
far þess að franskur dómari við-
urkenndi að hafa verið beittur
þrýstingi til að gefa rússnesku
pari hæstu einkunn í listdansi.
Hann dró síðan yfirlýsingu sína til
baka stuttu síðar. Í síðustu viku
var rússneskur maður handtekinn
sem grunaður er um aðild að mál-
inu.
„Ólíkt yfirvöldum getur ISU
ekki byggt úrskurði sína á síma-
hlerunum, bréfum, tölvugögnum
eða tölvupósti,“ sagði talsmaður
skautasambandsins. „Sambandið
getur því ekki sakað meðlimi um
að hafa hagrætt úrslitum. Þar að
auki dró dómarinn yfirlýsingu
sína til baka.“
FÓTBOLTI Bosníska liðið NK
Zeljeznicar, sem lagði Íslands-
meistara Skagamanna og Lil-
leström að velli, mætir enska úr-
valsdeildarliðinu Newcastle í 3.
umferð forkeppni Meistaradeild-
ar Evrópu. Mörg stórlið eru í pott-
inum og nægir þar að nefna lið
eins og Manchester United,
Barcelona, Fenerbahce og Bayern
Munchen.
Flest stórliðanna eiga auðveld-
an leik fyrir höndum en stærsta
viðureignin verður líklega á milli
Fenerbahce og Feyernoord frá
Hollandi. Þó eru nokkrar áhuga-
verðar viðureignir eins og leikur
Sportin Lisbon frá Portúgal og
Inter Milan frá Ítalíu, Boavista og
Auxerre og Levski Sofia og Dyna-
mo Kiev.
Fyrstu leikirnir í þriðju um-
ferð forkeppninnar fara fram 13.
og 14. ágúst en seinni leikirnir 27.
og 28. ágúst
DAVID BECKHAM
Landsliðsfyrirliðið Eng-
lands og samherjar í Man.
Utd. þurfa að mæta Zala-
gerszegi í 3. umferð
Meistaradeildar Evrópu.
3. umferð forkeppni Meistaradeildar:
Zeljeznicar mætir Newcastle
Sporting Lisbon - Inter Milan
AC Milan - Slovan Liberec
Rosenborg - Brondby/Dinamo Tirana
Shakhtar Donetsk - Club Bruges
APOEL Nicosia - AEK Athens
Barcelona - Legia Warsaw
Levski Sofia - Dynamo Kiev
NK Zeljeznicar - Newcastle
Partizan Belgrade - Bayern Munich
Genk - Sparta Prague
Maccabi Haifa - Sturm Graz
Celtic - Basel
Feyenoord - Fenerbahce
Zalaegerszegi - Manchester United
Boavista - Auxerre
Lokomotiv Moscow - AK Graz
HLAUP „Ég er búinn að hlaupa svo-
lítið mikið í sumar en ætli ég
hlaupi ekki heilt maraþon á laug-
ardaginn eftir viku,“ segir Trausti
Valdimarsson, læknir sem ætlar
að taka þátt í Reykjavíkurmara-
þoninu þann 17. ágúst næst kom-
andi. Trausti hefur verið iðinn við
kolann í sumar og hefur m.a. tek-
ið þátt í Laugavegshlaupinu,
Barðsneshlaupinu og í sjálfu
Boston-maraþoninu, sem er eitt
frægasta maraþonhlaup heims.
„Ég reykti eins og var í tísku
þegar ég var ungur. Byrjaði að
reykja þegar ég var þrettán ára
og reykti pakka á dag þar til ég
var orðinn 28 ára. Þá fór ég að fá
meira og meira samviskubit yfir
reykingunum þegar maður sá alla
sjúklingana sem voru með ónýt
lungu og æðar,“ segir Trausti um
upphaf hlaupaferil síns. Hann
hætti að reykja þegar hann bjó í
Svíþjóð enda var bannað að reyk-
ja á sjúkrahúsinu sem hann vann
á. Þá tók hann þátt í almennings-
hlaupi ásamt tíu ára gömlum syni
sínum og átti erfitt með að halda í
við hann í smá brekku. „Þá ákvað
ég að gera eitthvað í þessu og not-
aði hlaupin til að hætta að reykja.
Maður verður að fá eitthvað í
staðinn og fær útrás í leiðinni. Það
er líka voða erfitt að reykja á
meðan maður hleypur.“ Trausti
segir hlaupin einnig duga vel
gegn stressi, kvíða og svefntrufl-
unum og þau hafi komið í veg fyr-
ir þyngdaraukningu eftir að hann
hætti að reykja.
Trausti hljóp hálft maraþon
árið 1988 og heilt í Stokkhólmi
tveimur árum seinna. Maraþon-
hlaupin er nú orðin 32 talsins.
Hann segir fyrsta maraþonið hafa
verið erfiðast. „Þetta var svo
langt að hlaupa og ótrúlegt að
hlaupa í heilan klukkutíma án
þess að stoppa.“ Hann segir eftir-
köstin hafa verið mikil. „Það var
sárt. Það er erfitt að labba niður
stiga vikuna á eftir. Sumir ganga
aftur á bak niður stigann því það
er skárra. En það fylgir þessu og
þegar maður kemst í betra form
er maður fljótari að jafna sig.“
Trausti ráðleggur fólki sem
ætlar að hlaupa í Reykjavíkur-
maraþoninu að fara ekki of geyst
af stað. „Fólk verður að setja
markmiðið passlega hátt, byrja
t.d. í styttri vegalengdum.“
kristjan@frettabladid.is
HLAUPAFÍKILLINN
Eftir fyrstu maraþonhlaupin vildi Trausti Valdimarsson, læknir, setja markið hærra; hlaupa
lengra og bæta tíma sinn. „Maður veit samt aldrei hvað toppurinn er hár því ég er enn að
reyna að bæta mig, kominn á þennan ‘aldur’,“ segir Trausti en hann verður 45 ára á
þessu ári.
Hlaupafíknin tók
við af nikótíninu
Nú er rétt rúm vika í Reykjavíkurmaraþonið. Trausti Valdimarsson, læknir, ætlar
að taka þátt í hlaupinu en þetta verður 33 maraþonhlaupið hans. Hann segir fyrsta
hlaupið hafa verið erfiðast og ráðleggur fólki að setja sér raunhæf markmið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T