Tíminn - 08.06.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.06.1971, Blaðsíða 7
ÞRBDJUDAGUR 3 . júní 1971 19 Sovézk sannvi n n Um fáa er nú meiíra rætt og ritað en sovézka míibelsskáldið Solsjenitsyn. Segja má, að hann. sé á hvers manns vörum að n^fninu til. En hins vegar vita', fáir, nóg um kenningar hans. og lífsskoð- un. Hann virðist eicm af þeim, sem hefur fundið j ið kommún- isminn flaggar í ra un og veru með kjama kristim is dóms, en afneitar krafti ham s. Kommún- isminn kann Faðir vor, ef svo mætti segja, en hr ifur í fram- kvæmd foringja si:s ina snúið því upp á djöfulinn c< i skapar nú mörgum heitasta helvíti þar sem átti að búa ci llum himna- ríki. Alexander Solsjfl initsyn minn- ir að mörgu leyti i á Pál postula í sambandi við san ítíð sína. Báðir eru þeiK bæði dáðir og ofsóttir í senn. Báðir viður- kenndir snillingai ■ í hugsun og ritun. Báðir eru J >eir löghlýðn- ir þegnar sínu mj kla og sterka samfélagi, en láj .a þó hvorki binda fyrir aug'a sér né loka munni sínum. Bá ðir setja þeir sannleika og frsilsi öllu ofar, þótt þeir dái þjóðskipalagið að vissu marki. (Og báðir kjósa þeir fremur að gista fangelsi og þola nauð en lað afneita rödd samvizku sinnarr,. Og báðir setja þeir hið innra i ’relsi öllu öðru ofar, og geta 'þiví auðveldlega sett fangann í f j lötrum ofar ein- valda á veldista óni og þannig talið einvaldan n aumkunnar- verðan í allri sii rni magt og öllu sínu veldi en öfundað þann, sem aldrei afnc; itar sjálfum sér, þótt í f jötrun íi itji. Það er þesijli skoðun Solsje- nisyn á frelsi'shugsjóninni, sem gerir hann í s ginnleika svo krist inn mann í orðsins fegurstu merkingu, þcit t hann geri ekki mikið úr helg1 isiðum kirkjunn- ar og átelji li ana fyrir hræsni og hálfvelgju, mæti henni mik- illi gagnrýni. Það er ekkE hinn formbundni, kirkjulegi ki istindómur, sem færir hjarta" mannsins og hug næst Guði, 1 íeldur hin frjálsa hugsun, sem þráir sannleika og ann fegurð q g réttlæti. Það er sú hugsun, sú þrá, sem skapar „frelsissporiJ5 upp á viö." Þar er hin blóðujia braut hetjunnar, sem aldrei Síefst ”.do né lætur harðstjórn og ofsóknir hindra för sína, né binda samvizku sína. Söguhetjur Solsjenitsyn vinna þannig sigra yfir eftirlitsmönn- um og vörðum í fangelsunum. Og þótt þessir sigrar auki refs- inguna og virðist því verka öf- ugt, þá eru þeir samt ekki áhrifalausir. Veslings embættismennirnir í Rússlandi á valdatíma Stalins voru svo sannarlega ekki öfunds verðir fremur en Pílatus forð- um. Og barðist ekki einvaldinn sjálfur áfram, trylltur stöðugri brjálæðisangist méð djúp hel- vítis opið gínandi við fætur eða öllu heldur sálarsjón? Og þetta víti hafði hans eig- in valdafíkn sjálfselska skapað honum fet fyrir fet unz ekki varð snúið við fremur, heldur bætt glæpum á glæpi ofan, svo að engin líkn fékkst þeirra fjötra, sem hann hafði á sjálf- an sig lagt. „Þannig fer hverjum þeim, sem svíkur sjálfan sig og breyt ir móti betri vitund,“ mætti telja kjamann í kristinni lífs- skoðun Solsjenitsyns. En þarna skilur alveg með þessum annars ágæta aðdá- anda kommúnistískt skipulags og hinum eiginlega marxisma. En þeirri lffsskoðun eða stjórnmálastefnu er einstakling ur aðeins brot heildar líkt og dropi í hafinu og skiptir litlu um illt og gott, og því má gjarnan fóma einstaklingnum hvenær sem er á altari múgs- ins. Þar stangast á við hina kristnu lífsskoðun sem telur eina mannssál æðri öllu og ein staklinginn heilagan, og birt- ist varla betur í fáum orðum en ljóðlína skáldsins íslenzka, sem virti fyrir sér veldi foss- ins og sagði: „þó af þínum skalla þessi dynji sjár, finnst mér meira, ef falla fáei. ungbarnstár.