Tíminn - 08.06.1971, Blaðsíða 6
18
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 1971
11
Útfærsla fiskveiðilög
sögunnar lifsspursmál
fyrir okkur
Rætt við Friðrik Vilhjálmsson, forstjóra
netagerðarinnar á Neskaupstað
U
Eina netagerðin á Neskaup-
stað er Netagerð Friðriks Vil-
hjálmarssonar h.f. Þar starfa 10-
15 manns og veitir netagerð
in þjónustu bátum frá Nes-
kaupstað og víðar af Austfjörð
um. Friðrik Vilhjálmsson er
forstjóri netagerðarinnar og
hafði Tíminn tal af honum fyr
ir skömmu.
— Hvert er álit þitt á land-
helgismálinu, Friðrik?
— Útfærsla fiskveiðilögsóg
unnar er algert lifsspursmál
fyrir okkur íslendinga. Við
Friðrlk Vilhjálmsson
X*gK»WSía . f <• í « .. ' ígg
þurfum að færa fiskveiðimörk-
in út í 50 sjómílur og gera
það sem fyrst. Ég held, að all-
ir hér fyrir austan séu sam-
mála um það.
— Hvemig er atvinnuástand
ið í Neskaupstað núna?
— Atvinnuástandið hefur
verið ágætt í vetur. Aflinn hef
ur verið sæmilegur, m.a. hefur
eini skuttogarinn, sem héðan
er gerður út, veitt vel. Það
hafa aðeins tveir bátar héðan
verið á netaveiðum nú í vetur,
hinir hafa bæði reynt fyrir sér
með þorsknót og troll, en
gengið misjafnlega.
— Er nóg að gera hjá ykk-
ur í netagerðinni?
— Við höfum haft nóg að
gera upp á síðkastið við að búa
bátana á troll, gera við veiðar
færi o.þ.h. Afkoma netagerðar
irnar er ágæt nú, sé nóg
að gera.
— Er eitthvað nýtt á döf-
inni í atvinnumálum Norðfirð-
inga?
— Það er þá helzt skuttog-
araútgerðin, sem hefur gengið
vel, eins og ég sagði áðan.
Menn fara nú að búa bátana
á veiðar í Norðursjónum, en
hvergu lengi þeir verða þar, er
ómögulegt að segja, það fer
allt eftir aflabrögðunum. Ann
ars er ekkert sérstakt að frétta
héðan frá Neskaupstað, það er
einna helzt sú aukna ásókn er-
lendra togara, sem við höfum
orðið varir við upp á síðkast-
ið, og sýnir, að aðgerðir í land
helgismálinu þola litla sem
enga bið. — E.T.
Sveinn Sveinbjörnsson, NK, 55, við bryggju á Neskaupsstað
„REKSTUR UTGERDARINNAR
ORDINN MJÖG DÍR“
Rætt við Sveinbjörn Sveinsson, útgerðarmann á Neskaupstað
Frá Neskaupstað eru gerðir
út fjórir stórir bátar. Einn
þeirra er Sveinn Sveinbjörns-
son, nýlegur 250 tonna stálbát-
ur, en aðaleigandi hans er
Sveinbjörn Sveinsson, útgerð-
armaður. Tíminn átti viðtal við
Sveinbjöm fyrir nokkrum dög
um.
— Fyrst, Sveinbjörn, hver
er afstaða þín í'landhelgismál-
inu?
— Mér finnst það aðkall-
andi, að eitthvað verði gert í
því máli fyrr en seinna. Það
er álit okkar • Austfirðinga, a.
m.k. okkar flestra hér við sjáv
arsíðuna.
' .;XV"-.v í.
Netagerð Frlðrlks Vilhjálmssonar, Neskaupstað.
— Það er þá þitt álit, að
okkur beri að segja upp samn
ingnum við Breta og Þjóðverja
frá 1961, náist ekki samkomu-
lag við þessar þjóðir um út-
færslu fiskveiðilögsögunnar í
50 mílur?
— Já, hiklaust. Ég tel okk-
ur ekki buhdna þéim samningi
von úr viti, hann hlýtur að
verá uppsegjanleáuí-, eins og
aðrir samningar.
— Hefur atvinnuástandið
verið gott hjá ykkur í vetur?
— Það hefur verið nóg að
gera hér á Neskaupstað. Ég
held, að enginn hafi verið at-
vinnulaus hér á staðnum eftir
að einhver afli fór að berast
á land. Atvinnan byggist nær
eingöngu á aflanum, sé hann
sæmilegur, er atvinnuástandið
gott.
Hvernig hafa aflabrögðin
verið í vetur?
— Það hefur verið fremur
tregur afli, það er nú ekki
hægt að segja annað. Þorskafl-
inn hefur verið mun minni en
venjulega. Þó hefur skuttogar-
inn fiskað sæmilega, en fiskur
inn er yfirleitt mjög smár.
Netaveiðin hefnr hins vegar
gengið verr en oft áður. Bátur-
inn er búinn a@ fá um 700
tonn og þykir gott miðað við
þennan tíma, því við byrjuð-
um seint. Hinir Norðfjarðar-
bátarnir hafa verið á loðnu í
vetur, en eftir að loðnuvertíð-
inni lauk, hafa þeir reynt fyr-
ir sér með þorsknót með litl-
um árangri. A.m.k. tveir bátar
héðan eru nú komnir á troll,
þ.e. þeir Birtingur og Börkur.
— Hvað ætlast þú fyrir með
bátinn, þegar vesrtíðinni lýkur?
— Hann verður eitthvað
Sveinbjörn Svelnsson
áfram á netum, en svo er mein
ingin að halda í Norðursjóinn.
Héðan frá Neskaupstað fara
lklega fjórir bátar til veiða
þangað.
— Hvemig er hagur útgerð-
arinnar í dag?
— Hagur hennar fer náttúr-
lega eftir aflanum. Þegar lítið
fæst, er erfitt um vik, því það
er orðið svo dýrt að reka þessa
stóru báta. Olían er t.d. orðin
mjög dýr, eins og reyndar allt,
sem þarf til útgerðarinnar.
Með þessum orðiun sláum
við botninn í viðtalið, og ósk-
um Sveinbirni og öðrum út-
gerðar- og sjómönnum á Aust-
fjörðum góðs gengis í framtíð-
inni. ET.
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Á fimmtudag verður dregið í 6. flokki.
4.400 vinningar að fjárhæð 15.200.000 krónur.
Á morgun er síðasti heili endurnýjunardagurinn.
______ Bappdrmtti Máskðia islands
6. FLOKKUR
4 á 500.000 kr. 2.000.000 kr.
4 . 100.000 — 400.000 —
260 - 10.000 —
624 - 5.000 —
3.500 - 2.000 —
Aukavinningar:
8 á 10.000 kr.
4.400
2.600.000 —
3.120.000 —
7.000.000 —
80.000 kr
15.200.000 kr.