Tíminn - 08.06.1971, Síða 2
14
T
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 1971
,,, .
•^-••••. •:•
Myrxíimar ero frá kappróSrl i Naothólsvík, og af heiðursmerkjaafhendlnsru þar.
(Timamynd GE)
Hátíðahöld sjómanna-
dagsins í Reykjavík
á ísafirði og á
Ólafsfirði
FB-Reykjavík, mánudag.
Hátíðahöld sjómannadagsins í
Reykjavík fóru fram í Nauthóls-
vík. Var þar margt fólk saman-
komið. Sjómannadagurinn heiðr-
aði þrjá sjómenn og eina konu að
þessu sinni. Voru það Axel Sig-
urðsson matsveinn. Hann var ekki
viðstaddur og tók sonur hans við
heiðursmerkinu. Þá heiðraði Sjó-
mannadagurinn Pétur Einarsson,
og tók kona hans, Bamey Krist-
jánsdóttir við heiðursmerkinu. Að
lokum heiðraði Sjómannadagurinn
Þorvald Ámason, en hann var eini
sjómaðurinn, sem viðstaddur var
heiðursmerkjaafhendinguna. Að
lokum heiðraði Sjómannadagur-
inn í fyrsta sinn konu, fyrir störf
hennar í þágu sjómannastéttarinn
ar. Hlaut Gróa Pétursdóttir gull-
kross Sjómannadagsins. Þá hlaut
Benedikt Benediktsson verðlaun
fyrir björgunarstörf.
Hátíðahöldin á ísafirði fóru
fram í bátahöfninni. Kristján
Kristjánsson, skipstjóri stjórnaði
samkomunni. Þrír sjómenn voru
heiðraðir þar á sjómannadaginn,
Ásberg Kristjánsson, skipstjóri,
Friðberg Gíslason, matsveinn, og
Helgi Þorleifsson, vélstjóri. Hall-
dór Hermannsson flutti ávarp í
tilefni dagsins. Keppt var í beit-
ingu, splæsingu, sundi, róðri og
handbolta.
BS-Ólafsfirði, mánudag.
Sjómannadagurinn var hátíðleg
ur haldinn hér í gær að venju.
Raunar byrjuðu hátíðahöldin á
laiigardaginn kl. 5 s.d. í blíðskapar
veðri með kappróðri milli skips-
hafna af Sigurbjörgu og Sæþór,
sveit trillumanna og sveita vél-
smiðjunnar Nonna h.f. Sveit
Nonna náði beztum tíma, réri vega
lengdina á 1,2 mín., önnur varð
sveit trillumanna á 1,25 mín. Þá
tóku tvær sveitir kvenna frá hrað
frystihúsunum þátt í kappróðrin-
um. Sigraði sveit hraðfrystihúss
Magnúsar Gamalíelssonar.
Snemma á sunnudagsmorgun
var höfnin og allur bærinn fánum
skrýddur. Kl. 1,30 söfnuðust sjó-
menn saman við höfnina og fóru
í hópgöngu til kirkju. Þar lagði
lítil stúlka í íslenzkum búningi,
blómsveig að minnisvarða drukkn
aðra sjómanna. En Lúðrasveit
drengja lék, undir stjórn Magnús-
ar Magnússonar, söngstjóra. Að
því búnu var haldið áfram suður
að sundlaug, en þar fóru aðal-
hátíðahöldin fram.
Ásgeir Ásgeirsson setti hátíð-
ina moð ávarpi en Bjöm Dúason
flutti ræðu dagsins. Þá var keppt
í stakkasundi. Sigurvegari varð
Björn Blöndal, og í björgunar-
sundi^ sigraði Hafsteinn Sæmunds
son. í samanlögðum þessum sund
greinum fékk Hafsteinn hæstan
stigafjölda og hlaut því Alfreðs-
stöngina að þesssu sinni. Og lok-
um kepptu Old boys og Rauð-
sokkur í knattspymu á grasflöt-
inni við laugina, við mikla hrifn
ingu áhorfenda, Þeir fyrrnefndu
gengu með sigur af hólmi. —
Kl. 6 sd. fór fram knattspyrna
á vellinum milli landmanna og
sjómanna. Landmenn unnu leik-
inn með þremur mörkum gegn
einu.
Klukkan 10 um kvöldið hófst
dansleikur í félagsheimilinu Tjara
arborg. Var dansað bar af miklu
fjöri til kl. 2 um nóttina. Verð-
launaafhending til sigurvegara
dagsins fór fram á dansinum.
Formaður sjómannadagsnefnd-
ar var Gylfi Jóhannsson, sjómað-
ur.
Talið verður í öllum kjördæmum á mánudagsiU
Flugvélar notaðar til að safna saman kjörgögnum í 4 kjördæmum
ET-Reykjavík, mánudag.
