Fréttablaðið - 09.08.2002, Page 24
Ífréttum hefur það komið fram aðáhugamenn um fjallaferðir vilji
snarlega flytja inn lamadýr frá
Suðurameríku að nota sem burðar-
dýr enda eru lamadýrin þaulvön
fjallaklifri og mun léttari heldur en
íslenski hesturinn sem á til að skilja
eftir sig ósmekkleg hófför á hálend-
inu og jafnvel taðköggla líka. Og á
Reykjanesi vilja menn virkja tófur í
baráttunni við sílamáfinn - og miklu
væri nú refurinn hæfari í þeirri bar-
áttu ef hægt væri að rækta eða
græða á hann vængi.
HÚSVÍKINGAR hafa sýnt þann
þingeyska framfarahug að vilja flyt-
ja inn krókódíla en á þeim hefur
verið sorglega mikill skortur í lífríki
landsins til þessa og Hvergerðingar
hafa lengi talað um strútarækt þótt
sú nýsköpun í atvinnulífinu hafi lát-
ið á sér standa. Reykvíkingar ættu
því að sjá sér leik á borði og flytja
inn nokkra skipsfarma af fallegum
dýrum svo að hægt sé að sýna skóla-
börnum og ferðamönnum dádýr,
úlfa, elgsdýr, gaupur og jafnvel fíla
og gíraffa og górillur í Heiðmörk og
Öskjuhlíð og jafnvel líka í skógi-
vöxnum kirkjugörðunum. Svo er
þess að gæta að skógrækt hefur
fleygt svo fram á undanförnum
árum að fyllilega er tímabært að
fara að huga að því að flytja inn
skógarbirni og gjarna einhverjar
liprar apategundir til að sveifla sér
milli greina.
HÚSDÝRAEIGENDUR þyrftu
líka að víkka tiltölulega þröngan
sjóndeildarhring sinn og koma sér
upp eiturslöngum, tígrisdýrum eða
rostungum í staðinn fyrir alla þessa
þunglyndu hunda og ketti og ham-
stra. Margar fleiri dýrategundir
gætu hentað vel til afþreyingar inni
á einkaheimilum eða til útigangs í
náttúrunni. Einnig mætti fara að
huga að því að flytja inn fleiri fisk-
tegundir og reyna að ala þær á þeim
landssvæðum sem Landsvirkjun er
sem óðast að breyta í uppistöðulón.
ÞAÐ er óneitanlega leiðinlega
heimóttarlegt svar sem við Íslend-
ingar þurfum að gefa þegar einhver
spyr um hvaða villt dýr finnist á Ís-
landi: Hagamýs, rottur, minkurinn
og tófan og fáein hreindýr og nokkr-
ar kanínur í Fossvoginum. Hjá öðr-
um þjóðum eru risavaxnir dýragarð-
ar. Íslendingar hafa aðeins eitt villi-
dýr á fóðrum. Keikó er einmana.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
STEFANO
snúningsstóll
8.400kr.
MAGIKER
skrifborð birki/hvítt
15.900kr.
Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30
Laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Sunnudaga kl. 12:00 - 17:00
OPIÐ
...og dæmið gengur upp
TERTIAL/MAGNESIT
vinnuljós
1.950kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
KE
18
38
1
0
8/
20
02
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Fauna
Íslands
KOSTAR MINNA