“ Þessi boðskapur um tign og helgi einstaklings er undirtónn í flestum sögum Solsjenitsyns, segja þeir, sem bezt hafa rann- sakað rit hans. TÍMINN Solsjenitsyn Samt þykir þetta koma bezt í ljós í þv£ verki hans, sem nú á að fara að kvikmynda og heitir: „í yzta hringnum.“ En nafnið og aðstaðan mun vera hliðstæð við atriði og að- stöðu í einu mesta skáldverki kirkjunnar „Hinum guðdóm- lega gamanleik“ eftir Dante. En þar er forgarður helvít- is nefndur „yzti hringur“, en þar voru þeir, sem tilheyrðu ekki almennilega lögunum sjálf um, óskírð íböm,"eða'börn sem.i höfðu dáið óskírð og heiðingj- ar, sem náð höfðu mikilli full- komnun og gátu þvf talizt býsna fullkomnir og kirkjan hefur alla tíð verið f vandræð- um með f fordæmingarkenn- ingum sínum, svo fjarstæðar sem þær eru anda kristins dóms og ósamrýmanlegar kenn ingunni um algóðan Guð og elsku Krists. Hegningin, sem lögð var á þá, sem voru í yzta hringnum var í raun og veru ekki önnur en sú að áskapa þeim brenn- andi þrá og eilífa leit og löng- un eftir sannleika og réttlæti. Þetta verður Solsjenitsyn að symboli-tákni þess, sem er að gerast innan gaddavírs — og jafnvel utan gaddavírsgirðinga Sovétríkja nútímans. Meðal söguhetja hans úr þessum „yzta hring“ mætum við einum eftir annan, sem verða að velja, hvort þeir eigi að lifa eftir skipun yfirvalda hverju sinni í einu og öllu, eða hlýða rödd sinnar eigin samvizku, raust og kölluð Guðs í sinni eigin sál. Velji þeir hið síðara getur ástand þeirra og aðstaða, sem er raunar þolanleg, orðið verri jafnvel þjáning. En samt velja þeir allir síðari kostinn og taka örlögum sínum af mikilli hugró og hjartafriði, sem ger- Ír þá ósigranlega,-svoiað þeir tu sagt svipað Páli. postula í fjötrun og fangelsi Rómverja forðum: „Lítið á fjötra mína, samt er ég frjálsari hinum frjálsa og fagna þeim frá vissu sjónarmiði.“ Það ættu sem flestir að kynna sér þessa hákristnu, hetjulegu lífsskoðun Solsjenit- syns hins fræga nóbelsskálds nútímans í Rússlandi. Samvizkufrelsi hans er sem fuglinn Fönix, er flýgur úr eld inum. Það ljómar af vængjum hans til yztu endimarka verald- ar. Ennþá hafa Rússar, þrátt fyr- ir allt eignazt eitt þessara stóru nafna í menningarsögu kristins dóms, líkt og Leó Tolstoj og Dostojevsky, sem dáðu Krist öllu meira, þótt þeir fyndu hann ekki allan í kirkjunni. Árelíus Níelsson. Auglýsið í Tímanum SVO MIKLU EETR5 I o a o W STÆRRI BETUR RÚLLAÐUR MILDUR HAVANNA HIRSCHSPRUNC Sólun HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR |B ánjómunstur veitir góða spyrnu w í snjó og hóllcu,. önnumst allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarðg. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. - Sími 30501. —Reykjavík.,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.