Fyrirhugað er að talning atkvæða
í komandi alþingiskosningum
hefjist hvarvetna á mánudagsnótt
í Vestfjarðafjördæmi, Norður-
landskjördæmi eystra, Austur-
landskjördæmi og Suðurlandskjör
dæmi ræður flugveður því, hvort
talning hefst um nóttina eða
ekki, þar eð flugvélar verða not-
aðar í þessum kjördæmum til að
safna saman kjörgögnum. Þessar
upplýsingar komu m.a. fram í við
tölum, er Tíminn átti við formenn
yfirkjörstjórna í dag.
Reykjavík
Talning atkvæða f Reykjavík
hefst strax að loknum kjör-
fundi eða upp úr kl. 11 á sunnu-
dagskvöld. Talið verður í Austur
bæjarskólanum, eins og undan-
farin ár. Flokkun atkvæða hefst
líklega um kl. 7 á sunnudag, fyrir
luktum dyrum og ættu því fyrstu
atkvæðatölur úr Reykjavík að
berast mjög fljótlega upp úr kl. 11
á sunnudagskvöld. Þess má geta,
að breyttir atkvæðaseðlar, þar
sem nöfn eru strikuð út eða röð
nafna breytt, og utankjörfunda-
atkvæði, verða talin á eftir óbreytt
um seðlum, eins og í siðustu borg
arst j órnarkosningum.
Rcykjanes
Talning í Reykjaneskjördæmi
hefst líklega á milli kl. 1 og 2
á mánudagsnótt. Nokkurn tíma
tekur að koma kjörgögnum frá
fjarlægustu stöðum í kjördæminu
til Hafnarfjarðar, þar sem talið
verður f Góðtemplarahúsinu.
Fyrstu tölur úr Reykjanesi ættu
að birtast fljótlega eftir að talning
hefst, en búizt er við að talningu
ljúki þar um kl. 5—6 um nóttina.
Vesturland
Þar hefst talning líklega ekki
fyra en kl. 4 á mánudagsnótt, en
um 2% tíma tekur að koma kjör-
gögnum frá Saurbæ og af utan-
verðu Snæfellsnesi til Borgarness,
þar sem talið verður. Fyrstu töl-
ur úr Vesturlandi ættu þá að
birtast um kl. 4 á mánudagnótt.
Vestfirðir
í Vestfjarðakjördæmi verður
talið f samkomuhúsinu á ísafirði.
Flugvél verður fengin til að sækja
kjörgögn á Patreksfirði, Hólma-
vík og Króksfjarðarnesi, og flytja
þau til ísafjarðar, Ef sæmilegt
flugveður ver^ður á kjördag á Vest
fjörðum gæti talning líklega hafizt
milli kl. 3 og 4 á mánudagsnótt
og fyrstu tölur yrðu þá birtar
fljótlega eftir að talning hæfist.
Norðurland vestra
í Norðurlandskjördæmi vestra
hefst talning um leið og öll kjör-
gögn úr kjördæminu hafa borizt
til Sauðárkróks, þar sem talið
verður f samkomuhúsinu Bifröst.
Um tveggja tíma akstur er frá
Siglufirði til Sauðárkróks, þannig
að búast má við að talning at-
kvæða í Norðurlandi vestra byrji
upp úr kl. 4 á mánudagsnótt og
verða fyrstu tölur birtar fljótlega
eftir það.
Norðurland eystra
Þar er ætlunin að nota flug-
vjl við flutning á kjörgögnum
frá fjarlægustu stöðum í kjördæm-
inu til Akureyrar, þar sem talið
verður í Oddeyrarskólanum. Ef
flugveður bregzt verður að flytja
kjörgögnin m ð bifreiðum og tek
ur það langan tíma, t.d. 5 klst.
frá Þórshöfn, fjarlægasta staðn-
um. Talning hefst kl. 3—4 á mánu
dagsnótt, ef flugveður gefst, ann-
ars dregst það fram undir morgun.
Fyrstu tölur úr Norðurlandi
eystra birtast mjög fljótlega eftir
að talning hefst.
Austurland
í Austurl' .dskjördæmi verður
talið í samkomuhúsinu Herðu-
breið, Seyðisfirði. Þar er gert ráð
fyrir að flugvél safni kjörgögnum
frá fjarlægustu stöðunum og
flytji til Seyðisfjarðar. Verði flug
veður á mánudagsnótt fyrir aust
an, ætti talning að hefjast ekk;
Framhald á bls. 10.
AUÐVELD
UPPSETTNING
ÓTAL
MÖGULEIKAR
GRÁ eða SVÖRT
BURÐARJÁRN
VERZLANIR - TRÉSMIÐJUR
Eigum ávallt fyrirliggjandi BURÐARJÁRN, VÍRKNEKTI og aðra
FYLGIHLUTI fyrir PIRA-HÚSGÖGN.
Tökum að okkur alls konar nýsmíði úr stálprófilum, sem
jafnan eru fyrirliggjandi.
PÍKA-HÚSGÖGN eru bezta lausnin.
Fást í flestum húsgagnaverzlunum.
PÍRA-HÚSGÖGN HF., Laugavegl 178 (Bolholtsmegln) box 5230 sími 312Í0.